Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 26
Víetnam: Með Pyton-kyrkislöngu um hálsinn á eyju í Mekong-fljóti. Brasilía: Einar Þorsteinsson í seiðandi dansi við brasilíska blómarós í Ríó de Janeiro. Ítveggja herbergja íbúð í Breið-holti rennur það nokkuð fljóttupp fyrir gestum að þar býrvíðreistur ferðalangur. Uppi um alla veggi hangir fjöldi ljósmynda, sem húsráðandinn hefur tekið, frá fjölmörgum heimshornum og í holi hangir húfusafnið hans Einars Þor- steinssonar málarameistara. Auk þessa segist hann svo eiga ógrynni af bolum frá hinum og þessum stöðum. Óhætt er að segja að áhugamál númer eitt, tvö og þrjú hjá Einari séu ferðalög, mannlíf og ljósmyndun þeim tengd, en það var ekki fyrr en árið 1993, þegar Einar var 47 ára að aldri, að hann lagði upp í sína fyrstu langferð utan Evrópu. Síðan hefur hann lagt í langferðir á hverju hausti, stundum eina og stundum tvær, og er alls ekki á þeim buxunum að hætta því í bráð. „Ég dunda mér við það í ellinni að telja þessi lönd saman. Það ætti ekki að vera mikið mál því ferða- sögurnar eru skráðar í öll albúmin,“ segir Einar og bendir á stóran albúmastafla á gólfinu. Hvert albúm er tileinkað ákveðnum stað og geymir, auk ljós- mynda og skrifaðs texta, kort af viðkomandi landi, myntsýnishorn og far- þegalista. Einar hefur alla tíð verið einhleypur, en bjó með móður sinni þangað til fyrir tíu árum er hún féll frá. „Það tók mig svo fimm ár að átta mig á því að skynsamlegt væri að minnka við mig. Ég seldi stóra íbúð í Kópavogi og keypti þrefalt minni íbúð í Reykja- vík og fór að ferðast. Ég hef aldrei haft það betra.“ Fram að kaflaskiptunum í lífi Ein- ars hafði hann ferðast talsvert innan- lands og um Norður-Evrópu. „Ég var svolítið veikur fyrir íslenska hálend- inu og hef haft hvað mesta unun af norðausturhorninu. Askja, Herðu- breiðarlindir, Mývatn, Jökuls- árgljúfur og Ásbyrgi eru mínir uppá- haldsstaðir enda var ég sendur tíu ára á bæinn Hólsel á Hólsfjöllum í N-Þingeyjarsýslu til að mannast. Nú orðið langar mig ekkert úr bænum um helgar því ég nenni ekki að keyra í bílalest. Sumarbústaðir finnast mér vera þrælabúðir og þaðan af síður hef ég viljað sjá fellihýsi og tjaldvagna.“ Stokkið til Kína „Árið 1993 var ég að spá í ferð til Ítalíu, en það var svo alltaf að þvælast fyrir mér bæklingur með Kínaferð og því oftar sem ég opnaði þann bækling fór ég að sannfæra mig um að auðvit- að væri það mjög rökrétt að stökkva til Kína á meðan aldur og heilsa leyfði. Alltaf yrði hægt að fara til Ítal- íu. Síðan hef ég tvívegis farið til Kína, en aldrei komið til Ítalíu.“ Einar hefur nú komið til allra heimsálfa að undanskilinni Ástralíu og Suðurskautslandinu og segir hann erfitt að gera upp á milli landa, en þó finnst honum að Suður-Ameríka sé sá heimshluti sem hafi heillað sig hvað mest. Þar hefur hann sótt heim Arg- entínu, Brasilíu, Ekvador og Chile. „Rio de Janeiro er ævintýralega fal- leg borg og Buenos Aires er eins og stækkuð útgáfa af París. Annars eru svo margir og ólíkir hápunktar í hverri ferð að samanburðurinn verð- ur erfiður.“ Einar segist vera með Norð- urlandamálin og enskuna nokkurn veginn á hreinu og kunni smávegis í þýsku og hrafl í rómönskum málum. Þrátt fyrir að geta bjargað sér á er- lendum tungumálum segist hann hafa valið þá leið að fara í skipulagðar ferðir með íslenskri fararstjórn því þannig komist hann fyrirhafnar- minnst á áhugaverðustu staðina. „Ég tek mig gjarnan út úr hópnum til að upplifa mannlíf og menningu á hverj- um stað, fer einn á röltið með mynda- vélina og gef mig á tal við fólkið. Hvarvetna mæti ég velvild og al- úðlegheitum, en að öðrum ólöstuðum bera Sýrlendingar af í þægilegheit- um, gestrisni og kurteisi. Þessi upp- lifun mín af fólki úti um allan heim hefur styrkt mig í þeirri trú að frétta- flutningur vestrænna fjölmiðla er mjög einhæfur og heilu samfélögin oft óréttlátlega stimpluð. Sami hugur fylgir öllum þorra fólks. Það vill alls staðar vingast og búa við frið.