Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 8
r- Jónas Guðmundsson: Sódóma Sjá, synd Sódómu, systur þinnar, var ofdramb, hún og dætur hennar höfðu gnótt matar og lifðu góðu lífi í makindum, en réttu þó ekki hinum voluðu og fátæku hjálparhönd. Þær urðu drambsfuilar og frömdu svivirðingar fyrir augum mér, þá svifti ég þeim í burt, er ég sá það. (Esekíel 16.49-50). En á þeim degi, er Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi þeim öllum. Eins mun verða á þeim degi er mannssonurinn opinberast. (Lúk. 17.29) Að himnaríki gert var gys og GuS var enginn til. Kirkjur flutfu ( tali og tónum trúarbragðasull. Flest um Krist menn kváðu vera kynjasagnabull. Þó voru jólin ennþá eftir eins og barnagull. Blöðin áttu að fræða fólk en fannst það nánast pjatt, hvort lesmál, sem þau létu i té, var logið eða satt. Um áramótin úppgjör var og allir sviku skatt. Skólar áttu að mennta menn, en mest var þar um reyk. Margt um öfga og ærslalýð en yfirstjórnin veik. Loks kusu börnin kennarana og kennslan varð að leik. Sjónvarpið var seft í gang og sýndi morð og rán. Sódóma var sjálfstæft ríki suður við Dauðahaf. Þar var alltaf yfirvinna, aldrei fólkið svaf. í Akabaflóa var alltaf fiskur ef á sjóinn gaf. Allir voru orðnir ríkir, áttu bíl og hús. Jöfnuður og frelsi fylgdu, flestir voru dús. Hreint og smart var yfir öllu, enginn var með lús. Að fylgja hinum fornu dyggðum fæstir tóku í mál. Alveg talið öruggt var að enginn hefði sál. Guðshús tóm og talin vera tildur eitt og prjál. Tölvur spáðu um framtíð fólksin*: Flest mun ganga í vil. Með reikningsheilum ráðin voru rúms og tíma skil. 412 T t M I N N — SUNNUDAGSBLA®

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.