Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÓSKÖP er ég orðinn leiður á
skömmum stjórnmálamanna og í
kjölfar þeirra fjölmiðla á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi. Halli á
rekstri, óstjórn, skipulagsleysi og
léleg afköst eru
tíðar upphrópan-
ir. Þessar vítur
eru órökstuddar
og skaðlegar að
mörgu leyti.
Í fyrsta lagi
eru þetta óheppi-
legar árásir á
lækna og spítala
þar sem þeir
starfa sem falln-
ar eru til þess að
rýra álit sjúklinga sem eiga lif og
limi undir hæfni þeirra.
Í öðru lagi spillir það óhjá-
kvæmilega starfsanda á spítölum.
Tveimur spítölum var fyrirskipað
að sameinast og er mörgum það
efamál hvort það var rétt ákvörðun
eða tímabær vegna ónógs undir-
búnings. Ég vann lengi í stóru fyr-
irtæki sem fyrirskipað var að sam-
einast öðru fyrirtæki, sem var
mögulega nauðsynlegt en árang-
urinn var sá að hið nýja fyrirtæki
var að sumu leyti óstarfhæft um
skeið. Samkomulag milli einstak-
linga fyrri fyrirtækja var blandið
tortryggni og uppsagnir á starfs-
fólki í hinu nýja fyrirtæki voru
ákaflega umdeildar. Við þessu
mátti búast við sameiningu spít-
alana. Þá var jafnframt erfiður
flutningur milli deilda spítalanna
og innan deildanna.
Hvernig er hægt að krefjast þess
að spítalar hlíti fortakslaust fjár-
lögum gerðum á Alþingi?
Við gerð fjárlaga liggja ekki fyr-
ir upplýsingar um lækningaþörf
eða fjármagnsþörf vegna nýrra
lyfja sem koma á markaðinn, lyfja
sem stundum skilja milli lífs og
dauða.
Vel rekin loðnubræðsla gerir sér
að sjálfsögðu fjárhagsáætlun. Ef
uppgrip verða á loðnu fer hún að
sjálfsögðu úr skorðum. En það er
skaðlaust því að hagnaður verður
töluvert meiri.
En má ekki segja að þegar fjár-
hagsáætlun spítala bregst útgjalda-
lega getur það ekki þýtt að hagn-
aður verði líka meiri? Munurinn er
eingöngu sá að þar eru tekjurnar
björgun hinna ýmsu hluta sem til-
heyra gangverki mannsins, jafnvel
lífi hans. Ekki peningar!
Við eigum hér „gúrúa“, fjármála-
snillinga sem fjármálafyrirtæki
greiða laun sem jafngilda launum
allrar ríkisstjórnarinnar, saman-
lögðum launum fjölda lækna sem
vinna hér störf á heimsmælikvarða.
En svo er fyrir að þakka að eðli
landans er að una ekki fyrr en að
Fróni er aftur komið eftir langt
nám og störf erlendis.
En spurningin er: Hefði ekki
verið skynsamlegra að ráða einn
þessara „gúrúa“ sem einvald við
fjármála- og framkvæmdastjórn
spítalanna en að fela nefnd undir
stjórn sveitarstjóra utan af landi
sem hafði nefndarstarfið að auka-
starfi!
Formaðurinn komst þó að þeirri
niðurstöðu að ekki færi saman
sveitarstjórastarf og rekstur eins
stærsta fyrirtækis landsins í tilvist-
arkreppu.
Ég var ekki á fjárlögum þegar
mér var tilkynnt að ég þyrfti að
fara í erfiða krabbameinsmeðferð í
byrjun síðastliðins árs. Þar var
ekkert rætt um kostnað sem þó var
ljóst að yrði mikill. Árangur með-
ferðarinnar var að því virðist mjög
góður og var það mikið að þakka
nýjum lyfjum sem réðu úrslitum.
Ekki er víst að þessi lyf hafi kom-
ist inn í forsendur fjárlaga. En
ekki er hikað við að taka þau í
notkun, þrátt fyrir allt. Já, þrátt
fyrir allt. Hversu mörg slík óvænt
tilfelli geta komið upp í heildar-
starfsemi Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss?
Auðvitað ber að spara, spara án
þess að fórna. Ef það á að spara
með því að fórna á ekki að fela
þeim ákvörðunarvaldið sem öllu
vilja fórna til að líkna.
