Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 9

Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 9 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Ótrúlegt úrval af peysum í glæsilegum sumarlitum Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 LOKADAGAR Opið í dag kl. 10.00-14.00 VERSLUNIN HÆTTIR Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. kl. 11-15, sunnud. 13-17 Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. Götumarkaður Rýmingarsala vegna breytinga. Hver hlutur með 60-70% afsl. Ótrulegt vöruúrval NÝTT KORTATÍMABIL - Einnig raðgreiðslur Galla- og kakijakkar Munið tilboðsslána Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 VIÐ útskrift Fjölbrautaskólans í Breiðholti brautskrást meðal annars mæðginin Gísli Hvanndal Ólafsson og Guðbjörg Árnadóttir. Gísli varð að þessu sinni dúx skólans, og lauk sömuleiðis náminu á einungis þrem- ur árum. Stundaði hann nám á sér- stakri þriggja ára náttúrufræði- braut, sem hefur verið í boði við skólann um nokkurra ára skeið og gefist vel að sögn skólans. Þar eru nýttir möguleikar áfangakerfisins til hins ítrasta og unnið hraðar í nám- inu. Í samtali við Morgunblaðið sagði Gísli að hann hefði ákveðið að nýta sér þennan valkost við námið fyrst það stóð til boða. „Þar sem þetta er vel hægt þótti mér sjálfsagt að nýta mér það,“ sagði Gísli. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um frekara nám að svo stöddu, enda hefur námið ver- ið ansi stíft að undanförnu. Móðir Gísla, Guðbjörg, útskrif- aðist sem stúdent og lauk sömuleiðis námi af sjúkraliðabraut. Hún lauk einnig námi af snyrtifræðibraut árið 2001. Guðbjörg vinnur sem sjúkra- liði á Landspítalanum í Fossvogi. „Ég ákvað að bæta við mig menntun á mínu starfssviði, og var í 60% vinnu ásamt skólanum til þess að geta lokið náminu núna í vor,“ sagði Guðbjörg. Mæðginin Guðbjörg Árnadóttir og Gísli Hvanndal Ólafsson. Námfús mæðgin útskrifast saman ÞAÐ var mikil gleðistund hjá unga fólkinu í Fjölbrautaskólanum við Ármúla í gær, þegar hvítu húf- urnar settust á kollana við fyrstu útskrift vorsins. Alls útskrifuðust hundrað fimmtíu og þrír nem- endur frá skólanum af þeim fjöl- mörgu námsleiðum sem skólinn býður upp á. Dúx skólans varð Sig- urbjörg G. Borgþórsdóttir, en Hrafn Þorri Þórisson, nemandi skólans fékk við athöfnina við- urkenningu fyrir verkefni sitt um Áhrif umhverfis á sköpunargáfu, en það var valið sem framlag Ís- lands í keppni ungra vísindamanna í Dublin í haust. Meðal annarra skóla sem útskrif- uðu í gær voru Menntaskólinn í Kópavogi, en þaðan útskrifuðust hundrað þrjátíu og sjö nýstúdentar og iðnnemar og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, sem útskrifaði hundr- að tuttugu og þrjá stúdenta og sjö- tíu og átta nemendur af öðrum brautum, þar af tuttugu sjúkraliða, tuttugu af tréiðnaðarbraut, sextán af snyrtibraut, tólf rafvirkja og sex nema af handíðabraut auk fjög- urra nemenda úr sérdeild. Morgunblaðið/Golli Stúdentarnir frá FÁ settu kátir upp hvítu kollana og héldu svo út á lífið til að fagna þessum gleðilega áfanga. Hvítir kollar setja svip á bæinn LYFJAVERÐSNEFND og fulltrú- ar apótekara hafa náð samkomulagi um þak á álagningu lyfja. Há- marksálagning á lyfjum sem kosta yfir 12 þúsund krónur verður frá 1. júní nk. 2.450 kr. á pakkningu í heildsölu. Í tilkynningu frá lyfja- verðsnefnd segir að breytingin muni hafa veruleg áhrif til lækk- unar á verð dýrari lyfja. Að sögn Hrundar Rudolfsdóttur, framkvæmdastjóra Lyfja og heilsu, nær breytingin til 10–15% lyfja miðað við hlutdeild á markaði. Um sé að ræða lyf úr öllum lyfjaflokk- um. Álagning á lyfjum í dag ræðst af innkaupsverði og samanstendur af hlutfallslegri álagningu auk fastrar krónutölu. Álagningin á lyfjum á verðbilinu 0–1.000 kr. er 70% að viðbættum 50 krónum, í flokki lyfja 1.001–3.000 kr. er hún 25% auk 500 króna, 3.001–5.000 kr. 20% auk 650 kr., 5.001–8.000 15% auk 900 kr. og í flokki lyfja á verðbilinu 8.001– 12.000 er hún 10% auk 1.300 kr. en verður sem fyrr segir 2.450 kr. á dýrari lyfjum. Verð á dýrustu lyfjunum í dag í sölu hérlendis er upp u.þ.b. 100 þúsund krónur á pakkningu en al- gengasta verð á dýrustu lyfjunum í hverjum flokki á bilinu 20–40 þús- und krónur. Að sögn Hrundar taka apótekin alfarið á sig kostnaðinn vegna breytinganna. Lyfjaverðsnefnd og apótekarar semja um álagningu á dýrustu lyfjunum Hámarksálagning verður 2.450 kr. EKIÐ var á gangandi vegfaranda á Strandvegi í Vestmannaeyjum um hádegisbilið í gær og var hann flutt- ur á heilsugæsluna í Vestmannaeyj- um. Um var að ræða konu sem hlaupið hafði út á götuna með þeim afleiðingum að bifreiðin ók hana nið- ur. Að sögn lögreglunnar í Eyjum slasaðist hún nokkuð, en ekki var þó talið að meiðsli hennar hefðu verið alvarlegs eðlis. Ekið á gang- andi vegfar- anda í Eyjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.