Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 4
BÁTASKÝLI á stærð við meðal-
stóran bílskúr hefur verið reist í
leyfisleysi og í trássi við lög við
bakka Þingvallavatns í landi Kára-
staða. Skýlinu, sem er tæpir 35 fer-
metrar að stærð og yfir tveggja
metra hátt um miðbikið, var komið
fyrir með því að moka burt grjóti og
öðrum jarðvegi á yfir fimm metra
svæði af bakka Þingvallavatns. Þá
hefur sumarhússeigandinn reist
grjótgarða út í vatnið beggja vegna
skýlisins. Eigandinn sótti ekki um
leyfi fyrir framkvæmdinni, og að
sögn Sigurðar Oddsonar þjóðgarðs-
varðar, hefði slíkt leyfi ekki verið
veitt.
„Nei það hefði ekki fengist. Það er
alveg ljóst. Þetta mál er litið mjög al-
varlegum augum,“ segir Sigurður.
Sumarhúsaeigandinn sótti um það
til Þingvallanefndar fyrir tveimur
árum að fá að nýta vatnsbakkann
neðan við húsið en því var hafnað.
Spurður að því hvað verði gert við
skýlið, sem samanstendur af þung-
um bogadregnum járnstöplum og
tréfjölum, segir Sigurður að líklegt
sé að annaðhvort verði eiganda gert
að fjarlægja skýlið eða það verði
fjarlægt á hans kostnað. Sigurður
segir að reynt hafi verið að ná tali af
eiganda sumarhússins sem bátaskýl-
ið var byggt við, en það ekki tekist.
Strandlengjan stórskemmd
Vatnsbakki Þingvallavatns er á
umráðasvæði Þingvallanefndar og
segir Sigurður að málið verði lagt
fyrir nefndina. Hann kvaðst í sam-
tali við Morgunblaðið ekki geta sagt
nákvæmlega hvaða viðurlög lægju
við því að byggja í leyfisleysi á þess-
um slóðum, en að um sé að ræða
mikil náttúruspjöll. „Það er alveg
ljóst að það verður reynt að koma
þessu í samt lag og var áður. Strand-
lengjan er stórskemmd. Vatnið er á
náttúruminjaskrá og vatnsbakkinn
fylgir því.“
Hluti skýlisins er innan þeirrar
lóðar sem tilheyrir sumarhúsinu, en
hluti utan hennar. Sigurður segir
það hins vegar ekki skipta máli
hvort sumarhúsaeigandinn hefði
byggt alfarið á lóðinni sem tilheyrir
sumarhúsinu. „Þó að þetta sé ekki
innan hins friðhelga svæðis þjóð-
garðsins þá eru ákvæði í gömlu þjóð-
garðslögunum frá 1928 um að það
megi ekkert jarðrask verða í landi
Kárastaða og Brúsastaða nema með
samþykki Þingvallanefndar,“ segir
Sigurður.
Formaður Þingvallanefndar er
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
en ásamt honum sitja í nefndinni
Össur Skarphéðinsson formaður
Samfylkingarinnar og Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Frumvarp til laga um þjóðgarðinn á
Þingvöllum liggur nú fyrir Alþingi
en ef það verður samþykkt telst
vatnsbakki Þingvallavatns fram-
vegis hluti þjóðgarðsins á Þingvöll-
um og nýtur því friðhelgi.
Þetta er í annað sinn á stuttum
tíma sem upp kemst um fram-
kvæmdir í óleyfi við vatnsbakkann.
Einungis nokkrir dagar eru síðan
hafnarframkvæmdir í landi Heið-
arbæjar voru stöðvaðar.
Hafði sótt um leyfi
en fengið synjun
Sumarhúsaeigandinn sem reisti
skýlið sótti um leyfi til Þingvalla-
nefndar fyrir tveimur árum, eða ár-
ið 2002, til að nýta vatnsbakkann
neðan við sumarhúsið en fékk synj-
un.
Um 25 sumarhús á svæðinu við
Þingvallavatn hafa lóðir sem liggja
niður að vatninu sjálfu. Vatnsbakk-
inn sem liggur að lóðunum er þó í
engum tilvikum inni á lóð sum-
arhúsaeigenda og því þarf alltaf að
sækja um leyfi fyrir framkvæmdum.
Þónokkur bátaskýli standa við
vatnsbakkann en að sögn Sigurðar
hefur ekki verið veitt leyfi fyrir slíku
svo hann viti til. Hann segir flest
þeirra vera litla hjalla sem hlaðnir
hafi verið fyrir 30–40 árum.
Fólk láti vita um náttúruspjöll
Að sögn Arinbjarnar Vilhjálms-
sonar byggingafulltrúa í Blá-
skógabyggð og uppsveitum Árnes-
sýslu braut sumarhúsaeigandinn
skipulags- og byggingalög, nátt-
úruverndarlög, vatnalög og lög um
þjóðgarðinn á Þingvöllum með því
að reisa bátaskýlið. Hann vill beina
því til almennings að láta vita af
náttúruspjöllum sem unnin eru á
þessu svæði, enda séu þau óaftur-
kræf náist ekki að grípa í taumana
nægilega snemma. „Við þurfum að-
stoð almennings við að líta eftir hlut-
unum. Ef það er grunur um fram-
kvæmdir í óleyfi, að ég tali nú ekki
um náttúruspjöll, þá á fólk að láta
vita af því,“ segir Arinbjörn.
