Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 23
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir Lokbrá: Stefán Bjarkason hugmyndasmiður og Sigurjón Þórðarson þúsundþjalasmiður við körfuna sem þeir hönnuðu. Reykjanesbær | Karfan Lokbrá var í gær sett upp við 88. húsið í Reykjanesbæ og tekin í notkun í tilraunaskyni. Hún er þeim eig- inleikum gædd að hún lokast sjálfkrafa á kvöldin og opnast aftur á morgnana þannig að nágrannar eiga síður að verða fyrir ónæði á ókristilegum tíma. Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar, á hugmyndina að Lokbrá. Stefán segir að oft rekist hagsmunir íbúa í hverfunum á, sumir óski eftir að fá settar upp körfur fyrir börnin og aðrir kvarti undan ónæði sem skapist af því að börn og ungling- ar séu að leika sér þar lengi fram eftir kvöldi eða fram á nótt og raski þannig svefnfriði. Hann segir að ekki sé hægt að verða við ósk- um íbúanna um að setja upp körfur nema all- ir séu sammála um það. Oft strandi það á ein- um eða fáum. Því hafi hann farið að velta því fyrir sér hvort ekki væri hægt að hanna körfuhring sem hægt væri að loka á ákveðnum tímum. Fékk hann frumkvöðla- styrk frá Iðntæknistofnun til að útfæra hana og gerði það í samvinnu við Sigurjón Þórð- arson, vélsmið í Smiðjunni. Lokun körfunnar er stillt samkvæmt klukku og geta nágrannar ákveðið hvenær hún er opin. Á fyrirframákveðnum tíma lyft- ist hringurinn upp að spjaldinu og fellur svo aftur niður morguninn eftir. Orkuna fær Lokbrá úr sólarorkuspjaldi sem komið hefur verið fyrir aftan á körfuspjaldinu. Karfan sem sett var upp við 88. húsið í gær og Eva Stefánsdóttir, dóttir Stefáns og fyrr- verandi landsliðskona í körfuknattleik, vígði, verður opin frá klukkan átta á morgnana og fram til tíu á kvöldin. Ef búnaðurinn reynist vel, sem Stefán er raunar viss um, verður unnt að framleiða fleiri og geta íbúar sótt um að fá körfur í hverfin. Stefán segir að verkefnið, að þróa Lokbrá, hafi tekið langan tíma af ýmsum ástæðum en það hafi verið skemmtilegt. Körfuhringur sem lokast á nóttunni SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 23 Vextir % 5,40% 5,95% 6,50% 7,50% 8,00% 5 ár 19.050 19.300 19.570 20.040 20.280 15 ár 8.120 8.410 8.710 9.270 9.560 30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990 7.340 40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580 6.950 2 4.500 4.960 5.420 6.250 6.670Afborgunar-laust * *1 Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Stokkaðu upp fjármálin Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar- bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign. Fasteigna- og framkvæmdalán Frjálsa fjárfestingarbankans eru einnig hentug leið fyrir þá sem standa í húsbyggingum eða fasteignakaupum. Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is – með hagstæðu fasteignaláni Hólmgeir Hólmgeirsson, rekstrarfræðingurer lánafulltrúi á viðskiptasviði. 50% afsláttur álántökugjalditil 1. júlí H im in n o g h a f. Ragnheiður Þengilsdóttir, viðskiptafræðingur, er lánafulltrúi á viðskiptasviði. Reykjanesbær | Sala á eignum Reykjanesbæjar hefur skilað sér í bættri skuldastöðu bæjarsjóðs og fyrirtækja hans. Kemur þetta fram í greinargerð um reikninga ársins sem birt er á vef bæjarins. Ársreikningur Reykjanesbæjar fyrir árið 2003 var lagður fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórn- ar í vikunni og samþykktur til síð- ari umræðu sem fram fer 1. júní næstkomandi. Samkvæmt reikningnum voru hreinar skuldir bæjarsjóðs, það er að segja heildareignir þegar pen- ingalega eignir hafa verið dregnar frá, tæpar 30 þúsund kr. á íbúa um áramót sem er umtalsvert lægra en hjá þeim sveitarfélögunum sem tekin eru til samanburðar. Fram kemur í greinargerðinni að þessi samanburður gefi betri mynd af skuldastöðu bæjarsjóðs en saman- burður á heildarskuldum því þann- ig sé tekið tillit til veltufjármuna og þeirra krafna sem bærinn á úti- standandi. Þrjátíu milljóna króna tap varð á rekstri bæjarsjóðs árið 2003, að því er fram kemur. Heildartekjur bæjarsjóðs námu 4.153 milljónum kr. en heildarútgjöld ársins 4.184 milljónum. Þetta er 500 milljónum kr. betri niðurstaða en endurskoð- uð áætlun gerði ráð fyrir og 138 milljónum kr. betri niðurstaða en árið áður. Tap samstæðu, bæjar- sjóðs og stofnana, nam 89 mkr. sem er 600 milljónum kr. betri af- koma en áætlun gerði ráð fyrir og 217 milljónum kr. betri afkoma en árið á undan. Helsta skýring á bættri afkomu er söluhagnaður fasteigna upp á 858 milljónir kr. Á móti kemur að bæjarsjóður tekur á sig