Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 26
FERÐALÖG
26 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Velkomin í Stykkishólm!
- Fjölbreytt afþreying
- fjölbreytt þjónusta
- í fallegum bæ!
Hótel - heimagistingar - farfuglaheimili - tjaldstæði - veitingastaðir - verslanir
Listahátíð í Brighton
Það verður líf og fjör í Brighton á Eng-
landi í þrjár vikur í maí en þá verður
haldin þar sérstök Brighton hátíð í 38.
sinn. Boðið er m.a. upp á danssýningar,
leiksýningar, allskyns tónlist, bók-
menntakynningar og umræður og
götulist. Hátíðin hefst laugardaginn 1.
maí kl. 10.30 í Pavilion Gardens með
skrúðgöngu barna. Börn úr um 60 skól-
um og félagsmiðstöðvum af svæðinu
taka þátt og spilar sambahljómsveit
skólabarna auk þess sem atvinnu-
tónlistarmenn flytja tónlist. Búast má
við litríkri skrúðgöngu með tónlist,
söng, steppdansi og skrautlegum bún-
ingum því gert er ráð fyrir 4000 þátt-
takendum og 10.000 áhorfendum.
Brighton Festival
Sími: (01273) 700747
Netfang: info@brighton-
festival.org.uk
Veffang: www.brighton-
festival.org.uk Isle of Man
S
igurbjörg Björgvinsdóttir,
forstöðukona félagsstarfs
aldraðra í Kópavogi, er
nýlega komin heim frá
Tasmaníu þar sem hún
ásamt þremur íslenskum kynsystr-
um sínum sat heimsþing ACWW,
Associated Countrywomen of the
World, sem Kvenfélagasamband Ís-
lands hefur átt aðild að til fjölda ára.
Tasmanía tilheyrir Eyjaálfu og ligg-
ur fyrir sunnan Ástralíu, en að sögn
Sigurbjargar er landið spennandi
ferðamannaland enda hafi margt
nýtt borið fyrir augu. Ferðablaðið
forvitnaðist um landið og ferðalagið
hjá Sigurbjörgu sem fór meðal ann-
ars í fjallaklifur á meðan á dvölinni
stóð, en sjálf segist hún hafa gaman
af ferðalögum og velji sér þá gjarnan
óvenjulega staði, hvort sem þá er að
finna hérlendis eða erlendis.
Tasmanía er um 68 þúsund ferkíló-
metrar að flatarmáli og er því nokk-
uð minni en Ísland sem telst vera um
103 þúsund ferkílómetrar. Eyjan til-
heyrir sambandslýðveldinu Ástralíu,
en er með sjálfsstjórn líkt og Ísland
var frá 1918 til 1944. Íbúar eru tæp
hálf milljón manna og þar af býr
tæpur helmingur á höfuðborg-
arsvæðinu.
Ekkert óviðkomandi
Ferðalaginu til Tasmaníu var
þannig háttað að flogið var með Ice-
landair til Lundúna. Þaðan var flogið
með ástralska flugfélaginu Qantas til
Hobart, höfuðborgar Tasmaníu, sem
er staðsett á suðurhluta eyjunnar,
með millilendingu í Bangkok á Taí-
landi og í Sydney í Ástralíu, en þar
dvöldu Íslendingarnir í tvo daga áð-
ur en haldið var alla leið til Hobart,
þar sem er að
finna alþjóðlegan
flugvöll. „Fisk-
veiðar, landbún-
aður og verslun
teljast til helstu
atvinnuvega
Tasmana auk
þess sem sífellt
vaxandi ferða-
mannastraumur
er að verða arð-
vænlegur atvinnuvegur þarna því
margt er að skoða og íbúar virðast
hafa allnokkra þjónustulund við hinn
krefjandi ferðamann. Boðið er m.a.
upp á bátsferðir frá Hobbart á Suð-
urskautslandið. Loftslag er afar
hreint, líkt og á Íslandi, og vatnið í
krönunum er vel drykkjarhæft,“ seg-
ir Sigurbjörg.
