Morgunblaðið - 22.05.2004, Síða 40
MINNINGAR
40 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ósk Þórhalls-dóttir fæddist
að Bakka í Viðvík-
ursveit í Skagafirði
20. maí 1918. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Garð-
vangi í Garði 17.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Björn Þórhall-
urÁstvaldsson
bóndi, f. 6. nóv.
1893 á Á í Unadal í
Skagafirði, d. 30.
sept 1962, og kona
hans Helga Frið-
bjarnardóttir húsfreyja, f. 7. des.
1892 í Brekkukoti-Ytra í Blöndu-
hlíð í Skagafirði, d. 20. apríl
1986. Systkini Óskar eru: 1)
Elísabet, f. 15.1. 1917, d. 26.2.
2003, maki Bjarni Helgason, f.
27.10. 1919, d. 26.10. 1999. 2)
Friðbjörn, f. 23.7. 1919, d. 8.1.
2003, maki Svanhildur Guðjóns-
dóttir, f. 12.2. 1926. 3) Guðbjörg,
f. 17.10. 1920. Fyrri maki Þor-
móður Guðlaugsson, f. 15.3.
1916, d. 5.5. 1989, þau skildu.
Seinni maki Axel Davíðsson, f.
Foreldrar hans voru Þorkell
Árnason, f. 18.8. 1878, d. 28.6.
1941, útvegsbóndi og organisti í
Grímsey, og k.h. Hólmfríður
Ólafía Guðmundsdóttir, f. 10.6.
1878, d. 3.6. 1969, húsmóðir. Þau
bjuggu lengst af að Sjálandi í
Grímsey. Ósk og Frímann eign-
uðust sex börn. Þau eru: 1) Helga
Hólmfríður, f. 9.7. 1940, maki
Hjalti Sigurðsson. 2) Þórhallur
Þorkell, f. 23.10. 1942, maki
Gréta Jóhannesdóttir. 3) Dýrleif
Eydís, f. 18.12. 1946, maki Gísli
Steinar Eiríksson. 4) Anna, f.
16.3. 1948, maki Hartmann Ósk-
arsson. 5) Ægir, f. 9.1. 1952,
maki Valdís S. Sigurbjörnsdóttir.
6) Kristjana Björg, f. 7.7. 1953,
maki Bjarni Halldórsson. Upp-
eldissonur, Þorkell Árnason, f.
20.7. 1944, d. 7.5. 2002. Barna-
börnin eru 23, þar af hefur eitt
látist. Barnabarnabörnin eru
orðin 37, þar af hefur eitt látist.
Barnabarnabarnabörnin eru orð-
in tvö.
Ósk og Frímann hófu búskap
að Básum í Grímsey en fluttu ár-
ið 1946 að Ártúnum við Hofsós í
Skagafirði þar sem þau bjuggu
til 1961 en þá fluttu þau suður í
Garð í Gerðahreppi þar sem þau
bjuggu síðan.
Útför Óskar verður gerð frá
Útskálakirkju í Garði í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
17.11. 1921, d. 18.9.
1990. 4) Ásdís, f.
18.8. 1922, d. 5.12.
2001, maki Sigurður
Guðmundsson, f.
16.11. 1912, d. 11.4.
1973. 5) Anna Guð-
rún, f. 25.11. 1923,
maki Sveinn Þorkell
Jóhannesson, f. 1.7.
1916, d. 22.6. 1981. 6)
Kristjana, f. 14.1.
1925, maki Björn
Þorkelsson, f. 9.5.
1914, d. 9.2. 1981. 7)
Þorvaldur, f. 1.9.
1926, maki Valgerð-
ur Kristjánsdóttir, f. 25.10. 1929.
8) Halldór Bjarni, f. 5.11. 1927,
maki Guðbjörg Bergsveinsdóttir,
f. 30.9. 1928. 9) Guðveig, f. 23.5.
1929, maki Jóhannes Haraldsson,
f. 28.5. 1928. 10) Birna, f. 13.5.
1938. Fyrri maki Guðmundur
Kristjánsson, f. 14.7. 1931, d. 9.9.
1988. Seinni maki Geirfinnur
Stefánsson, f. 9.3. 1935.
Hinn 12. nóv. 1940 giftist Ósk
Frímanni Sigmundi Þorkelssyni,
f. 13.9. 1917, frá Sveinagörðum í
Grímsey, fv. bónda og sjómanni.
Ég hugsa um mynd þína, hjartkæra móðir,
og höndina mildu, sem tár strauk af kinn.
Það yljar á göngu um ófarnar slóðir
þó yfir sé harmþrungið rökkur um sinn.
Ljósið er slokknað á lífskerti þínu,
þú leiddir mig örugg á framtíðar braut.
