Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Blaðsíða 11
Nokkrar vísur eftir Símon Dalaskáld á skaftfellskri yfirreið Eftirfarandi visur skrifaði Halldór Pétursson upp eftir Guðrúnu Filippusdóttur og Helgu Jónsdóttur, systurdóttur hennar. Guðrun segir svo frá: Þegar ég var á áttunda ári, var Simon Dalaskáld á ferðalagi um landið, og lá leið hans þá m. a.um Skaftafellssýlsur. Hann tindi þá upp svo að segja hvern einasta bæ, dvaldist þar dag eða lengur og orti um fólkiö. Þegar hann kom austan yfir Skeiðarársand, var Núpstaður fyrsti bær á leið hans. Þar var siður sem annars staðar að bjóða gestum til baðstofu, og sætin voru vanalega rúmin. Simon hlaut sæti á rúmi einnar vinnukonunnar og orti um hana samtimis: Simon dofið Dalaskáld aö noröan Fær að sofa i friöi hér fyrir ofan Torfhildi. Segir nú ekki af öðrum yrkingum hans á Núpstað. Næst kemur hann að Kálfafelli sem er kirkjustaður. Þar hafði búið áður prestur að nafni Sveinn Eiriksson og Simon komið til hans. Séra Sveinn var siðast prestur að Asum i Skafta- fellssýslu Hann var kvæntur Guðriöi Pálsdóttur frá Hörgsdal á Siðu, sem þótti mjög falleg kona. Þegar Simon kom þarna i þessari ferö, var þar gömul kona, sem lika hét Guðriður, en ekki þótti mikið fara fyrir friðleik hennar. Eigi áð' siður lét Simon sig ekki muna um að ljóða á gömlu konuna á eftir- farandi hátt: Mittisgrönn og gullfögur gengin mær i elli. Glóir önnur Guðriður glöð á Kálafelli. Þessu næst lagði Simon leiö sina að Kálfafellskoti til foreldra minna og orti þar um allt heimilisfólkið. Erlingur bróðir minn var þá á búnaðarskólanum a Eiðum, en ekki lét Simon sig muna um að skjóta einni visu á hann lika. Sú visa týndist, en hvert okkar hinna systkinanna mundi sina visu. Þetta segir Guðrún. Þetta var á siöastu tugi nitjándu aldarinnar og systkinin á Kálfa- fellskoti, þau sem Simon orti um, voru börn Þórunnar Gisladóttur og Filippusar Stefánssonar. Visurnar eru svona: Kálfafells nú kot situr kappsamur og glaður Filippus Stefáns borinn bur, bezti hagieiksmaður. Er ijósmóöir hjartahlý hollum meður dáðum, sama blóðið ættar i okkur rennur báðum. Símon Dala-dofiö skáld að noröan, fær að sofa I friöi hér fyrir ofan Torfhildi. Stefán sannan blóma ber bæði hýr og stilltur, systkinanna elztur er, efnilegur piltur. Þórunn mærin rausnarrik reifuð blóma friðum, unir kær i Keflavik kaupmanni hjá bliöum. Ung og fögur, elskar bögur minar Reifuð gnóttum glaðværðar, Geirlaug dóttir Filpusar. Hún Regina hýr á kinn hjartað gjörir kæta, kemur hún inn með ketilinn, kurteis heimasæta. Hann Sigurður hugnast mér, hýra meður brána. Þessi laufalundur ber læknisnafnið dána. Eina bögu óskar fá yndis prýdd meö gnóttir, ung og fögur gullhlaðs gná, Guðrún Filpusdóttir. Blið Jóhanna blómaskær blikar mikið fögur, elskar Hannes yngismær, og sem hana um siðir fær. Gissur Kristján yngstur er, æskublóm þar skina, Þessum vil ég gciragrér gefa dóttur mina. Halldór Pétursson. Sunnudagsblaö Timans 419

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.