Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 53

Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 53 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert opin/n og ástrík/ur og hefur mikla þörf fyrir ör- yggi. Þú ert líka forvitin/n og leitar því stöðugt nýrrar þekkingar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur mikla hugarorku í dag. Reyndu að nýta hana sem best og koma sem mestu í verk. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert ákveðin/n í að kaupa þér eitthvað í dag. Þú ert sannfærð/ur um að það muni veita þér ánægju og að þú munir bera það, sem um ræðir, með stolti. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ert orkumikil/l og hefur mikla þörf fyrir hreyfingu. Reyndu að vera sem mest úti í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert óvenju sjálfsörugg/ur í dag. Þetta gerir þig færa/n um að grípa þau tækifæri sem þú færð og gera sem mest úr þeim. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þetta er góður dagur til að vera með öðru fólki. Mæltu þér mót við vini þína og njóttu lífsins. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Notaðu daginn til að leita svara við þeim spurningum sem leita á þig. Þú ert óvenju ákveðin/n og skarpskyggn og ættir því að geta komist til botns í hlutunum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú átt mjög auðvelt með að sannfæra aðra um það sem þú segir í dag. Það gefur orð- um þínum aukið vægi að þú trúir því sjálf/ur sem þú ert að segja. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert mjög einbeitt/ur í dag og þar sem þú ert tilbúin/n til að leggja hart að þér ættirðu að ná mjög góðum árangri. Það hentar þér þó betur að vinna ein/n en með öðrum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur gaman af að takast á við hvers konar þrautir í dag. Þú gætir líka tekið upp á því að daðra svolítið enda jafnast samskipti kynjanna oft á við flóknustu þrautir. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þetta er góður dagur til við- gerða á heimilinu og til að ræða heimilisvandamál. Ef þú vilt að aðrir geri hlutina eftir þínu höfði þarftu að sannfæra þá um ágæti þess. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú færð góðar hugmyndir í dag. Þú munt jafnframt njóta þess að fara í stutt ferðalag og að leika við börn- in. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þér ætti að ganga vel í pen- ingamálunum í dag hvort sem þú ert að eyða pening- unum eða afla þeirra. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. AFTURHVARF Ó, græna jörð, ó, mjúka, raka mold, sem myrkur langrar nætur huldi sýn. Ég er þitt barn, sem villtist langt úr leið, og loksins kem ég aftur heim til þín. Ég viðurkenni mína synd og sekt: ég sveikst frá öllum skyldum heiðvirðs manns og elti vafurloga heimsku og hjóms um hrjóstur naktra kletta og auðnir sands. Mitt fólk, mitt land, minn himinn og mitt haf! Heim kemst að lokum allt, sem burtu fer. Ég drúpi höfði þreyttu í þögn og bæn: Þú ert ég sjálfur. Fyrirgefðu mér! Steinn Steinarr LJÓÐABROT DEMANTSBRÚÐKAUP. 