Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 31

Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 31 Seljakirkja kl. 10–15 Tónskóli Eddu Borg heldur upp á 15 ára af- mæli skólans m.a. með útimarkaði. Sérstök unglingadagskrá verður í Hólmaseli milli kl. 15 og 17 þar sem allar helstu unglingahljómsveitir hverfisins koma fram. Listasafn Reykjavíkur – Hafn- arhús kl. 11–16 Í tengslum við út- skriftarsýningu LHÍ verður Carl Boutard með gufubað sem opið er almenningi. Sundföt og handklæði eru á staðnum. Einnig verða við- burðir á vegum skólans í fjölnotasal Hafnarhússins þann tíma sem sýn- ingin stendur. Í dag kl. 14.30–16.30 sýna nemendur nýleg myndbands- verk. Á morgun kl. 14 flytur Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir gjörninginn „Here and there / Hér og þar“. Kl. 15–17 verður sýnishorn af kynn- ingum nemenda á eftirtöldum hönn- uðum flutt: Wolfgang Weingart, Eero Aarnio, André og Coqueline Courréges, M/M. Steven Holl og Saul Bass. Sýningin stendur til 31. maí. Í DAG JAPANSKI dansflokkurinn Sankai Juku tróð upp fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu á miðvikudaginn síð- astliðinn. Stofnandi og stjórnandi flokksins er Ushio Amagatsu en hann er jafnframt höfundur verksins sem sýnt var. Flokkurinn var stofnaður árið 1975. Hann skipa að þessu sinni sex karldansarar. Sankai Juku-flokkurinn byggir sýningar sínar á Buto-dansi. Buto varð til á sjöunda áratug síðustu ald- ar þegar eftirstríðsárakynslóð jap- anskra dansara hóf þróun nýrrar danshefðar. Þessi nýja danshefð lagði áherslu á líkamann sjálfan og fagurfræði hans og hún hafnaði hefð- bundnum austrænum og vestrænum dansi. Amagatsu hefur um árabil þró- að dansstíl Sankai Juku-flokksins og er sá buto-dans sem hann semur um margt ólíkur buto-dansi eftirstríðsár- anna. Hann talar um að stíll sinn ein- kennist af samtali við aðdráttarafl jarðar, að vinna með aðdráttaraflinu og hlusta á það. Hibiki eða bergmál er nafn verksins sem sýnt var. Það fjallar um áframhald á lífi manneskj- unnar eða eins konar endurholdgun. Samþjöppun tíma og rýmis er jafn- framt lykilatriði í verkinu. Ljós sand- ur þakti sviðið. Glerskálar með vatni römmuðu það inn en fyrir ofan hverja skál hékk glerkúla sem dropaði úr. Dansararnir lágu í fósturstellingu á gólfinu og hægt, á buto-dans-máta, stóðu þeir upp. Jarðtengdir með hnén bogin og agaðir í fasi liðu þeir um sviðið krúnurakaðir, hvítmálaðir og í síðum pilsum. Tónlistin var annaðhvort hrífandi kröftug eða full af kyrrð eins og þeg- ar dropaði úr glerkúlunni í skálina á sviðinu. Vatnið minnti á hringrás lífs- ins og sandurinn sem þyrlaðist upp við hreyfingu dansaranna sveif um loftið og ýtti enn frekar undir dul- úðina í verkinu. Ushio Amagatsu dansaði sóló í túrkisblárri lýsingu á hógværan máta. Dansararnir komu saman yfir einni af glerskálinni og var vatn hennar nú rautt að lit. Reim- arnar á korselettum kjólanna voru rauðar og minntu á blóð. Hægar hreyfingarnar, andlitstjáningin og uppglenntur munnurinn gáfu til kynna óhugnað, stríð og hörmungar. Samspil ljóss og skugga er mikið not- að í verkinu og auðvelt að stíga skref- inu lengra og tala um dans lífs og dauða. Sýningin var í alla staði athyglis- verð og hrífandi. Hún var dularfull og í henni tóku ósýnilegir kraftar völdin. Buto-dans Sankai Juku-flokksins einkenndist af þokka, lítillæti, hóg- værð og auðmýkt. Þakklætið sýndu áhorfendur með því að rísa úr sætum og hylla dansarana í sýningarlok. Þokki, hógværð og auðmýkt LISTDANS Þjóðleikhúsið Höfundur: Ushio Amagatsu. Dansarar: Ushio Amagatsu, Sho Takeuchi, Akihito, Ichihara, Taiyo Tochiaki, Soji Matsuo, Keiji Morita. Tónlist: Takashi Kako og Yoichiro Yoshikawa. Sviðsstjórn: Yuji Kobayashi. Tæknimenn: Genata Iwam- ura, Kenichi Yonekura og Mlle Junko Miyazaki. Framkvæmdastjóri: Midori Okuyama. 