Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 20

Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Guð er farinn að mála, segja krakkarnir, hann er búinn að mála túnin fagurgræn og byrjaður á úthaganum. Inná milli snýr hann sér að trjánum og fær sér svo gulan lit og málar einn og einn fífil, páskalilju og túl- ípana. Um nætur laumast hann stundum til að fá sér hvítan lit og fer eina umferð yfir jöklana og setur smá á fjallstoppana, bara svona til að skerpa línurnar enn frekar. Í hverjum landshluta fylgir vorinu ákveð- inn blær. Hér eru það stórar dráttavélar sem keyra um sveitina með stór herfi á eftir sér. Áburðarsekkir eru fluttir á bæina, bændurnir á kafi í sauðburði og hafa ekki tíma til að sinna neinu öðru, litlu lömbin og kýrnar komnar út í haga.    Móttaka ferðamanna er undirbúin hjá þeim sem sinna ferðaþjónustu. Nú er aldeil- is búið að flikka uppá Hlíðarenda, komin sjálfsafgreiðsla þannig að margfalt fleiri geta nú staldrað við og fengið sér pulsu og kók og bland í poka. Hinum megin við veg- inn í gamla póst- og símahúsinu eru nýir íbú- ar farnir að hreiðra um sig, ætla víst að reka þar kaffihús og selja leirvörur. Fyrirtækið ber heitið „Kaffi Eldstó“. Alltaf gleðilegt þegar gömul hús fá nýtt hlutverk og að fólk skuli hafa áræði til að hrinda hlutum í fram- kvæmd og trúa á framtíðina.    Í Sögusetrinu er allt á fullu. Þar á að opna Ormsgarð sem verður víkingagarður fyrir krakka og einnig er búið að innrétta þar myndlistargallerí sem verður opnað bráð- lega með sýningu listamannsins Jónda í Lambey. Upplýsingamiðstöð ferðamanna er að flytjast í húsið. Krakkarnir í Hvolsskóla bíða líka eftir að komast út í vorið. Að afloknum prófum verða frjálsir dagar í skólanum. Þeir verða svo frjálsir að þá verður frjáls mæting en áhersla verður lögð á útivist og náttúruna og er búið að skipuleggja fjallgöngur og ferða- lög um allt sveitarfélagið.    Segja má að vegir ljóðanna séu órann- sakanlegar. Í haust tóku krakkarnir í 10. bekk í Hvolsskóla þátt í ljóðasamkeppni sem haldin var á vegum bókasafnanna í landinu. Gekk krökkunum svo vel að 6 þeirra fengu birt ljóð í bók. Á næstunni munu Hafnfirð- ingar geta lesið rangæskt ljóð í sundlauginni sinni. En 10. bekkingurinn Einar Vignir Baldursson á eitt ljóðanna sem verða á floti í sundlauginni í ljóðaviku þeirra. Ljóðið fjallar um ástina sem getur verið jafnmikið kraftaverk og sjálft vorið. RANGÁRÞING EYSTRA EFTIR STEINUNNI ÓSK KOLBEINSDÓTTUR FRÉTTARITARA Úr bæjarlífinu Foreldrar unglinga í9. bekk Grunnskól-ans á Ísafirði héldu foreldrafund 13. maí sl. til að ræða sameiginleg mál og var eftirfarandi ályktun gerð: „Foreldrar unglinga í 9. bekk Grunnskólans á Ísa- firði leggja áherslu á þá skyldu foreldra að virða útivistartíma barna og að leyfa ekki eftirlitslaus sam- kvæmi í sínum húsum. Nú þegar sumarið er í nánd er mjög mikilvægt að for- eldrar eyði tíma með börn- um sínum. Einnig mótmæl- um við því harðlega að foreldrar eða aðrir full- orðnir einstaklingar kaupi áfengi fyrir börnin okkar. Við hvetjum aðra foreldra til að gera slíkt hið sama.“ Tími með börnunum SILJA Rós Auðunsdóttir, 11 ára stúlka frá Böð- móðsstöðum í Blá- skógabyggð, hélt sína fyrstu málverkasýningu nú á dögunum á Laug- arvatni. Sýningin var haldin í einni af þremur nýjum íbúðum sem til sýnis voru að Háholti 10. Tvær myndlistarkonur, þær Guðrún Matthías- dóttir og Erna Hrönn Ás- geirsdóttir, sýndu í hin- um íbúðunum. Silja Rós hefur stundað einkanám hjá Guðrúnu í málun og teikningu síðustu tvö ár. Mogunblaðið/Kári Jónsson Guðrún Matthíasdóttir, Silja Rós Auðunsdóttir og Erna Hrönn Ásgeirsdóttir við nokkrar af myndum Silju. 