Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Síða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Síða 4
heim og lagðar I þjóðargrafreitinn á Þingvöllum, þar sem þær hvfla nú. Ritverk Jónasar eru allmikil að vöxtum og harla sundurleit. A ferðum sinum um landið hélt hann rækilegar dagbækur, þar sem er að finna margar náttúrufræðilegar athuganir hans, og auk þess eru ritgerðir hans um slik efni talsverðar aö vöxtum. Nefna má og Fjölnisgreinar hans, t.d. Fáein orö um hreppana á tslandi i 1. árg., að ógleymdum ritdómi hans um Tistransrimur Sigurðar Breiðfjörðs, sem getið var um i siöasta þætti. Sömuleiðis er að nefna ýmsar þýðing- ar hans, m.a. á Stjörnufræði Ursins (pr. i Viðey 1842), þar sem hann tókst af smekkvisi á við efni, sem litið haföi verið ritaö um á islenzku fyrr. Þar reyndi þvi mjög á orömyndunarhæfni hans, enda tókst honum að smiöa þar ýmis orð, sem siðan hafa náð festu i málinu, t.d. „aödráttarafl”, „fjaöur- magnaður”, „hitabelti”, „ljósvaki”, „miðflóttaafl”, „sporbaugur” og „staðvindar”, svo aðeins nokkur séu nefnd. Einnig má geta um Mynsters hugieiðingar (pr. i Höfn 1839), sem þeir Jónas, Konráð og Brynjólfur gerðu i sameiningu. Þá er og ógetiö sendibréfa Jónasar, sem eru mörg, en i ýmsum þeirra, ekki sizt til lags- bræðra hans i Kaupmannahöfn, gætir nánast strákslegs hispursleysis og gálgahúmors, sem er annars mjög ólikt hinu alvörugefna skáldi, sem við kynnumst i kvæðum Jónasar, að ekki sé minnzt á hinn samvizkusama nátt- úrufræðing. Ýmislegt kveðskaparkyns slæöist þar og með, flest að visu létt- vægt, en þó annað, sem hefur orðið lif- seigara. Þar á meðal eru visurnar Hættu að gráta hringaná. . , sem enn heyrast sungnar, en þær eru úr bréfi til Konráðs frá 1836. Þá er þess að geta, að Jónas er eitt fyrsta skáldiö hérlendis á seinni tim- um, sem fæst viö smásagnagerð með þeim árangri, að orðséá gerandi. Frá hans hendi hafa varðveitzt ýmis brot þeirrar tegundar og eru hin heillegust þeirra fyrstu smásögur, sem svo má nefna, i islenzkum bókmenntum siöari tima. Einna bezt gerö af þessum sögum er tvimælalaust Grasaferð, hugljúf lýs- ing úr islenzku sveitalifi á tveimur unglingum, pilti og stúlku á grasafjalli. Frá listrænu sjónarmiði er þó nokkur brotalöm á byggingu sög- unnar, er pilturinn fer meö kvæðisþýö- ingar eftir sig og stallsystur sina þ.e. Bíum bium...og Dunar i trjálundi..., svo vel af hendi leystar, að varla er ætlandi öðrum en þrautreyndum skáldum, og reyndar á hið sama viö um vfsurnar Sáuð þiö hana systur Jónas Hallgrimsson mina,„og Snemma lóan litla I..., sem Jónas fellir inn i söguna og eignar pilt- inum. A íslandi gerist og sagan Hreiðarshóll, sem þó er brotakennd- ari, en þar er fjallað um þá fornu þjóð- trú, aö ei skuli raska ró fornmanna i haugum sinum. A erlendu sögusviði og ævintýrakenndari er Stúlkan i turn- inum.um stúlku, sem lendir i klónum á óvætti i uglullki, en bjargar sér og ungum manni.sem einnig er fangi ugl- unnar, með þvi að ráða henni bana. Fifill og hunangsflugaer litið ævintýri um kunningsskap