Bátaskýli reist
í óleyfi við
Þingvallavatn
Morgunblaðið/Golli
Bátaskýlið er um 35 fermetrar að stærð. Til að reisa það hefur eigandi sumarhússins þurft að gera töluvert jarð-
rask, m.a. reka fleyg í bergið og losa jarðveg á yfir 5 metra svæði við bakka Þingvallavatns.
Þjóðgarðsvörður segir að bygging
skýlisins sé litin alvarlegum augum
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið í dag og sunnudag frá 13-16
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík - Sími 517 0220 - www.netsalan.com
Landsins mesta
úrval af húsbílum
Dodge Ram 2500
Quad Cab Laramie
2004 Jeep Grand Cherokee Overland
McLouis Lagan 410,
háþekja á sértilboði um helgina
kr. 3.990.000
með útvarpi, geislaspilara
og sólderi
Til afgreiðslu í júníbyrjun
Sýningarbíll á staðnum
ANNAÐ vopnaða
bankaránið í sömu
vikunni var framið í
gær þegar karlmað-
ur vopnaður öxi
ruddist inn í útibú
Landsbankans við
Gullinbrú og hvarf á
brott með þýfi. Lög-
reglan handtók
grunaðan mann
strax í kjölfar ráns-
ins og færði hann til
yfirheyrslu. Var
hinn grunaði hand-
tekinn á hlaupum í
Foldahverfi í Graf-
arvogi fimm mínút-
um eftir að tilkynnt
var um atburðinn,
eða klukkan 10:29.
Maðurinn hótaði starfsfólki
með öxi og vann einhverjar
skemmdir á gjaldkerastúku með
öxinni án þess að nokkurn í bank-
anum sakaði. Hann hvarf á brott
með ótilgreinda peningafjárhæð.
Útibúinu var lokað strax í kjölfar
ránsins.
Hinn grunaði er 28 ára karl-
maður sem á talsverðan sakaferil
að baki. Karl Steinar Valsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn segir að
talið sé að fleiri tengist ráninu en
maðurinn sem nú er í haldi. Í
gærkvöldi lagði lögreglan í
Reykjavík hald á bíl í Höfða-
hverfi vegna málsins, og segir
Karl Steinar að reiknað sé með
fleiri handtökum í málinu. Við
rannsókn málsins tók lögreglan í
vörslu sína öxina sem notuð var
við ránið, en hún fannst í Frosta-
fold.
Þegar lögreglunni var tilkynnt
að maður vopnaður öxi hefði
ruðst inn í bankann var fjölmennt
lögreglulið sent á staðinn í sam-
ræmi við viðbragðsáætlun henn-
ar. Var hinn grunaði í klóm lög-
reglunnar klukkan 10:29 sem
áður gat. Maðurinn var yfir-
heyrður fram eftir kvöldi í gær,
og var krafist gæsluvarðhalds yf-
ir honum í gærkvöldi.
Þriðja bankaránið á árinu
Bankaránið í gær er þriðja
bankaránið hérlendis á þessu ári.
Fyrsta ránið var framið 10. jan-
úar í útibúi SPRON við Hátún og
er það mál enn í rannsókn og tók
nýja stefnu nú í vor þegar lög-
reglan fékk nýjar vísbendingar
sem leiddu til handtöku karl-
manns sem ekki hafði legið undir
grun til þess tíma.
Næsta rán var framið 17. maí í
útibúi SPRON við Álfabakka.
Ungur piltur var fljótlega hand-
tekinn og játaði ránið við yfir-
heyrslu.
Gríðarleg hrina vopnaðra
bankarána reið yfir á síðasta ári
og beittu ræningjarnir oftast
hnífum eða bareflum við að hóta
starfsfólki.Vopn á borð við axir
hafa hinsvegar ekki tíðkast fyrr
en nú og lítur lögreglan málið
mjög alvarlegum augum. „Þetta
eru auðvitað mjög alvarleg mál
og það leikur enginn vafi á því að
hægt er að vinna mjög alvarleg
ódæði með svona vopnum,“ segir
Karl Steinar. Öxin var sett í
tæknirannsókn hjá lögreglunni
og er niðurstöðu hennar beðið.
Lögreglan tjáir sig hins vegar
ekki um hvort þýfið sjálft hafi
fundist, né um hversu miklu var
rænt.
Fram kom í tilkynningu frá
Landsbankanum, að starfsmenn
bankans í útibúinu hefðu að öllu
leyti farið eftir fyrirfram ákveð-
inni viðbragðsáætlun bankans
sem starfað sé eftir í tilvikum
sem þessum. Ekki hafi orðið slys
á fólki. Fagmaður í áfallahjálp
hafi unnið með starfsmönnum
útibúsins.
Hótaði starfs-
fólki með öxi
Lögreglan mætti á vettvang fljótlega eftir til-
kynningu í samræmi við viðbragðsáætlun.
Morgunblaðið/Júlíus
Karlmaður handtekinn grunaður um
vopnað rán í Landsbankanum við Gullinbrú