11 ára listmálari Brúðkaup Friðrikskrónprins og Mar-íu Donaldson, sem búsett var í Ástralíu, vakti athygli í Mývatns- sveit, þar sem Friðrik Steingrímsson orti um nafna sinn: Nú er skipt í náttgírinn nú er klippt á helsi, nú er giftur nafni minn nú er hann sviptur frelsi. Jón Ingvar Jónsson vakti máls á því að Friðrik krónprins hefði gifst and- fætlingi: Ástralskt víf hann Friðrik fékk, fagurt mjög og göfugt. Brúðkaupsnóttin brösugt gekk því bæði sneru öfugt. Ólafur bóndi í Forsæludal orti þegar móðir hans spurði hvernig hefði ver- ið á fundi á Blönduósi og á vísan vel við á öllum tímum: Ég hef fundi átt í dag með ýta kindum alsjáandi á eigin hag en annars blindum. Brúðkaup pebl@mbl.is Á STÓRUM vinnustað eins og Landspítala – háskólasjúkrahúsi eru handtökin mörg á hverjum degi og í mörg horn að líta. Í sam- antekt í ársskýrslu LSH er að finna sýn- ishorn af viðfangsefnum. Á venjulegum virkum degi á spítalanum: Er tekið á móti 182 einstaklingum á slysa- og bráðamóttökum. Koma 1.199 sjúklingar á dag- og göngu- deildir. Eru 900 sjúklingar á legudeildum. Fæðast 8 börn. Fara 53 sjúklingar í skurðaðgerð. Eru 60 sjúklingar svæfðir eða deyfðir af svæfingalæknum. Eru 48 sjúklingar á vöknun í eftirliti eft- ir skurðaðgerð. Eru gerðar 382 röntgenrannsóknir. Fá 330 sjúklingar meðferð hjá sjúkra- þjálfurum og iðjuþjálfum. Er lyfjakostnaður 6,9 milljónir króna. Vitjar sjúkrahústengd heimaþjónusta 16 sjúklinga. Gefa 74 einstaklingar blóð. Framreiðir eldhúsið 4.508 máltíðir. Falla til tæp 6,6 tonn af sorpi. Eru 5.565 rannsóknir gerðar á rann- sóknarstofum spítalans. Sinna prestar skjólstæðingum sínum í 18 sálgæslusamtölum. Þvær þvottahús LSH 4,4 tonn af þvotti. Fá viðskiptavinir bókasafnsins 317 raf- rænar og prentaðar tímaritsgreinar. Er þjónustuver upplýsingatæknisviðs 120 sinnum beðið um þjónustu. Þarf að þvo, þurrka, pressa og brjóta saman um 4800 flíkur/lín. Eru um 4000 póstsendingar afgreiddar. Fara matarvagnar frá eldhúsi í 216 ferð- ir á deildir. Kaupir eldhúsið matvæli fyrir um 1,4 milljónir króna. Mörg hand- tök á stórum vinnustað Morgunblaðið/Þorkell Laxamýri | Vorþema hefur staðið yfir í Hafra- lækjarskóla í Aðaldal en þá fá nemendur að kynnast hinum ýmsu störfum á bæjunum í ná- grenninu. Þessi árlega tilbreyting hefur mælst mjög vel fyrir enda margt áhugavert að gerast í sveit- unum þegar líður á maímánuð. Agla Bettý Andrésdóttir, sem býr í Laxár- virkjun, var ein af þeim sem voru himinsæl með þessa daga, en hún fór á tvo bæi og kynntist m.a. girðingarvinnu, sem henni fannst verulega skemmtilegt verk og góð útivist. Agla flutti í Að- aldal sl. haust og segist hún vera mjög ánægð í skólanum. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Gaman í girðingarvinnu Vorið Eskifjörður | Það er eitthvað nota- legt við að eiga sér blómum skrýtt hreiður við útidyrnar hjá gömlu kempunni honum Dóra Friðriks á Eskifirði. Í það minnsta virðast ungu þrastahjónin, sem verpa nú annað árið í röð framan við úti- dyrnar hjá þeim Halldóri Friðriks- syni og Hansínu Halldórsdóttur álíta að svo sé og láta sér hvergi bregða við umgang góðs fólks ná- lægt hreiðurstæðinu. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Hreiðurgerðin blómstrar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.