Morgunblaðið - 22.05.2004, Page 29
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 29
KONUR með mjótt mitti og mikinn
barm eru frjósamari en aðrar, að
því er ný rannsókn hefur leitt í
ljós. Á fréttavef BBC og norska
vefnum forskning.no er greint frá
rannsókn
pólska líffræð-
ingsins dr.
Grazyna Jas-
ienska en hún
leiddi í ljós að
konur með
þennan vöxt
höfðu 30%
meira af horm-
óninu estradiol
en konur með
annan vöxt.
Þetta hormón
hefur áður
verið tengt við
meiri frjósemi
og 30% meira
af því þýðir
þrisvar sinnum
meiri líkur á
að verða
barnshafandi.
119 pólskar
konur á aldr-
inum 24-37 ára
tóku þátt í
rannsókninni og í ljós kom að kon-
ur með mjótt mitti og stór brjóst
höfðu um 26% meira estradiol í lík-
amanum en aðrar konur en í
miðjum tíðahringnum fór magnið
allt upp í 37% meira en hjá konum
með annars konar vöxt.
„Það lítur út fyrir að nú sé kom-
inn líffræðilegur grunnur fyrir
hina vestrænu fegurðarímynd
Barbie,“ segir Jasienska og bendir
á að niðurstöður rannsóknarinnar
styðji það sem fram hefur komið í
sálfræðirannsóknum.
Dr. Martin Tovee bendir BBC á
að niðurstöður rannsóknarinnar
bendi til að hlutfall barms og mitt-
is geti sagt til um hormónamagn í
líkamanum og það geti aftur sagt
til um frjósemi. „Þetta getur verið
ástæða þess að þetta hlutfall segi
til um hvort viðkomandi þykir að-
laðandi.“
FRJÓSEMI
Mjótt mitti
og mikill
barmur
Barneignir:
Sveitasöngkonan
Dolly Parton fellur
vel að þeirri lýs-
ingu sem gefin er á
frjósamri konu.
Reuters
Með vaxandi aldri þjóð-arinnar verða elliglöpmeira áberandi. Taliðer að tæplega tvö þús-
und Íslendingar 65 ára og eldri séu
haldnir elliglöpum
og vegur Alzheimer-sjúkdómur
þar þyngst. Sjúkdómurinn þróast
hægt og bítandi og leiðir til dauða á
7–10 árum að meðaltali. Einkennin
eru margbreytileg, en þau sem mest
ber á eru minnistap, dómgreind-
arleysi, vandamál við tal, erfiðleikar
við rökhugsun, breytingar á hug-
arfari og persónuleika, skortur á
frumkvæði, erfiðleikar við að vinna
flóknari verk sem áður reyndust
mönnum auðveld, og loks áttar sjúk-
lingurinn sig illa á tíma og stað. Oft
koma fram tilfinningar eins og von-
leysi og hræðsla. Orsakir sjúkdóms-
ins eru ekki þekktar né heldur er
mikið vitað um skýringar á versn-
andi minni og getu aldraðra. Með-
ferð við Alzheimer-sjúkdómi er
reynd með lyfjum. Lyfin hægja á
sjúkdómnum en lækna hann ekki.
Mikil þörf er á því að aðstandendur
og sjúklingurinn sjálfur eigi kost á
félagslegri aðstoð og góðu sambandi
við fagfólk.
Maður er manns gaman
Þótt orsakir séu ekki þekktar er
eigi að síður athyglisvert að sterk
tengsl við vini og ættingja og þátt-
taka í ýmsum félagslegum athöfnum
tengjast bættu minni, og jafnvel
greind, hjá öldruðum. Erfiðlega hef-
ur þó gengið að greina á milli orsak-
ar og afleiðingar í ýmsum rann-
sóknum. Nýlega var birt könnun
sem varpar nokkru ljósi á þetta.
Tæplega þrjú þúsund manns 65 ára
og eldri voru rannsökuð og þeim síð-
an fylgt eftir í 12 ár. Þar kom í ljós
að ýmis félagsleg vandkvæði í upp-
hafi rannsóknartíma, t.d. að búa
einn, hafa ekki samband við vini og
ættingja, taka ekki þátt í ýmsum fé-
lagslegum athöfnum tengdust mjög
marktækt versnandi minni og getu
12 árum síðar. Einnig var dánartala
einfaranna hærri en hinna fé-
lagslyndu. Þetta styður því eindreg-
ið það sem flestir hafa talið sig vita
að sterkir umhverfisþættir og fé-
lagslíf á síðasta hluta æviskeiðsins
eru mjög af hinu góða. Það sannast
enn að höfundur Hávamála hafði
rétt fyrir sér í þessu eins og svo
mörgu öðru, maður er manns gam-
an.
Sigurður Guðmundsson
landlæknir
FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU
Félagslíf á efri árum
bætir minni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Talið er að tæplega
tvö þúsund Íslendingar
65 ára og eldri séu
haldnir elliglöpum
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Rómantískur
rúmfatnaður
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Romika
heilsusandalar
Stærðir
37-42
Líflaust hár og neglur sem klofna
geta verið merki um kísilskort.
Silica Plus inniheldur einstakt kísilþykkni
sem unnið er úr elftingu og inniheldur mikið
af flavóníðum sem er forsenda þess að líkaminn
geti nýtt sér kísil sem fæðubót. Silica stuðlar að
fallegra hári, sterkari nöglum og betri húð. Silica Plus
töflur eru 33% sterkari en þær töflur sem fyrir voru.
Hárkúr
L-Systín og DL-Metíónín eru amínósýrur sem innihalda
brennistein, en hann er einkar mikilvægur fyrir hárið.
Lesitín, inósítól, kólín B-vítamín og sink eru nauðsynleg
fyrir heilbrigðan hárvöxt. Skortur getur leitt til hárloss
eða valdið því að hárið verði slitið og líflaust. Ýmislegt
eyðir þessum vítamínum úr líkamanum eða kemur í veg
fyrir fulla virkni þeirra. Má þar nefna hvítan sykur,
reykingar, feitan mat, áfengi, streitu og sum lyf, svo að
nokkuð sé upp talið.
33% sterkari
Silica töflur!
Fallegra hár með Silica Plus
...símjúkur á brauðið
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
6
2
9
0
/ S
IA