Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Laugavegi 32 sími 561 0075
Tangarhöfða 1 • 110 Reykjavík • Símar 567 2357 og 893 9957
Komið og skoðið
húsbílana hjá okkur
Benimar húsbílarnir eru
sannkallaðir glæsivagnar
með vönduðum innrétt-
ingum, örbylgjuofni,
sólarrafhlöðu,
tengingu f. sjónvarp o.fl.
Einn með öllu.
VISSIR ÞÚ AÐ CLIPPER 80 VAR MEST SELDI
HÚSBÍLINN 2003
1,88 x 0,66 m 1,80 x 1,20 m 2,40 x
1,345 m 1,83 x 0,66 m 1,30 x 2 m 1,80 x 1,20 m
umboð á Akureyri
sigurður valdimarsson
Óseyri 5
KÝPVERJAR, bæði Grikkir og
Tyrkir, munu greiða atkvæði í dag
um tillögu Sameinuðu þjóðanna um
sameiningu eyjarinnar en kannanir
gefa til kynna, að Kýpur-Grikkir
muni fella hana. Gríski hlutinn muni
því fá aðild að Evrópusambandinu,
ESB, 1. maí næstkomandi en sá tyrk-
neski ekki. Yrði þessi útkoma mikið
áfall fyrir Sameinuðu þjóðirnar og
Kofi Annan, framkvæmdastjóra
þeirra.
Kýpur-Grikkir hafa barist fyrir
sameiningu eyjarinnar allt frá árinu
1974 þegar tyrkneskt herlið réðst þar
inn en nú saka þeir vestræn ríki og
milligöngumenn þeirra um að ætla að
neyða upp á þá óviðunandi samningi.
Meðal annars með því að svipta þá
rétti til að endurheimta það land og
þær eignir, sem þeir misstu í hendur
Tyrkja. Þá segjast Kýpur-Grikkir
óttast, að það muni koma í þeirra hlut
að bera allan kostnað af uppbyggingu
og bættum lífskjörum í tyrkneska
hlutanum en þau eru miklu síðri en í
þeim gríska.
Kýpur-Tyrkir vilja í ESB
Tassos Papadopoulos, forseti Kýp-
ur-Grikkja, hefur hvatt til, að samein-
ingartillagan verði felld og undir það
hafa tekið aðrir stjórnmálamenn og
talsmenn grísku rétttrúnaðarkirkj-
unnar. Hefur þjóðernisæsingurinn
verið svo mikill, að grískir stuðnings-
menn sameiningartillögurnar hafa
næstum orðið að fara í felur.
Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, hefur ávallt barist gegn sam-
einingu eyjarinnar og er sömu skoð-
unar enn. Skoðanakannanir hafa hins
vegar sýnt, að meirihluti tyrkneskra
kjósenda á eynni er hlynntur samein-
ingu, ekki síst nú þegar þeir eygja
von um að komast inn í Evrópusam-
bandið. Með aðild myndu lífskjör
þeirra batna og þeir losna úr þeirri
einangrun, sem þeir hafa verið í frá
innrásinni 1974. Hafa þeir ekki fengið
viðurkenningu nokkurs ríkis nema
Tyrklands og verið beittir ýmsum
refsiaðgerðum að auki.
Tyrkneska stjórnin hefur hvatt
Tyrki á Kýpur til að samþykkja til-
lögu SÞ en ríkisfjölmiðlarnir á eynni
hafa barist gegn henni og einnig þjóð-
ernissinnar í Tyrklandi og herinn.
Vonbrigði fyrir Annan
Fyrir SÞ og Kofi Annan yrði það
mikið áfall ef sameiningartillagan
verður felld eins og allt bendir til.
Hefur hann lagt mikið á sig og haft
það sem forgangsmál að binda enda á
30 ára aðskilnað eyjarskeggja.
Bandaríkin og ESB hafa líka lagt
hart að Kýpur-Grikkjum að sam-
þykkja tillöguna en verði hún felld,
munu margir fara að spyrja um getu
alþjóðlegra samtaka á borð við SÞ til
að leysa erfið deilumál.
Fréttaskýrendur segja samt, að lít-
il hætta sé á, að orðstír SÞ muni bíða
mikinn hnekki þótt úrslitin verði eins
og skoðanakannanir benda til.
„Hverjum stendur ekki á sama um
Kýpur þegar allt kemur til alls? Það
er ástandið í Írak, sem getur skipt
sköpum fyrir Sameinuðu þjóðirnar,“
sagði einn fréttaskýrandinn.
Aðild Tyrklands
að ESB í húfi?
Á þessu máli er síðan önnur hlið,
sem er hugsanleg aðild Tyrklands að
ESB. Tyrkneska stjórnin hefur sótt
það fast að fá viðræður um hana en
margir hafa litið svo á, að eitt mik-
ilvægasta skrefið í þá átt og jafnvel
forsenda sé sameining Kýpur.
