Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 46
FRÉTTIR
46 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Franskir dagar í Kringlunni
Franskir dagar standa yfir í Kringl-
unni þar sem fjöldi fyrirtækja kynn-
ir starfsemi sína. Viðskiptavinir
Kringlunnar geta kynnt sér fransk-
ar snyrtivörur, franska bíla, fransk-
an mat og matargerð o.fl. Tvær
listakonur sýna verk sín, franska
listakonan Dominique Ambroise
sýnir í Gallerý Fold og íslenska lista-
konan Mireya Samper sýnir verk sín
á 2. hæð í norðurenda Kringlunnar.
Reynir Jónasson harmonikkuleikari
leikur franska tónlist í göngugötu og
í dag, laugardag, munu leikarar úr
kabarettverkinu Paris at night sem
sýnt er í Borgarleikhúsinu taka
nokkur lög á Kringlutorgi, 1. hæð.
Frönskum dögum í Kringlunni lýkur
á morgun, sunnudaginn 25. sept-
ember.
ÖBÍ efnir til málþings um verð-
breytingar á lyfjum í dag, laugar-
dag kl. 10–12 í í Súlnasal Radisson
SAS Hótel Sögu. Á málþinginu verð-
ur leitast við að skýra stöðu sjúk-
linga í samskiptum við heilbrigðisyf-
irvöld og reyna að varpa ljósi á áhrif
verðbreytinganna.
Málshefjendur á þinginu verða:
Emil Thoroddsen framkvæmda-
stjóri Gigtarfélags Íslands, Eggert
Skúlason frá Landssamtökum
hjartasjúklinga, Ingunn Björns-
dóttir framkvæmdastjóri Lyfjafræð-
ingafélagsins, Kári Stefánsson for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
Pétur Hauksson geðlæknir, Einar
Magnússon yfirlyfjafræðingur
heilbigðisráðuneytisins og Matthías
Halldórsson aðstoðarlandlæknir.
Fundarstjóri á málþinginu verður
Hulda Gunnarsdóttir fréttamaður.
Í DAG
Fræðslufundur Unglaufs Opið hús
verður fimmtudaginn 29. apríl kl. 20,
í Hátúni 10b fyrstu hæð (kaffistofa
starfsfólks). Kynnt verður ný hreyf-
ing innan Laufs sem heitir Unglauf.
Samtökin eru fyrir krakka á öllum
aldri og verður dagskrá Unglaufs
sem framundan er kynnt. Sagt verð-
ur frá Möltuferð sem farin var 18.–
20. mars sl. Einnig verður opnuð ný
heimasíða. Þeir sem vilja hafa sam-
band við Unglauf geta hringt í síma
869–3401.
Fræðsluerindi HÍN verður haldið
mánudaginn 26. apríl kl. 17, í stofu
132, Öskju, Háskóla Íslands. Þor-
bergur Hjalti Jónsson skógfræð-
ingur flytur erindi sem hann nefnir:
Af vistfræði birkis á Íslandi. Í erind-
inu verður fjallað um vaxtarvist-
fræði og endurnýjun birkiskóg-
lendna á Íslandi o.fl.
ÓB Ráðgjöf stendur fyrir nám-
skeiði frá Bro Konsulter Svíþjóð
með yfirskriftinni: Frá andstöðu til
innri áhuga – Að hjálpa skjólstæð-
ingi til að láta andstöðu hans og
varnir vinna fyrir hann en ekki gegn
honum. Námskeið verður haldið
föstudaginn 14. maí kl. 9–12, í
Höfðaborg Borgartúni 21, 3. hæð,
105 Reykjavík (Fundarsal Barna-
verndarstofu).
Námskeiðið skýrir hvernig breyt-
ingarferli vekja andstöðu og varnir
hjá fólki og hvernig hægt er að
mæta andstöðu og vörnum á hátt
sem virkjar þessi fyrirbæri í þágu
eigin innri áhuga skjólstæðingsins.
Námskeiðið er fyrir fólk sem vinnur
við breytingarferli. Þátttökugjald er
kr. 8.000 en ef bókað er fyrir 25. apr-
íl er þátttökugjaldið kr. 6.000. Inni-
falið í verðinu eru námsgögn og
kaffiveitingar. Hámarksfjöldi er 24
þátttakendur.
Leiðbeinandinn á námskeiðinu er
Daníel Á. Daníelsson sem er gestalt-
þerapisti hjá Bro Konsulter með 20
ára reynslu af að vinna með breyt-
ingarferli: sem ráðgjafi og dagskrár-
stjóri í meðferð fyrir fíkla og fjöl-
skyldur þeirra; sem ráðgjafi í breyt-
ingarferli í fyrirtækjum og stofnun-
um; og sem námsstjóri við náms-
braut fyrir meðferðarfulltrúa í
menntaskóla. Nánari upplýsingar á
www.gestalt.is
Skráning og nánari upplýsingar
veita Ólafur Grétar Gunnarsson og
Bjarni Þórarinsson hjá ÓB Ráðgjöf,
netfang: obradgjof@obradgjof.is.
