Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIN er margslungið listform. Til að búa til góða kvikmynd þarf margt til. Leikstjórinn þarf í raun að hafa fullkomið vald á mörg- um listgreinum samtímis, og fá þær til að dansa þannig saman að skapist hljómræn heild, sem virkar fyrst og fremst frásagnarlega en hefur auk þess stíl. Þetta tekst ekki mörgum, en Tarantino tekst það. Og í þessari mynd bætir hann um betur og leikur sér auk þess með B-myndirnar sínar heittelskuðu, svo úr verður hollustu- eiður við kvikmyndagerð, stórkost- lega vel stílfærð Kung Fu-mynd í hinni einu sönnu alamerísku um- gjörð. Á bakvið grafalvarlega hefnd- arsögu kraumar Tarantino húmorinn í efnivið sem hann dýrkar og gerir gys að um leið. Uma Thurman er mætt aftur sem brúðurin í leit að hefnd. Beatrix Kiddo var morðkvendi, hinn full- komni morðingi sem vildi skipta um líf. En brúðkaupið hennar fór öðru- vísi en hún sá fyrir sér. Bill mætir óvænt. Hann er lærifaðir hennar, einskonar föðurímynd jafnt sem elsk- hugi, og er óánægður með ráðahag- inn og lætur drepa alla í kirkjunni. Beatrix lifir af og er enn að leita hefnda. Í þessu seinna bindi er farið dýpra í saumana á þessu sérstaka sambandi Beatrix og Bill, og tekur hinu fyrra bindi fram. Fyrsta bindið var vissu- legt þrekvirki, þar sem ofbeldið var svo yfirgengilegt að það varð hlægi- legt. Sagan var hröð og spennufull, en yfirborðskennd þegar kom að per- sónunum. Seinna bindið er hins vegar dramatískara, ofbeldið meiningar- fyllra og sárara þar sem persónur og saga dýpka þegar nær dregur upp- gjörinu við Bill. Og uppgjörið kemur á óvart. Bæði atburðarásin og líka að það nær ekki að verða nærri jafn sterkur hápunkt- ur og maður býst við eftir að hafa horft á bæði bindin. Tarantino hrekk- ur í gamla gírinn og lætur Bill hafa einn mónólog – sem hann er svo frægur fyrir – þar sem hann dregur heimspeki sína frá poppmenning- unni. Ég býst við að þetta eigi að reyna á taugarnar, en það virkar því miður ekki. Þetta er eini veiki punkt- ur myndarinnar. Það skemmtilegasta er að í öllum þessum úthugsuðu og áhrifamiklu pakkningum er sagan innan í ósköp einföld, en gengur um leið algerlega upp. Í raun er þetta kvennamynd, saga af konu og reynsluheimi kvenna, þar sem konur eru sterkar og flottar, án þess að vera sprengjusérfræðing- ar í „súper wonder-bra“ eða önnur hallærisleg karlafantasía einsog oft vill verða þegar á að gefa konum kredit í bandarískum hasarmyndum. Fáir karlmenn myndu vilja mæta þessum kvensum í myrkri. Hér er því eitthvað fyrir alla, kon- ur og karla. Ég ráðlegg ykkur að fylgja meistara Tarantino. Leyfið honum að leiða ykkur á vit skemmti- legheita, spennu, hrollvekju, átaka og ásta. Njótið til hins ýtrasta, því þetta verður að öllum líkindum besta skemmtun ársins. Stórkostlega stílfærð lítil saga KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó og Borgarbíó Leikstjórn: Quentin Tarantino. Handrit: Quentin Tarantino og Uma Thurman. Kvikmyndataka: Robert Richardson. Að- alhlutverk: Uma Thurman, David Carrad- ine, Michael Madsen, Daryl Hannah, Hui Lui, Perla Haney-Jardine. BNA 136 mín. Miramax Films 2004. Kill Bill: Volume 2/Bana Billa: Bindi 2 Hildur Loftsdóttir Uma Thurman leikur Svörtu mömbuna í „að öllum líkindum bestu skemmt- un ársins“. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Lau. 24. apríl kl. 14.00 Uppselt Sun. 25. apríl kl. 18.00 Uppselt Stóra svið Nýja svið og Litla svið CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse Í kvöld kl 20 Fi 29/4 kl 20 - AUKASÝNING Fö 30/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 1/5 kl 15 - ATH: 1. MAÍ TILBOÐ Lau 1/5 kl 20 - UPPSELT, Fö 7/5 kl 20 - UPPSELT, Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING Fö 14/5 kl 20, - UPPSELT, Lau 15/5 kl 20, Su 23/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20, Lau 29/5 kl 20, Fö 4/6 kl 20, Lau 5/6 kl 20 Ósóttar pantanir seldar daglega Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is NÝTT: Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Í kvöld kl 20, Fö 30/4 kl 20 SÍÐUSTU AUKASÝNINGAR Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst PARIS AT NIGHT - KABARETT eftir ljóðum Jacques Prévert - Í samvinnu við Á SENUNNI Su 25/4 kl 15, Su 25/4 kl 21 - UPPSELT Mi 28/4 kl 20:15 - Síðasta sýning Ath. breytilegan sýningartíma LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 25/4 kl 14, Su 2/5 kl 14, Su 9/5 kl 14, Su 16/5 kl 14, Su 23/5 kl 14 Síðustu sýningar GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson Su 25/4 kl 20, Su 2/5 kl 20 Takmarkaður sýningafjöldi LEIKHÚSTVENNA: SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson DRAUGALEST e. Jón Atla Jónasson Su 25/4 kl 20 Aðeins þetta eina sinn - kr. 1.900 Leiklistarfélag Seltjarnarness sýnir leikritið Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson í Félagsheimili Seltjarnarness. Leikstjóri: Bjarni Ingvarsson. Frumsýning mið. 21. apríl kl. 20:00 2. sýning fös. 23. apríl kl. 20:00 3. sýning lau. 24. apríl kl. 20:00 4. sýning sun. 25. apríl kl. 15:00 Miðapantanir í síma 696 1314 Leikhúsgestir! Munið spennandi matseðil! Dansleikur í kvöld Eyjólfur Kristjánsson og Íslands eina von Skáldsaga eftir Hallgrím Helgason Aukasýning og allra síð. sýn. 10. sýn. – sunnud. 25. apríl. Sýningar hefjast kl. 20:00. Sýnt í Grýtuhúsinu, Keilugranda 1. Miðapantanir í síma 881 0155 SÍGAUNABARÓNINN Johann Strauss nemendasýning Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar sýnir gamanóperuna Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss yngri í styttri gerð í Íslensku óperunni. Aðgangur ókeypis fyrir nemendur tónlistarskóla, framhaldsskóla og háskóla, Vinafélag Íslensku óperunnar og aðra áhugasama. Ónúmeruð sæti, allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 2. sýning lau. 24. apríl kl. 20 3. sýning sun. 25. apríl kl. 20 Opið frá kl. 18 fim. - sunnudagskvöld. Secret Face Fös. 23. apríl kl. 21:00 Tenórinn Sun. 25. apríl. k l . 20:00 Sun. 02. maí. k l . 20:00 Sellófon Lau. 24. apríl kl. 21:00 ALLRA SÍÐASTA SÝNING Miðasala í síma 562 9700 www.idno.is Miðasala í síma 555-2222 theater@vortex.is Lau. 24. apríl örfá sæti laus Síðasta sýning eftir Bulgakov Sun. 25. apríl kl 21 Fim. 29. apríl kl 21 Fös. 30. apríl kl 21 Síðustu sýningar Fantagott stykki...frábær skemmtun sem snerti margan strenginn -Ómar Garðarsson Eyjafréttir eftir Jón Atla Jónsson Sveinsstykkið eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjóri Þorleifur Arnarsson. Í kvöld kl. 20.00. NOKKUR SÆTI Sun. 25/4 kl. 20.00. Aðeins þessar sýningar. Vörðufélagar Landsbanka Íslands fá 25% afslátt gegn framvísun gulldebetkorts. Miðasölusími 462 1400 www.leikfelag.is Mi›asala í verslunum Og Vodafone í Kringlunni og Smáralind Á netinu www.midi.is STÚKA: ÖRFÁ SÆTI LAUS. BEKKUR: UPPSELT. SALUR: LAUS SÆTI. L A U G A R D A L S H Ö L L 2 9 A P R Í L 2 0 0 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.