Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 16
Richard Beck; Lífsmáttur ljóðsins Ljóðið var þjóð vorri líf, líknin í nauðum, og hlíf alda í stormunum stríðum. Kveikti hjá þjökuðum þrótt þyngstri á hörmunganótt, vortrú í vetrarins hríðum. Ljóðið var þjóð vorri Ijós, lagði á frosthvítan ós geislabrú himins til hæða. Loguðu í ylríkum óð eldar frá morgunsins glóð, ísalög andans, sem bræða. Ljóðsins I háreistri höll himingnæf draumanna fjöll risu í dýrð sinni úr djúpi. — Með þetta hefur þú svo lagt út í heiminn? — Jó, ég hleypti heimdragan- um. þegar ég hafði aldur til, og leiðin lá til Reykjavíkur eins og hiá flestum unglingum á þessum árum. Fyrst í stað voru þetta að- eins vetrardvalir — ég kom heim á vorin. En þó kom þar, að ég ílentist hér syðra. — Norðurland hefur haldið áfram að toea í þig? — Já, það togaði og dró. Jafn- vei eftir að ég var alflutt úr for- eldrahúsum, hélt ég áfram að leita norður á bóginn. Ég var þrjú sum- ur ráðskona hjá vegamönnum. þar af tvö norður í Vatnsskarði og eitt f Fornahvammi f Norðurárdal. — Var það ekki skemmtilegra en að smala kvíaánum? — Jú. Útilega uppi á fjöll- um er einhver hollasti lifn aður, sem völ er á — og svo voru blessaðir vegakarlarnir mínir svo skemmtilegir. Ég hef að vísu enga ástæðu til þess að ætla, að þeir hafi ekki verið ágætir heima hjá sér, en þó held ég, að þeir hafi hlotið að batna til stórra muna við að koma f fjallaloftið. Það ýtir undfr allt hið bezta og skemmtilegasia í fari manna. Ljóðvængir lyftu á flug langþreyttum, fjötruðum hug, sviptu af sálunni hjúpi. Eldheit og leifturbjört IjóS leiðina mörkuðu þjóð frelsis að fagnaSardegi. Bergmál þess blessaða lags, bjarmi hins langþráða dags, vaka yfir framtíSarvegi. , Lífsmáttur IjóSsins ei þverr, lindin sú streymandi ber ómdjúpa eggjan og sterka. Lifir i íslenzkum óð aldanna söguvígS glóS, frjómagn til fagurra verka. — Hver var verkstjóri f þessari vegagerð? — Yfirverkstjórinn var Jóhann heitinn Hjörleifsson. Hann var ein- staklega elskulegur maður og af- bragðshúsbóndi. Með okkur tókst góður kunningsskapur, sem entist á meðan hann lifði. Og eftir að hann féll frá, hef ég haldið sam- bandi við ekkiu hans og börn. — En segðu mér nú eitt: Hvað hefur þér þótt skemmtilegast um dagana? — Bækur. Frá því ég fór nokk- uð að vitkast hafa vel gerð og snjöll ljóð verið sólskinsblettirnir í lífi mfnu. Þau hafa veitt mér meir} gleði en flest annað, og til þeirra hef ég sótt kjark og styrk, þegar á móti hefur blásið. En þótt ég nefni hér kvæði sérstaklega, þá var lestur minn ekki einskorðaður við þau. Ég las bókstaflega allt, sem ég náði í, hvort sem það var f bundnu máli eða óbundnu. Ég skal til gamans segja hér eina sögu, sem sýnir vel óviðráðanlega lestrarfýsn mína. Ég var þá unglingur heima á Litla-Ósl. Það var hásumar (þegar sveitakrakkar stunda sjaldan lest- ur að ráði), og ég átti að taka á mótl þurru heyi við hlöðudyr. Þarna við hlöðuna hafði ég hjá mér Sögur frá Skaftáreldi eftir Jón Trausta og var alltaf að skjót- ast til þess að lesa, þegar hlé var á milli ferða. En ég var fljót að fela bókina um leið og ég sá til lestamannsins. Það lá þó nærri, að þetta endaði illa. Einu sinni, þeg- ar ég ætlaði að grípa bókina, var hún horfin. Ég varð skelfingu lost- in, því að mér datt ekki annað í hug en ég hefði týnt henni í hey- ið og myndi aldrei finna hana aft- ur. Þetta var þeim mun verra. sem ég hafði fengið bókina að láni á öðrum bæ. Ég átti alltaf auðvelt með að fá lánaðar bækur, því að ég þótti fara vel með þær. Það hefði bví verið óbærileg smán, ef ég hefði svo allt í einu brugðizt því trausti, sem mér var sýnt, og týnt lánsbók. Um síðir fann ég þó bókina. bar sem hún hafði dottið niður á milli bagga. Líklega hef ég ekki oft verið fegnari því að finna týndan hlut. — Þú minntist áðan á útiveru og fiallaloft. Hefur þú ekki stund- að ferðalög? — Fyrr á árum, á meðan ég vann verzlunarstörf í Reykjavík, var það nokkurn veginn árvisst, að ég færi með vinnufélöeum mín- um í sumarferðalög- Ferðuðumst við bá einffmvm innan lands og jöfnum böndum byggðir og óbvpoðir. Þá hlotnuðust mér mín fvrstu og einu kvnni af Hveravöll- um — og bótt ég hefði ekki haft neitt annað gaen af sumarleyfinu mínu það sumarið. þá hefði það mareborvaði sig. Á þessum árum var ég líka einu sinni fjóra daga í Mvvatnssveit í þvi feeursta veðrí, sem bar eetur komið. Það eru ein- hveriir óelevmanlegustu dagar, sem ég hef Iifað. — En lagðir þú ferðalögin á hilluna, eftir að þú gerðist hús- freyia með börn og bónda? — Svo má það nú heita. Að vísu fórum við hjónin flest sumur norður að Litla-Ósi, jafnvel þótt dvölin þar væri ekki alltaf löng. Það er nú einhvern veginn svo, að sá bær á alltaf sterk ítök í mér, og ennþá segi ég „heim“, þegar ég tala um Litla-Ós. En nú er að vísu orðið nokkuð langt síðan ég hef komið norður. — Ekki trúi ég því nú samt, að þú sért alveg setzt í helgan stein. — Það má heita svo. En tvð Framhaid á 526. síSu. 520 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.