Á NÆSTUNNI
HÆSTIRÉTTUR hefur sent frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Í DV miðvikudaginn [21. apríl] sl.,
er frásögn af málflutningi fyrir
Hæstarétti í máli ákæruvaldsins gegn
Pétri Þór Gunnarssyni og Jónasi
Freydal Þorsteinssyni.
Á bls. 8 er mynd af Jónasi Freydal
og inn í hana felldur eftirfarandi texti:
„Jónas Freydal sat brúnaþungur
undir lestri Boga Nilsson (sic) sak-
sóknara en heldur léttist á honum
brúnin þegar Ragnar Aðalsteinsson
réðst harkalega að allri málsmeðferð-
inni. Hann heldur því fram að einn
dómenda, Garðar Gíslason, hafi verið
í stjórn Listasafns Íslands þegar þrjú
af verkunum sem í málinu eru voru
keypt.“
Af þessu tilefni vill Hæstiréttur
taka fram að af hálfu ákærða var
hvorki í munnlegum málflutningi né á
annan hátt haldið fram að umræddur
dómari væri vanhæfur til meðferðar
málsins. Það skal sérstaklega tekið
fram að Hæstiréttur telur að dómar-
inn hafi ekki haft þau tengsl við atvik
málsins að til vanhæfis geti leitt.“
Bað DV um leiðréttingu
Vegna umræddrar frásagnar DV
vill Jónas Freydal Þorsteinsson koma
því á framfæri að frásögn DV hvað
snertir einn dómara Hæstaréttar hafi
verið byggð á hreinum og klárum
misskilningi og hafi hann beðið blaðið
um leiðréttingu.
Yfirlýsing frá
Hæstarétti
Aðalfundur
Aðalfundur Félags rafeindavirkja verður
haldinn þriðjudaginn 27. apríl 2004 kl. 17.30
á Stórhöfða 31, 1. hæð, gengið inn að norðan-
verðu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórn Félags rafeindavirkja.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Skógar-
hlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Austurberg 34, 040104, Reykjavík, þingl. eig. Eva Björk Atladóttir
og Sigurfinnur Líndal Stefánsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Austurströnd 12, 0704, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Paula Andrea
Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, B-deild, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú
og Sparisjóður vélstjóra, miðvikudaginn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Baldursgata 32, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Erla Dagmar Ólafsdóttir,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Kaupþing Búnað-
arbanki hf. og Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, miðvikudaginn
28. apríl 2004 kl. 10:00.
Blíðubakki 3, 0102, Mosfellsbæ, þingl. eig. Elías Þórhallsson, gerðar-
beiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, miðvikudaginn 28. apríl
2004 kl. 10:00.
Breiðavík 21, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Steinþóra Hildur Clausen
og Guðjón Ásmundsson, gerðarbeiðendur Breiðavík 21, húsfélag,
Húsasmiðjan hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 28. apríl 2004
kl. 10:00.
Dalsbú, Helgadal, Mosfellsbæ, þingl. eig. Dalsbú ehf., gerðarbeiðandi
Lánasjóður landbúnaðarins, miðvikudaginn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Dísaborgir 9, 0102, 50% ehl. Reykjavík, þingl. eig. Jóhann Bjarki
Ólason, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, miðvikudag-
inn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Einarsnes 30, 16,67% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Ásgeir Guðmunds-
son, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 28. apríl 2004
kl. 10:00.
Esjugrund 5, 0101, 50% ehl., Kjalarnesi, þingl. eig. Þorsteinn Einars-
son, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., miðvikudaginn
28. apríl 2004 kl. 10:00.
Esjugrund 10, Kjalarnesi, Reykjavík, þingl. eig. Ingimar Kristinn
Cizzowitz og Jóhanna Guðbjörg Árnadóttir, gerðarbeiðandi Lands-
banki Íslands hf., aðalstöðvar, miðvikudaginn 28. apríl 2004
kl. 10:00.
Esjumelur 3, 010103, Kjalarneshreppi, þingl. eig. Björn Jónsson,
gerðarbeiðandi Kaupþing Búnaðarbanki hf., miðvikudaginn 28.
apríl 2004 kl. 10:00.
Garðsstaðir 39, 0101, 49% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Guðlaugur
R. Magnússon, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda,
miðvikudaginn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Grundarhús 5, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Rut Dubert, gerð-
arbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, miðvikudaginn 28. apríl 2004
kl. 10:00.
