Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 43

Morgunblaðið - 22.05.2004, Side 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 43 ✝ Árni Brynjólfs-son fæddist í Reykjavík 25. júní 1934. Hann lést á Ljósheimum Selfossi 15. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Brynjólfur Gíslason, f. 19.3. 1903, d. 21.6. 1983, frá Haugi Gaul- verjabæjarhreppi, veitingamaður á Hót- el Tryggvaskála á Selfossi, og kona hans Kristin Árna- dóttir, f. 6.6. 1901, d. 25.7. 1974, frá Láta- læti í Landsveit, hótelstýra á Hót- el Tryggvaskála. Systur Árna eru Þórunn J. Mogensen, f. 27.10. 1925, maki Helgi Mogensen, f. 13.2. 1918, d. 26.12. 1973; Guðrún Hulda Brynjólfsdóttir, f. 25.9. 1931, maki Árni Sigursteinsson, f. 20.1. 1929; Bryndís Brynjólfsdótt- ir, f. 4.12. 1945, maki Hafsteinn Már Matthíasson, f. 28.1. 1943. Barnsmóðir Árna var Elísabet Guðnadóttir, f. 13.5. 1935, d. 4.9. 1977. Börn þeirra eru: 1) María, f. 1.10. 1951, maki Jóhann Grétar Stephensen, f. 3.10. 1948. Börn þeirra eru Hreinn J., Elísabet Sig- ríður, Hans Ögmundur og Grétar J. María á tvö barnabörn. 2) Ómar Sævar, f. 14.6. 1953, maki Svein- laug Oddný Þórarinsdóttir, f. 19.2. 1949. Fóstursonur Ómars Sævars og sonur Sveinlaugar er Þórarinn Ómarsson. Ómar Sævar á tvö barnabörn. Árni giftist Áslaugu Gísladótt- ur, f. 29.11. 1946. Þau skildu. Dæt- ur þeirra eru: 1) Gyða, f. 30.1. 1965, maki Jón Valgeir Júlíusson, f. 28.12. 1965. Börn Gyðu eru Guðmund- ur Már, Matthías Gísli, Árný Lilja (lát- in), Kolbrún Sif og Hermann Kristinn. Synir Gyðu og Jóns eru Þorvaldur Ágúst og Gunnar Auðunn. 2) Þórunn, f. 13.10. 1966, maki Björn Víkingsson, f. 31.1. 1959. Börn þeirra eru Áslaug Eva, Vík- ingur Þór og Viktor Árni. Sambýliskona Árna til margra ára var Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 4.9. 1933. Börn hennar eru Jóhann og Guð- björg Þóra og uppeldissonur Ingi- bjargar er Haukur Viðar. Árni ólst upp fyrstu ár ævi sinn- ar í Reykjavík. En árið 1942 flutti hann með foreldrum sínum til Sel- foss er þau gerðust veitingamenn í Tryggvaskála. Árni bjó alla sína ævi á Selfossi. Eftir hefðbundið barnaskólanám lá leið hans til Reykjavíkur þar sem hann sótti nám í matreiðslu. Í nokkur ár vann hann sem mat- sveinn á Goðafossi, millilanda- skipi Eimskipafélags Íslands. Næstu ár starfaði hann jöfnum höndum við rekstur Tryggva- skála með foreldrum sínum og vörubifreiðaakstur á Selfossi. Síð- ustu ár starfsævi sinnar vann Árni hin ýmsu störf hjá Selfossbæ, lengst af sem húsvörður í Tryggvaskála. Útför Árna fer fram frá Selfoss- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú ertu farinn, elsku Addi afi, og mig langar til að kveðja þig með örfá- um orðum. Ég veit að síðustu ár þín hafa verið þér erfið þar sem þú áttir við veikindi að stríða. En vonandi líður þér vel á nýjum stað. Margar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til þín, þó aðallega það hvað það fylgdi þér mikið öryggi og mikil hlýja. Ég man er ég var sex ára gömul og lá á Land- spítalanum, þú varðst að sitja yfir mér öllum stundum þar sem ég leyfði þér ekki að fara frá mér, því þegar þú varst nálægt fann maður fyrir svo miklu öryggi. Þú varst ofsalega barngóður og sóttist ég mikið í að fá að vera hjá þér og ömmu á Selfossi. Mér leið alltaf svo vel hjá ykkur. Þið amma ferð- uðust mikið hér innanlands og fékk ég oft að koma með og á ég margar góðar minningar af ferðalögum með ykkur sem ég geymi í hjarta mínu. T.d. þegar við fórum hringinn í kring- um landið eða beyglaða hringinn eins og ég kallaði hann, þú skilur hvað ég á við, því þú ert