Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 22.05.2004, Qupperneq 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 41 ✝ Páll Sigurjóns-son fæddist á Nautabúi í Hjaltadal 16. febrúar 1917. Hann lést á Heil- brigðisstofnuninni Sauðárkróki 10. maí 2004. Foreldrar hans voru Sigurjón Benja- mínsson, f. 15.4. 1878, d. 9.1. 1956, bóndi á Nautabúi, og kona hans Elínborg Pálsdóttir, f. 9.1. 1887, d. 25.6. 1966, húsfrú á Nautabúi. Systkini Páls voru: 1) Elinborg, f. 15.9. 1911, d. 6.7. 1994, gift Ágústi Sigurmunds- syni, myndskera í Reykjavík, f. 28.8. 1904, d. 28.6. 1965, og áttu þau þrjú börn, Auði, Elínu Sig- urborgu og Sigurð Björn. 2) Sig- rún, f. 1.12. 1913, d. 26.10. 1978, gift Ísak Jónssyni skólastjóra í Reykjavík, f. 31.7. 1898, d. 3.12. 1963, og áttu þau fimm börn, Gylfa, Andra, Ragnheiði Sigur- björgu, Elinborgu Sigrúnu og Sigurjón Pál. 3) Anna, f. 10.8. 1926, d. 29.10. 1958, gift Þórarni Jónassyni, bónda í Hróarsdal í Hegranesi, f. 8.3. 1910, d. 18.2. 1989, og áttu þau tvær dætur, Lilju og Elínborgu. Páll var ókvæntur og barnlaus. Hann ólst upp á Nautabúi í Hjaltadal. Haustið 1935 fór Páll í bændaskólann á Hólum og varð bú- fræðingur þaðan vorið 1937. Hann var kaupamaður á Hólum sumarið 1937, og var þar við- loðandi til vors 1941, síðast fjár- maður frá ársbyrjun 1940. Á þessum ár- um fékkst Páll við ýmislegt ann- að, húsbyggingar o.fl. Á árunum 1940–47 var Páll í vegavinnu hjá Kristjáni Hansen vor og haust, en fékkst við bústörf sumar og vet- ur. Haustið 1945 fluttist hann með foreldrum sínum að Ingveld- arstöðum í Hjaltadal og bjó þar til 1964, að hann fluttist til Sauðár- króks. Vann hann fyrst hjá Vega- gerð ríkisins 1963–1971, en síðan hjá byggingavörudeild Kaup- félags Skagfirðinga, þar til hann komst á eftirlaun um 1984. Útför Páls fer fram frá Hóla- dómkirkju í dag, laugardaginn 22. maí, kl. 14.00. Mesta tilhlökkun mín á æskuár- um var að komast í sveit til ömmu og Palla á Ingveldarstöðum í Hjaltadal. Eftir skóla á vorin var farið að undirbúa norðurferð. Vega- kerfið var þá annað en nú, lagt var af stað úr Reykjavík klukkan 8 að morgni, og komið í Hjaltadalinn um kvöldmatarleytið, þar sem urðu fagnaðarfundir. Á Ingveldarstöðum iðaði allt af lífi, kindur, kýr, hestar, hænsni, fuglasöngur í lofti, flugna- suð, silungar í lækjum, gróður að taka við sér og sauðburður á loka- stigi. Og yfir öllu einhver ró og frið- ur. Á Ingveldarstöðum dvaldi fjöl- skyldan yfir sumarið við leik og störf, uns skóli hófst á ný að hausti. Þar kynntumst við systkinin Hjalta- dalnum, þar sem rætur okkar í móð- urætt voru, einnig sveitastörfum og gömlu íslensku alþýðumenningunni, sem þau afi, amma og Palli miðluðu okkur. Á sínum tíma leit maður á þetta sem sjálfsagðan hlut, en eftir á að hyggja voru það þau amma og Palli sem áttu mestan þátt í að skapa þennan heim fyrir okkur. En þó að við ættum þeim mikið að þakka þá hygg ég að þau hafi líka hlakkað til að fá okkur á vorin. Eftir fásinni vetrarins fylltist húsið allt í einu af fólki, fjörmiklum krökkum og unglingum. Og talsverð hafa við- brigðin einnig verið á haustin þegar við fórum, og þau amma og Palli voru tvö ein eftir. Búskapurinn á Ingveldarstöðum var eins konar félagsbú. Foreldrar mínir áttu jörðina, og svolítinn bú- stofn, en Páll stóð fyrir meginhluta búsins og annaðist skepnurnar fyrir okkur á veturna. Aldrei bar skugga á samstarf foreldra minna við Pál. Faðir minn, Ísak Jónsson, var fram- kvæmdamaðurinn í því samstarfi, byggði upp íbúðarhús og útihús og stóð fyrir ræktunarframkvæmdum. Páll sá um búskapinn með sóma, fékk sér reyndar aldrei dráttarvél, en eftir að vélvæðing var orðin al- menn var vélavinna jafnan keypt að frá nágrönnum í dalnum. Við systk- inin tókum þátt í