Hlýja þín vakir í hjartanu mínu
frá hamingjudögum, er fyrrum ég naut.
Minningarljósið á lífsvegi mínum
lýsir upp sorghúmið, kyrrlátt og hljótt.
Höfði nú drýp ég hjá dánarbeði þínum,
þú drottni sért falin, ég býð góða nótt.
(Hörður Björgvins.)
Elskulega mamma mín. Ljúfar
og sárar minningar líða um huga
minn er ég sest niður, með tár á
vanga og söknuð í hjarta. Svo
óvænt, en samt ekki, lést þú aðfara-
nótt 17. maí eftir stutt veikindi á
hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Við
sjúkrabeðinn sat elsku pabbi og við
systkinin, til skiptis, og einnig var
alltaf til staðar elskulega hjúkrun-
arfólkið, sem er alveg einstakt. Þú
fórst hægt og hljótt eins og alltaf,
þú vildir aldrei láta hafa mikið fyrir
þér. Eins var um andlátið. Friður
og kyrrð umlukti þig. Þú hefðir
orðið 86 ára 20. maí á uppstigning-
ardag.
Lítið barn elskar móður sína af
öllu hjarta, sál og sinni, sækir í að
snerta hana, hlusta á hana og njóta
öryggis í návist hennar og treystir
henni algerlega. Þannig var hún
alltaf til staðar. Í Ártúnum þar sem
við systkinin sex ólumst upp tók
hún þátt í öllu, hvort sem það var
sorg eða gleði. Við systkinin urðum
þeirrar gæfu aðnjótandi. Eins var
það þegar við stækkuðum og urð-
um fullorðin, alltaf tóku mamma og
pabbi þátt í öllu og umvöfðu okkur
kærleika og ást.
Mamma var falleg, nett kona og
við kölluðum hana stundum pjatt-
rófu sem var hrós. Hún vildi alltaf
vera fín og var mjög smekkleg á
allan hátt. Hún var ein af þessum
konum sem gat allt, prjónað, saum-
að og eldað. Hún tók þátt í öllum
sveitastörfum sem voru aðeins
öðruvísi en í dag. Ég man eftir
henni hlaupa frá pottunum út á tún
með hrífuna að snúa heyi, raka,
fara í fjósið, sækja vatn, þvo þvotta
í bala, skola þvottinn í ánni, reka
kindur og alltaf var hún eins og
fiðrildi. Kossana sparaði hún ekki
þó stundum væri dagurinn langur
og ekki gleymdust bænirnar áður
enn við fórum að sofa. Samt er ekki
hægt að tala um mömmu án þess að
tala um pabba. Þau voru ákaflega
samhent og ást og kærleikur var
þeirra boðorð, hrós við okkur og við
hvort annað. Ég varð einnig þeirrar
gæfu aðnjótandi að hafa föður-
ömmu á heimilinu. Hún fylgdi for-
eldrum mínum frá því ég man eftir.
Henni og mömmu kom ákaflega vel
saman og unnu þær gjarnan sem
einn maður. Og þar ríkti sannar-
lega kærleikur og hjálpsemi á báða
bóga. Einnig ólu pabbi og mamma
upp bróðurson pabba frá sex ára
aldri. Það eru sannarlega forrétt-
indi að eiga foreldra sína svo lengi.
Börnin mín og barnabörn hafa not-
ið ástríkis þeirra og ég er þakklát
fyrir það.
Elskulega mamma mín, ég gæti
haldið áfram að skrifa endalaust en
ég ætla að geyma allar góðu minn-
ingarnar í hjarta mínu. Allir hér í
Garðinum sáu gömlu hjónin á
Kárastöðum leiðast hvern morgun
eins og þau væru nýtrúlofuð. Þann-
ig var ást þeirra og kærleikur þar
til dauðinn aðskildi þau, þessar
elskur.
Elsku pabbi, ég bið góðan guð að
vaka yfir þér og styrkja þegar ástin
þín er farin. En hún bíður eftir þér
svo þið getið haldið áfram að ganga
saman í guðsríki. Við elskum þig
öll.
Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð,
en ekkert um þig, ó, móðir góð? –
Upp, þú minn hjartans óður!
Því hvað er ástar- og hróðrar dís,
og hvað er engill úr paradís
hjá góðri og göfugri móður?
(M. Joch.)
Dýrleif Eydís Frímannsdóttir.
Það var að kvöldi fimmtudagsins
13. maí að pabbi hringdi og til-
kynnti mér að þú hefðir veikst al-
varlega. Mér var mjög mikið um
enda áttir þú stóran stað í hjarta
mínu. Ég var ekki tilbúin til að
missa þig strax þó svo að ég hefði
verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að hafa þig svona lengi. Þú varst 85
ára og afmælið þitt á næsta leiti.
