Morgunblaðið - 22.05.2004, Page 1
HAFIN er í austanverðum Bandaríkjunum ástarhátíð með
aragrúa þátttakenda, talið er að söngtifurnar sem nú
skríða upp á yfirborðið eftir að hafa verið á lirfustigi á
trjárótum í 17 ár séu nokkur hundruð milljarðar. Hvar-
vetna eru breiður af flugunum, á gangstéttum, trjám og
flaggstöngum, fólk heyrir braka undir fæti þegar það
stígur á lirfuskurnina sem flugurnar varpa af sér þegar
þær skríða úr fylgsni sínu. Ræðumenn á útifundum verða
að brýna raustina til að yfirgnæfa köllin frá karlflugunni,
hundar og kettir éta stundum of mikið af flugunum og fá í
magann. Söngtifur eru ekki engisprettur og valda sára-
litlu tjóni, þær eru meinlausar fólki þótt þær geti verið
hvimleiðar vegna fjöldans. Þær koma allar fram á sama
tíma á 17 ára fresti en deyja eftir aðeins um 20 daga.
Hver vill mig?
AP
SAMÞYKKT var í gær bráðabirgðaáætlun á
fundi heilbrigðisráðherra allra 192 aðildarþjóða
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, í
Genf um að stemma stigu við heimsfaraldri of-
fitu. Áætlunin er leiðarvísir fyrir þjóðirnar um
það hvernig eigi að móta stefnu sem fær fólk til
að borða hollari mat og hreyfa sig meira. Nú er
svo komið í fyrsta sinn í sögunni að meira er af of
feitu fólki í heiminum en vannærðu.
Markmið áætlunarinnar er að draga úr offitu
og öðrum sjúkdómum sem tengjast slæmu mat-
aræði og hreyfingarleysi. Tillögur eru settar
fram um að dregið verði úr magni sykurs, fitu og
salts í unnum matvörum, að markaðssetningu á
mat handa börnum verði stýrt með heilbrigðis-
sjónarmið í huga. Lagt er til að grænmeti og
ávextir verði niðurgreiddir í skólamötuneytum.
Mælt er með að skipulag nýrra íbúðarhverfa
ýti undir að fólk gangi og hjóli og enn fremur að
skyndibitastaðir gefi börnum dót með heilsu-
samlegum skyndibitum og umbuni þannig börn-
um fyrir að hugsa um hollustu. Bent er á að þróa
megi fleiri tölvuleiki sem ganga fyrir fótstigi
eins og reiðhjól og reyna því á allan líkamann en
ekki eingöngu huga og viðbragðsflýti.
Hömlur undir fölsku flaggi?
Fulltrúar þjóða sem hafa tekjur af sykurrækt
hafa lýst ótta við að hugmyndirnar muni valda
efnahag þeirra tjóni. Reyndu sumir að fá felldar
burt allar beinar vísanir til sykurs í texta ráð-
herranna. „Það var sigur fyrir lýðheilsu að þetta
fór í gegn án þess að sykurframleiðendur eyði-
legðu málið,“ sagði dr. Kaare R. Norum, norsk-
ur sérfræðingur í offituvandamálum, sem var
ráðgjafi WHO í tengslum við áætlunina.
Fátækar þjóðir segja að þessar nýju áherslur
megi ekki verða til þess að menn hunsi vanda
þeirra sem þjást af vannæringu. Að auki var
bent á að varasamt væri að nefna niðurgreiðslur
á grænmeti og ávöxtum sem tæki til að bæta
lýðheilsu. Þá væri opnuð ný leið til að beita inn-
flutningshömlum undir yfirskini hollustunnar
þótt raunverulega takmarkið væri að vernda
innlenda framleiðslu fyrir samkeppni.
Alþjóðlegt átak gegn
offituvandanum
Genf. AP, AFP.
VOPNAÐ bankarán var framið í útibúi
Landsbankans við Gullinbrú í gærmorg-
un. Tæplega þrítugur karlmaður var
handtekinn strax í kjölfar ránsins og yf-
irheyrður. Var hann handtekinn á hlaup-
um í Foldahverfi fimm mínútum eftir að
tilkynnt var um atburðinn, eða klukkan
10.29. Maðurinn hafði hótað starfsfólki
með öxi og hvarf á brott með ótilgreinda
peningafjárhæð. Engan sakaði.