óvænta hækkun lífeyrisskuldbindinga upp á 214 milljónir. Þá eru laun og launatengd gjöld 43 milljónir kr. umfram áætlun svo og vöru- og þjónustukaup um 154 milljónir. Eignir og skuldir minnka Í ársreikningi bæjarsjóðs kemur fram að skuldir hafa lækkað úr 515 þúsund kr. á íbúa í 388 þús. kr., eða um 127 þús. kr. á íbúa. Eignir á hvern bæjarbúa eru 732 þúsund kr. í árslok 2003 en voru 865 þús- und kr. árið áður. Í samstæðureikningi bæjarsjóðs og stofnana hans kemur fram að skuldir hafa lækkað frá fyrra ári úr 767 þúsund kr. á íbúa í 689 þús. kr., eða um 78 þús. kr. á íbúa. Eignir samstæðu lækka á milli ára um 36 þús. kr. á íbúa og eru nú 1.011 þús kr. á hvern íbúa bæj- arins. Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs hækkar úr 40% í 47% á milli ára og eiginfjárhlutfall samstæðu hækkar að sama skapi úr 27% í 32%. Þetta hlutfall gefur til kynna hversu hátt eigið fé er í hlutfalli við heildar- fjármagn sveitarfélagsins. Eigin- fjárhlutfall upp á 47% þýðir að hlutfall skulda í heildarfjármagni er 53%. Hátt hlutfall gefur þannig til kynna að sveitarfélagið er fjár- hagslega betur statt til að mæta erfiðleikum og taprekstri, segir í greinargerð vegna framlagningar ársreiknings. Sala eigna bætir fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar samkvæmt ársreikningi Afkoma batnar og skuldir lækka Jón Ólafsson í Duus | Jón Ólafsson heldur tónleika í Duushúsum í Keflavík næstkomandi sunnudag klukkan 21. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð Jóns um landið þar sem hann kynnir nýjan geisladisk. Hann leikur eigin tónlist og spjallar við gesti. Sólbrekkubraut opnuð | Fyrsta bikar- keppni sumarsins í mótorhjólatorfæru fer fram í Sólbrekkubraut við Grindavíkurveg í dag. Er þetta jafnframt vígslumót braut- arinnar. Vélhjólamenn hafa lengi æft sig á Broad- street-svæðinu en það er fyrst nú að fengist hafa nauðsynleg leyfi til að reka þar æf- inga- og keppnisbraut. Keppni á minni hjól- unum hefst upp úr klukkan tíu í dag og í öðrum flokkum klukkan 13 og þá verður brautin jafnframt opnuð formlega.    Reykjanesbær | Ingi Gunn- arsson sigraði á vormóti eldri borgara í billjarði sem haldið var í félagsmiðstöðinni Fjör- heimum í Reykjanesbæ á dög- unum. Sextán tóku þátt í mótinu og hart barist. Valdimar Axelsson varð annar og Jón Olsen þriðji. Ingi er hér á milli þeirra Jóns og Valdimars en lengst til hægri er Gunnar Jónsson sem veitt voru verðlaun fyrir miklar framfarir í vetur. Ingi sigraði á vormóti Vatnsleysuströnd | Hámarkshraði hefur verið lækkaður á Vatnsleysustrandarvegi, úr 90 km á klukkustund í 70 km. Hrepps- nefnd, krakkar í vinnuskólanum og fleiri höfðu skorað á yfirvöld að breyta þessu. Vatnsleysustrandarvegur liggur frá þorpinu í Vogum, eftir ströndinni og inn á Reykjanesbraut við Kúagerði. Þetta er malbikaður vegur, nokkuð krókóttur og mjór. Þegar hámarkshraðamerki var sett upp fyrir rúmu ári kom skýrt í ljós að þarna mátti aka á 90 km hraða en ekki 70 km eins og margir virtust halda. Ýmsir heimamenn töldu veginn ekki bera þenn- an hraða og að svo mikill hraði skapaði slysahættu. Skoraði hreppsnefndin á yf- irvöld að lækka hámarkshraðann en fékk ekki undirtektir. Krakkar í vinnuskóla Vatnsleysu- strandarhrepps, sem í fyrrasumar unnu við umhverfisstörf í nágrenni vegarins, skoruðu á yfirvöld að lækka hraðann. Rann þeim til rifja hversu margir fuglar urðu fyrir bílum. Stór varplönd kríu eru í nágrenni vegarins. Nú hefur samgönguráðuneytið, að til- lögu vegamálastjóra, ákveðið að lækka hámarkshraðann niður í 70 km og lagt fyrir stofnanir að breyta umferðar- merkjum í samræmi við það. Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps fagnaði því á síðasta fundi að málið skyldi loksins kom- ið í höfn.    Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Baráttumál vinnuskólans í höfn Keflavík | Anna Þóra Þórhallsdóttir var kosin formaður Leikfélags Keflavíkur á aðalfundi fé- lagsins sem nýlega var haldinn og tekur hún við af Jóni Marinó Sigurðssyni. Varaformaður er nú Davíð Örn Óskarsson en Ómar Ólafsson var endurkjörinn gjaldkeri. Þá var Sólrún Steinarsdóttir kosin ritari, Alex- andra Ósk Sigurðardóttir meðstjórnandi og Brynja Aðalbergsdóttir og Kristín Rúnarsdótt- ir varamenn. Þess er getið í frétt á heimasíðu Leikfélags- ins að Guðný Kristjánsdóttir, sem lengi hefur verið í stjórn félagsins, hafi ekki gefið kost á sér til setu í stjórn en lýst yfir áhuga á að vera í for- svari fyrir Frumleikhúsið. Nýr formaður Leikfélags
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.