En því miður fékkstu ekki að upp-
lifa 86. afmælisdaginn því þú lést
aðfaranótt mánudagsins 17. maí.
Elsku amma. Það er margs að
minnast. Ég man fyrst eftir þér
þegar þú komst og heimsóttir okk-
ur mömmu á Akureyri ásamt afa.
Þú hafðir meðferðis fallega gula
plastönd á hjólum og í henni var
skófla, sigti og lítil hrífa. Það sem
mér þótti vænt um þessa plastönd.
Ég lék mér með hana daginn út og
daginn inn. Þetta var það fyrsta
sem ég man af okkar samskiptum.
Nokkrum árum síðar fluttum við
mæðgur til ykkar afa í Garðinn.
Þar tókst þú á móti okkur opnum
örmum. Ég man vel hvað faðm-
urinn þinn var hlýr og allt um vefj-
andi. Það var ekkert sem þú ekki
gast lagað með fallega brosinu þínu
og faðminum þínum mjúka. Sem
lítil stelpuskotta man ég að þú
varst alltaf sístarfandi. Þú varst
falleg kona, grönn, nett og kvik í
hreyfingum og fljót til allra verka.
Allt lék í höndunum á þér sama
hvort það var bakstur, elda-
mennska eða handavinna.
Þarna í Garðinum byrjaði ég
skólagöngu mína. Þegar ég kom
heim úr skólanum beiðst þú alltaf
eftir mér með eitthvað gott að
borða og svo var lært. Þú varst
góður kennari enda var þolinmæð-
in ótrúlega mikil. Þú kenndir mér
ekki bara að lesa og reikna heldur
svo margt fleira. Ég áttaði mig
ekki á því þá hversu margt það
var, heldur kom það smátt og
smátt eftir því sem ég varð eldri.
Ekki er hægt að skrifa um ömmu
öðruvísi en að minnast á afa.
Amma og afi voru búin að vera
gift í 64 ár og voru jafn ástúðleg
hvort við annað eins og þegar
hjónaband þeirra hófst. Það er því
mikið áfall fyrir afa að missa þig,
amma, eftir allan þennan tíma, en
ég veit að þið munið hittast aftur
þó síðar verði.
Það er skrítið til þess að hugsa
að fá aldrei framar að kyssa mjúka
vangann þinn og halda um hlýju
hendurnar þínar, en minningin um
þig lifir ætíð í huga mínum.
Elsku amma, ég kveð þig með
þessum línum:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku afi, ég votta þér mína
dýpstu samúð og bið algóðan guð
að vaka ávallt yfir þér.
María Ósk.
ÓSK
ÞÓRHALLSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um Ósk
Þórhallsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ÁSTA TORFADÓTTIR,
Dalbraut 14,
áður til heimilis
í Heiðargerði 16,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 16. maí.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn
24. maí kl. 15.00.
Ásgeir Ásgeirsson, Guðný Styrmisdóttir,
Snorri Ásgeirsson,
Torfi Ásgeirsson, Liane Ásgeirsson,
Óskar Ásgeirsson, Svanhildur St. J. Guðmundsdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
GUNNLAUGUR BJÖRNSSON
viðskiptafræðingur,
Hrauntungu 9,
Kópavogi,
er látinn.
Jónína Margrét Bjarnadóttir,
Björn Gunnlaugsson, Regína W. Gunnarsdóttir,
Stefán Bj. Gunnlaugsson, Ólöf Jónsdóttir,
Guðmundur K. Gunnlaugsson
og barnabörn.
Systir okkar,
INGIBJÖRG M. ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Garðsenda 12,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 13. maí, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju mánudaginn 24. maí kl. 13:30.
Ólafur Þórhallsson,
Eggert Þórhallsson,
Jakob Þórhallsson,
Stefán Þórhallsson,
Björn Þórhallsson
og aðrir vandamenn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför móður minnar, kjörmóður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KARLOTTU JÓHANNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
áður til heimilis
í Höfðahlíð 7, Akureyri,
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki dvalarheimilisins Hlíðar fyrir
frábæra umönnun.
Jóhann Karl Sigurðsson og fjölskylda,
Pálmi Pétursson og fjölskylda.
Elskuleg föðursystir okkar,
GUÐRÚN J. GUÐMANNSDÓTTIR
frá Snæringsstöðum,
Mánagötu 22,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtu-
daginn 20. maí.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 27. maí kl. 13.30.
Guðrún Jónsdóttir,
Margrét Lovísa Jónsdóttir,
Guðrún Steingrímsdóttir,
Benedikt S. Steingrímsson,
Guðmann Steingrímssson,
Þorbjörn Steingrímsson.