Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is MOSAIK Veljið fallegan legstein Vönduð vinna og frágangur Sendum myndalista Legsteinar ✝ Geir Gissurarsonfæddist að Byggðarhorni í Flóa 30. maí 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Suð- urlands 11. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Sigurðardóttir frá Langholti í Hraun- gerðishreppi og Giss- ur Gunnarsson frá Byggðarhorni í Flóa. Systkini Geirs voru 15 talsins: Margrét, f. 1897, d. 1983, Gunn- ar, f. 1898, d. 1948, Sigurður, f. 1899, d. 1918, Jón f. 1901, d. 1981, Óskar, f. 1903, d. 1990, Margrét, f. 1904, d. 1985, Sig- urður Ágúst, f. 1905, d. 1999, Vig- dís, f. 1907, d. 1997, Stefanía, f. 1909, d. 1989, Þórný, f. 1910, d. 2002, Helga, f. 1911, d. 1994, Ólaf- Haraldssyni og eiga þau þrjú börn, Harald, f. 1960, Lárus, f. 1964, og Steinunni, f. 1967. 3) Hjördís Jóna, f. 1944, gift Þórhalli Geirssyni og eiga þau fjögur börn, Þórdísi Lóu, f. 1965, Heru Björk, f. 1972, Geir, f. 1975, og Gissur, f. 1978. 4) Gísli, f. 1945, kvæntur Ingibjörgu Kristínu Ingadóttur og eiga þau fjögur börn, Baldvin Inga, f. 1969, Báru Krist- björgu, f. 1972, Sigurjón, f. 1974, og Inga Magnús, f. 1983. 5) Brynhild- ur, f. 1951, gift Kristjáni Einarssyni og eiga þau þrjú börn, Jónínu, f. 1972, Guðbjörgu Sigríði, f. 1977, og Einar Matthías, f. 1981. Barna- barnabörnin eru 29. Geir tók við búi foreldra sinna að Byggðarhorni í Flóa kringum 1940 og stundaði þar hefðbundinn búskap alla sína starfsævi. Einnig starfaði hann við Sláturhús Suðurlands um langt árabil. Síðustu tíu ár ævi sinnar bjó Geir í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Grænumörk 5 á Selfossi. Útför Geirs verður gerð frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Laugardælakirkjugarði. ur, f. 1912, d. 1999, Bjarnheiður, f. 1913, d. 2000, Guðmundur Kjartan, f. 1914, d. 1990, og Sigurður Kristján, f. 1918, d. 1998. Geir kvæntist Jón- ínu Sigurjónsdóttur frá Kringlu í Gríms- neshreppi árið 1939. Jónína var dóttir hjónanna Jódísar Ámundadóttur og Sig- urjóns Gíslasonar ætt- uð úr Flóa. Geir og Jónína (Lóa) eignuðust fimm börn. Það eru þau: 1) Gissur Ingi, f. 1939, d. 1996, eftirlifandi eiginkona Gissurar er Ásdís Lilja Sveinbjörnsdóttir og eiga þau þrjú börn, Daníel Geir, f. 1967, Kolbrúnu Ylfu, f. 1971, og Vigdísi Rós, f. 1973. 2) Úlhildur, f. 1942, gift Sigvalda Þá er fallinn síðasti hlekkurinn úr systkinahópnum stóra frá Byggðar- horni í Flóa. Aldamótakynslóðin sem vann frá blautu barnsbeini hörðum höndum, og baki brotnu til að hafa í sig og á. Pabbi var næstyngstur í hópnum. Ólst upp á mannmörgu heimili foreldra sinna í skjóli eldri systkina. Einnig var á heimilinu öldr- uð kona sem þau Byggðarhornshjón höfðu tekið að sér. Hún tók ástfóstri við hvítvoðunginn, og hafði hann und- ir sínum verndarvæng á meðan heilsa og líf entist. Pabbi minntist hennar ætið með mikilli elsku og virðingu og ein okkar systranna ber nafn Úlfhild- ar gömlu með prýði. Pabbi hjálpaði snemma til við bústörfin eins og þá tíðkaðist og tók við búi foreldra sinna í fyllingu tímans. Það varð hans gæfa þegar Bjarnheiður systir hans útveg- aði kaupakonu úr Reykjavík, til bú- starfa sumarið 1938. Konan sú kunni sitthvað fyrir sér, og gekk til verka jafn utan dyra sem innan. Og eitt var það sem amma Ingibjörg kunni best að meta, en það var að hún kunni að „fela eldinn“, eða halda glóðinni á lífi yfir nótt. Þar var komin móðir okkar Jónína Sigurjónsdóttir frá Kringlu í Grímsnesi. Það var mikið gæfuspor er þau gengu í hjónaband og hófu bú- skap í Byggðarhorni 1939. Við systk- inin komum eitt af öðru og ólumst upp við ástríki, vinnusemi og gleði. Alltaf glatt á hjalla þegar gesti bar að garði. Mamma þandi nikkuna, Ingibjörg hans Óskars spilaði á orgelið og svo var sungið og dansað eða tekið í spil. Oft hef ég hugsað um að heimilið hafi verið eins og