Af þeim þrettán dögum, sem
ferðalagið varði, stóð ráðstefnan yfir
í heila viku. Hún fór fram síðustu vik-
una í marsmánuði, en þá er síðsumar
í Tasmaníu. Eitt þúsund konur frá 66
aðildarlöndum tóku þátt, en samtök-
unum er nánast ekkert óviðkomandi
er við kemur manninum og velferð
hans, að sögn Sigurbjargar. „Miklar
umræður fóru í að ræða rétt fólks til
að lifa heilbrigðu lífi. Fjallað var um
stríð og hörmungar, fæðuöflun og
umhverfismál og heitar umræður
urðu um mansal svo dæmi séu tek-
in.“ Næsta heimsþing samtakanna
verður haldið í Turku í Finnlandi að
þremur árum liðnum, en til stendur
að halda Evrópuþing samtakanna á
Íslandi 17.–21. maí á næsta ári.
Barið á bumbur
„Í Tasmaníu nutum við þess að
hlusta á menningu Tasmana sem er
allfrábrugðin okkar eigin, í það
minnsta tónlistin. Innfæddir berja
bumbur í orðsins fyllstu merkingu og
þeldökkir Tasmanar flytja háværa
og taktfasta hljómlist.“
Sigurbjörg varði heilum degi í
einskonar fjallaklifur, sem kallað er
„Huon Trail“. Gengið er á brúm í
fjallshlíðum Tahuna-skógarins.
„Gangan er mjög spennandi, en
göngugarpar eru óneitanlega í þó
nokkurri hæð og því er gangan ekki
heppileg fyrir lofthrædda. Við fórum
einnig í siglingu á milli eyjanna, sem
liggja við suðurströnd Tasmaníu.
Þær eru margar lítt byggðar og stutt
er þaðan í þjóðgarðinn, sem þekur
stórt landsvæði Tasmaníu og er bæði
afar hálendur og óbyggður. Svo
vörðum við auðvitað tíma í að skoða
bæði byggingar og mannlíf í Hobart,
þar sem breskra áhrifa gætir mjög.
Til að mynda eru allflest götuheiti
bresk og ber t.d. aðalverslunargatan
hið virðulega nafn Elísabetargata.“
Þegar Sigurbjörg er spurð út í
matarmenninguna, svarar hún að
bragði að fiskréttaveitingahús Tasm-
ana séu mjög spennandi. „Við dvöld-
um á mjög góðu hóteli, Grand Chanc-
ellor, sem stendur alveg við
smábátahöfnina, og fylgdumst með
þegar bátarnir sigldu út að morgni
og komu svo með spriklandi fisk að
landi á kvöldin. Þaðan fer fiskurinn
ferskur á veitingahúsin og er svo
matreiddur af meistarakokkum veit-
ingahúsanna á kvöldin. Mjög góðan
mat var einnig að fá á hótelinu. Þar
var m.a. boðið upp á fjölbreytta
grænmetis-, ávaxta- og kartöflurétti
enda var síðsumar og því upp-
skerutíminn í hámarki,“ segir Sig-
urbjörg að lokum.
Í höfuðborginni: Í Hobart býr tæplega helmingur þjóðarinnar.
TASMANÍA
Ferskmeti
og fjallaklifur
Eitt þúsund konur hvaðanæva úr heiminum komu
nýlega saman á heimsþingi kvenfélagasambanda í
Tasmaníu. Jóhanna Ingvarsdóttir spurði Sig-
urbjörgu Björgvinsdóttur út í fjarlæga eyju.
Smíðar: Tasmaníubúar nýta skógana m.a. til skipasmíða.
join@mbl.is
Upplýsingamiðstöð í Hobart
www.hobartcity.com.au
Hotel Grand Chancellor
www.grandchancellor.com
Frábær fiskréttastaður
Upper Deck, Victoria Dock
Sími: 6231-2121
Sigurbjörg
Björgvinsdóttir
EF LEIÐ liggur til Amsterdam í
sumar þá er kannski tilvalið að skoða
öðruvísi gistimöguleika og leigja sér
húsbát.
Fyrirtækið Amsterdam House
leigir út þrjátíu íbúðir til ferðamanna
og einnig átta húsbáta.
Húsbátarnir eru sagðir rúmgóðir
með fullbúnu eldhúsi og baðherbergi.
Sími er um borð, sjónvarp og hægt að
fá bæði handklæði og rúmfatnað.
HOLLAND | Öðruvísi gististaður
Húsbátaleiga í Amsterdam
Nánari upplýsingar um hús-
bátaleiguna og íbúðirnar í Amst-
erdam fást hjá fyrirtækinu Amst-
erdam House
Gravenlandseveer 7
1011 KN Amsterdam
Tölvupóstfang: amshou-
se@euronet.nl
Vefslóð: www.amsterdam-
house.com