19. maí. SANKAI JUKU HIBIKI Lilja Ívarsdóttir „Sýningin var í alla staði athyglisverð og hrífandi,“ segir í umsögn. NORSKI rithöfundurinn Kurt Aust hlaut í gær Glerlykilinn, norrænu glæpasagnaverðlaunin, fyrir bók sína Hjemsøkt. Veitti hann lyklinum viðtöku við athöfn í Norræna húsinu í Reykja- vík. Viktor Arnar Ingólfsson var til- nefndur fyrir Íslands hönd fyrir Flateyjargátu. Morgunblaðið/ÞÖK Aust fékk Glerlykilinn Eitt af nýju verkum Sigurðar Þóris. SIGURÐUR Þórir opnar sýningu á nýjum olíumálverkum í Norræna húsinu kl. 15 í dag, laugardag. Sýninguna kallar hann „Úr form- heimi“ og eru allar myndirnar raunsönn lýsing á huglægum veru- leika og málaðar í sterkum litum. „Litir og form kallast á og auka á hið kaotíska umrót sem hrjáir nú- tímamanninn,“ segir Sigurður Þórir. Listamaðurinn hefur á undan- förnum árum unnið við að þróa liti og samspil þeirra ásamt hinum klassísku frumformum sem hann notar til að græða myndirnar margræði. „Á þessari sýningu er manneskjan horfin af sviðinu, en sviðið stendur nakið eftir, eða hinn huglægi veruleiki.“ Listamaðurinn vill halda fram fegurðinni og hafnar ljótleikanum og stefnir fegurðinni gegn ljótleik- anum. Sýningin er opin alla daga kl. 12–17 og lýkur 13. júní. Huglægur veruleiki Listahátíð í Reykjavík Dagskráin í dag Kl. 14 Tónlistarhorn Kringlunnar Mozart, hver er það? Bergþór Pálsson, Nína Margrét Grímsdóttir og Áshildur Har- aldsdóttir. Í samvinnu við Tónlist fyrir alla. Kl. 14 Borgarleikhúsið Körper, dans- leikhús frá Þýskalandi. Seinni sýning. Kl. 17 Háskólabíó Olga Borodina mezzósópransöngkona frá Rússlandi og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Seinni tón- leikar. Kl. 20 Borgarleikhhúsið IBM – a User’s Manual og Glóð. Dans- og tónlist- aruppákomur. Kl. 21 Nasa Stórsveit Jagúar og Tómas R. með íslenska sveiflu. Seinni tónleikar. Kl. 21 Nýheimar, Hornafirði Skáldið og sekkjapípuleikarinn. Seamus Heaney og Liam O’Flynn sekkjapípuleikari. Fyrsti flutningur af þremur. LEIKFÉLAG homma, „Hégómi og eftirsókn eftir vindi í segli“, frum- sýnir Dragkabarett á Jóni forseta, Aðalstræti 10, kl. 20 í kvöld. Leik- endur eru Starina „dragdrottning Íslands 2003“, Keikó, Alexandrína og Salammbo. Leikfélagið var stofnað á dögun- um og er þetta fyrsta verkefni þess. Markmið þess er að virkja samfélag homma. Drag- kabarett frumsýndur ARI Svavarsson opnar sýningu í Galleríi Sævars Karls við Banka- stræti í dag kl. 14. Þetta er þriðja einkasýning Ara en hann stundaði nám í Myndlistaskólanum á Ak- ureyri og Myndlista- og hand- íðaskólanum auk námskeiða og náms í kalligrafíu, gull og silf- ursmíði, stálsmíði og eldsmíði. Á sýningunni eru tíu akríl- málverk á MDF-plötum, öll máluð á þessu ári, og eru að sögn lista- mannsins eins konar fantasíur um íslenskt landslag. „Þetta er þó ekki hið dæmigerða íslenska landslagsmálverk með eftir- myndum af fossum, fjöllum og heiðarvötnum, heldur annars kon- ar landslag, dýpra, óræðara en um leið persónulegra.“ Sýningin stendur til 11. júní og er opin á verslunartíma. Morgunblaðið/RAX Ari Svavarsson við verk sín í Galleríi Sævars Karls. Fantasíur um landslag SÍÐARI sýning á Körper verður í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 14. Að lokinni sýning- unni verður opinn fundur í for- sal leikhússins með höfundin- um Söshu Waltz. Sasha Waltz er fædd og uppalin í Karlsruhe í Þýska- landi. Hún stundaði nám í New York og sneri eftir það aftur til Þýskalands. Þar stofn- aði hún sitt eigið leikhús, Sophiesæle, í Berlín. Hún vakti strax áhuga þýskra menningarfrömuða og var árið 1999 boðið embætti eins af list- rænum stjórnendum Schau- bühne-leikhússins í Berlin. Sýningin á Körper hefur farið víða um heim og hafa gagnrýnendur talað um að með henni hafi Söshu Waltz tekist að opna nýjar víddir í leikhúsheiminum. Á Edinborg- arhátíðinni 2002 var sýningin talin bæði ögrandi og áhrifa- mikil; sambland af leikhúsi, dansi, myndlist og jafnvel arki- tektúr. Umræðufundurinn með Söshu Waltz er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Opinn fundur með Söshu Waltz Hallgrímskirkja Myndlistarsýningu Harðar Ágústssonar í forkirkju Hallgríms- kirkju lýkur á sunnudag. Myndröðin Mannssonurinn I–VI er í eigu Lista- safns ASÍ, sem lánaði Listvinafélagi Hallgrímskirkju verkin til sýningar, en þessi verk hafa trúarlega skír- skotun. Næst til að sýna er Steinunn Þór- arinsdóttir, bæði úti á Hallgríms- torgi og inni í forkirkjunni. Sýningu lýkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.