Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 12
Aburdur Agri í Skandinavíu ÁBURÐARVERKSMIÐJAN hefur opnað tvö fyrirtæki erlendis undir nafninu Aburdur Agri, annað í Nor- egi og hitt í Svíþjóð. Stefnt er að því að fyrirtækin verði samtals með um 50 sölumenn á sínum snærum og að starfsemin verði komin á fullt á næstkomandi hausti. Haraldur Haraldsson, stjórnar- formaður Áburðarverksmiðjunnar, segir undirbúning hafa staðið yfir í eitt og hálft ár en fyrirtækin hafi verið stofnuð um áramót. „Við byrj- uðum smátt, vorum að „prófa píp- urnar“, athuga hvort væru einhverj- ar viðskiptahindranir, hvort öll leyfi væru í lagi og annað sem þarf. Nú er búið að taka þetta út af aðfangaeft- irlitum beggja landa og gæðin og allt er í fínu lagi. Við förum því á fulla ferð í haust,“ segir Haraldur. Áburð- arverksmiðjan hefur þegar flutt nokkur þúsund tonn af áburði til Noregs og Svíþjóðar, bæði til sölu og til kynningar á vörunni. „Við höfum gefið bændum 1–2 stórsekki til að þeir sjái og sannfærist um hvað þetta er góð vara,“ segir Haraldur. Hann segir einn framkvæmda- stjóra starfa á hvorum stað um sig en sölumannakerfi fyrirtækjanna verði með sama sniði og hjá Áburð- arverksmiðjunni á Íslandi. „Hér á Íslandi höfum við 18 prósentutengda sölumenn sem eru ýmist bændur eða bændavörutengdir. Þeir sjá hver og einn um sitt svæði og eru ábyrgir fyrir því. Þetta kerfi hefur reynst okkur ákaflega vel.“ Áætlað er að rekstur fyrirtækj- anna í Noregi og Svíþjóð fari að skila hagnaði strax á næsta ári og segir Haraldur markið sett á 10% mark- aðshlutdeild á næstu fáum árum. Áburðarverksmiðjan á 50 ára af- mæli í dag og af því tilefni verður kynnt til sögunnar nýtt vörumerki fyrir sölufyrirtækin í Noregi og Sví- þjóð auk Áburðar Agri ehf., sem er nýstofnað sölufyrirtæki Áburðar- verksmiðjunnar hér á Íslandi. Áburðarverksmiðjan verður eignar- haldsfélag sölufyrirtækjanna. Á besta aldri Áburðarverksmiðjan á 50 ára afmæli í dag. VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MIKLAR umræður eru nú um það í Noregi að auka hrefnukvótann verulega. Leyfilegur fjöldi á þessu ári er 670 dýr, en talað er um allt að 1.800 dýr þegar fram líða stundir, enda muni sá fjöldi ekki skaða stofninn. Vandkvæði við sölu afurðanna valda því hins vegar að svo mikill kvóti er af mörgum talinn óraunhæfur eins og er. Á árunum fyrir hvalveiðibannið skutu Norðmenn árlega 1.500 til 2.000 hrefnur og var megnið af afurðunum selt til Japans. Sá markaður er nú lokaður. Þessar hugmyndir Norðmanna vekja víða athygli. Á fréttavef skozka blaðsins The Scotsman er meðal annars spurt hverjir eigi að borða allt hvalkjötið. Blaðið hefur eftir Kate O’Connell hvala- sérfræðingi að hugmyndir um að auka hrefnukvótann séu efna- hagslegt og pólitískt rangmat. „Markaðurinn fyrir hvalkjöt heima fyrir fer minnkandi og því verða Norðmenn að leita eftir hagnaði með útflutningi, en Jap- anar hafa hafnað norska hvalkjöt- inu og spikinu vegna þess hve mengað það er,“ segir O’Connell. Blaðið segir að Norðmenn von- ist til þess að tillaga Japana í CITES, stofnun um viðskipti með dýr í útrýmingarhættu, um að taka hrefnuna af bannlista verði samþykkt í haust. O’Connell telur einhliða ákvörðun Norðmanna um aukinn kvóta kunna að hafa þar slæm áhrif. Hver á að borða hvalkjötið? STJÓRN Landssambands smá- bátaeigenda telur sóknardaga- frumvarp sjávarútvegsráðherra að óbreyttu gera sóknardagakerfi handfærabáta að engu. Stjórnin krefst þess að í frumvarpinu verði boðið upp á tvo jafngilda valkosti varðandi framtíðarskipan veiða sóknardagabáta. „Frumvarp sjávarútvegsráð- herra mun að óbreyttu gera sókn- ardagakerfi handfærabáta að engu. Þessi staðreynd blasir við, þrátt fyrir að frumvarpið væri kynnt LS á þeim forsendum að það fæli í sér tvo jafngilda valkosti varðandi framtíðarskipan veiða sóknardagabáta,“ segir í ályktun sem stjórn LS hefur samþykkt. „Sú er alls ekki raunin og að óbreyttu um hreinar þvingunarað- gerðir að ræða yfir í aflakvóta- kerfi. Stjórn LS leggst ekki gegn því að teflt sé fram valkostum, en gerir þá skýlausu kröfu að þá megi leggja að jöfnu. Krafa LS hefur verið að sett verði 23 daga gólf í sóknardagakerfi handfærabáta.