“ Maurar á ruslahaug Einar segist aldrei hafa lent í nein- um hremmingum á ferðalögunum, ef undan er skilinn stuldur á mynda- vélagræjunum í hótelherbergi í Mombasa í Kenýa. Veikindi eða mat- areitrun hafa aldrei hrjáð ferðalang- inn Einar, en hann hefur nokkrar reglur í heiðri, t.d. þær að kaupa aldr- ei mat af götusölum og borða sig aldr- ei pakksaddan þótt hann reyni að smakka á flestu því sem teljast má framandi. Hann gengur líka með vatnsflösku á sér og segist gjarnan fá sér bjór með mat en sé ekkert að sulla í víni að öðru leyti.“ Grænmetiskonur í röðum Þegar Einar er rukkaður um skemmtilega sögu, fer hann alla leið til Páskaeyju, sem hann segir að sé einangraðasta og afskekktasta byggða ból á jörðu. Eyjan, sem sé einkum fræg fyrir steinstyttur sínar, sé í Suður-Kyrrahafinu og tilheyri Chile þótt hún sé víðs fjarri. „Páska- eyja er tífalt stærri en Heimaey og þar búa um fjögur þúsund manns sem eiga uppruna sinn að rekja til Tahiti. Sveinn Eggertsson mann- fræðingur starfaði þarna um skeið og bað mig að hafa uppi á konu að nafni Virginía. Ég átti að biðja hana að sækja bréfin sín á pósthúsið, en Sveinn hafði alltaf fengið þau end- ursend þar sem viðtakandi hafði ekki nálgast þau þar. Auk grófrar útlits- lýsingar fékk ég að vita að Virginía væri gift, fimm barna móðir og seldi grænmeti við aðalgötuna. Mér féllust gjörsamlega hendur þegar ég kom í götuna því þarna voru grænmetissölukonur í röðum. Ég stappaði í mig stálinu og fór að nota útilokunaraðferðina miðað við lýs- ingar Sveins. Svo fór að ég valdi eitt fórnarlamb og spurði hvort hún héti Virginía. Konugreyið hrökk í kút við að heyra ókunnan mann nefna nafn sitt og í kjölfarið spurði ég hvort hún væri gift og fimm barna móðir. Ekki varð undrunin minni við það. Ég hafði hitt naglann á höfuðið og þarna var Virginía komin í fyrstu atrennu. Þeg- ar ég hafði komið skilaboðunum frá mér, ákváðum við að hittast daginn eftir á sama stað. Þegar ég mætti var móðir hennar með ásamt yngsta barninu, þriggja mánaða gömlu stúlkubarni. Ég tók við bréfi frá henni til Sveins, skrifað á rapanui, máli innfæddra, og svo var mér boðið að koma yfir götuna, á lítið verkstæði móðurinnar, sem þar bjó til skart- gripi úr sjávarfangi. Mér var fært hálsmen að gjöf fyrir að koma sam- bandinu á að nýju, sem ég svo gaf systurdóttur minni í jólagjöf.“ Sá siður hefur tíðkast að góður vin- ur Einars, Ari Trausti Guðmundsson, yrkir limrur eftir hverja ferð. Eftir þessa reynslu Einars varð til eftirfar- andi limra hjá Ara Trausta: Einar á eyjunni Páska, aldrei þar lenti í háska. En meyjuna fann og hún kyssti hann, en bara í gríni og gáska. Prinsinn af Damaskus Einar fór síðast í langferð um páskana, til Líbanons og Sýrlands undir fararstjórn Jóhönnu Kristjóns- dóttur, og var kvaddur í flugstöðinni í Keflavík af samferðamönnum sínum sem prinsinn af Damaskus þar sem hann var eini einhleypi karlmaðurinn í ferðinni. Þegar Einar er spurður hvort stefnan hafi verið sett fyrir næstu ferð, svarar hann því til að fjórar ferðir komi til greina í haust. Hann geti bara valið eina þar sem þær skarist allar í tíma. „Í fyrsta lagi er ég að horfa til Nýja-Sjálands, í öðru lagi til Sri Lanka og Maldíveyja, í þriðja lagi til Jemen og Jórdaníu og í fjórða lagi til Perú og Bólivíu, en sú ferð er á vegum ferðaskrifstofunnar Emblu, sem ég hef haft góða reynslu af. Það er svolítill metnaður í mér að safna fleiri löndum í reynslubank- ann.“  HEIMSHORNAFLAKK Alls staðar vill fólk vingast Kaflaskipti urðu í lífi Einars Þorsteinssonar þegar hann hætti að vinna eins og vitleysingur, minnkaði íbúðar- húsnæðið og fór að ferðast um framandi slóðir. Jóhanna Ingvarsdóttir fór í kaffi og kleinur til hans. Kína: Á gönguför um Kínamúrinn. Kína: Með ungum kínverskum blómarósum í bænum Guilin við Lijiang-fljót. join@mbl.is FERÐALÖG 26 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgr. gjöld á ugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshver , Danskfolkeferie orlofshver Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk GSM símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU 7964 Timberwood Circle Sarasota, FI,USA 34238 SÍMI-941-923-4966 www.timberwoods.com SARASOTA FLÓRÍDA TIMBERWOODS Vacation Villas & Resort Frábært sumarfrí Glæsileg hús í kyrrlátu umhverfi innan um fallegan gróður Notalegt frí á frábæru verði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.