Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 19
Óskað er eftir að kaupa myndir eftir lista mennina Þórarinn B. Þorlá ksson Ásgrím Jónsson Jón Ste fánsson Gunnlau g Blönd al Guðmun d Thors teinsso n (Mugg) Áhu gasa mir send i uppl ýsin gar til aug lýsi nga deil dar Mb l., mer kt: „M- 152 54“ . Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Nú er veturinn liðinn og sumarið tekið við.Veturinn hefur verið Hólmurum mildur og góður þótt stormar hafi einkennt störf sjómanna eftir áramót. Ekkert frost er í jörð og gróður tekur fljótt við sér þegar hlýna fer. Það eru greinileg merki um að veðráttan er farin að breytast. Snjóalög hafa ekki truflað okkur í mörg ár og svo er nú komið að skíðaaðstaða Hólmara í Grímsfjalli hefur ekki verið í notkun í mörg ár og snjótroðari hefur haft það rólegt í sama tíma. Vél- sleðamenn þurfa að sækja lengri í burtu til finna snjó til að leika sér á sínum sleðum. Það telst ekki lengur til tíðinda að sjá kylfinga á golfvellinum sveifandi tækjum sínum og tólum að vetri til við æfingar. Golfið var talið sumaríþrótt, en nú hefur æfingartíminn lengst og hlýtur að skila sér í betri árangri í sumar. Svona í lokin. Til hvers var ég að láta nagladekkin undir bílinn minn í haust?    Staða æskulýðsfulltrúa hjá Stykk- ishólmsbæ hefur verið auglýst. Um er að ræða nýja stöðu því æskulýsðsfulltrúi hefur ekki starfað í bænum áður. Meðal helstu verkefna hans verður umsjón með vinnu- skóla og félagsmiðstöð ásamt forvarn- arstarfi í samstarfi við æskulýðs- og íþróttanefnd bæjarins. Það er jákvætt að sveitarfélagið sjái sér fært að ráða starfsmann í fullt starf til að skipuleggja og fylgja eftir góðu æskulýðs- starfi.    Sýslumaðurinn í Stykkishólmi hefur gefið út ársskýslu embættisins fyrir árið 2003. Skýrslan er vel unnin og þar er ýmsan fróðleik að finna. Þar koma fram upplýs- ingar um fjölbreytt starf löggæslunnar á Snæfellsnesi á síðasta ári. Ríkisend- urskoðun hefur farið yfir rekstur embættis- ins og gefur honum góða einkunn. Samanburður sýnir að virkni lögregl- unnar á Snæfellsnesi hefur aukist. Þrátt fyrir þetta hefur greidd aukavinna til lög- reglunnar aldrei verið minni, en á síðasta ári og munar það um 5% frá árinu áður. Það þýðir að lögreglan skilar auknum afköstum og meira hagræði, það er eitthvað sem flestir setja sér en sumir ná. Úr bæjarlífinu STYKKISHÓLMUR EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON FRÉTTARITARA Hve hávaxið geturtré orðið? Svariðer einfalt, ef marka má niðurstöður rannsóknar sem birtust í nýjasta hefti vísinda- tímaritsins Nature, 130 metrar! Með öðrum orðum getur hæsta tré jarðar orðið 50 metrum hærra en Hallgrímskirkjuturn eða 50 metrum lægra en fyr- irhuguð Kárahnjúkastífla. Frá þessu er sagt á vef Skógræktarinnar. Í greininni er kynnt rannsókn á vatnsbúskap hávöxnustu lífveru jarðar, sem er ein tegunda rauð- viðar sem vex við norð- anverða strönd Kaliforn- íuríkis. Hæsta tré sem þar er að finna er 112,7 metr- ar á hæð og er enn að hækka.Niðurstaða grein- arhöfunda er sú að hár- pípukraftur, sem dregur vatn frá rótum og upp eft- ir krónu trésins, sé ónógur til að yfirvinna þyngdarafl jarðar við 122–130 metra hæð frá rótunum. Hávaxin tré Hluti starfsmanna Crap ja. afhenti TryggvaHannessyni, staðarhaldara Götusmiðjunnar,30.000 kr. styrk sem er ætlaður til hljóðfæra- kaupa í nýju húsnæði Götusmiðjunnar að Akurholti. Crap ja. er fyrirtæki sem var stofnað af 14 nemendum Menntaskólans við Sund, og er hluti af verkefni fyr- irtækjasmiðjunnar sem er á vegum Junior Achieve- ment á Íslandi. Verkefnið fól í sér að stofna, reka og loka fyrirtæki á einni skólaönn. Þeir seldu hlutabréf, skipuðu stjórn, borguðu öll eðlileg útgjöld fyrirtækis og stjórnuðu framleiðslunni. Nemendurnir ákváðu að hanna og prenta