bústörfum eins og við höfðum getu til, en þar kom að þau eldri úr okkar hópi réðu sig í launaða sumarvinnu annars staðar. Páll var nærfærinn við skepnur, hafði reyndar mestan áhuga á sauð- fjárbúskap, enda frábærlega næmur á því sviði. Einnig voru í búi kýr til heimilisnota og nokkrir hestar. Páll var með ólíkindum fjárglögg- ur maður. Hann þekkti kindurnar af svipnum eða fasinu, eins og við mennirnir þekkjum kunningja okk- ar og vini. Til marks um þetta er eft- irfarandi saga af Páli, skráð af Birni H. Jónssyni frá Bakka í Viðvíkur- sveit: „Það var eitt sinn í haustgöng- um, er við feðgar vorum að draga í réttinni, að þar kom fram ær er hafði farið að heiman um vorið óbor- in. Nú vissum við ekki hvort hún hefði átt eitt lamb eða tvö, og hjá henni, þar sem ég hélt í hana voru engin lömb er hún sýndi áhuga, svo að við vorum heldur vandræðalegir yfir þessu og líklega eitthvað rauna- legir. Allt í einu kemur Páll til okkar og segir: „Átt þú þessa á, Jón?“ Faðir minn játar það. „Hún er tví- lembd“ segir Páll. „Ég sá hana í safninu er ég kom með. Ég skal ná í þau.“ Síðan gekk hann svolítið um réttina, greip tvö lömb samtímis og kom með þau, og ærin móttók þau með fögnuði. Ekkert mál! Ég vissi engan leika svona eftir.“ Seinni búskaparár Páls var hann orðinn illa haldinn af heymæði, og mun það hafa verið aðalástæða þess að hann hætti búskap að mestu vor- ið 1963 og fór í vegavinnu. Hann var samt á Ingveldarstöðum veturinn 1963–64. Sumarið 1964 fluttist Páll alfarinn til Sauðárkróks, keypti íbúð á Lindargötu 5 (Borgarey), en amma fór til dóttur sinnar í Reykja- vík. Var Páll í vegavinnu árin 1963– 1971, fyrst hjá Árna Hansen og síð- ar hjá Svavari Jónssyni vegaverk- stjórum. Um 1971 réð hann sig hjá byggingavörudeild Kaupfélags Skagfirðinga, úti á Eyri, og vann þar til um 1984, að hann komst á eft- irlaun. Afgreiddi hann þar timbur og fleiri byggingavörur. Var hann þar mikils metinn, því að hann var tölvuheilinn í þeirri deild og hafði í kollinum nákvæmt yfirlit yfir hvað til var af hverri vörutegund. Þessi starfsár hans á Króknum vann hann yfirleitt ekki yfir háveturinn, enda var vegagerð og að nokkru af- greiðsla byggingarefnis árstíða- bundið starf. Þá naut Páll þess að eiga hauka í horni hjá frænda sínum Hallgrími Péturssyni á Kjarvals- stöðum í Hjaltadal, og konu hans Svövu Antonsdóttur. Var hann í ára- raðir hjá þeim um jól og áramót, og oftast eitthvað fram eftir vetri, gekk með Hallgrími í fjárhúsin til að gefa fénu, og hélt þannig tengslum við heimahagana og sveitastörfin. Páll var meðalmaður á hæð og samsvaraði sér vel, en varð nokkuð þéttvaxinn á efri árum. Hann var myndarlegur, gráeygur og hafði mikið jarpt hár, sem hann hélt til æviloka, en gránaði eðlilega með aldrinum. Hann var alvörugefinn og frekar fáskiptinn, en við nánari kynni ræðinn og gamansamur. Eru eftirminnilegir matar- og kaffitímar á Ingveldarstöðum, þar sem Palli náði sér oft vel á strik í frásögn af mönnum og málefnum. Páll var skarpgreindur og fróður vel, enda vel lesinn. Hann var feng- inn til að skrifa þætti í Skagfirskar æviskrár fyrir tímabilið 1890–1910, alls 11 þætti í annað bindi og einn þátt í þriðja bindi. Skrifaði hann þar um gamla Hjaltdælinga, sem hann hafði haft bein eða óbein kynni af. Einnig var hann betri en enginn sem heimildarmaður um örnefni og mannlíf í Hjaltadal, og var stundum leitað fanga hjá honum í þeim efn- um. Hefði þurft að skrifa meira upp eftir honum, meðan hann var í fullu fjöri. Páll var mikill sjálfstæðismaður og andvígur kaupfélagsvaldinu. Um 1960 tók hann þátt í stofnun versl- unarfélags á Sauðárkróki, til mót- vægis við kaupfélagið, en tapaði nokkru fé þegar verslunarfélagið varð gjaldþrota. Páll var ekki mikill trúmaður og gantaðist stundum með það. Eitt sinn fór móðir hans að ræða það við hann, að hann sýndi ei- lífðarmálunum ekki nægan áhuga. Þá stóð Palli upp frá borðum og sagði: „Gjörðu rétt, og þá munt þú, ei þurfa að skrifta nokkra trú.