Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Side 14

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Side 14
Trillan „Maja", sem Guömundur geröi út mörg ár til þess aO atla Djargar 1 uu, þegar búskapurinn gat ekki framtleytt hinni stóru fjölskyldu. — Myrkfælnina hefur þú þó ekki losnað alveg við, vænti ég? — Ekki alveg, nei, en ekki get ég þó með sanni sagt, að hún hafi verið mér fjötur um fót um dagana. Samt man ég aðeins eftir þvi aö hafa fundið til myrkfælni, þegar ég var krakki, en hvorki var það oft né mikið. Drauga- sögurnarvoru þá að mestu horfnar, og foreldrar minir voru alveg sérlega frábitnir öllu þess háttar. A minu bernskuheimili var ekki talað um drauga, nema þá helzt til þess að mót- mæla tilveru þeirra. Annars verð ég nú að viðurkenna það, að i landareign- inni heima var til álfakirkja. Stóð hún á svokölluðu Mjóanesi. Ég leit oft þangað — af forvitni, en ekki hræðslu — þegar ég átti leið þar nálægt, en ég sá aldrei neitt. — En svo maður snúi sér aö annarri hlið þjóðfræða: Þú ert alinn upp við kvöldvökur og sögulestur? — Já. Það var alltaf lesið upphátt á kvöldin og það voru lika kveönar rimur. Fósturbróðir minn, sem var tíu árum eldri en ég, las mikið og hann kvað lika. Og ef gestur kom, sem vitað var að væri vel læs, var honum gjarna fegin bók til þess að skemmta sér og öðrum. Menn kunnu ekki neitt sérlega vel við það að sitja auöum höndum i þá daga, og það þótti viður- kvæmilegra að fá mönnum bók, heldur en eitthvert annað verk, ef þeir voru nætursakir á bæ. — En hvaö var þetta, sem þið lásuö mest? — Við lásum fyrst og fremst Is- lendingasögurnar. En svo var stofnaö 518 lestrarfélag i sveitinni skömmu eftir 1890 og það hjálpaði mönnum mikið og gerði lesefni þeirra fjölbreyttara. Annars held ég, að örnfirðingar hafi lengi verið heldur félagslyndir menn. Það var snemma á árum stofnað þar búnaðarfélag. En þegar fór að dofna yfir þvi, var stofnað þar annað félag, sem hét Vonin. Um það hafði forgöngu Hólmgeir Jensson, bóndi og dýra- læknir á Þórustöðum. Það var hugsað sem málfundafélag, og það var það, sem stofnaði lestrarfélagið, sem ég var að minnast á áðan. Annars lét Vonarfélagið mörg mál til sin taka, og ræddi til dæmis mikið um garðrækt og annað, sem til framfara horfði, en var mönnum nýlunda. Og þetta varð ekki árangurslaust, þvi upp úr siöustu aldamótum var kominn kartöflu- garður á hvert einasta heimili, en áður hafði það verið sárafágætt að sjá slika hluti við hibýli manna. Ætli það hafi ekki verið þrjú eða fjögur heimili 'I allri sveitinni, sem áður höfðu haft litils háttar af kartöflum. Meira var það nú ekki. Þessu gerbreytti sá framfaraandi, sem Vonarfélaginu hafði tekizt að kveikja hjá mönnum. — Það er auðheyrt, aö þið hafið verið á undan öðrum sveitum, hvað snertir stofnun félagssamtaka. Komu þá ekki ungmennafélögin fljótt til sögunnar hjá ykkur? — Það var stofnaö ungmennafélag hjá okkur árið 1908, og upp úr þvi fór aö draga úr starfi Vonarfélagsins, þvi hið nýja félag tók upp á sina arma mörg þau framfaramál, sem gamla félagið hafði barizt fyrir. Til dæmis varð ung- mennafélaginu mikið ágengt með að bæta málfar manna. — Já, fannst ykkur verða áberandi munur á þvi? — Mikil ósköp. Já, það var alveg ber- sýnilegt. — Eða auðheyrt, ef menn vilja það orðalag heldur. Þegar ég var barn, voru iðnaðarmenn kallaðir klén- smiðir, snikkarar, og svo framvegis, og i búðinni voru þeir, faktorinn og assistentinn. Auðvitað var allur þessi dönskumokstur af þvi sprottinn, að verzlunin var enn hálfdönsk, og sam- skipti við Dani höfðu til skamms tima verið mjög náin. En ungmennafélagið okkar gekk i skrokk á öllu þessu af mikilli röggsemi, og á undra- skömmum tima hafði þvi tekizt að hreinsa þessar slettur úr daglegu máli manna. . — Var ofið á heimilum á uppvaxtar- árum þinum? — Já, Faðir minn óf mikið, og ég var ekki gamall, þegar ég fór að taka þátt i þvi verki. Það mun hafa verið fljótlega eftir að ég fermdist, sem ég tók alveg við vefnaðinum af föður minum. Ein- hverju sinni man ég eftir þvi, að við systkinin vorum að reikna hvað ég myndi hafa ofið yfir veturinn — ein- hvern vetur, ég man ekki hvaða ár þetta var — þá taldist okkur svo til, að ég hefði ofið fimm hundruð álnir. Og það er reyndar ekki svo litið. Þá var enn sá siður i landi, að heimilin byggju mest að sínu, bæði hvað snerti fæði og klæði. — Þú nefndir fæði. Hvernig bjugguð þið ykkur undir veturinn? — Aðalfæðan var hertur steinbitur. Harðfiskur. Lika voru hertir þorsk- hausar mikið notaðir til manneldis. — Eitthvert kjötmeti hafið þið hlotið að hafa? — Ojá. En ekki var það nú mikið. A haustin var kjötið saltað niður i tunnu, en það var ekki svo mikið, að það nægði okkur nema svona fram um páskana, með þvi að vera borið á borð tvisvar i viku. Og á stórhátiðum fékk maður hangikjöt. — Og hvernig var húsakosturinn? — Það voru alls staðar baðstofur. Þar var sofið, setið og unnið, hver á sinu rúmi. Stærð hússins var þetta þrjú eða fjögur stafgólf. Niðri var gestaherbergi i öðrum endanum, en i hinum endanum var eldhúsið, eftir að eldavélarnar komu til sögunnar. A flestum bæjum var bikuð skarsúö. — Þetta hefur þá ekki lekið? — Nei, það gerði það ekki. — Hvenær fóru torfubæirnir að vikja fyriröðrum og vandaöri húsum, þarna i þinni heimabyggð? — Það varð nú fljótlega upp úr alda- mótum, en þó auðvitaö hægt og hægt I fyrstu. Á árunum 1904 til 1910 voru Sunnudagsblað Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.