“ Nú er til gnótt heimilda Stjórnin segir að sjái þingmenn sér ekki fært að standa við gefin fyrirheit um festingu lágmarks- fjölda sóknardaga eins og sjávar- útvegsráðherra hafi sagt frum- varpið bera í sér, sé engin framtíð í sóknardagakerfi frumvarpsins. „Það er með öllu útilokað að taka þann málflutning alvarlega að menn geti vegið það til jafns við þann valkost að fara í krókaafla- markið. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er framlenging sóknar- dagakerfisins sýndarmennska ein. Nú hefur komið í ljós að til virðist gnótt veiðiheimilda sem ekki verða frá öðrum teknar, þegar ná skal því markmiði að stýra með afla- kvótakerfi. Þessu hefur hingað til verið þveröfugt farið þegar um er að ræða sóknarstýringu. Stjórn LS hefur ástæðu til að draga þá álykt- un að hinn einbeitti vilji til að af- leggja sóknardagakerfið þýði að hugað sé að enn frekari tilfærslum slíkra veiðiheimilda í því augna- miði að taka þetta skref til fulls. Yfirlýst markmið stjórnvalda er að ná sátt við eigendur sóknardaga- báta. Slík sátt næst ekki, ef ganga á þvert á vilja stórs hóps þeirra.“ Stjórn LS krefst þess að lokum „að frumvarpið verði fært til þess vegar að um jafnræði valkosta verði að ræða og brýnir hið háa Alþingi til þeirra verka.“ Óbreytt frumvarp gerir sóknardagakerfið að engu Stjórn Landssam- bands smábátaeig- enda vill að boðið verði upp á tvo jafn- gilda kosti ÚR VERINU VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands hf., VÍS, hefur keypt 100% hlutafjár í Lyfju hf., fyrir hönd óstofnaðs hluta- félags síns og annarra fjárfesta. Selj- andi er Hagar hf. Stefnt er að und- irritun kaupsamnings 4. júní næstkomandi en fyrirvari er gerður um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Í tilkynningu frá VÍS segir að kaupverðið sé trúnaðarmál. Búið sé að tryggja fjármögnun vegna samn- ingsins og sé skuldbinding VÍS að há- marki 500 milljónir króna. Íslands- banki hf. hafði milligöngu um viðskiptin. Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segir að félagið líti á Lyfju sem góðan fjárfestingarkost. Markmiðið sé að efla Lyfju enn frekar og muni VÍS fá fleiri fjárfesta í lið með sér í þeim til- gangi. Hann vill ekki gefa upp á þessu stigi hvaða fjárfestar það eru. Jón Björnsson, forstjóri Haga hf., segir að sú ákvörðun að selja Lyfju hafi verið algjörlega viðskiptalegs eðlis. Hagar hafi fengið gott tilboð í félagið sem hafi verið tekið. Óbreyttur rekstur Finnur segir að Lyfja sé vaxtarfyr- irtæki, öflugt og framsækið með hæft og gott starfsfólk. Fyrirtækið hafi náð góðum árangri í rekstri á mark- aði sem flest bendi til að muni vaxa á næstu misserum. Hann segir að VÍS hafi óskað eftir því við Inga Guðjónsson, fram- kvæmdastjóra Lyfju, að halda áfram hjá fyrirtækinu. Hann hafi tekið því jákvætt en ekki gefið endanlegt svar. Ætlun VÍS sé að reka Lyfju fyrst um sinn með algjörlega óbreyttum hætti. Ingi Guðjónsson og Róbert Melax stofnuðu Lyfju hf. í apríl 1996 og var fyrsta verslunin opnuð við Lágmúla í Reykjavík sama ár. Lyfja hf. og Lyfjabúðir ehf. sameinuðust í desem- ber 2000 undir nafni Lyfju. Eftir sam- eininguna átti Baugur hf., síðar Hag- ar hf., 55% hlut í félaginu á móti 45% hlut Inga og Róberts. Hagar eignuð- ust síðan allt hlutafé í Lyfju í apríl síð- astliðnum. Lyfja á nú 34 lyfjaversl- anir og þar af eru 11 á höfuðborgar- svæðinu. Flestar verslanirnar eru reknar undir merki Lyfju en nokkrar undir merki Apóteksins auk annarra nafna. Stöðugildi í fyrirtækinu eru alls um 170. Í tilkynningu frá Högum segir að sala Lyfju muni styrkja efnahags- reikning Haga og gera félagið betur í stakk búið til að takast á við framtíð- aruppbyggingu. „Fókus félagsins verður skýrari og Hagar hf. geta nú einbeitt sér enn frekar að rekstri smásöluverslunar á sviði matvöru, fatnaðar og annarrar sérvöru.