Grýtubakki 26, 0102, Reykjavík, þingl. eig. Linda Dís Rósinkransdóttir,
gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., miðvikudaginn 28. apríl
2004 kl. 10:00.
Gylfaflöt 18, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Ásmundur Þór Kristinsson,
gerðarbeiðendur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, T.M. Mosfell
ehf. og Útihurðir og gluggar ehf., miðvikudaginn 28. apríl 2004
kl. 10:00.
Háagerði 20, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Rúnar G. Sigurðsson, gerð-
arbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., miðvikudaginn 28. apríl
2004 kl. 10:00.
Hraunbær 74, 070101, Reykjavík, þingl. eig. Ólafur K. Óskarsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sameinaði lífeyrissjóðurinn,
miðvikudaginn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Logafold 68, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Ingibjörg Þ. Sigurþórsdóttir
og þb.Sigurðar Kr. Erlingss. c/o Oddný M. Arnard. hdl., gerðarbeið-
endur Húsasmiðjan hf., Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf., Lands-
banki Íslands hf., aðalstöðvar, Landsbanki Íslands hf., aðalstöðvar,
Landssími Íslands hf., innheimta, Lífeyrissjóður verslunarmanna,
Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenn-
is, útibú, Sparisjóður vélstjóra, útibú og Söfnunarsjóður lífeyrisrétt-
inda, miðvikudaginn 28. apríl 2004 kl. 10:00.
Möðrufell 7, 0202, 50% ehl., Reykjavík , þingl. eig. Jón Viðar Þór-
marsson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., miðvikudaginn
28. apríl 2004 kl. 10:00.
Síðumúli 28, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Eignarhaldsfélag Síðumúla
28 hf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 28. apríl
2004 kl. 10:00.
Skipasund 81, 0101, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Harpa Þorbjörns-
dóttir, gerðarbeiðandi Hundaræktun Dalsmynni ehf., miðvikudaginn
28. apríl 2004 kl. 10:00.
Spilda úr Hvammi, Kjósarhreppur nr. 3—4, þingl. eig. db. Hlyns
Júlíussonar, gerðarbeiðandi Rafás, rafverktaki, miðvikudaginn
28. apríl 2004 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
23. apríl 2004.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Samkoma með Kevin White í
kvöld kl. 20.30.
Ath. Ódýri fatamarkaðurinn
stendur enn.
www.krossinn.is
I.O.O.F. 185042451/2 Á.h.*
25. apríl Ingólfsfjall Brottför
frá BSÍ kl. 10:30. V. 2000/2400
kr.
28. apríl Fjallið eina – Búða-
vatnsstæði. Útivistarræktin.
Brottför frá Toppstöðinni í Ell-
iðaárdalnum kl. 18:30.
30. apríl-2. maí Vatnajökull -
jeppaferð. Fararstjóri Jón Viðar
Guðmundsson.
Sjá www.utivist.is
Frönsk messa í Landakoti
On nous prie d'annoncer, l'occasion de l'escale
à Reykjavik du portehélicoptes "Jeanne d'Arc"
ainsi que des frégates "Georges Leygues" et
"Primaauguet", qu'en office catholique en
français, animé par le chæur des officiers-
élèves, sera célébré à la cahédrale de Landakot
le samedi 24 avril à 18 heures. Cette célébratio-
in sera suivie d'une rencontre amicale autour
d'un café à la salle paroissiale.
We are requested to communicate that on the
occasion of the port of call to Reykjavik of three
French Navy ships, "Jeanne d'Arc", "Georges
Leygues" and "Primaauguet" a catholic service
will be celebrated in French at Landakot Cat-
hedral Saturday, April 24. at 6 p.m. The cadet's
choir will sing and church guests invited for
coffee after the celebration in the parish hall.
Frönsk messa verður sungin í Kristskirkju laug-
ardaginn 24. apríl kl. 18.00 í tilefni af komu
þriggja franskra herskipa, „Jeanne d'Arc“,
„Georges Leygues“ og „Primaauguet“. Kór
skipverja syngur og eftir messu er öllum boðið
í kaffi í safnaðarheimilinu.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
mbl.is
ATVINNA
Dagsferð sunnudaginn 25. apríl
Ekið í Fljótshlíð, Drumbabót
skoðuð og Landgræðslan
Gunnarsholti heimsótt.
Fararstjóri: Haukur Jóhannesson
Brottför frá Mörkinni 6, 108 Rvík
kl. 8 f.h. Verð 3.500/4.000.
LEIKSKÓLINN Grandaborg,
Boðagranda 9 Reykjavík, verð-
ur með opið hús til 7. maí kl. 10–
11 og 13.30–14.30. Fyrsti dagur
opins húss í leikskólanum var í
gær föstudaginn 23. apríl. Allir
eru velkomnir í heimsókn að
kynna sér starf leikskólas.
Opið hús í
Grandaborg