Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ósk Þórhalls-dóttir fæddist að Bakka í Viðvík- ursveit í Skagafirði 20. maí 1918. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Garð- vangi í Garði 17. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Björn Þórhall- urÁstvaldsson bóndi, f. 6. nóv. 1893 á Á í Unadal í Skagafirði, d. 30. sept 1962, og kona hans Helga Frið- bjarnardóttir húsfreyja, f. 7. des. 1892 í Brekkukoti-Ytra í Blöndu- hlíð í Skagafirði, d. 20. apríl 1986. Systkini Óskar eru: 1) Elísabet, f. 15.1. 1917, d. 26.2. 2003, maki Bjarni Helgason, f. 27.10. 1919, d. 26.10. 1999. 2) Friðbjörn, f. 23.7. 1919, d. 8.1. 2003, maki Svanhildur Guðjóns- dóttir, f. 12.2. 1926. 3) Guðbjörg, f. 17.10. 1920. Fyrri maki Þor- móður Guðlaugsson, f. 15.3. 1916, d. 5.5. 1989, þau skildu. Seinni maki Axel Davíðsson, f. Foreldrar hans voru Þorkell Árnason, f. 18.8. 1878, d. 28.6. 1941, útvegsbóndi og organisti í Grímsey, og k.h. Hólmfríður Ólafía Guðmundsdóttir, f. 10.6. 1878, d. 3.6. 1969, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af að Sjálandi í Grímsey. Ósk og Frímann eign- uðust sex börn. Þau eru: 1) Helga Hólmfríður, f. 9.7. 1940, maki Hjalti Sigurðsson. 2) Þórhallur Þorkell, f. 23.10. 1942, maki Gréta Jóhannesdóttir. 3) Dýrleif Eydís, f. 18.12. 1946, maki Gísli Steinar Eiríksson. 4) Anna, f. 16.3. 1948, maki Hartmann Ósk- arsson. 5) Ægir, f. 9.1. 1952, maki Valdís S. Sigurbjörnsdóttir. 6) Kristjana Björg, f. 7.7. 1953, maki Bjarni Halldórsson. Upp- eldissonur, Þorkell Árnason, f. 20.7. 1944, d. 7.5. 2002. Barna- börnin eru 23, þar af hefur eitt látist. Barnabarnabörnin eru orðin 37, þar af hefur eitt látist. Barnabarnabarnabörnin eru orð- in tvö. Ósk og Frímann hófu búskap að Básum í Grímsey en fluttu ár- ið 1946 að Ártúnum við Hofsós í Skagafirði þar sem þau bjuggu til 1961 en þá fluttu þau suður í Garð í Gerðahreppi þar sem þau bjuggu síðan. Útför Óskar verður gerð frá Útskálakirkju í Garði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 17.11. 1921, d. 18.9. 1990. 4) Ásdís, f. 18.8. 1922, d. 5.12. 2001, maki Sigurður Guðmundsson, f. 16.11. 1912, d. 11.4. 1973. 5) Anna Guð- rún, f. 25.11. 1923, maki Sveinn Þorkell Jóhannesson, f. 1.7. 1916, d. 22.6. 1981. 6) Kristjana, f. 14.1. 1925, maki Björn Þorkelsson, f. 9.5. 1914, d. 9.2. 1981. 7) Þorvaldur, f. 1.9. 1926, maki Valgerð- ur Kristjánsdóttir, f. 25.10. 1929. 8) Halldór Bjarni, f. 5.11. 1927, maki Guðbjörg Bergsveinsdóttir, f. 30.9. 1928. 9) Guðveig, f. 23.5. 1929, maki Jóhannes Haraldsson, f. 28.5. 1928. 10) Birna, f. 13.5. 1938. Fyrri maki Guðmundur Kristjánsson, f. 14.7. 1931, d. 9.9. 1988. Seinni maki Geirfinnur Stefánsson, f. 9.3. 1935. Hinn 12. nóv. 1940 giftist Ósk Frímanni Sigmundi Þorkelssyni, f. 13.9. 1917, frá Sveinagörðum í Grímsey, fv. bónda og sjómanni. Ég hugsa um mynd þína, hjartkæra móðir, og höndina mildu, sem tár strauk af kinn. Það yljar á göngu um ófarnar slóðir þó yfir sé harmþrungið rökkur um sinn. Ljósið er slokknað á lífskerti þínu, þú leiddir mig örugg á framtíðar braut. Hlýja þín vakir í hjartanu mínu frá hamingjudögum, er fyrrum ég naut. Minningarljósið á lífsvegi mínum lýsir upp sorghúmið, kyrrlátt og hljótt. Höfði nú drýp ég hjá dánarbeði þínum, þú drottni sért falin, ég býð góða nótt. (Hörður Björgvins.) Elskulega mamma mín. Ljúfar og sárar minningar líða um huga minn er ég sest niður, með tár á vanga og söknuð í hjarta. Svo óvænt, en samt ekki, lést þú aðfara- nótt 17. maí eftir stutt veikindi á hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Við