“ Þegar greint var frá kaupum Baugs Group á meirihluta í bresku skartgripaverslanakeðjunni Gold- smiths í síðustu viku sagði í frétta- tilkynningu frá félaginu, að vænta megi þess að umsvif Baugs í Bret- landi aukist enn og að dregið verði úr starfsemi á Íslandi. Síðan þá hefur Baugur selt öll hlutabréf sín í Flug- leiðum, sem greint var frá í byrjun þessarar viku. Og nú hafa Hagar, sem eru í eigu Baugs Group og tengdra aðila, selt öll hlutabréf sín í Lyfju. VÍS kaupir allt hlutafé í Lyfju Salan er algjörlega viðskiptalegs eðlis, segir forstjóri Haga Morgunblaðið/ÞÖK Vaxtarfyrirtæki Verslun Lyfju í Lágmúla. ● JÓN Pálmason, stundum kenndur við Eignarhalds- félagið Hof, hefur verið kjörinn for- maður stjórnar Ingvars Helgason- ar hf. Hann tekur við af Baldri Guðnasyni, sem lét af stjórnarfor- mennsku um leið og hann gerðist forstjóri Eimskipafélags Íslands ehf. Nýr stjórnarformaður Ingvars Helgasonar Jón Pálmason GREININGARDEILD Landsbanka Íslands spyr í gær í Vegvísi, mark- aðs- og greiningarriti deildarinnar, hvort kaup VÍS á Lyfju séu leyfileg. Segir í Vegvísinum að það sé mat greiningardeildarinnar að VÍS sé með kaupunum á Lyfju að færa sig inn á svið fjárfestingarbanka- starfsemi. Miðað við þær upplýs- ingar sem fram komi í tilkynningu VÍS vegna kaupanna sé erfitt að sjá að það samræmist lögum sem gilda um vátryggingastarfsemi. Í þeim lögum segir að vátryggingafélag megi ekki reka aðra starfsemi en vátryggingastarfsemi, nema um sé að ræða hliðarstafsemi. Sú starf- semi sem þannig telst leyfileg er sérstaklega talin upp í lögunum. Eins og aðrar fjárfestingar VÍS Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segir skrif greiningardeildar Landsbankans vera grundvallar- misskilning og stórmerkilegt að Landsbankinn skuli láta þessi skrif frá sér fara. „Vátryggingafélag Ís- lands er ekki að sameinast Lyfju. Við erum að fjárfesta í félagi sem ætlar að eiga í Lyfju, nákvæmlega eins og við eigum hlut í mjög mörg- um öðrum félögum,“ segir Finnur. Má þetta? spyr Lands- bankinn ● SUNDAGARÐAR hf., sem eiga kjúklingafyrirtækið Matfugl, hafa keypt allt hlutafé í Marvali ehf., sem rekur kjúklingabúið Íslandsfugl á Dalvík. Marval tók yfir rekstur kjúklinga- búsins af þrotabúi Íslandsfugls fyrir um ári. Í fréttatilkynningu segir að rekstur í kjúklingaiðnaði hafi verið erfiður og rekstur Marvals reynzt þungur, enda rekstrareiningin lítil. Stefnt sé að því að hagræða í rekstri með sameiningu rekstrareininga. Sundagarðar kaupa Marval ● NÝIR eigendur tóku í gær við iðn- rekstri SÍBS að Reykjalundi. Nafn nýja félagsins er Reykjalundur-plastiðn- aður ehf. Allir 32 starfsmenn iðn- aðarhluta Reykja- lundar halda áfram störfum hjá nýja félaginu. Í fréttatilkynn- ingu frá nýja félag- inu segir að eftir samninga- viðræður SÍBS við nokkra lykilstarfs- menn á Reykjalundi sem fengið hafi til liðs við sig aðra fjárfesta, hafi það orðið niðurstaða stjórnar Reykjalund- ar-plastiðnaðar og stjórnar SÍBS að leita heimildar aukaþings SÍBS til sölu á iðnrekstri samtakanna. Samn- ingar milli aðila hafi verið undirritaðir 19. maí sl. og nýir eigendur tekið við rekstrinum í gær. Haukur Þór Hauks- son er einn nýju eigendanna og hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Reykjalundar-plastiðnaðar. Haukur rak m.a. áður Borgarljós og var for- maður Samtaka verzlunarinnar, en hefur undanfarin ár lagt stund á MBA- nám og stundað eigin fjárfestingar. Haukur segir í samtali við Morg- unblaðið að nýju eigendurnir hafi mikla trú á rekstrinum og vilji efla hann eins og hægt sé. „Við erum að setja hér inn verulegt fjármagn og er- um komnir hér til að gefa í, en ekki til að draga úr. Það er mikil þekking í þessu fyrirtæki, langur starfsaldur, mikill metnaður og mjög góður tækja- búnaður,“ segir Haukur. Rekstur Reykjalundar-plastiðnaðar ehf. verður áfram í húsnæði að Reykjalundi í Mosfellsbæ. Helstu verkefni fyrirtækisins eru framleiðsla og sala á plastumbúðum og plaströr- um. Einnig rekur fyrirtækið innflutn- ingsdeild sem m.a. flytur inn og dreifir LEGO-leikföngum. Nýir eigendur plast- iðnaðar á Reykjalundi Haukur Þór Hauksson ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.