Raunar er ekki hægt að segja, að
evrópskir stjórnmálamenn séu al-
mennt hrifnir af þeirri hugmynd að fá
Tyrkland inn í ESB en samt hafa þeir
gagnrýnt leiðtoga Kýpur-Grikkja
harðlega fyrir neikvæða afstöðu til
sameiningartillögunnar. Það er þó
ekki alveg víst, að þeim yrði það jafn-
leitt og þeir láta, að tillagan yrði felld.
Ekki er heldur ólíklegt, að margir
Kýpur-Grikkir líti svo á, að nú fái þeir
loks tækifæri til að gjalda Tyrkjum
rauðan belg fyrir gráan, hefna inn-
rásarinnar og leggja um leið stein í
götu hugsanlegrar ESB-aðildar
þeirra.
Gríska stjórnin hvatti í gær önnur
ESB-ríki til að taka niðurstöðunni í
kosningunum af raunsæi, hver sem
hún yrði. Sagði hún, að þótt tillagan
yrði felld, yrði áfram unnið að því að
leysa deiluna.
Á kjörskrá á Kýpur eru 480.000
Grikkir og 145.000 Tyrkir. Búist var
við, að niðurstaðan í kosningunum
lægi fyrir upp úr nóni í dag.
Tillaga um
sameiningu
Kýpur senni-
lega felld
!"##$%$&$'&$()"*"*%+,-.+/
!
< <
! ! =
$
>?
"#$%& !%'$(')
*+ ,' $('
@
%&
!
< <
! ! =
$
>?
"# ,'
$('
*+ ,'
$('
@
1 )
$ +
--
--
1
$ A
1
A * 6
* 6:- 1
$ A
1
A
. 6
1
)9. - ./01234546"4*
78141
4**9234
"4
2*2
:';<# 5< '%'=>?%'<< ;'$(';@%
A# % &% + << A& <'+> ;'<
2 +)#>''=; !;<+ Gríski hlutinn fær þá einn aðild að ESB
1. maí – Yrði áfall fyrir SÞ og Annan
Nikósíu, Sameinuðu þjóðunum. AFP.
TYRKNESKIR Kýpverjar á fjöl-
mennum fundi í fyrradag þar sem
hvatt var til, að sameiningartillag-
an yrði samþykkt. Á myndinni af
stúlkunni stendur: „Fyrir mig,
mamma“ og á borðanum segir:
„Tengjumst umheiminum með einu
jái.“ Flest benti til, að Kýpur-Tyrkj-
um yrði ekki að þessari ósk sinni.
Reuters
„Fyrir mig,
mamma“
ÁFORM um fjölgun léttlesta í
breskum borgum gætu verið í
uppnámi því núverandi léttlestar
laða hvorki til sín farþega né fjár-
festa, að því er fram kemur í
skýrslu ríkisendurskoðunarinnar
bresku (NAO) sem varar við fjár-
festingum í léttlestarkerfum.
Í skýrslu NAO kemur fram að
tap sé á rekstri núverandi léttlest-
arkerfa í Bretlandi. Þau hafi
gagnað lítt við að draga úr bíla-
umferð og samþætting þeirra við
aðra samgöngumáta er engin, að
því er fram kemur í frétt um mál-
ið á fréttavef BBC.
Rekstrartap léttlestarkerfanna
hefur fælt einkafyrirtæki frá því
að fjárfesta í nýjum léttlest-
arkerfum.
Alistair Darling samgöngu-
ráðherra segir að hann muni
skoða nýja valkosti reynist létt-
lestirnar ekki fjárfestingarinnar
virði. Léttlestarkerfi er að finna í
sjö breskum borgum og hafa þau
öll verið byggð upp á síðustu 25
árum. Tólf til viðbótar eru í upp-
byggingu með ríkisstyrk sem
nemur milljarði punda eða um 130
milljörðum króna.
Ríkisendurskoðunin breska seg-
ir að yfir stóra þröskulda sé að
stíga eigi frekari þróun og upp-
bygging léttlestarkerfa að eiga sér
stað.
Tilgreinir NOA sérlega léttlest-
arkerfið í Sheffield sem verið hef-
ur starfrækt frá árinu 1994 eða í
áratug.
Þar hafi verið búist við að
einkafyrirtæki myndu fjárfesta í
kerfinu fyrir allt að 80 milljónir
punda.
Árangurinn sé hins vegar sú að
einungis ein milljón punda hafi
skilað sér úr einkageiranum. Þá
séu farþegar 45% færri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir.
Og í léttlestarkerfinu á Birm-
inghamsvæðinu séu farþegar að
jafnaði 38% færri en forsendur við
uppbyggingu lestarkerfisins
byggðust á.
Léttlestarkerfin Midland Metro,
Manchester Metrolink, Croydon
Tramlink og Tyne and Wear
Metro eru öll rekin með tapi, að
sögn NOA, og er árlegur halli á
Midland Metro á Birmingham-
svæðinu 11,4 milljónir punda á ári,
eða um 1,5 milljarðar króna.
Léttlestarkerfin óhagkvæm
Breska ríkisend-
urskoðunin varar
við fjárfestingum í
léttlestarkerfum
sem hvorki laða að
sér farþega né
fjármagn