Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 11
inni, og svo fór hann upp á hæð- ina til þess að hringja á bílinn. Við báðum bílstjórann að flýta sér, því að við vissum að þrjátíu mínútum fyrir miðnættii þagna hljómsveitirnar á samkomuhúsun- um og þjónarnar kippa vínflöskun- um úr hillunum. Þeir taka þrjár eða fjórar í hvora hendi og hraða sér með þær inn um dyr á bak við, þar sem stendur Exit, en einstaka for- sjáll maður hefur beðið þjóninn að geyma fyrir sig glas. Við vorum heppnir með bíl- stjóra og hann fór á gulu ljósi yf- ir hjá Nóatúninu og tók vel í það, þegar við báðum hann að lofa okkur að heyra í útvarpinu. Njörð- ur vildi ekki til baka af tvö hundr- uð kallinum, og við hlupum upp með húshliðinni svo við blotnuð- um ekki, en bíllinn komst akk: að dyrunum vegna þeirra með laus- merkin, sem biðu í röðum á þröngri brautinni, sem lá upp að húsinu. Reykjarsvælan kom á móti okkur, og þjónarnir voru á þön- um að fylla í glösin. Gluggatjöld- in voru dregin upp til hálfs, og það sást út á sjóinn. Vangasvip fólksins bar við gluggann og mér datt í hug samsafn af smáborgur- um, sem situr á kaffihúsum f mik- ilvægum hugleiðingum. Við fórum rakleitt að barnum. •Barinn var í miðjum salnum, boga dreginn og lokaður í annan end- ann, en hinn endinn opinn og fyr- ir innan þjónarnir í grænum ein- kennisjökkum og flöskurnar með blöndurunum. Ég pantaði konjak, og mér var orðið mál á því og ég sagði þjóninum, að ég vildi það ekki í konjaksglasi vegna þess hve vont væri að drekka úr þeim, og ég fékk í glasi, sem var vítt að ofan. Það voru tvær dömur við upp- ganginn og Njörður sagði, að við skyldum reyna við þessar. Þær voru búnar úr glösunum og höfðu sett þau á borðið. Við vorum bún- ir að fylgjast dálítið með þeim og fórum aftur á barinn. Það komu tveir strákar og settust hjá þeim, en þeir voru fullir og ekki líklegt, að það gengi npkkuð. Svo stóðu þeir upp og Njörður fór að tala við þær. Ég sótti mér eitt glas í viðbót, og þegar ég kom til þeirra, var Rósi komínn. Hann sagðisl heita Rósmundur og við kölluðum hann strax Rósa. Hann var 'éitthvað að bera víurnar í dömurnar, og við höfðum gaman af því, því við vissum, að við þyrft- um ekki að óttast hann. Við buð- um dömunum að drekka, og þær þáðu það, og Njörður sótti í glös- in, og ég vissi að hann mundi hafa það sterkara en þær ætluðust til. Það hafði verið raðað borðum á dansgólfið, af því að þuð var þessi dagur, svo það var enginn dans f húsinu. Dansinn, sem hefst hægt með fáeinum pörum á gólfinu og síðan hraðar og hraðar og allir farnir að taka þátt í honum, þang- að til í síðasta laginu, að hann fjarar -út, en sumir eru farnir að sækja yfirhafnirnar til þess að vera vissir um að ná í leigubil án þess að þurfa að bíða nokkuð. Við fórum að tala um að halda partí, en þær sögðust ekki vilja koma í partíið. Rósi sagði ekkert, en ræskti sig í sífellu. Ég stakk upp á því að við tækjum Rósa með í partíið, og dömurnar skríktu eitthvað og sain þykktu það. Það var nóg af leigu- bílum og Rósi fór í framsætið. Það rumdi í honum, og ég fór að velta því fyrir mér hvers konar maður hann væri. Hann var hár og þykk- vaxinn, með ístru, handarbökin kúft af fitu og