Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Page 8

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Page 8
uð móði allt um kring, þar sem ekki klettar girtu hana við sjóinn. Skyldi ég gæta þess, að kindurnar ryddust ekki fram yfir móðinn, og þó einkum gæta þess, að reka þær upp úr fjörunni svo þær yrðu ekki til framan við móðinn, þegar félli að. Mér þótti þetta skemmtilegt verk og sóttist eftir þvi, enda mun ég á þeim árum hafa verið til litils annars nýtur. I þetta skipti bjó ég um mig i lautar- dragi á hól skammt frá vik einni, sem ég vissi að kindurnar mundu helzt sækja á að fara um fram i fjöruna, og stuggaði við þeim eftir mætti. Ekki tókst það þó fullkomlega, einkum af ástæðum, sem brátt verða greindar. Þetta mun hafa verið nærri sumar- málum. Veðrið var yndislegt. Hvitalogn um allan sjó og sól skein i heiði þegar leið á daginn. Hressandi þaralykt barst um eyjarnar frá islausum vogum og vik- um, sem nú voru fyrst að losna undan hinu hvita fargi vetrarins og draga andann eðlilega. — Nú mundi visast allur þessháttar „gróðurilmur” talinn 'til mengunar og afar óhollur, en engan drap hann i þá daga þótt ósleitilega væri dreginn ofan i lungun. En ekki entist sú „þaralykt frá sjó” lengi. Sjórinn og austanblærinn sá um að skola öllu sliku út i hafsauga á fáum dögum. — Isspengur og jakar sveimuðu kring- um eyjarnar. Sátu á sumum fuglar, hvitir, svartir og allavega flekkóttir, og létu fara vel um sig i vorbliðunni. Þeir voru að biða og höfðust litt að. Matarlystin var að mestu þorrin. Kollurnar voru kviðsignar og bústnar. Eggin voru að skap- ast innan i þeim. Senn ætluðu þær að vappa upp á eyjarnar, hefja hreiöur- gerð og stanza þar þangað til mórauðir hnoðrar skriðu úr eggjunum þeirra. Þá skyldi haldið á sjóinn aftur. Eflaust var þetta sælutimi hjá þeim — tilhuga- lif, hveitibrauðsdagar. A öðrum lágu stór dökk flikki. Það rumdi i þeim. Þau urruðu og góluðu hvert að öðru ósköp vingjarnlega, veifuðu loppunum og slógu saman hreifunum öðru hvoru. Þetta voru sel- ir. Var þetta leikfimi hjá þeim? Eða voru þeir að tala saman, töluðu með öllum skönkum, eins og sumir miklir ræðumenn gera. Kannski voru þeir að spyrja um Þorkel: — Selur spurði sel, sástu hvergi Þorkel. Landselnum þykir ákaflega gaman að láta isspengur og jaka fleyta sér um Breiðafjörð siðari hluta vetrarins. — Það var ósköp notalegt að liggja þarna i lautinni, láta sólina verma sig og horfa út yfir hauður og haf. En allt i einu brá mér ónotalega. Yfir mér hátt i lofti sveimaði eitthvert dökkt og ljótt ferliki. 1 fyrstu áttaði ,jég mig ekki á hvað þetta var, gerði mér þó brátt ljóst, að það hlyti að vera fugl. Annað gat það ekki verið. Annað þekktist ekki á þeim árum, að væri á ferðinni um loftin blá, a.m.k.vissu „menn” á minu reki ekki tii þess. En hvaða fugl var þetta? Þvi- likan fugl hafði ég aldrei séð áður, svo sýndist mér hann stór. Vængirnir virt- ust vera eins og tveir flekar eða breiðir spaðar, sem gengu út frá siðunum á litlum báti. Ekki gat ég þó séð, að hann hreyfði þá neitt, samt héldu þeir hon- um á lofti — meira að segja alveg