Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 38
KIRKJUSTARF 38 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ájólaföstu 2003 skrifaðiSteinunn Eyjólfsdóttirþættinum bréf þar semhún ræðir um áhrif dönsku á íslensku. Bréf Steinunnar er skýrt og hljóðar svo: ‘Alltaf er eitthvað að koma manni á óvart á lífsleiðinni. Aldrei er vissa fyrir neinu. Fátt hefur komið und- irritaðri eins á óvart og að aftur skuli vera orðið ‘fínt’ að sletta dönsku. Það hefði þó einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar. Reyndar má segja að dönskusletturnar séu dálítil tilbreyting frá enskuslett- unum. Æ nei, látum Danskinn eiga sig. Hvers vegna er annars danskan allt í einu orðin svona ofurvinsæl? Var ekki einu sinni verið að ræða að hætta að kenna hana í skólum hér á Íslandi? Nú virðast menn ekki geta án hennar verið. Hús og bátar eru ‘smækfuld’. Leikarar koma ekki lengur fram, þeir ‘troða upp’. Gluggatjöld eru útskúfuð, þau heita ‘gardínur’ eins og fyrir hundrað ár- um eða svo. Hlutirnir koma ekki í kjölfar, heldur ‘farvatn’. Í síðasta eintaki blaðsins Hús og hýbýli er talað um að borð séu ‘dekkuð’, ekki dúkuð eða lagt á þau, enda er blaðinu tíðrætt um ‘glamour’. Það er nú líklega enn fínni sletta en þessar sem kalla mætti ‘gammel dansk’ á litríku slettumáli. Hvað er hér eiginlega um að vera? Mér hefur reyndar flogið í hug skýring sem er þó óneitanlega heldur dapurleg, ef rétt reyndist. Getur verið að fólk bátt áfram þekki ekki íslensk orð frá erlend- um? Mætti ekki reyna að bæta úr þessu þannig að fólk sem starfar við fjölmiðla – að minnsta kosti – fái orðabækur á sérstökum vild- arkjörum?’ Í bréfinu drepur Steinunn á ýmis atriði. Áhrif dönsku á íslensku eru vissulega mjög mikil og margir hafa varið miklum tíma og orku til að sporna við þeim. Afstaða Íslend- inga til dönsku fyrr á öldum kemur glöggt fram í málshættinum Auð- næm er ill danska sem mun betur þekktur í myndinni Auðlærð er ill danska. Tímarnir breytast hins vegar og ætla má að danska hafi fremur lítil áhrif á íslenskt nútíma- mál; nú gætir einkum áhrifa frá ensku. Umsjónarmaður getur tekið undir orð Steinunnar að dönsku- slettur séu dálítil tilbreyting frá enskuslettunum. Það væri þó of mikið sagt að hann sakni gamalla dönskuslettna eins og skúffaður eða bílæti (‘aðgöngumiði að kvik- myndahúsi’) en honum finnst að slík orð hafi ákveðinn blæ og þau séu hluti af sögu íslenskrar tungu. Umsjónarmaður telur að það hljóti að vera óbreytt að þeir sem vilja vanda málfar sitt sneiði jafnt hjá dönskuslettum sem öðrum. Það getur því ekki talist til fyrirmyndar að nota orðasambönd eins og til að byrja með, í gegnum tíðina, koma inn á e-ð, eða koma til með að gera e-ð svo að dæmi séu nefnd. Umsjónarmaður telur einnig að það sé rétt hjá Steinunni að í mörg- um tilvikum sé mönnum ekki ljóst hver uppruni ‘danskra’ orða og orðasambanda er. Sem dæmi má nefna að no. frekjudós á rætur sín- ar að rekja til dönsku (frækketøs) og sama máli gegnir um lýsing- arorðin bandvitlaus og bandóður [d. bindegal ‘svo óður að binda þarf] og