Morgunblaðið - 22.05.2004, Síða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 21
Heilsudagur Lífís er haldinn í dag í samstarfi við Hjartavernd og Kraft - stuðningsfélag.
Lífís verður með kynningu í World Class í Laugum og á kynningarbás VÍS í Smáralind. Af því tilefni
verða fulltrúar Hjartaverndar á staðnum og bjóða gestum upp á mælingar á blóðþrýstingi og kólesteróli,
ásamt fræðslu. Jafnframt munu fulltrúar frá Krafti kynna starf félagsins og öflugt forvarnarstarf gegn
krabbameini.
World Class, Laugum: kl. 10:00-12:00
Smáralind, kynningaraðstaða VÍS og Lífís: kl. 13:00-16:00
Ekki láta tening örlaganna ráða úrslitum um hvaða stefnu líf þitt tekur. Taktu ábyrgð á þínu lífi.
Velkomin í mælingu í boði Lífís.
Ertu með öll spilin
á hreinu?
Kíktu í mælingu í dag í boði Lífís og fáðu það á hreint hvernig
líkamsástand þitt er.
Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabbamein og aðstandendur
Vátryggingafélag Íslands · Ármúla 3 · 108 Reykjavík · Þjónustuver 560 5000 · www.vis.is
Útgefandi Lífís trygginga er Líftryggingafélag Íslands hf. · www.lifis.is
Hverfafundir í Hafnarfirði | Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur boðað til
hverfafunda dagana 24.–27. maí, eins og fram
kemur á heimasíðu Hafnar-
fjarðarbæjar. Lögð verður
áhersla á að gefa bæjarbúum
tækifæri á að koma fyrir-
spurnum á framfæri til
bæjarstjóra og forvitnast um
hin ýmsu málefni Hafnar-
fjarðarbæjar. Fjallað verður
um helstu framkvæmdir í
bænum, bæði í máli og mynd-
um.
Fyrsti fundurinn verður hinn 24. maí fyrir
íbúa norður- og vesturbæjar, í Skátaheimilinu
Hraunbyrgi við Hjallabraut. Hinn 25. maí
verður fundur fyrir íbúa miðbæjar, Hrauna og
Setbergs í Íþróttahúsinu við Strandgötu, hinn
26. maí á Kænunni fyrir íbúa Hvaleyrarholts
og suðurbæjar og loks hinn 27. maí fyrir íbúa
Áslands og Valla, á Ásvöllum. Allir fundirnir
hefjast klukkan 20.
Reykjavík | Ástand verslunarmála við Lauga-
veg virðast í góðu fari, miðað við vettvangsferð
blaðamanns Morgunblaðsins í kjölfar lokunar
verslunarinnar Drangeyjar, sem starfað hefur
við Laugaveginn í rúmlega 60 ár. Einstaka
verslunarhúsnæði má sjá autt, og nokkuð af
því hefur staðið autt í langan tíma. Annað hús-
næði hefur nýlega verið tæmt eða er að skipta
um eigendur.
Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
miðborgarinnar, segir að gerðar hafi verið
kannanir á stöðu verslunar í miðborginni á
undanförnum árum, og næsta könnun verði
líklega framkvæmd í haust. Hún segir þó-
nokkra breytingu vera á verslunum í miðborg-
inni og búðir komi og fari. „Heildarbreytingin
er þrátt fyrir það ekki mikil, þar sem ný búð
kemur í stað annarrar, og búðir stækka við sig
sem getur þýtt að verslunum fækki,“ sagði
Kristín í samtali við Morgunblaðið.
Fólk horfir öðrum augum á
miðborgina en aðra kjarna
Kristín segir áberandi í umræðunni að al-
menningur velti mun meira fyrir sér stöðu
verslunar í miðborginni en í öðrum verslunar-
kjörnum. „Það tel ég sýna hve mikla umhyggju
fólk ber fyrir miðborginni. Fólk er mjög já-
kvætt gagnvart miðborginni og í rannsóknum
okkar má sjá að sífellt fleiri koma í miðborgina.
Þar ræður fjölbreytnin ríkjum, og fólk fer í
mjög fjölbreyttum tilgangi í miðborgina,“ segir
Kristín.
Nokkuð af húsnæði við Laugaveg hefur
staðið autt í langan tíma, en einungis verið nýtt
undir tímabundnar sýningar eða þess háttar.
„Sumt af þessu húsnæði hentar ekki nútíma-
verslunarrekstri eða að flóknari ástæður liggja
að baki,“ útskýrir Kristín.
Ef farið er af Laugaveginum niður á Hverf-
ur í vanda meðan á þeim stóð, en nú sé fram-
kvæmdum lokið og göturnar mun glæsilegri á
að líta. „Til dæmis má nefna, að eftir endur-
gerð Skólavörðustígs hefur líf við götuna
blómstrað sem aldrei fyrr,“ segir Kristín.
Sömuleiðis segir hún að aðilar hafi haft sam-
band í leit að verslunarhúsnæði við Laugaveg-
inn, og það sé merki um að ásókn sé að aukast.
Þar sé mikilvægt að skoða vel alla möguleika
sem stuðli að uppbyggingu svæðisins.
isgötu virðist staðan þar ekki vera nægilega
góð. „Hverfisgatan er mjög erfið gata, sérstak-
lega vegna umferðarinnar. Einnig hefur hún
staðið í skugganum af Laugaveginum alla tíð
sem verslunargata, og því er ekki auðvelt að
breyta,“ segir Kristín.
Uppgangur í kjölfar endurbóta
Kristín segir endurbæturnar á götum mið-
bæjarins vissulega hafa sett verslunareigend-
Nokkur hreyfing á
húsnæði við Laugaveg
Morgunblaðið/Ásdís
Nokkuð af stærra húsnæði hefur staðið autt í nokkurn tíma við Laugaveginn.
Sundabraut | Skýrsla um mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmda við Sundabraut liggur
nú frammi til kynningar í Aðalsafni, Folda-
safni og Sólheimasafni Borgarbókasafns
Reykjavíkur. Skipulagsstofnun hóf í gær at-
hugun á mati á umhverfisáhrifum vegna 1.
áfanga Sundabrautar í Reykjavík, samkvæmt
vef Reykjavíkurborgar. Innan fyrsta áfanga
telst tenging brautarinnar við Sæbraut, þver-
un Kleppsvíkur og tenging við Hallsveg aust-
an Kleppsvíkur að gatnamótunum við Strand-
veg.
Í matsskýrslu vegna athugunarinnar voru
skoðaðir ýmsir þættir sem gætu valdið um-
hverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar.
Þar voru til dæmis athuguð áhrif afrennslis
frá mannvirkjum, loftmengun, gruggmyndun í
sjó og áhrif á hafstrauma, náttúruminjar,
hljóðvist, lækkun grunnvatns, gróðurfar og
dýralíf.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmd-
ina og leggja fram athugasemdir. Þær þurfa
að vera skriflegar og hafa borist skipulags-
stofnun fyrir 2. júlí 2004. Gert er ráð fyrir að
Skipulagsstofnun muni skila úrskurði sínum
fyrir 30. júlí 2004.