Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Síða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Síða 19
Og erfisdrykkjan var einnig meö fullum sóma, en þó meö hófi. Eikkert vín um hönd haft. enda var Brandur bindindisköttur. öðrum grimmur og tortrygginn. Við fráfall hans er mikill harmur kveðinn að öllum læðum i nágrenninu, og hafa þær eigi treyst sér til þess að fylgja honum til hinztu hvilu. Vottum við þessum læðum dýpstu samúð, sem og fóstru hans, er þykir sjónarsviptir orðið hafa við fráfall þessa mikilsvirta heimilisvinar, og lllyleg heimiliskveðja var flutt yfir kistu Brands, og talaði þar fjárhaids- maður Brands og ráðgjafi. Kista Brands var haglega smiðuö og hin snotrasta, en blóm voru afþökkuð. mun sess hans seint verða fullskip- aður. Hið vinalega mal er þagnað, og myndi það kosta ærið fé hjá Stefi. En vér vonum, ef þú hittir óvini þina á eilifðarenginu, þá heyir þú aðeins við þá kalt strið, en begripir þig ekki á hinum vængjuðu verum, sem þarna kunna að vera á flökti. Vér kveðjum svo með lotningu þetta tittnefnda, tigulega fress, og vonum vér, að and- inn mikli sjái þér fyrir glæstum veiði löndum, þar sem belgheitar læður verma hvilu þina, og megir þú þar rikja um aldir alda. Af ketti ertu kominn, af ketti skaltu aftur verða og með köttum skaltu upp risa- Arfur og samtími Framhald af bls. 512 sjálfur skáld, svo að orð sé nú á ger- andi. Þá er að nefna Hið islenzka bók- mennta félág , sem stofnað var i Heykjavik og Kaupmannahöfn 1810 að frumkvæði danska málfræð- ingsins Rasmusar Kristjáns Rask. Ut- gáfustarfsemi þess'varð snemma um- fangsmikil, en timarit á þessu timabili voru tslenzk sagnablöð (1817—26) og Skirnir, sem hóf göngu sina 1827 og kemur út enn. Upp úr þessu hófust siðan þau timarit úti i Kaupmannahöfn, sem hvert manns- barn þekkir, Ármann á Alþingi, sem Baldvin Einarsson og Þorgeir Guð- mundsson gáfu út 1829—32, Fjölnir, sem út kom 1835—47, og loks Ný fé- lagsrit, sem Jón Sigurðsson hóf útgáfu á 1841. Nefna má og fleiri blöð frá þessum tima, svo sem Sunnanpóstinn, sem nú er einkum minnzt fyrir skærur hans við Fjölni. Það atriði hinnar almennu lands- sögu timabilsins 1750—1850, sem eink- um snertir skáldskapinn á sama tima, er þvi upphaf útgáfu bóka og timarita um hagnýt og veraldleg efni. Sömu- leiðis höfðu þær frelsis- og framfara- hugmyndir, sem hingað bárust þá frá Evrópu, mikil áhrif á þróun ljóðlistar, fyrst og fremst þó á yrkisefnavalið, þ.e. menn iitu gjörólikum augum á söguna, landið og náttúru þess frá þvi sem áður hafði tiðkazt. Þessar hug- myndir bárust hingað frá þáverandi höfuðborg landsins, Kaupmannahöfn, og geta má þess, að þennan tima var þar talsverð gróska i andlegu lifi, sem og i dönskum bókmenntum, enda áttu nýjustu stefnur og hræringar sunnan úr Evrópu þá sem endranær greiða leið þangað. Fyrsta ljóðskáldið, sem snéri þaðan hingaö heim altekið af nýjum hugmyndum, var Eggert Ólafs- son, og að honum og verkum hans verður vikið i næstu grein. (Helztu heimildir: Saga tslendinga, VI. og VII. bd.: Stefán Einarsson: Is- lenzk bókmenntasaga 874—1960 (Rvk. 1961): Vilhjálmur Þ. Gislason: tslenzk endurreisn (Rvk. 1923): Jón Helgason dr. theol. biskup: Meistari Hálfdán (Rvk. 1935): Jón Helgason próf.: Hrappseyjarprentsmiðja 1773—1794 (Kmh. 1928): Klemens Jónsson: Fjögur hundruð ára saga prentlistar- innar á tslandi (Rvk. 1930). ) o Sunnudagsblað Tímans 523

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.