syndaselinn en þar er um að ræða íslenskan búning erlends orðs (d. syndebuk; syndahafur, syndabukk- ur). Umsjónarmanni virðast orð sem þessi hafa öðlast fullan þegnrétt í íslensku og varla sé sanngjarnt að ætlast til þess að menn búi yfir þeirri þekkingu sem nauðsynleg er til að geta sneitt hjá þeim. Svipuðu máli gegnir um orðasambandið víkja sæti. Það er kunnugt í nútíma- máli og oft notað í formlegu laga- máli en færa má rök að því að hér gæti danskra áhrifa (vige plads). Í þessu tilviki fær umsjónarmaður reyndar ekki séð að orðasambandið víkja sæti hafi nokkuð fram yfir víkja úr sæti (sínu), nema kannski fordildina, en ekki tjáir að deila um smekk manna. Í sumum tilvikum hefur því jafn- vel verið haldið fram að alíslensk orðasambönd séu dönsk einungis af þeirri ástæðu að finna má hlið- stæður þeirra í dönsku. Umsjón- armanni var kennt í skóla að forð- ast bæri orðasambandið e-ð liggur fyrir [†e-m/augum e-s] ‘e-ð blasir við; er augljóst’ þar sem það væri danskt. Þetta er hins vegar mis- skilningur enda má finna fjölmarg- ar hliðstæður í fornum heimildum, t.d.: er þér vitrir menn efist í svo mjög um þetta mál svo sem ljóst liggur fyrir augum öllum mönnum þeim er rétt vita ok satt vilja sjá og … annað liggur nú brýnna fyrir, að búast við því (‘undirbúa sig fyr- ir’), sem eftir fer (‘eftir kemur, fylgir’). Dæmi af þessum toga eru fjölmörg og orðabækur nútímamáls gefa sjaldnast vísbendingu um upp- runa þeirra. Úr handraðanum Í ritmálsskrá Orðabókar Háskól- ans er að finna tvö dæmi um orða- sambandið Far vel Frans, bæði frá síðari hluta 19. aldar: Far vel Franz! og kom aldrei meir til Ís- lands! og Far vel Franz og kom aldrei til Ísalands. Margir munu þekkja þetta, einkum fyrri hlutann (far vel Frans) í merkingunni ‘þar með var það búið’. Það virðist blasa við að orðasambandið eigi uppruna sinn í dönsku. Í dönskum orðabók- um er það hins vegar hvergi að finna og í fórum danskrar mál- nefndar er ekki heldur að finna neitt um það. Uns annað kemur í ljóst freistast undirritaður því til að álykta að hér sé íslensk nýmyndun á ferðinni en ekki ‘ill danska’. Því verður ekki haldið fram hér að orðasambandið far vel Frans sé fagurt en það er trúlega alíslenskt. Undirrituðum leikur hugur á að fræðast um uppruna þess. Vísar Franz til Frakklands (‘Frans- menn’) eða til karlmannsheitis? Er Frans kannski merkingarsnautt orð, notað sem rímorð með -lands? Þeir lesendur sem kunna skil á þessu eru hvattir til að skrifa þætt- inum. jonf@hi.is ÍSLENSKT MÁL Jón G. Friðjónsson 28. þáttur UMRÆÐAN ÁTTHAGAFÉLAG Álftfirðinga vestra í Reykjavík hefur kirkju- göngudag og samkvæmi á eftir sunnudaginn 23. maí. Komið verður saman í Dómkirkjunni og safn- aðarheimili hennar. Messað verður klukkan 11 (ekki kl. 14 eins og sagði í bréfi) og er sú messa í umsjá sr. Jakobs Ágústs Hjálmarssonar. Org- anisti er Kjartan Sigurjónsson. Ferð eldri borgara í Grensáskirkju MIÐVIKUDAGINN 26. maí verður vorferð starfs aldraðra í Grens- áskirkju. Ekið verður austur Þrengsli og yfir Óseyrarbrú og upp með Þjórsá að vestan. Hádegisverð á að snæða í félagsheimilinu Þjórs- árverum. Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl. 9 að morgni og heimkoma er áætluð upp úr kl. 16. Ferðin kostar kr. 2.000 og er hádeg- ismaturinn innifalinn. Skráning í s. 5-800-800 og lýkur á hádegi 25. maí. Kór frá Uppsölum Á MORGUN verður messa í Hall- grímskirkju kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson predikar og þjónar fyr- ir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Organisti verður Hörður Áskelsson og hópur úr Mótettukór syngur. Þá syngur Stefánskórinn frá Uppsölum í Svíþjóð undir stjórn Barbro Björk- lund. Kórinn var stofnaður 1979 og nefndur eftir Stefáni píslarvotti sem hefur löngum verið nefndur fyrsti djákninn því hann stundaði kærleiks- þjónustu í söfnuðum. Vorferð Íslensku Kristskirkjunnar VORFERÐ kirkjunnar verður farin í Viðey sunnudaginn 23. maí og lýkur þar með morgunguðsþjónustunum í vor. Kvöldsamkomur halda áfram í sumar. Mæting er við Sundahöfn kl. 10.45 og brottför kl. 11.00. Farið verður í leiki, grillaðir hamborg- arar, útbúið flöskuskeyti og ým- islegt fleira. Skráning er í kirkjunni. KK í Laugarnesi Á SUMRIN fer messuhald í Laug- arneskirkju fram alla sunnudaga kl. 20 og er þá jafnframt barnasamvera í boði í umsjá sunnudagaskólakenn- arans Hildar Eirar Bolladóttur. Á morgun fáum við Kristján Krist- jánsson (KK) til liðs við okkur. Mun hann flytja dagskrá sem hann nefnir „Ljós af ljósi“. Gunnar Gunnarsson organisti mun leika með Kristjáni í einhverjum lögum, auk þess sem Bjarni Karlsson prestur flytur „ör- vekju“ út frá guðspjalli dagsins. Að- gangur er ókeypis og barnasamvera stendur til boða í og við safn- aðarheimilið, eftir veðri. Er tónleik- unum lýkur, kl. 21, er messukaffi og djús í boði í safnaðarheimilinu. Minningarstund Alnæmissamtakanna EINS og undanfarin ár munu Al- næmissamtökin á Íslandi halda minningarguðsþjónustu um þau sem látist hafa úr alnæmi hér á landi í Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun kl. 14.00. Minningarstund þessi er al- þjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day. Til að minnast þeirra er látist hafa úr al- næmi er kveikt á kertum, að þessu sinni munum við tendra 37 ljós í kirkjunni eða eitt ljós fyrir hvern einstakling sem við minnumst. Séra Hjörtur Magni Jóhannesson mun leiða guðsþjónustuna. Formaður Al- næmissamtakanna, Birna Þórð- ardóttir, flytur ávarp. Tónlistarflutningur er í höndum Páls Óskars Hjálmtýssonar og Moniku Abendroth. Ingibjörg Har- aldsdóttir skáld mun flytja ljóð. Vorferð barnastarfs Neskirkju SUNNUDAGINN 23. maí nk. verður hin árlega vorferð barnastarfs Nes- kirkju. Eins og alla sunnudaga mæt- um við til messu safnaðarins kl. 11.00 en í stað þess að fara niður í safnaðarheimili mun rúta bíða okk- ar fyrir utan kirkjuna. Ferðinni er heitið í Sandgerði þar sem ætlunin er að skoða Fræðasetrið. Einnig verður grillað, farið í leiki og sungið. Áætluð heimkoma er kl. 15.30. Börn yngri en 7 ára þurfa að koma í fylgd með eldri aðila. Þátttaka í ferðinni kostar ekkert. Stefanoskórinn syngur