Tíminn Sunnudagsblað - 03.10.1971, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 03.10.1971, Blaðsíða 16
jafnan hjá þeim, þeirra á meðal móðir mín, Borghildur. — Þú hefur alizt upp á Eski- firði? — Já, ég er borinn þar og barn- fæddur og átti gott atlæti í upp- vexti. Reyndar var ég sjaldan heima nema sem gestur eftir 17 ára aldur, og nokkur sumur var ég 1 sveit, sem strákur — sjálfri Suðursveitinni. — Og þar hefur þú auðvitað kunnað vel við þig? — Já, maður lifandi Á leið í sveitina hélt ég alltaf til hjá Sigiga í Bæ og Bergþóru, þekktum rausn- arhjónum, sem áttu heima í Hvamminum á Höfn í Hornafirði. Þeir voru aldavinir, faðir minn og Siggi í Bæ. Svo fór ég með hon- um, þegar hann fór vorferðina á Björgvin suður í sveit að færa bændum mjölvöru, kol, olíu og timbur. Þarna er hafnlaus brim- lending, og það var ævintýralegt að sjá karlana klædda skinnburu, Skinnbrók og skinnsokkum ösl- andi í sjónum upp undir hendur. Á þessum bernskuárum tók ég ástfóstri við Skaftfellinga. Þeir eru hjartahreinasta og hjálpfúsasta fólk, sem óg hef kynnzt. — Stundaðir þú ekki sjó, eins og allir strákar í þorpum? — Auðvitað var maður sískrölt- andi á skektum um allan fjörð, eins og þorpsdrengja er vandi, og mæðurnar með lífið í lúkunum út af okkur. Ég get ekki hugsað mér frjálsara og dýrlegra líf en við áttum í uppvexti. Það var talið sjálfsagt mál, að allir piltar, sem einhver töggur var í, færu á sjó- inn upp úr fermingaraldri. Skóla- ganga og svoleiðis pjatt var ekki fyrir aðra en aukvisa. Faðir minn, Sigurður Jóhannsson, var skip- stjóri. Hann er eini maðurinn, sem ég hef alltaf litið upp til — á aðra menn lít ég sem jafningja. Þú getur því ímyndað þér, hvort framtíðardraumar mínir hafi ekki verið bundnir sjónum. En þar reyndist heldur en ekki hængur á: ég var óskaplega sjóveikur og sjóaðist aldrei. Þegar ég var fimm- tán ára, var úrslitatilraunin gerð. Þá var ég úti í sex vikur með föður mínum, en varð veikari og veikari með hverjum degi. Að þeim tíma liðnum var öllum ljóst, að ég yrði aldrei sjómaður. Ári síðan var ég landmaður við bát í Mikley á Hornafirði vetrarvertí'ð- ina. Þar með var sjómennskutil- burðum mínum endanlega lokið. — Hvað tók þá við? — Vorið 1938 réðst ég kaupa- maður að Kaupangi í Eyjafirði. Jörðina átti Ingvar Guðjónsson, þjóðkunnur útgerðarmaður og síldarsaltandi á sinni tíð, en búi stýrðu hjónin Bjarnþóra Bene- diktsdóttir og Árni, bróðir Ing- vars. Þetta var stórbýli og glæsi- legt heimili, allt með miklu ris- meiri brag en ég hafði kynnzt í sveitum austan lands. Ég tel mér feng að því að hafa verið þar sum- arlangt, og mér hlýnar alltaf fyr- ir brjósti, þegar ég rekst á þau Kaupangshjón. — Voru kaupmenn til sveita ekki heldur lágt metnir á þessum árum, — Til fjár, áttu við? Ég læt það vera. Ég hafði hálft fjórða hundrað króna í sumarkaup og þóttist þá svo fjáður, að ég gæti farið hugsa til skólagöngu. Um haustið Framkaupsfaður á Eskifirðl — [ miðju íbúðar- og verzlunarhús, reist árið 1873. Þar áWi Einar Bragi lengst heima f uppvextl. Hér hóf Kjartan ísfjörð verzlun árið 1802. 712 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.