kyrrum. Það var eins og þessi ógn- valdur minn lægi þarna fyrir stjóra i lausu lofti. Fuglinn virtist hafa komið auga á mig, og þess vegna sveima þarna. Alyktaði hann sem svo, að ég væri auðveld bráð? Það veit ^ég ekki. En hann lækkaði flugið, lét sig siga niður og lappirnar löfðu niður úr skrokkn- um, ákaflega stórar að mér sýndist. Og þá sá ég að stélfjaðrirnar földuðu hvitu og hausinn var ljósari en búkur- inn. Mér fór ekki að verða um sel. Satt bezt að segja skithræddur og fór að veifa smalaprikinu minu, sem raunar var stuttur broddstafur, yfir mér. Ekki veit ég hvort skepnunni hefur brugöið nokkuð við það. En eftir litla stund tók hún til fleka sinna og stefndi i austurátt, eins og hún ætlaöi til lands — sennilega hefur hún komið þaðan. — Að litilli stundu liðinni var hún horfin sjónum minum. Skömmu seinna rak ég kindurnar heim, og sagði pabba minum hvað fyrir mig hafði borið. Honum þótti það ekki góðar fréttir, en brosti aðeins þegar ég sagði honum hvað ég hafði orðið hræddur. Hann sagði, að liklega heföi þetta verið örn. örninn væri vondur gestur i eyjum á þessum árs- tima vegna æðarvarpsins, en ekki mundi hann gera mér neitt.þótt ég sæi hann aftur, ég væri orðinn svo stór. En innan tiðar skyldi verða brælt i eyjun- um. Ekkert fældist örninn meira en eld og reyk. En seinna kom i ljós, hvers vegna „assa” gerðist mér svo nærgöngul þar sem ég lá og gætti kindanna. Þegar móðurinn þiðnaði meira sýndi það sig, að dauðan sel hafði rekið þarna upp i vikina einhvern tima um veturinn og frosiö ofan i móðinn. A hann hafði örninn komið auga á undan mér, liklega verið búinn að gæða sér á honum og nú ætlað aftur að setjast að krásinni, en ekki þorað að henni vegna nærveru minnar. Honum var þvi vorkunn,þótt hann sveimaði þarna yfir stundarkorn og sýndi mér klærnar. Það var i sjálfu sér litil hefnd fyrir að hafa af honum — liklega langsoltnum — góðan veizlukost. Selurinn var honum að eilifu tapað- ur. Hræið var tekið og urðað langt fram i fjöru, svo vargurinn settist ekki að þvi. Þar varð það ekki öðrum að notum, meðan holdið rotnaði og eydd- ist af beinum þess, en marflóm og marhnútum. Þeir vesalingar voru mörgum sinnum minni en örninn og töldust ekki til óvina eyjamanna. — Siðan þetta var hef ég séð marga erni, stundum fleiri saman og haft af þeim náin kynni, en ekki verið hrædd- ur við þá. Bergsveinn Skúlason Útgjöld ungrar stúlku fyrir 40 árum Miðaldra kona hefur sent Sunnu- dagsblaðinu gamalt blað úr „sjóðbók” sinni, þar sem hún færði til bókar öll útgjöld sin árið 1935-36, þá 16 ára að aldri. Stúlka þessi vann hjá fátækum foreldrum sin- umfen hafði arð af tveim kindum sem „eyðslufé.” kr. 0,20 1,50 0,50 1,50 0,85 0,40 10,00 10,00 6,00 2,75 2,00 5,00 4,60 1.50 1,00 2,00 0,50 7.50 4,00 5,00 1,00 3.50 Samtals Kr. 72,30 Blýantur Skólsólun Simtal Lýsi Bók Undir bréf Loðkantur Hringur Tvinni Meðal Læknishjálp Til Rauða kross. Skór Aðg. á skemmtun Do. Læknishjálp Sim tal Utsvar Fóður Meðul Greiða Sokkar Þetta var nú öll eyðslan. Með hverju ætli megi margfalda? 416 Sunnudagsbiað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.