Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Blaðsíða 2
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii: Dr. Richard Beck, fyrrum prófessor i Grand Forks sá mikli tengiliður fslendinga vest- an hafs og austan, er skáld gott og hagvirkur lausavisnasmiður, en oftast verður honum að vrkisefni hugsun heim til föður- landsins. Dr. Richard Beck átti nýlega áttræðisafmæli. eins og skrifað var um i blöðum. og er þó enn kvikur i spori og skýr i hugsun. t>að hæfir vel að hefja visnaþáttinn i dag með stöku eftir þennan einstaka mann, og mun hún vera nylega ort. enda gæti hún talizt ofurlitil úttekt á höfundi sjálfum við leiðarstein áttræðisafmælisins. Hann kall- ar visuna lika Horft yfir farinn veg. Knnþá sla' ég ævivef, orkn þakka og lieilsu inina. Veginn gæfn gengið hef, glatt méreldar kvöldsins skina. Og af þvi við látum Richard Beck slá þennan tón i fyrstu visu hæfir að rifja upp nokkrar visur i svipuðum dúr. því að margir hagyrðingar hafa ..horft yfir farinn veg", og orðað fallega i visu angurværa hugsun um liðin ár, þegar halla tekur ævi. Séra Friðrik A. Friðriksson. fvrrum prófastur á Húsavik. nú sóknar- prestur á Hálsi i Fnjóskadal. þakkaði kunningja sinum af- mæliskveðju meö þessari visu: Þegar æskan þokast fjær, þegar ellin færist nær, yerða eins og varmur blær, vinarorðin þörf og kær. Grimur Sigurðsson, sem kenndur er við Jökulsá á Fjörðum norður, hefur ort margar seiðmjúkar visur um ..gamalla drauma angan" og þrá efri ára til liðinna æsku- vora. Kftir þvi sem árin færast yfir ntig og þyngjast spor þrái ég nteir og meir að nærast mætti þiiuim, unga vor. Hjörtur Kristm undsson, skólastjóri. bróðir Steins Steinars. er afbragðsvel hag- orður maður. Hann bindur ævi- hugsunina -i eftirfarandi hend- ingar, sem raunar munu vera úr bálki, sem hann flutti Jóni Pálmasyni alþingismanni á Akri á sjötugsafmæli. Arin tifa. öldin rennur, ellin rifar seglin Itljóð fennir yfir orðasennur eftir lifir minning góð Benedikt Gislason frá Hof- teigi ..horfir vfir farinn veg" með þessum hugblæ: Bera mun ég bjarta lund, böl þótt lifið geymi. Aldrei nema stutta stund stend ég viö i heimi. Ollu fleygi ég sinn veg, öllu feginn gleymi. — Það er að segja þegar ég þreyttur dey úr lieimi. Margrét Jónsdóttir. skáld- kona. varpaði oft fram hagleg- um visum, en birti fáar i ljóða- bókum sinum. Þessi fallega sumarkvöldvisa er eftir hana. Vildi ég fegin vera hjá vininum bezta, sem ég á, meðan ölduaugun blá aftanroðakossinn fá. Og það syrtir að er sumir kveðja. Um þaö segir Margrét: l>ú varst horfinn, húmið svart luildi salarkynni. Aldrei framar alveg bjart er i slofu minni. Guðmundur á Sandi hafði gaman af að kasta visu að kunn- ingja. nágranna eða gesti, eink- um ef hann vissi þá visufæra. Kinnungar áttu oft leið um á Sandi i vetrarferðum um isa til Húsavikur. Einn þeirra var Eiður Arngrimsson bóndi á Þór- oddsstað. þá ókvæntur en kom- inn sæmilega til aldurs. Guð- mundur kastaði þessari visu að Eiði. er hann fór um hlað á Sandi að morgni: Málgar konur, brekótt börn bændur gjöra feiga, en þó er nóttin þrautagjörn þeim, sem hvorugt eiga. Þegar Eiður kom frá Húsavik um kvöldið launaði hann visu Guðmundar á þessa leið: Oft á jöfnu veröur völ veitist lækning sorgar Dimmfar nætur dapra kvöl Dagsins friður borgar. Og þá er lokið visnaspjalli i dag. Gnúpur. 506 Sunnudagsblað Timans fniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|||||||||||||||||||||||||||||||,||||||||||||||||||l|||||||||||,ni||||||||||||||||||||||||,||||,||„|||||||,|,||||,||||,|||jn|„|,|„|||||||||||||||||||||..iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiinl

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.