góð félagsmiðstöð. Alltaf fullt af vinnufólki og ættingjum og all- ir velkomnir. Þau voru ófá frænd- systkinin og aðrir sem komu til dvalar í Byggðarhorn um lengri eða skemmri tíma. Pabbi var mikill gleði- gjafi hvar sem hann fór. Sinnti bú- störfum og búpeningi af natni og elju. Hann átti einstaklega gott með að umgangast fólk og þá sérstaklega börn og unglinga. Ekki man ég að hann skipti oft skapi. Það var helst þegar við Gísli gerðum einhver prakkarastrik, eða Framsóknarflokkurinn átti í vök að verjast. Þar var hann fastur á sínu og gat haldið langan fyrirlestur, án þess að stama. Mamma og pabbi áttu góða og farsæla samleið í lífinu og njótum við afkomendurnir þess í ríkum mæli. Það var honum mikill harmur er hún lést eftir hart veikindastríð 1988. Hann hafði þá annast um hana af mik- illi elskusemi og umhyggju í rúmt ár, og hafði á orði að það væri heilmikið og annasamt starf að vera bara hús- móðir. Eins var það honum mikið áfall þegar Gissur bróðir féll frá í blóma lífsins árið 1996. Þá voru kraftarnir farnir að gefa sig og hann fluttur í Grænumörkina. Hann var einn af þeim fyrstu er fluttu í það góða hús og var orðin elsti íbúinn í húsinu er hann lést. Árin sem hann bjó í Grænu- mörkinni voru honum góð og gæfurík. Þar kom vel í ljós hæfileikinn við að umgangast fólk og blanda geði við aðra. Borða í matsalnum, spjalla við aðra íbúa, spila „brids“ við þessa og „whist“ við hina. Starsfólk félagsþjón- ustunnar á Selfossi á miklar þakkir skilið fyrir umhyggju, hjúkrun og hjálpsemi í hans garð seinni árin, og þá ekki síst Helga Ásta fyrir allan morgungrautinn. Við Geirsbörnin frá Byggðarhorni og okkar fjölskyldur viljum færa þessu góða fólki okkar innilegustu þakkir fyrir góða umönn- un sem gerði honum kleift að búa með reisn á sínu heimili til hinsta dags. Eins viljum við þakka öðrum íbúum í Grænumörkinni góð kynni og vináttu sem hann naut í ríkum mæli. Pabbi áleit það sína gæfu í lífinu að hafa átt góða konu og heilbrigð börn. Hann var stoltur af sínum stóra hópi afkom- enda, og hafði á orði á góðri stundu að það væri ekki amalegt að vera upp- hafsmaðurinn að þessum glæsilega hópi. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Hjördís Geirsdóttir. Þau eiga draum um háa höll og hamingjunnar blómin öll. Og saklaus ung og yndisleg þau eiga hljóðlát sama veg. Og gæfan ljær þeim gullin mátt, er glóir sól í austurátt og bráðum vorar björkin rís með blöðin græn í paradís. (Guðjón Halldórsson.) Ég veit að hann pabbi minn hugs- aði til endurfundanna við mömmu þegar hann þessi síðustu misseri sat í hjólastólum sínum og raulaði þessar hugljúfu ljóðlínur við lag Sigfúsar Halldórssonar. Ég veit líka að það hafa orðið fagn- aðarfundir þegar hann hitti þau mæðgin mömmu og Gissur bróður minn en hann lést langt um aldur fram fyrir sjö árum. Mamma dó 1988 eftir erfið veikindi sem tóku mjög á pabba. Það var ævinlega hátíð hér á Brú- arhól þegar hann var væntanlegur í heimsókn og við hæfi að vera húsleg, baka kleinur og þess háttar svo ég tali nú ekki um að hóa fjölskyldunni sam- an og halda lambakjötsveislu. Pabbi var fyrst og fremst bóndi og mikill Íslendingur og undi sér best í sveitinni sinni, hann fór aðeins tvisvar til útlanda á sinni löngu ævi en ferðað- ist töluvert um landið sitt og hafði af því mikla ánægju. Á fyrri hluta ævinnar ferðaðist pabbi mikið á hestum og kunni af þeim ferðalögum margar góðar sögur en hann átti á þeim árum gæðinga sem eftir var tekið og hafði alla tíð yndi af góðum hestum. Og nú er komið að leiðarlokum og mig langar að þakka pabba mínum alla hans umhyggju við okkur hjónin, börnin okkar, tengdabörnin og síðast en ekki síst barnabörnin sem hann fylgdist með af miklum áhuga. Það er ósk mín og von að hann hafi nú þegar hitt mömmu og draumurinn hafi ræst um höllina í Paradís. Úlfhildur Geirsdóttir. Í dag kveðjum við í hinsta sinn ást- kæran