“ Um skeið átti Páll í nokkrum átökum við Bakkus konung. Aldrei snerti hann þó vín meðan á sum- ardvöl fjölskyldunnar stóð fyrir norðan, en nokkuð mun hafa borið á því eftir að hann fluttist til Sauð- árkróks. Eitt sinn gekk kunningi Palla fram á hann þar sem hann, við skál, hallaði sér upp að gamla kaup- félagshúsinu Gránu á Sauðárkróki. Vegfarandinn spurði í gamni, hvort hann sæi rétt, að Páll, sjálfstæðis- maðurinn, væri farinn að styðja kaupfélagið. „Ekki er það“, svaraði Páll. „Sérðu ekki að ég er að reyna að velta því!“ Um 1990 seldi Páll íbúðina sína á Lindargötu 5 og fluttist á dvalar- heimili aldraðra á Sauðárkróki, fékk þar rúmgott herbergi. Líkaði hon- um brátt dvölin þar vel innan um gamla Skagfirðinga, sem sumir hverjir voru sveitungar hans. Var ánægjulegt að heimsækja hann og finna hvað hann fylgdist vel með því sem var að gerast í héraðinu og uppi í dal. Hann spurði gestinn hverjir væru byrjaðir að slá, hvar fram- kvæmdir stæðu yfir, hvaða tíðindi væru af mannlífinu o.s.frv. Var raunar ótrúlegt hvaða yfirsýn hann hafði. Manni varð þá ljóst hvaða gæfa það var fyrir hann að fá að eyða elliárunum á þessum stað. Heilsu Páls smáhnignaði, einkum var hann slæmur í fótum. Seinnipart árs 2001 varð hann fyrir áfalli, virt- ist hafa fengið væga heilablæðingu. Fór hann þá á sjúkradeild sjúkra- hússins og hresstist nokkuð, en treysti sér ekki til að fara aftur á dvalarheimilið. Sumarið 2002 varð hann fyrir því óhappi að detta og lærbrotna. Brotið greri illa og var hann að mestu rúmfastur eftir það. Seinasta árið gat hann lítið sem ekk- ert tjáð sig, en virtist þó vera alveg með á nótunum. Ég vil að lokum fyrir hönd okkar systkinanna þakka starfsfólki sjúkradeildarinnar, fyrir frábæra umönnun um Palla síðustu árin. Einnig viljum við þakka Bjarna Haraldssyni, kaupmanni á Sauðár- króki, fyrir áratuga vináttu og tryggð við frænda okkar. Nú hefur Palli frændi fengið hvíldina, og skal hann nú kvaddur með þökk fyrir liðna vegferð gegn- um lífið. Sumardvölin á Ingveldar- stöðum, hjá afa, ömmu og Palla frænda, var okkur systkinunum dýrmætt veganesti sem við búum ætíð að. Sigurjón Páll Ísaksson. PÁLL SIGURJÓNSSON  Fleiri minningargreinar um Pál Sigurjónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér samúð og hlýhug við andlát og útför sam- býlismans míns, AÐALSTEINS HJALTASONAR, Vallargerði 4b, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Ásta Valhjálmsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS KRISTINS HAFSTEIN tannlæknis. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkr- unardeildar 4B á Landspítalanum í Fossvogi. Sigrún Kr. Tryggvadóttir, Þórunn Hafstein, Harald Snæhólm, Tryggvi Hafstein, Auður Bjarnadóttir, Kristín Ásta Hafstein, Ingólfur Jörgensson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, GUÐLAUG BJÖRG SVEINSDÓTTIR, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 7. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Árni Gunnar Sveinsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu ÖNNU ELINÓRSDÓTTUR, Björk, Mývatnssveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Þingeyinga fyrir einstaka alúð og góða umönnun. Hermann Kristjánsson, Elín S. Kristjánsdóttir, Helgi Kristjánsson, Þórhallur Kristjánsson, Þuríður Helgadóttir, Jóhann Friðrik Kristjánsson, Ingunn Ásta Egilsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is MOSAIK Veljið fallegan legstein Vönduð vinna og frágangur Sendum myndalista Legsteinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.