Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 17
Mörg unglingsstúlkan kynni vafalaust hið bezta við sig i
þessarl skrítnu flík, sem líklega væri helzt köiluð úlpa, ef
hún ættl uppruna sinn hérlendis. En flíkin er ekki ný af
nálinni. Hún er frá árunum upp úr 1890, og má því marka,
að ömmur og langömmur ungu stúlknanna nú hafa ekki
haft alls kostar ólíkan fatasmekk.
★
Gamalt verður nýtt
★
Mennirnir
og flíkurnar,
sem þeir klæðast
Enn er til fólk, og það' Iíklega
ekki svo fátt, seni fyllist hneyksl-
un og gremju andspænis síðhærð-
um unglingi, sem klæðist undar-
legum fötum. Sumir vildu áreiðan
lega láta taka þessa pilta og klippa
þá nauðuga. Þó nokkrir níðast á
þeim með því að meina þeim
vinnu. Fátt virðist þó sjálfsagðara
að einstaklingnum sé í sjálfsvald
sett heldur en það, hvort hárið á
honum er þumlungunum síð-
ara eða styttra en almennt
gerðist fyrir tíu árum, og
við fá vandamál á það þjóð-
félag að stríða, þar sem snið-
ið á jökkum og buxum unga
fólksins er verulegt áhyggjuefni.
En það er við margan gróin sterk
hneigð til þess að þröngva öllum
í þann stakk, er hann sjálfur hef-
ur kosið sér, og afarrík árátta að
vilja steypa alla í sama mótinu.
Sumir sjá líka í síðhærða ungl-
ingnum uppreisnarandann líkamn-
aðan, ásamt vinstrihyggju ungu
kynslóðarinnar, og þá er ekkj að
sökum að spyrja, ef augun sitja í
höfði íhaldssams borgara, sem
finnst líf liggja við, að ekkert fari
úr reipunum af því, sem gerði
hann að þeirri merkispersónu sem
hann er.
En þessir stefnuföstu og um-
hyggjusömu rnenn, sem telja það
ganga helgibroti næst, ef klæða-
burðurinn stingur mjög í stúf við
það, er þeirn finnst gott og gólt,
hafa líklega aldrei leitt hugann að
TtMINN
SUNNUDAGSBLAÐ
521