sjúkrabeðinn sat elsku pabbi og við systkinin, til skiptis, og einnig var alltaf til staðar elskulega hjúkrun- arfólkið, sem er alveg einstakt. Þú fórst hægt og hljótt eins og alltaf, þú vildir aldrei láta hafa mikið fyrir þér. Eins var um andlátið. Friður og kyrrð umlukti þig. Þú hefðir orðið 86 ára 20. maí á uppstigning- ardag. Lítið barn elskar móður sína af öllu hjarta, sál og sinni, sækir í að snerta hana, hlusta á hana og njóta öryggis í návist hennar og treystir henni algerlega. Þannig var hún alltaf til staðar. Í Ártúnum þar sem við systkinin sex ólumst upp tók hún þátt í öllu, hvort sem það var sorg eða gleði. Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi. Eins var það þegar við stækkuðum og urð- um fullorðin, alltaf tóku mamma og pabbi þátt í öllu og umvöfðu okkur kærleika og ást. Mamma var falleg, nett kona og við kölluðum hana stundum pjatt- rófu sem var hrós. Hún vildi alltaf vera fín og var mjög smekkleg á allan hátt. Hún var ein af þessum konum sem gat allt, prjónað, saum- að og eldað. Hún tók þátt í öllum sveitastörfum sem voru aðeins öðruvísi en í dag. Ég man eftir henni hlaupa frá pottunum út á tún með hrífuna að snúa heyi, raka, fara í fjósið, sækja vatn, þvo þvotta í bala, skola þvottinn í ánni, reka kindur og alltaf var hún eins og fiðrildi. Kossana sparaði hún ekki þó stundum væri dagurinn langur og ekki gleymdust bænirnar áður enn við fórum að sofa. Samt er ekki hægt að tala um mömmu án þess að tala um pabba. Þau voru ákaflega samhent og ást og kærleikur var þeirra boðorð, hrós við okkur og við hvort annað. Ég varð einnig þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa föður- ömmu á heimilinu. Hún fylgdi for- eldrum mínum frá því ég man eftir. Henni og mömmu kom ákaflega vel saman og unnu þær gjarnan sem einn maður. Og þar ríkti sannar- lega kærleikur og hjálpsemi á báða bóga. Einnig ólu pabbi og mamma upp bróðurson pabba frá sex ára aldri. Það eru sannarlega forrétt- indi að eiga foreldra sína svo lengi. Börnin mín og barnabörn hafa not- ið ástríkis þeirra og ég er þakklát fyrir það. Elskulega mamma mín, ég gæti haldið áfram að skrifa endalaust en ég ætla að geyma allar góðu minn- ingarnar í hjarta mínu. Allir hér í Garðinum sáu gömlu hjónin á Kárastöðum leiðast hvern morgun eins og þau væru nýtrúlofuð. Þann- ig var ást þeirra og kærleikur þar til dauðinn aðskildi þau, þessar elskur. Elsku pabbi, ég bið góðan guð að vaka yfir þér og styrkja þegar ástin þín er farin. En hún bíður eftir þér svo þið getið haldið áfram að ganga saman í guðsríki. Við elskum þig öll. Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó, móðir góð? – Upp, þú minn hjartans óður! Því hvað er ástar- og hróðrar dís, og hvað er engill úr paradís hjá góðri og göfugri móður? (M. Joch.) Dýrleif Eydís Frímannsdóttir. Það var að kvöldi fimmtudagsins 13. maí að pabbi hringdi og til- kynnti mér að þú hefðir veikst al- varlega. Mér var mjög mikið um enda áttir þú stóran stað í hjarta mínu. Ég var ekki tilbúin til að missa þig strax þó svo að ég hefði verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að hafa þig svona lengi. Þú varst 85 ára og afmælið þitt á næsta leiti. En því miður fékkstu ekki að upp- lifa 86. afmælisdaginn því þú lést aðfaranótt mánudagsins 17. maí. Elsku amma. Það er margs að minnast. Ég man fyrst eftir þér þegar þú komst og heimsóttir okk- ur mömmu á Akureyri ásamt afa. Þú hafðir meðferðis fallega gula plastönd á hjólum og í henni var skófla, sigti og lítil hrífa. Það sem mér þótti vænt um þessa plastönd. Ég lék mér með hana