Tíminn Sunnudagsblað - 01.11.1970, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 01.11.1970, Blaðsíða 2
A ýmsum nótum „Allt, „Vísið mér á , fjall svo hátt, sem eg ag ^ Sj^j Uim VÍI . . . " jörð alla, og fáið mér svo öflugan . hátal- ara, að enginn geti komizt hjá því að heyra raust mína. Það er allt, sem ég þarf, og lítið er það, sem ég fer fram á: Eins og allir aðrir vil ég frið og sátt, svo að ég geti farið út úr þess- um skógi, gengið út á veginn, snúið til borgarinnar og tekið upp þráðinn, þar sem ég varð frá að hverfa. Þetta er hróp mitt: Við skulum snúa við, snúa við . . “ Þannig komst sænski rithöf- undurinn Bengt Anderberg að orði í bók sinni, Kain, fyrir meira en tveim áratugum, þeg- ar stjórnmálamenn og hers- höfðingjar veraldarinnar sátu við seiðkatlana að magna kalda stríðið og erja jarðveginn fyrir Kóreustyrjöldina og skiptingu veraldarinnar með hatur og hleypidóma að landamærum. Þeir, sem þráðu frið á jörðu, komust ekki upp á fjallið sitt, og hátalarinn mikli var í hönd um hinna, sem töluðu raust fall byssunnar og helsprengjunnar. En skáld hefur sagt, að nætur galinn hrósi ætíð sigri á öllum vígstöðvum. í veröldinni er enn ung kynslóð, sem syngur: „Allt sem ég vil, er friður á jörð“. Drýpur blóð í sögubókum er , , . ljóma varpað á af nverjum ejns 0g fingri Napóleon, Gúst af Adólf, Vikt- oríu drottningu, Bismark. En ferill þess er blóð ugur, og hver þefckir þá ómælis kvöl, sem spunnin er í hvern þráð þeirrar gullnu skiklkju, er yfir það hefur verið lögð? Við ættum að temja okfcur að sjá það gegn um blóðið og tárin, sem fylltu spor þess. Til hvers voru herfarir Napóleons? hverj- ir urðu ávextirnir af landvinn- ingum Bismarks? Englemdingar voru að vísu sigursælli til meiri langframa í ránskap sínum í fjarlægum heimsálfum. Þar var sem sé á þá lagzt, er litlum vörnum fengu við komið. En hvernig verður sagan um brezka heimsveldið og nýlendudrottna þess, þegar hún verður færð í letur af þeim, sem bjuggu í skugganum? Óhugnan- Vígahrappana ■ gömlu sjáum legur við í spegii sög ferill unnar. Stjórn- málamenn sam tímans sjáum við í sjónvarp- inu á kvöldin. Þar mæla þeir fram brot af ræðum sínum, fullir hræsni og fagungala, og þó alandi á fjand- skap og tortryggni, og fram- leiðslan sjaldnast fimlegri en svo, að vel grillir í bakþank- ana. Þeir tala um frið — ekki vantar það. En friður er að minnsta kosti ekki allt, sem þeir vilja, heldur geta þeir því að- eins sætt sig við hann, að þeir geti fleytt rjómann af troginu. Verkin sýna lika merkin. Hol- lendingar vildu heldur heyja vonlaust stríð í Indónesíu, og hrökklast síðan brott með smán, eu fara burt með friði í tæka tíð. Frakkar fóru eins að í Indókína, en lærðu samt ekki meira af óförum sínum en svo, að þeir hegðuðu sér eins í Alsír. Englendingum fannst betra að hafa sig á bTott frá Kýpur og Kenýu eftir blóðugan ófrið heldur en áður en til þeirra atburða dró. Og enn berjast Portúgalar, sem lakast allra Evrópuþjóða hefur tek- izt stjórnin heima fyrir, í ný- lendum sínum — og tapa von- andi fyrr en síðar. Fé aðeins Víða er barizt í r i. ..i heiminum. Blóð TalT Tll ugastur er val- víga urinn í Víet- nam, en tor- leystust flækj- an við botn Mið jarðarhafs. Hvort tveggja ber vitni um átakanlegan skort á stjórnvizku þeirra manna, sem þykjast þó þess umkomnir að veita heiminum forsjá. Með þeim fjármunum, sem Bandaríkjamenn hafa varið til þess að heyja hina óhugnanlegu, eða segjum heldur svívirðilegu, styrjöld í Víetnam, sér til hins mesta álitshnekkis, hefðu þeir getað , sér til sóma, hafið blökkufólkið heima fyrir upp úr eymd og lægingu og bægt frá dyrum sínum yfirvofandi hættu á látlausum átökum við það. Með því fé, sem farið hef- ur í súginn í sviptingum Gyð- inga og Araba, hefði mátt reisa stórkostlegar sjóeimingarstöðv ar og rækta svo miklar lendur á eyðimörkinni, að flóttafólkið frá Palestínu hefðu verið jafn- vel eða betur sett en áður. En peningar liggja ekki á lausu, þegar rétta þarf hag ein- hvers, þó að þá skorti ekki til þess að ausa út drápstækjum og heyja morðstyrjaldir. Víga- hrapparnir þenja hátalarann mikla um allar jarðir, en þeim er varnað máls, er segja: „Eins og allir aðrir vil ég frið og sátt, svo að ég geti farið út úr þessum skógi, gengið út á veg- inn og farið til borgarinnar.“ J. H. tm TlMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.