60 ára hjúskaparafmæli eiga í dag hjónin Pálína Hraundal og Óskar Hraundal, Hvassaleiti 56, Reykjavík. Þau verða að heiman. EINS og svo oft áður fær suður skemmtilegt og krefj- andi verkefni. Nú þarf hann að finna rétta taktinn fyrir þvingun í sex gröndum. Austur gefur; NS á hættu. Norður ♠K5 ♥Á4 ♦ÁK104 ♣ÁK963 Vestur Austur ♠G9742 ♠103 ♥73 ♥DG10985 ♦D52 ♦G93 ♣DG10 ♣82 Suður ♠ÁD86 ♥K62 ♦876 ♣754 Vestur Norður Austur Suður -- -- 2 hjörtu Pass Pass Dobl Pass 2 spaðar Pass 3 hjörtu Pass 3 grönd Pass 4 grönd Pass 6 grönd Pass Pass Pass Vestur kemur út með hjarta. Það er skynsamlegt að spara innkomuna heima á hjartakóng og taka á ásinn í borði. Spila svo laufás og litlu laufi. Vestur fær þann slag og gerir best í því að spila tígli. Hvernig á að ljúka málinu? Ellefu slagir eru á borð- inu og sá tólfti liggur í loft- inu með tvöfaldri þvingun. En eftir tígulinn frá vestri verður erfitt að henda heima í frílauf blinds og því þarf að tímasetja spila- mennskuna nákvæmlega. Til að byrja með eru þrír efstu í spaða teknir (og tígli hent úr borði). Næst eru laufin tekin. Norður ♠-- ♥4 ♦K10 ♣9 Vestur Austur ♠G9 ♠-- ♥-- ♥DG ♦D5 ♦G9 ♣-- ♣-- Suður ♠8 ♥K6 ♦8 ♣-- Blindur á út og spilar laufníu. Austur verður að henda tígli og þá getur suð- ur kastað hjartasexu. Vest- ur er í engum vandræðum, enn sem komið er, og hendir spaðaníu. En þegar sagnhafi spilar næst hjarta á kónginn þvingast vestur með hæsta spaða og valdið í tíglinum. Tvöföld þvingun í áföngum. E.s. Ef vestur hefði spilað hjarta þegar hann fékk laufslaginn, hefði suður get- að hent tveimur tíglum heima í frílauf blinds og þá hefði þvingunin virkað á báða mótherja í sama slag. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. f4 Dc7 8. 0-0 Be7 9. Be3 0-0 10. g4 d5 11. e5 Re4 12. Bd3 Rxc3 13. bxc3 Dxc3 14. f5 Bc5 Staðan kom upp í frönsku deilda- keppninni sem lauk fyrir skömmu. Vikt- or Bologan (2.665) hafði hvítt gegn þýska stórmeist- aranum Philipp Schlosser (2.564). 15. f6! Bxd4 16. Bxh7+ Kxh7 17. Bxd4 Dh3 18. Hb1! Tryggir framhald hvítu sóknarinnar SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. sem svartur á erfitt með að ráða við. 18. – Rc6 19. Hb3 Dh6 20. g5! Dg6 21. Hh3+ Kg8 22. Dg4 gxf6 23. Hxf6 Dg7 24. Hfh6 Re7 25. Dh5 Rg6 26. Hh7 og svartur gafst upp enda fátt til varn- ar. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík ÁRNAÐ HEILLA MEÐ MORGUNKAFFINU Það eru bara komin mánaðamót rétt einu sinni! Laust í vefjagigtarleikfimi o.fl. hópa hjá Gigtarfélagi Íslands. Léttar æfingar, teygjur og slökun. Áhersla lögð á rétta líkamsbeitingu. Tilvalið fyrir alla sem eru að byrja að hreyfa sig. Sjúkraþjálfarar með langa reynslu. Hulda S. Jeppesen - Ása Dóra Konráðsdóttir. PANTANIR Í S. 530 3600 EÐA 824 7454 Gigtarfélag Íslands Ertu með verki? Hvernig væri að koma sér af stað í hreyfingu fyrir sumarið? Hulda S. Jeppesen Ása Dóra Konráðsdóttir „Hvað er svo glatt sem góðra vinafundur“ Félag harmonikuunnenda heldur dansleik í Glæsibæ í kvöld kl. 21.30. Húsið opnað kl. 21.00. Hljómsveit Þorsteins R. Þorsteinsssonar ásamt Villa Guðmunds. og hljómsveit Ingvars Hólmgeirssonar ásamt söngvaranum Þorvaldi Skaftasyni leika fyrir dansi. Mætum öll og tökum með okkur gesti. „Láttu þér ekki leiðast, líttu við í Glæsibæ“. F.H.U.R Ljósmynda-listsýningin LESIÐ Í LANDIÐ HAFNARBORG, MENNINGAR- OG LISTASTOFNUN HAFNARFJARÐAR, STRANDGÖTU 34 OPIÐ Í DAG KL. 11.00 - 17.00. Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 lau. kl. 11-14 Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949 Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939 Breyttur opnunartími á laugardögum kl. 11-14 Afmælistilboðinu lýkur í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.