daginn út og daginn inn. Þetta var það fyrsta sem ég man af okkar samskiptum. Nokkrum árum síðar fluttum við mæðgur til ykkar afa í Garðinn. Þar tókst þú á móti okkur opnum örmum. Ég man vel hvað faðm- urinn þinn var hlýr og allt um vefj- andi. Það var ekkert sem þú ekki gast lagað með fallega brosinu þínu og faðminum þínum mjúka. Sem lítil stelpuskotta man ég að þú varst alltaf sístarfandi. Þú varst falleg kona, grönn, nett og kvik í hreyfingum og fljót til allra verka. Allt lék í höndunum á þér sama hvort það var bakstur, elda- mennska eða handavinna. Þarna í Garðinum byrjaði ég skólagöngu mína. Þegar ég kom heim úr skólanum beiðst þú alltaf eftir mér með eitthvað gott að borða og svo var lært. Þú varst góður kennari enda var þolinmæð- in ótrúlega mikil. Þú kenndir mér ekki bara að lesa og reikna heldur svo margt fleira. Ég áttaði mig ekki á því þá hversu margt það var, heldur kom það smátt og smátt eftir því sem ég varð eldri. Ekki er hægt að skrifa um ömmu öðruvísi en að minnast á afa. Amma og afi voru búin að vera gift í 64 ár og voru jafn ástúðleg hvort við annað eins og þegar hjónaband þeirra hófst. Það er því mikið áfall fyrir afa að missa þig, amma, eftir allan þennan tíma, en ég veit að þið munið hittast aftur þó síðar verði. Það er skrítið til þess að hugsa að fá aldrei framar að kyssa mjúka vangann þinn og halda um hlýju hendurnar þínar, en minningin um þig lifir ætíð í huga mínum. Elsku amma, ég kveð þig með þessum línum: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku afi, ég votta þér mína dýpstu samúð og bið algóðan guð að vaka ávallt yfir þér. María Ósk. ÓSK ÞÓRHALLSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Ósk Þórhallsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÁSTA TORFADÓTTIR, Dalbraut 14, áður til heimilis í Heiðargerði 16, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 16. maí. Útförin fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn 24. maí kl. 15.00. Ásgeir Ásgeirsson, Guðný Styrmisdóttir, Snorri Ásgeirsson, Torfi Ásgeirsson, Liane Ásgeirsson, Óskar Ásgeirsson, Svanhildur St. J. Guðmundsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR BJÖRNSSON viðskiptafræðingur, Hrauntungu 9, Kópavogi, er látinn. Jónína Margrét Bjarnadóttir, Björn Gunnlaugsson, Regína W. Gunnarsdóttir, Stefán Bj. Gunnlaugsson, Ólöf Jónsdóttir, Guðmundur K. Gunnlaugsson og barnabörn. Systir okkar, INGIBJÖRG M. ÞÓRHALLSDÓTTIR, Garðsenda 12, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 13. maí, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 24. maí kl. 13:30. Ólafur Þórhallsson, Eggert Þórhallsson, Jakob Þórhallsson, Stefán Þórhallsson, Björn Þórhallsson og aðrir vandamenn. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður minnar, kjörmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARLOTTU JÓHANNSDÓTTUR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, áður til heimilis í Höfðahlíð 7, Akureyri, Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki dvalarheimilisins Hlíðar fyrir frábæra umönnun. Jóhann Karl Sigurðsson og fjölskylda, Pálmi Pétursson og fjölskylda. Elskuleg föðursystir okkar, GUÐRÚN J. GUÐMANNSDÓTTIR frá Snæringsstöðum, Mánagötu 22, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtu- daginn 20. maí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 27. maí kl. 13.30. Guðrún Jónsdóttir, Margrét Lovísa Jónsdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Benedikt S. Steingrímsson, Guðmann Steingrímssson, Þorbjörn Steingrímsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.