Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 25
HVERFI með íbúðum fyrir aldraða
á Sauðárkróki gæti orðið fyrirmynd
að álíka uppbyggingu í öðrum sveit-
arfélögum, en byggingafélagið Bú-
höldar hafa nú reist samtals 20 íbúð-
ir við tvær götur fyrir eldri borgara
sem njóta mikilla vinsælda í bæjar-
félaginu.
Búhöldar er félag eldri borgara
sem hefur það markmið að reisa hús
fyrir félagsmenn á Sauðárkróki. Fé-
lagið hefur verið starfrækt á Sauð-
árkróki frá árinu 2000, og eru sveit-
arfélög í öðrum landshlutum nú farin
að sýna verkefninu áhuga. Þórður
Eyjólfsson, formaður Búhölda, segir
það henta vel að fá einkafélag í verk-
efni af þessu tagi, hægt sé að gera
hluti sem opinberar stofnanir eigi
erfiðara með, eins og að fá fólk til að
vinna sjálfboðavinnu á meðan verk-
efnið er að komast af stað.
Húsin eru öll timburhús, flest eru
parhús og fylgir flestum íbúðum bíl-
skúr sem er á milli íbúðanna. Hver
íbúð er um 100 fermetrar auk rúm-
góðs bílskúrs. Þetta er í raun eins og
að vera í einbýli, enda hefur það
komið vel í ljós að margt fólk á þess-
um aldri vill frekar vera í eigin húsi
en blokkaríbúð, segir Þórður. Hann
segir menn að sjálfsögðu hafa frjálst
val, þeir sem vilji eigið hús fái það og
þeir sem vilji blokkaríbúð geti það
líka. Hann segir einn kostinn, sem
talsvert sé litið til, við eigið hús vera
að þar sé allt á einni hæð og engir
stigar.
Góð staðsetning skiptir miklu
Þórður segir að upphaflega hug-
myndin hafi verið sú að byggja ná-
lægt heilsugæslunni, sundlauginni
og íþróttaaðstöðunni, og ekki spilli
fyrir að staðurinn sé fjarri skarkal-
anum. Svo segir hann þetta hafa
undið upp á sig, 20 íbúðir hafa þegar
verið afhentar og fjórar til viðbótar á
leiðinni og því orðið til lítið hverfi í
bæjarfélaginu.
Mikill samgangur er milli húsa í
hverfinu, og segir Þórður það hafa
ótvíræða kosti að byggja öll húsin
saman í stað þess að dreifa þeim um
bæinn. „Við erum þannig margir á
þessu aldursskeiði að við eigum betri
samleið heldur en yngra fólk sem er
úti að vinna á daginn. Það er ákaf-
lega góð samstaða hjá fólkinu, góð
samvinna. Ef fólk vill hittast og spila
eða kíkja inn í kaffi þá er það lítið
mál.“
Hverfi fyrir eldri borgara á Sauðárkróki fyrirmynd
Nýtur vinsælda bæjarbúa
Vinsæll kostur: Íbúðirnar í húsunum eru aðskildar með bílskúrum.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fagnað: Hópur verktaka sem unnið hafa fyrir Búhölda á liðnum árum í
hófi þegar því var fagnað að tuttugasta íbúð félagsins verður senn afhent.
Þórshöfn | Fjörugur barnahópur kom saman í
íþróttamiðstöðinni með mæðrum sínum í liðinni
viku, en það voru þau börn sem fæddust árið
2003 í Þórshafnar- og Svalbarðshreppi.
Í árganginum eru þrettán börn og níu af þeim
gerðu sér glaðan dag í íþróttahúsinu með mæðr-
um og systkinum og fóru í sund að fundi loknum,
en fjögur vantaði í hópinn.
Ungu mæðurnar hafa nú lagt sitt af mörkum
til fjölgunar í byggðarlaginu og ein þeirra
myndarlega því hún eignaðist tvíbura.
Íþróttamiðstöðin þótti ákjósanlegur staður
fyrir fyrsta samfund barnanna sem væntanlega
eiga eftir að eyða þar miklum tíma í framtíðinni,
líkt og eldri börnin gera í dag.
Morgunblaðið/Líney
Barnamót: Árgangur 2003 hittist í íþróttahúsinu með foreldrum og systkinum.
Ungbarnafjör í íþróttahúsinu á Þórshöfn
Eskifjörður | Þorsteinn Helgi Ár-
björnsson tenórsöngvari heldur tón-
leika í Kirkju- og menningar-
miðstöðinni
Eskifirði nk.
sunnudag.
Hann hefur
undanfarið ár
stundað söngnám
við Oklahoma
University í
Bandaríkjunum
og reiknar með
að vera þar við
nám næstu þrjú
til fjögur árin.
Þorsteinn Helgi fer aftur utan í
júníbyrjun og þá til Kaliforníu, í
tveggja mánaða einkaskóla til
bandarísku óperusöngkonunnar
Marilyn Horn. Hann komst þar inn
ásamt um tuttugu öðrum söngnem-
endum en tvö þúsund umsækjendur
þreyttu inntökupróf.
Á efnisskrá tónleikanna eru ís-
lensk, þýsk, ítölsk og frönsk ein-
söngslög og aríur og er undirleikari
Ólafur Vignir Albertsson. Tónleik-
arnir hefjast kl. 16.
Einsöngstónleikar
á Eskifirði
Syngur fyrir sitt
fólk: Þorsteinn
Helgi Árbjörnsson.
Vestmannaeyjar | Með skemmtilegri og fjölbreyttari
myndlistarsýningum í Eyjum er þegar nemendur
myndlistarskólanna sýna afrakstur vetrarins. Nem-
endasýning Bennós var þar engin undantekning en
hún var í Vélarsal Listaskólans fyrir skömmu.
Þetta var í fjórða skiptið sem nemendur Bennós
sýna það sem þeir hafa komið frá sér á námskeiðum
vetrarins. Breiddin er mikil því þarna sýndi fólk allt
frá grunnskólaaldri upp í ellilífeyrisþega. Þeir hafa
stundað máleríið misjafnlega lengi og sumir hafa
verið frá því Bennó byrjaði með námskeiðin. Sýn-
endur voru 18 að þessu sinni og sýndu í allt um 200
myndir. Viðfangsefnin voru eins mörg og myndirnar
á veggjunum og mest bar á olíumálverkum. Það er
ekki bara að fjölbreytnin veki athygli heldur líka
framfarir þeirra sem hafa verið hvað lengst á nám-
skeiðunum. Og það sýnir sig líka að það blundar
Kjarval í fleirum en margan grunar.
Myndlistarmenn leynast víða
Fríða Sigurðardóttir kemur víða við í leit að mótívum.
Ræktun í Hoffellsá | Stefnt er að
stofnun sérstaks félags um ræktun
Hoffellsár, segir á vefnum horn.is.
Þetta verður rætt á aðalfundi Veiði-
félags Hornafjarðar sem haldinn
verður á morgun, laugardag.
Fundurinn verður haldinn í Mána-
garði og hefst kl. 14. Formaður
Veiðifélagsins er Sigurður Sigfinns-
son í Stórulág.
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is