afa okkar, Geir Gissurarson. Nú þegar hann er fallinn frá, þá hugg- um við okkur við allar góðu minning- arnar um hann enda er svo margs að minnast. Geir afi var allra besti afi sem hægt er að hugsa sér, hann var alltaf svo góður og skemmtilegur, með þennan hressilega háværa hlátur sem kom okkur ávallt í gott skap. Hann afi hafði þægilega nærveru og okkur leið svo vel að hafa hann hjá okkur, þegar við fjölskyldan hittumst við ýmis til- efni, og þá sérstaklega heima hjá mömmu og pabba. Núna er minningin falleg um hann afa sitjandi í hjóla- stólnum sínum að horfa á fréttirnar, spjalla við okkur um allt mögulegt og syngja fyrir barnabörnin og leggja þeim lífsreglurnar. Hann æfði þau til dæmis stíft í að láta þau heilsa sér með hægri hendi og eins sagði hann ávallt við þau að þau yrðu ekki að mönnum nema að klára allan matinn sinn. Krökkunum fannst hann alltaf svo sniðugur kall. Afi var mjög barn- góður og hann elskaði að hafa börn í kringum sig. Barnabarnabörnin hændust mjög að honum, enda var hann alltaf að telja hvað þau væru orðin mörg og var mikið ánægður og stoltur ef hann (eins og hann orðaði það) „sá í eitt“. Afi Geir ólst upp í Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi í Flóa. Hann og amma Jónína tóku þar síðan við búi og eignuðust saman fimm börn. Geir afi, bóndi í Byggðarhorni, bjó í sveit- inni sinni þar til fyrir rúmlega 15 ár- um, en þá fluttist hann (eftir að amma dó) í Grænumörk á Selfossi. Minning- arnar um hann afa í sveitinni eru ekki ýkja margar, en helstu minningarnar frá Byggðarhorni eru síðan við vorum börn. Þegar amma og afi voru að passa okkur og við fengum að gista, og afi strauk okkur um hendurnar og vangann með sínum stóru og hlýju höndum. Einnig þegar afi söng skemmtileg lög fyrir okkur, tók okkur á hné sér og hreyfði lappirnar í takt við lagið „Lambið mitt með blómann bjarta“ o.s.frv. Síðan munum við vel eftir honum afa í bláa vinnusloppnum sínum að sinna kindunum í fjárhús- inu, alltaf með fullt af krökkum í kringum sig. Þetta eru góðar minn- ingar sem aldrei gleymast. Afa þótti mikið vænt um sveitina sína og það var virkilega gaman að keyra með hann um hana, hann fylgd- ist vel með heyskapnum í sveitunum á sumrin og hafði ákveðnar skoðanir á hvernig gengi og á öðru sem var að gerast. Það er góð minning að hugsa um hann afa sitja á pallinum í Hraun- prýði hjá mömmu og pabba, í góðu veðri, og horfa yfir sveitina sína sem hann var svo afskaplega stoltur af. Afi hefur verið stór partur af okkar daglega lífi, því mamma okkar hugs- aði mikið um hann, og þá sérstaklega síðustu árin. Hann gat ávallt leitað til hennar þegar hann vantaði eitthvað og hún var dugleg að bjóða honum heim og hafa hann með þegar við fjöl- skyldan hittumst og við önnur tilefni. Sambandið á milli þeirra var sterkt og hann leyndi því ekki hversu vænt honum þótti um hana. Við systkinin eigum sérsaklega eft- ir að sakna hans afa um jól og á öðrum hátíðum, því hann var mikið með okk- ur þá og við munum varla eftir okkur öðruvísi en að afi væri með okkur á þessum stundum. Það var svo ynd- islegt að sitja með afa á aðfangadag inni í stofu og hlusta á klukkurnar hringja inn jólin og á jólamessuna. Þá fannst okkur jólin vera komin. Það verður án efa tómlegra undir jóla- trénu hjá mömmu og pabba því að afi átti yfirleitt stærstan hluta af því sem var undir trénu. Afi var gæfusamur maður og það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi sannarlega átt góða ævi og góða að. Hann eignaðist fjölda afkom- enda og var afskaplega stoltur af sínu fólki. Okkur finnst því við hæfi að kveðja afa með þessari vísu sem hann sjálfur klippti úr blaði og varðveitti í veskinu sínu. Eflaust hefur hann ver- ið sammála okkur og þótt hún ein- kenna líf sitt. Beinan geng ég gæfuveg, götu sólarbjarta. Yfir hverju ætti ég eiginlega að kvarta? (Ingþór Sigurbjörnsson.) Við þökkum þér fyrir öll árin og all- ar þær stundir sem við áttum saman. Blessuð sé minning þín. Þín barnabörn Jónína, Guðbjörg Sigríður og Einar Matthías. Afi minn var frábær kall, mikill og góður karakter. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum þegar kom að því að hafa skoðanir á hlut- unum. Hann hafði þær á öllum hlut- um og það ákveðnar. Ég man sérstak- lega eftir því þegar ég einhvern tímann í bjartsýniskasti fór að ræða við hann um giftingu samkyn- hneigðra og það er með líflegri rök- ræðum sem ég hef komist í. Afi var yndislegur barnakall og þá sérstaklega var hann stoltur af barna- börnunum 29 og var farinn að bjóða vegleg verðlaun þeim sem kæmi með það þrítugasta. Hann var lengi búinn að hóta því að ætla að tóra þar til sæ- ist í það þrítugasta og hver veit nema það sé komið í framleiðslu nú þegar. Hann sá kannski lengra en nef hans náði. Einu sinni sat ég súr og einmana í sófanum og velti mér upp úr eigin eymd sem engin var. Þá hringir afi. Klukkan var að nálgast miðnætti og sá gamli fann allt í einu hjá sér sterka þörf fyrir að hringja í eitt barnabarnið norður í land og spjalla. Við ræddum lengi saman og hann gaf mér mikil- vægar ábendingar um lífið og til- veruna. Hans virtist alveg vita upp á hár hvernig sálartetrið var á sig kom- ið og var mættur á línuna til að stappa í mig stálinu. Hann hvatti mig til dáða og endaði svo með því að segja mér að fara varlega í umferðinni á „Playmó- bílnum“ eins og hann kallaði fína Dai- hatsu Gran Move bílinn minn. Hann vildi hafa mig á Lödu Sport sem var hans bíll og eina vitið að hans mati. Ég hef haft þetta bak við eyrað síðan og þakka auðmjúk góð ráð. Við fjölskyldan áttum góðar stund- ir með afa á Víðum í Reykjadal. Þar sat hann á drumbinum góða á gömlu traktorssæti og horfði yfir lendurnar eins og höfðingi í ríki sínu. Dóttir mín, sem þá var fjögurra ára, skoppaði í kringum hann og söng með honum og þau gátu spjallað heilmikið saman, sá gamli og sú litla. Og þegar við skírðum litla drenginn okkar, hann Víðar Kára, núna um jólin kom afi langan veg til að vera viðstaddur. Þar náðist alveg frábær mynd af þeim saman, sá elsti og sá yngsti (nr. 29) í ættinni. Þar kvaddi hann sér hljóðs eins og hann gerði alltaf og þakkaði fyrir sig og kvaddi hálfpartinn því hann vissi að hans ferð í þessu lífi yrði senn á enda. Og nú er hann farinn, blessaður. Við vissum öll hvert stefndi en samt er skrítið að kveðja hann afa. Hann hefur verið til staðar allt mitt líf og kryddað tilveruna með sér og sínum skemmtilega húmor. Og svona rétt í lokin þá langar mig til að deila með þér, lesandi góður, al- veg dásamlegu heilræði sem afi minn gaf mér og mínum manni á brúð- kaupsdaginn okkar fyrir nokkrum ár- um. Hann kvaddi sér hljóðs eins og hans var von og vísa og talaði vel til okkar og óskaði alls hins besta. Svo bað hann okkur að fara aldrei ósátt að sofa, heldur nota tækifærið eftir rifr- ildi til að sættast undir sænginni og elskast vel og lengi. Svo klykkti hann út með því að segja að hann og amma hefðu bara rifist fimm sinnum og ættu þ.a.l. fimm börn. Svona var afi, ynd- islegur kall með húmorinn og hjartað á hárréttum stað. Takk, elsku afi, fyr- ir allt og allt og skilaðu góðri kveðju yfir til allra sem ég þekki í þínum góða gleðskap. Hvíl í friði. Kveðja frá Spáni til ykkar allra. Hera Björk, Óli og börn. Elsku afi minn, mikið rosalega á ég eftir að sakna þín. Ég er svo fegin því að hafa átt með þér yndislega stund rétt fyrir andlát þitt, þar sem ég að- stoðaði Dísu frænku að raka þig og gera þig fínan, eins og við sögðum, gera þig fínan áður en þú hittir þína heittelskuðu sem hefur beðið þín í 16 ár. Amma elskuleg beið nú ekki lengi við drottins hlið. Hún kom bara og sótti þig, henni fannst örugglega tími til kominn að hún fengi sinn mann, GEIR GISSURARSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.