í Dómkirkjunni STEFANOSKÓRINN syngur í kvöld kl. 20.00 í Dómkirkjunni. Stef- anoskórinn var stofnaður af Barbro Björklund 1979 í dómkirkjusöfnuði Uppsala í Svíþjóð. Kórinn syngur í guðsþjónustum og tekur þátt í tón- leikahaldi. Kórinn syngur að mestu verk án undirleiks. Stefanoskórinn hefur tekið þátt í uppsetningum á stærri verkum, s.s. Ein deutsches Requiem eftir Brahms og Te Deum eftir Arvo Pärt. Í haust mun kórinn flytja Requiem eftir Dvorák í dóm- kirkjunni í Uppsölum. Kórinn er nú staddur á Íslandi í nokkra daga. Hér fær hann til liðs við sig tvo unga þjóðlagatónlist- armenn, Ceciliu Österholm og Ell- inor Björklund, sem leika á fiðlu með snertlum (lyklahörpu), sem er aldagamalt sænskt alþýðuhljóðfæri. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Krists er ekki steypa, heldur mann- eskjur af holdi og blóði. Því er hægt að fara út úr kirkjum með fagnaðar- erindið. Því er boðið til guðsþjón- ustu í Kolaportinu á morgun kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir pre- dikar og þjónar ásamt Jónu Hrönn Bolladóttur miðborgarpresti. Þorvaldur Halldórsson tónlist- armaður mun leiða lofgjörðina. Áð- ur en Kolaportsmessan hefst kl. 13:40 mun Þorvaldur flytja þekktar dægurperlur. Þá er hægt að leggja inn fyrirbænarefni áður en stundin hefst. Guðsþjónustan fer fram í kaffistofu Jónu í Kolaportinu sem ber heitið Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér kaffi og meðlæti. Súðvíkingar í Dómkirkjunni KVÖLDIÐ 13. júní 1985 sat ég á áhorfendapöllum Alþingis og fylgd- ist með atkvæðagreiðslu þing- manna um ný útvarpslög. Þegar at- kvæði voru talin mátti ekki miklu muna, því frumvarpið rétt skreið í gegnum þingið með aðeins eins atkvæðis meirihluta. Afnumin var nær 60 ára einokun ríkisins á ljósvakasviðinu. Ottó B. Arnar sím- fræðingur var upp- hafsmaður útvarps á Íslandi. Fyrir hvatn- ingu hans var fyrsta frumvarpið um frjálst útvarp lagt fyrir Al- þingi árið 1924. (Til fróðleiks má geta að 1924 voru þá þegar 1.400 útvarps- stöðvar í Bandaríkjunum.) Tveimur árum síðar opnaði Ottó fyrstu út- varpsstöðina á Íslandi. En ljós- vakafrelsið lifði ekki lengi í það skiptið. Með lögum um ríkisútvarp frá 1928 var einkaaðilum bannaður útvarpsrekstur. RÚV hóf starfsemi 1930. Árið 1985 var Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra og for- sætisráðherra Steingrímur Her- mannsson. Þingflokkar sjálfstæðismanna og Bandalags jafnaðarmanna ásamt nokkrum þingmönnum úr Framsókn- arflokknum samþykktu nýju út- varpslögin og þar með frelsi í hljóð- varpi og sjónvarpi. Athyglisvert er að Halldór Ásgrímsson (þáv. sjáv- arútvegsráðherra og núv. form. Framsóknarflokksins) greiddi at- kvæði gegn frumvarpinu. Halldór gerði svofellda grein fyrir atkvæði sínu: ,,Herra forseti. Auglýsingatekjur eru meginundirstaða rík- isfjölmiðlanna í dag. Með því að veita öðr- um heimildir til að nota þá tekjumögu- leika munu tekju- möguleikar ríkisfjöl- miðlanna minnka verulega. Ég sé ekki að neitt annað muni koma í staðinn og þar með sé allt útlit fyrir það að staða þessara fjölmiðla muni mjög veikjast. Ég get ekki staðið að því … Ég segi því nei.