blómsins og flug- unnar, og i Leggur og skel.sem Jónas hefur endursagt eftir H.C. Andersen, er sagt frá tveimur barnaleikföngum, sém eru persónugerö i ævintýrastil. Þýddar eru sögurnar Fundurinn, um ungan mann, sem ferst i námu rétt fyrir brúökaup sitt, en lik hans finnst aftur óskemmt fimmtiu árum siðar og er þá fært unnustu hans, sem hefur beðið hans öll árin, og Mariubarnið, um fátæka telpu, er Maria guðsmóðir tekur að sér, en bregzt trausti hennar. Smellnast þessarar tegundar er þó verk, sem venjulega er nefnt Gaman- bréf Jónasar llallgrimssonar, en það er brot úr gáskafullu bréfi hans frá Sórey vorið 1844 til Konráðs Gislason- ar og fleiri kunningja i Höfn. Þar bregður hann upp mynd af heimsókn Viktoriu Bretadrottningar til Loðviks Filippusar Frakkakonungs haustið áröur, og felst hispurslaust skopið i þvi, að hátignunum er lýst sem óbreyttu islenzku bændafólki af betra taginu i háttum og tali. Eru þær þann- ig settar á borð með jafningjum þjóð- félagslegra undirsáta sinna, en allt auk þess klætt i hinn órökrétta búning ævintýrisins. Still frásagnarinnar mun sóttur til spaugsamrar talsháttavenju Hafnarislendinga á þeim tima, en auk þess leiddi Stefán Einarsson á sinum tima að þvi rök, að þessi frásögn væri samin undir áhrifum frá ævintýrinu Gullhúsið kóngsins og drengirnir. Þaö er frá þvi nokkru fyrr á öldinni og er svipuð skopleg frásögn af þremur is- lenzkum stúdentum, sem brjótast inn i fjárhirzlur konungs i Höfn og eiga að missa lifið fyrir, en islenzkur kaup- maður vinnur það þeim til lifs að fara til Bretlands og sækja þangað fé, sem Jörundur hundadagakonungur hafði rænt á Islandi á valdatima sinum þar. í frásögn Jónasar virðist þvi vera um liö i samanhangandi þróun að ræða, sem siðan átti eftir að ná hátindi i Heljarslóðarorustu Benedikts Grön- dals, sem einnig er samin i þessum stil. Annars er gamansemin nokkuð drjúgur þáttur I kveðskap Jónasar og e.t.v. fyrirferðarmeiri þar en menn al- mennt gera sér grein fyrir. Fyndni hans er að öllum jafnaði fingerð og létt, og oft er það, að hann notar, ekki ólikt þvi sem er i Gamanbréfinu, ýmist hátiðleg eða litt merk tilefni, sem hann setur þá fram i óvanalegu formi, sem veröur skoplegt. Þetta á t.d. við um Borðsálm Jónasar, sem alkunnur er, en þar segir forsöngvarinn borösgest- um ýmsar kyndugar fréttir, sem þeir taka undir og gera sinar eigin athuga- semdir við, t.d.: Forsöngvarinn: A einum staö býr einnig fólk, sem alltaf vantar brýni, það lifir þar á mysu og mjólk, en mest á brennivini. Fólkið: Æ, hvaða skrambi, ætli þeir standi á þambi, mættum við fá meira aðheyra Svipað er að segja um Gamanvísur Jónasar til Halldórs Kr. Friðrikssonar siðar yfirkennara, þar sem hátiðlegt form og ávarp fellur algjörlega um sjálft sig vegna hins óviröulega og órökrétta oröalags: Dóri litli, dreptu yður I dag eða gær, sem nú er siður, enginn kveður þig upp né niður, ef þú ferð að lifa mig, vonin okkar, vara þig, ég skal gera átta kviður, 412 Sunnudagsblaö Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.