„Þetta eru auðvitað mjög alvarleg mál
og það leikur enginn vafi á því að hægt er
að vinna mjög alvarleg ódæði með svona
vopnum,“ segir Karl Steinar Valsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn. Öxin sem mað-
urinn notaði, sem og bifreið sem talin er
tengjast málinu, voru teknar í vörslu lög-
reglu í gær. Tveir menn voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald til 26. maí seint í gær-
kvöldi að kröfu lögreglu.
Rúmlega þrítugur Reykvíkingur, sem
ekki vildi láta nafns síns getið, sá mann-
inn koma út úr bankanum og hljóp í hum-
átt á eftir honum á flóttanum. Á hlaup-
unum hringdi hann í Neyðarlínu og
leiðbeindi lögreglu að ræningjanum.
„Ég sá hann með skíðahettuna á höfð-
inu og öxina og peningana í sitt hvorri
hendinni. […] Ég gat ekki látið banka-
starfsmann á miðjum aldri í lakkskóm
hlaupa á eftir bankaræningja með öxi svo
ég hljóp af stað,“ sagði maðurinn.
„Hægt er að vinna mjög alvarleg
ódæði með svona vopnum“
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan tók til rannsóknar öxi sem fannst í Frostafold og talið er að notuð hafi verið við ránið í gær. Hótaði/4
STOFNAÐ 1913 139. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Grillbragðið er
ómótstæðilegt
Margbreytilegur matur í útigrillum
landsmanna | Daglegt líf
Lesbók og Börn í dag
Lesbók | Íslensk hönnun Erna Ómarsdóttir
Glæpakonur Jónas Ingimundarson Börn | Vor í
Viðey Þrautir Myndasögur Jerúsalem
SKORTUR er nú í Noregi á ýmsum nauð-
synjavörum eins og mjólk, eggjum, salern-
ispappír og bleium vegna verkfalls starfs-
manna sem annast flutninga á matvörum.
Kaupfélög eru undanþegin verkfallinu og
varð ein af verslunum þess í Rudshögda í
Ringsaker, Obs!, að setja upp dyravörslu og
hleypa aðeins inn afmörkuðum hópum vegna
troðningsins, að sögn Aftenposten.
Um tíma voru um 2000 manns inni í Obs!
og varð fólk að bíða í allt að 45 mínútur eftir
innkaupakerru. Starfsmenn brugghúsa voru
í verkfalli í þrjá daga en deilan var leyst í
gær. Sagði einn af yfirmönnum Ringnes,
stærsta brugghússins, þar sem rúmlega
2.600 manns vinna, að til greina kæmi nú að
flytja starfsemina til Danmerkur eða Pól-
lands. Ringnes er í eigu Carlsberg.
Prentaraverkfall leystist í gær en blaða-
menn, alls um 3.000 manns, hafa nú verið í
verkfalli í viku. Hefur Aftenposten því ekki
birt neitt efni unnið af blaðamönnum.
Örtröð í Obs!
Verkföll í Noregi
FRIÐARFERLIÐ á
Norður-Írlandi er í
stöðugri hættu, þrátt
fyrir Belfast-sam-
komulagið milli
breskra stjórnvalda
og stríðandi fylkinga
á Norður-Írlandi, og
ekki hafa náðst fullar
sættir, segir írska
nóbelsskáldið Seamus
Heaney í samtali við Morgunblaðið í dag.
„Ástandið hefur þróast frá grimmdar-
verkum yfir í smásálarlega kreddutrúar-
stefnu. Fólk er smásálarlegt og kreddu-
fullt. Það þarf menntun til og á eftir að
taka tíma að breyta hugsunarhættinum –
þótt lítið sé. Fólk breytist ekki svo mikið.“
Að mati Heaneys hefur skáldskapur mik-
ilvægu hlutverki að gegna. „Mér líkar hug-
myndin sem tékkneska skáldið Miroslav
Holub setti fram fyrir mörgum árum um að
listin verki á hugarstarfsemina eins og
ónæmiskerfið í líkamanum. Hún vinnur
gegn eitruðum og illkynjuðum áhrifum,
þótt ekki sé tryggt að hún hafi betur.“
Heaney kemur fram á þremur uppá-
komum hér á landi ásamt sekkjapípuleik-
aranum Liam O’Flynn. Hann flytur m.a.
nokkur erindi úr Bjólfskviðu, stuttar lýs-
ingar á sjóferðum – „því fyrir mér er Ísland
angi af þeirri siglinga- og vígaferlamenn-
ingu sem Bjólfskviða lýsir“.
Friðarferli og
skáldskapur
Seamus Heaney
Skáldskapur/30
♦♦♦