“ Fjölmiðlabyltingin fylgdi í kjöl- farið! Í stað einnar sjónvarps- stöðvar ríkisins (sem sendi út nokkrar klukkustundir sex kvöld í viku – ekki á fimmtudögum – og lokaði í júlí!) eru nú átta sjónvarps- stöðvar með útsendingar nær allan sólarhringinn alla daga ársins! Og ekki er minni gróskan í útvarpi. Landsmenn allir hafa fylgst með fæðingarhríðum þessara nýju einkastöðva – sem ávallt hafa byggt á veikum fjárhagsgrunni – og ójafnri samkeppnisstöðu við Rík- isútvarpið. En þrátt fyrir áföllin sem dunið hafa yfir frjálsu stöðv- arnar er þjónusta þeirra keypt og valin af þorra Íslendinga – og fáum dettur í alvöru í hug að hverfa aft- ur til fyrra fásinnis í útvarpi og sjónvarpi. En þetta eru viðkvæmir græðlingar. Í einu pólitísku kulda- kasti geta sprotar þessa frelsis auð- veldlega dáið drottnurum sínum. Margs ber að gæta ef vel á að fara – og umfram allt verður að fara af- ar varlega í allar aðgerðir sem veikt geta nýgræðinga á ljós- vakasviðinu. Því er ráðlegt að flýta sér hægt í lagabreytingum og þaul- kanna allar afleiðingar nýrra leik- reglna. (Í kosningariti Sjálfstæðisflokks- ins fyrir alþingiskosningarnar í fyrra; Saman höfum við náð ár- angri … áfram Ísland – segir undir fyrirsögninni; Minnst spilling og fjölmiðlar hvergi frjálsari: ,,Íslenska stjórnsýslan er næst- besta stjórnsýsla í heimi sam- kvæmt Harvard-háskóla. Sam- kvæmt rannsókninni er spilling engin, þjóðfélagið gegnsætt og dómskerfið sjálfstætt. Samkvæmt úttekt samtakanna Fréttamenn án landamæra (Reporters without Borders) er Ís- land í hópi fjögurra efstu ríkja á 139 ríkja lista yfir frelsi fjölmiðla.“ Alþingi gefur og Alþingi tekur Hans Kristján Árnason skrifar um stjórnmál ’Landsmenn allir hafafylgst með fæðingar- hríðum þessara nýju einkastöðva. ‘ Hans Kristján Árnason Höfundur er fyrrverandi stjórnar- maður og stofnandi Stöðvar 2. HVERNIG bregst maður við vondri lykt sem safnast hefur upp á heimilinu? Til þess eru tvær leið- ir. Önnur er að lofta út, þrífa og komast fyrir orsakir fnyksins. Hin er að telja sjálfum sér og öðrum trú um að þetta sé allt í lagi því að ástandið sé svipað á öðrum heim- ilum. Reyna jafnvel að dreifa meiri óhreinindum og eigna öðr- um. Seinni aðferðina nota þeir Björn Bjarnason og Hannes Hólmsteinn Gissurarson undanfarið hér í blaðinu og víðar, nú þegar valdhrokadaunninn ætlar allt venjulegt fólk að drepa. Þá draga þeir fram gömul tölvubréf, vitna í margra ára gamalt tveggja manna tal, dylgja og slúðra eins og tauga- veiklaðar kellingar. Í von um að með því beri minna á lyktinni. Látum vera að þessi vinnu- brögð eiga sér engin fordæmi hér og líklega ekki í þingsögu Vest- urlanda. Nýjungar í þá veru koma ekki á óvart úr þessari átt. Hitt er merkilegra, að þeir fóst- bræður skuli ekki hafa lært hversu miklu árangursríkari fyrri aðferðin er. Og heilsusamlegri. Ég hvet þá til að prófa. Þeim liði svo miklu betur á sálinni á eftir. Flosi Eiríksson Lykt Höfundur er bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.