andlitið rautt og slétt af velsæld. Fötin dökk og sundurgerðarlaus eins og á emb- ættismanni og klæðskerasaumað vesti og úrfesti í einu hnappagat- inu. Ég fór á undan upp að hús- inu og Njörður borgaði bílinn. Það voru ljós f öllum gluggum og ekki líklegt, að það gerði neitt til, þó að við yrðum dálítið há- vaðasöm. Ég kveikti á plötuspilaranum, og það varð strax mikill hávaði. Ég gat boðið upp á margar teg- undir, og við drukkum ört eins og ævinlega, þegar fólk drekkur það, sem það vill helzt. Af gömlum vana tók ég flösk- urnar, sem ekki var drukkið úr, og læsti þær inni í skápaum. Það var mikið skvaldur, og það rann saman við músíkina. Ég fann, að ég þurfti að passa mig, og ég mátti ekki drekka mikið meira, og þáð var ekki gott að segja. hvað ég þyldi lengi. Við ætluðum að skála, en ég rak mig í glasið, og það valt á hliðina, og ég vissi, að vínið myndi renna undir glerið og það myndi koma einn hvítur blettur til viðbátar á borðplötuna undir glerinu. Ég hellti aftur í glasið án þess að þurrka af Lorðinu og við skáluð- um. Njörður var auðsjáanlega með hugann við dömurnar, en hann var í einhvarjum vafa um það að hvorri hann ætti að snúa sér. Ég var búinn að stilla fóninn eins hátt og mögulegt var og þær voru komnar úr skónum og farn- ar að dansa á gólfinu. Rósi sagði ekki neitt, og við vor- um búin að gleyma honum. Þá vildu þær sækja gítarinn. Við skál- uðum fyrir gítarnum. Rósi fór nið- ur án þess að segja nokkuð, og hann átti í erfiðleikum í nýbónuð um stiganum. Við fórum að hjálpa þeim í kápurnar og teygðum tím- ann dálítið. Önnur þeirra sagði, að við yrðum að losa okkur við kall- inn, og Njörður samþykkti það og deplaði augunum framan í mig. Það gleymdist að segja bílstjór- anum, hvert við ætluðum, og hann ók í rólegheitum, þangað til hann var kominn að aðalbrautinni, þá spurði hann hvert við ætluðum. Ég tók af skarið og sagði Rósa, að við ætluðum fyrst með hann heim, og hann sagði hvar það væri. Hann fór úr bílnum án þess að kveðja eða þakka fyrir sig, og ég fór út til að fá mér frískt loft, en mér batnaði ekki Nóttin var lygn, en í fjarska heyrðist í sírenu brunaliðsbíis, sem rauf kyrrðina. Þegar ég kom aftur í bílinn var söngurinn bvrj- aður, og við héldum áfram að sækja gítarinn. Þegar þær voru farnar úr bíln- um, sagði ég Nirði, að mér litist, ekki á þetta, og ég mundi ekki j halda það út, en hann sagði, að það hlyti að lagast og við skyldum \ sjá til- i Okkur fannst við vera fljótt j komin, því við vorum farnir að ■ láta vel að þeim á leiðinni. Við lét- um bílinn stoppa hjá horninu fyr- ir neðan búðina, svo að það yrði ekki eins áberandi þegar við kæm- um. Við reyndum að fara hægt, og Njörður læsti hurðinni upp á hæðina, svo að það kæmist enginn niður. Mig var farið að svima, og mér ' fannst gangurinn rísa upp á móti mér, og ég fór inn í baðherberg- ið. Ég fór að kúgast og hélt mér í vaskröndina, og mér Ieið injög illa. Það var tekið í hurðina en ég hafði læst henni, og ég anzaði ekki þó Njörður kallaði, því að ég vissi1 að það miJndi ekki verða til neins. Framhald á 526. síðu. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 515

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.