boli og selja innan skólans. Einnig öfl- uðu þeir auglýsingatekna. Bolirnir seldust upp á þrem- ur dögum og hagnaður fyrirtækisins er töluverður, segir í fréttatilkynningu. Hluti starfsmanna Crap ja. með Tryggva. Talið frá vinstri Arnar, Ómar Orri, Tryggvi, Bjarni og Ívar. Styrktu Götusmiðjuna Í bók sinni Séra Bald-ur segir séra BaldurVilhelmsson í Vatns- firði frá bernsku sinni á Hofsósi, en þar var faðir hans kaupmaður og póst- afgreiðslumaður, en af- greiddi einnig skip Eim- skips og „hafði svokall- aðan bringingarbát til að flytja vörurnar í land“. Af því tilefni orti Halldór Blöndal: Í Hofsós á bringingarbát var Baldur og aldan er kát; hann var þar sem gestur en vígðist svo prestur í Vatnsfjörð. – og Kristur varð mát. Það hefur verið í fréttum, að vinsældir veggjaklif- urs fari vaxandi og segir Sjöfn Jónsdóttir frá því að veggurinn, sem klifinn er, sé „æði ógurlegur á að líta við fyrstu sýn en auð- veldari yfirferðar en ætla mætti“. Kristján Karlsson kvað: „Víst er gaman að ganga upp þil,“ mælti Guðný og labbaði upp þil. „Eða fyndist þér gaman jafngreindum í framan að geta ekki labbað upp þil?“ Listin og lífið pebl@mbl.is Hveragerði | Það er liðin tíð hér í Hveragerði að allir krakkar vinni við garð- yrkjustörf í sumarfríinu sínu. Það þótti því við hæfi fyrir u.þ.b. fimm árum að leyfa æsku bæjarins að kynnast því hvernig sáning fer fram. Sam- starf hófst þá á milli grunn- skólans og garðyrkjustöðvar Heilsustofnunar um að á hverju vori kæmu nemendur 6. bekkjanna og fengju tilsögn í sáningu. Í síðustu viku vetr- ar voru krakkarnir boðaðir og brugðust við kallinu og héldu af stað. Hjörtur Benediktsson garðyrkjustjóri tók á móti hópnum ásamt Garðari Hann- essyni. Fyrst sýndi Hjörtur krökkunum tómatahúsið og agúrkuhúsið. Að því loknu var farið að sá. Það voru blóm- káls- og hvítkálsfræ sem sáð var og stóðu krakkarnir sig vel. Alls sáðu þau fjörutíu bökkum sem í voru tæplega hundrað hólf. Þegar allir höfðu sáð og nokkrir fengið fræ til að stinga í blómapott- ana heima hjá mömmu, voru allir leystir út með gúrku og tómat. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Áhugasamir krakkar voru duglegir að sá blómkálsfræjum. Krakkarnir læra að sá Garðyrkja Reykjanesbær | Menningar-, íþrótta-, og tómstundaráð Reykjanesbæjar undirrit- aði í síðustu viku 16 samninga við ýmis íþrótta- og ungmennafélög í bænum, sam- tals fyrir tæpar 15 milljónir króna. Nokkrir samningar höfðu þegar verið undir- ritaðir en for- svarsmenn MÍT ráðgera að gera 35 samninga við félög og klúbba í ár að upphæð um 40 milljónir króna. Á fundi nefndarinnar lagði formað- ur hennar, Gunnar Oddsson, áherslu á að það væri vilji bæjaryfirvalda að gera fleiri sambærilega samninga. Hæstu styrkina í ár hlutu Íþrótta- bandalag Reykjanesbæjar, 7.000.000 kr vegna þjálfaralauna 12 ára og yngri, Íþróttafélögin Keflavík og UMFN vegna umsjónar með skemmtidagskrá 17. júní, kr. 3.000.000, Hnefaleikafélag Reykjaness, kr. 900.000 vegna húsaleigu, Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, kr. 920.000 vegna reksturs íþrótta- og leikjanám- skeiða og Hestamannafélagið Máni, kr. 800.000. 35 samningar gerðir fyrir um 40 milljónir ÍSFÉLAGIÐ í Vestmannaeyjum gekk ný- lega frá kaupum á útgerðarfélaginu Ólafi ehf. sem rak uppsjávarskipið Grindvíking. Ráðgert er að skipið sigli inn í nýja heima- höfn í dag, laugardag. Guðmundur VE gengur upp í kaupverð á Grindvíkingi og mun hið nýja skip bera nafnið Guðmundur. Undanfarið ár hefur Grindvíkingur GK-606 landað verulegum hluta af afla sínum hjá Ís- félagi Vestmannaeyja hf. og hefur Ísfélagið átt mjög gott samstarf við Þorbjörn-Fiska- nes hf. segir á vefnum eyjafrettir.is. Grindvíkingur verður Guð- mundur VE ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.