Þingmaður sagði í sjónvarpsvið-
tali að hann vildi sama árangur fyr-
ir minni útgjöld. Eru afköstin ekki
nóg? Annað hefur ekki verið rök-
stutt. Vinna á spítölum er annars
eðlis en uppskipun eða bókfærsla.
Könnun á viðbrögðum líkamans er
flókin og tímafrek og einstakling-
arnir ólíkir.
Á krabbameinsdeildinni kynntist
ég starfsfólki sem var afbragð ann-
arra. Það virtist vinna mjög vel en
um það er ég ekki dómbær. En það
skapaði sér tíma til að sinna and-
legum þörfum sjúklinganna og gef-
andi og þiggjandi einstaklingar
urðu vinir. Það er ekki hægt að
vera veikur, jafnvel hræddur um
endalokin, í betra umhverfi en
þarna og á það við um allt starfs-
liðið og jafnframt það sem sinnti
heimahjúkrun og endurþjálfun.
Það skilur að aðgát skal höfð í
nærveru sálar. Andlegt ástand
sjúklings ræður miklu um árangur
meðferðar. Þetta er saga mín af
þessari deild en mér hefur verið
sagt af sömu reynslu á öðrum
deildum. Það er eitthvað sérstakt í
genum þess fólks sem velst til
hjúkrunarstarfa.
Það þarf hugvit til að skipu-
leggja og spara á stóru spítölunum.
En það er ekki hægt að gera kröf-
ur um vélræna vinnu.
Það hefur skort öll fagleg rök í
gagnrýnina á spítalana, í kröfuna
um niðurskurð.
Líf mitt og þitt er háð umhyggju
þessa fólks sem þar vinnur.
GUÐMUNDUR W.
VILHJÁLMSSON,
Hrísmóum 5,
210 Garðabæ.
Spítalar og
loðnubræðsla
Frá Guðmundi W. Vilhjálmssyni:
Guðmundur W.
Vilhjálmsson
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Beini
© LE LOMBARD
VILTU KOMA ÚR TUNNUNNI SIGMUNDUR! ÞETTA VAR BARA MEINLAUST GRÍN!
ÞETTA ER EKKI
AÐ GANGA
ÞAÐ ER ALVEG ÚTILOKAÐ AÐ ÉG
SKILJI VIÐ MÓTORHJÓLIÐ MITT. HÚN
OG ÉG ERUM SVO NÁIN
ÉG MYNDI EKKI
LIFA ÞAÐ AF!
VILL HANN
MYND?
VERTU SÆL ELSKAN MÍN. ÉG GLEYMI ÞÉR
ALDREI. ÞÚ ERT SVO FALLEG Í LAGINU
ACHMED, KEYRÐU MIG Á FLUGVÖLLINN. VIÐ SKULUM ATHUGA HVORT VIÐ
FINNUM EKKI GAMLA SPITFIRE SEM GETUR ENNÞÁ FLOGIÐ
EÐA ÞYRLU
VINUR MINN Á
LÍTINN BÁT EN
ÉG VEIT EKKI
MEÐ SAHARA...
JÆJA, VIÐ SKULUM HALDA
ÁFRAM AÐ LAGA HJÓLIÐ
ÞAÐ ER EKKI
NÓGU FLJÓTT AÐ
FARA Í GANG
Æ YFIRVARASKEGGIÐ
FESTIST Í STARTARANUM!!
SVONA, NÚ
GENGUR
ALLT VEL
EF ÞETTA HELDUR SVONA ÁFRAM ÞÁ FERÐ ÞÚ
BEINUSTU LEIÐ Á HAUGANA!!
EN...
Risaeðlugrín
© DARGAUD
HVAÐ HEF ÉG
NÚ GERT?
?
HVAÐ HEFUR ÞÚ GERT HONUM?
SVARAÐU!
ÉG?
EKKI NEITT! ÉG LOFA. ÞETTA GERÐIST
BARA ALLT Í EINU
ER ÞAÐ JÁ?
HVAÐ SEGIRÐU HILMAR? GLÆPAMAÐURINN
SEGIST VERA SAKLAUS
ÆÆÆ!
ÉG FÉKK TAK Í BAKIÐ ÞEGAR ÉG VAR AÐ
KALLA Á HANN. Æ... ÞAÐ SAMA
GERÐIST Í GÆR ÞEGAR ÉG SVAF Í
VINNUNNI. ÞETTA ER SVO VONT!
ÆÆÆ!
ÉG
SKIL...
framhald ...