búinn að stríða mér á þessu síðan ég man eftir mér. Ég kveð þig með söknuði, elsku Addi afi, þín Daðey Ingibjörg. Enginn slítur þau bönd, sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn, en þorpið fer með þér alla leið. (Jón úr Vör.) Við fráfall frænda og æskuvinar, Árna Brynjólfssonar, leitar hugurinn til áranna fyrir miðja síðustu öld þeg- ar við Addi, eins og hann var alltaf kallaður, vorum að alast upp. Við vor- um systrabörn, jafngömul, áttum sömu skírnar- og fermingardaga og vorum leikfélagar flest sumur stríðs- áranna síðari. Svo vildi til að á bernskuheimili mínu í Landsveitinni fékk Kristín móðir Adda til afnota kjallaraher- bergi og dvaldi þar nokkur sumur ásamt börnum sínum. Heimilisfaðir- inn var á þessum árum sjómaður og sigldi með afla til Englands. Þetta voru viðsjárverðir tímar sem við börnin gerðum okkur enga grein fyr- ir en fögnuðum Brynjólfi ákaft þegar hann kom af sjónum færandi hendi. Ævinlega naut ég góðs af eins og hans eigin börn. Í minningunni voru þetta skemmtileg og viðburðarík ár. Nú- tímabörn geta tæpast gert sér í hug- arlund aðstæður okkar. Ekkert raf- magn, sjónvarp, tölvur né mynd- bandstæki. Eitt útvarpstæki sem oft varð að spara að hlusta á vegna þess að það þurfti á aðra bæi til að hlaða „geyminn“. Því var helst hlustað á fréttir, messur og barnatímann. Eng- inn sími og því varð að fara á símstöð sveitarinnar til að komast í símasam- band við frændfólkið í Reykjavík. Það var að sjálfsögðu ekki daglegt brauð. Þrátt fyrir þessar fábrotnu að- stæður áttum við Addi góð og gjöful æskuár í sveitinni. Við fögnuðum hverri árstíð með sínum margbreyti- leika og lærðum að njóta náttúrunn- ar. Breyttir tímar, sumt til hins betra annað síður. Núna sit ég og rifja upp þessar bernskuminningar undir Baðsheiðarhólnum, þegar birki- plönturnar eru að vakna af vetrar- dvalanum, en áður var þar sandur einn og við Addi renndum okkur nokkrar salíbunur á sandsköflunum. Mér finnst sem ég sjá bernskuspor okkar þar sem við röltum á eftir kún- um og ræddum um lífið og tilveruna að hætti barna okkar samtíðar. Að leiðarlokum vil ég þakka Adda frænda mínum og æskuvini fyrir all- ar þessar ljúfu minningar. Blessuð sé minning Árna Brynjólfssonar. Ást- vinum öllum votta ég samúð mína. Hvíl í friði, kæri frændi. Kolbrún Haraldsdóttir. ÁRNI BRYNJÓLFSSON FRÉTTIR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. MIKIL aðsókn hefur verið að Sportbílasýningunni í Laugardals- höll og er áætlað að nú þegar hafi nærri 8 þúsund manns sótt sýn- inguna. Óvenju dýrir og sjaldgæfir sportbílar eru meðal sýning- argripa og má þar nefna Ferrari Enzo, 560 hestafla Porsche Cay- enne, Lamborghini Gallardo, Lotus Elise, svo fátt eitt sé nefnt. Áætlað er að verðmæti bíla á sýningar- svæðinu sé vel yfir 500 milljónir króna. Sýningin er opin í dag frá kl. 11–23 og á morgun á sama tíma en þá lýkur henni. Bílar fyrir hálfan milljarð í höllinni Ljósmynd/Haraldur Þór Stefánsson Rangt föðurnafn Eiríkur Hreinn Helgason, yfirlög- regluþjónn hjá Lögregluskóla rík- isins, var rangfeðraður í frétt blaðs- ins í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Ekki bindiskylda Fyrirsögn fréttar sem birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins á fimmtudaginn gaf til kynna að Seðlabankinn hefði gert breytingar á bindiskyldu íslenskra lánastofn- ana. Hið rétta er að Seðlabankinn er að breyta samningstíma sem gildir um reglulegar markaðsaðgerðir bankans, þ.e. endurhverfi viðskipti og sölu innstæðubréfa í þeim til- gangi að auðvelda lausafjárstýringu bindiskyldra lánastofnana. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. Nýr skáli rís í Tindfjöllum Auk þeirra björgunarsveita sem taldar eru upp í grein í blaðinu sl. fimmtudag um byggingu á nýjum skála í Tindfjöllum, þá mun Flug- björgunarsveitin í Reykjavík einnig sjá um uppbyggingu hins nýja skála. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. LEIÐRÉTT BORIST hefur athugasemd frá verk- takafyrirtækinu Impregilo: „Í Morgunblaðinu kemur fram í viðtali við Þorbjörn Guðmundsson, formann Samiðnar, að aðeins einn trésmiður með réttindi starfi við Kárahnjúka. Þetta er ekki rétt. Við Kárahnjúkavirkjun starfa þónokkrir trésmiðir, flestir útlendingar frá lönd- um innan Evrópska efnahagssvæðis- ins. Þessir einstaklingar hafa öðlast réttindi sem trésmiðir í gegnum starfsnám – þ.e. viðkomandi einstak- lingar hafa unnið við fagið í sex til átta ár undir eftirliti smiðs með öll tilskilin réttindi. Samkvæmt reglum Evrópu- sambandsins nægir starfsnámið til þess að einstaklingar geti unnið sem smiðir. Og það gera þeir nú við Kára- hnjúka. Þetta á einnig við um réttindi annarra iðnaðarmanna sem áður hafa verið til umræðu í fjölmiðlum. Í þessu sambandi vill Impregilo þó árétta að fyrirtækið hefur mikinn áhuga á að ráða til sín íslenska smiði. Séu ís- lenskir smiðir áhugasamir um að starfa hjá Impregilo er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu okkar.“ Impregilo vill ráða íslenska smiði EFTIRFARANDI fréttatilkynning hefur borist frá Útvarpi Sögu ehf.: „Útvarp Saga harmar óviður- kvæmleg ummæli sem féllu á stöð- inni og útvarpað var í þætti Ingva Hrafns Jónssonar um hr. Ólaf Ragn- ar Grímsson, forseta Íslands, mánu- daginn 17. maí sl. Útvarp Saga biður forseta Íslands og embætti hans virðingarfyllst afsökunar á þessum ummælum. Útvarp Saga er lifandi vettvangur fyrir kröftuga þjóðmála- umræðu. Útvarp Saga vill kapp- kosta, að í umræðum á stöðinni um menn og málefni sé gætt þeirrar virðingar og velsæmis, sem stöðu hennar, sem marktæks fjölmiðils, sæmir. Umrædd ummæli féllu, því miður, neðan þessara velsæmis- marka og við biðjum einnig hlust- endur okkar, velunnara og stuðn- ingsaðila afsökunar á því.“ Útvarp Saga harmar ummæli LANDSSAMTÖK lífeyrissjóða hafa sent frá sér yfirlýsingu, þar sem sjónarmiðum Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja um lífeyris- sjóðslán er andmælt. „Bann við lánunum rökstyðja SBV með samanburði við Norðurlöndin sem er óheppilegt að því leyti að þau eru mjög skammt á veg komin hvað lífeyrissparnað áhrærir og hófu ekki sjóðsöfnun með þeim hætti sem þekkist hérlendis fyrr en í byrjun síðasta áratugar svo dæmi sé tekið af Danmörku,“ segir í yfirlýsingu líf- eyrissjóðanna. „Lífeyrissparnaður í Noregi mælist í eins stafs tölu sem hlutfall af landsframleiðslu meðan á Íslandi er hann u.þ.b. 100%. Þannig er eðlilegra að horfa til landa þar sem lífeyrissparnaður er meiri og á sér lengri sögu. Ef horft er til Bandaríkjanna má sjá að CALpers, lífeyrissjóður opinberra starfs- manna Kaliforníuríkis, lánar sjóð- félögum sínum til fasteignakaupa og eru þessar lánveitingar mun um- fangsmeiri en þekkist hérlendis. Á síðustu 13 árum hefur lífeyrissjóður kennara sama ríkis lánað 23.000 sjóðfélögum 2,7 milljarða dollara gegn fasteignaveði.“ Útlánatöp hverfandi Landssamtökin segja að lífeyris- sjóðirnir hafi lánað til sjóðfélaga allt frá stofnun, sumir í hálfa öld eða lengur. „Almennt lána lífeyrissjóð- irnir, og þar með talinn Lífeyrissjóð- ur starfsmanna ríkisins, sjóðfélögum lán með vaxtaálagi á ríkistryggð skuldabréf þannig að aðdróttunum SBV um óheilbrigða viðskiptahætti og fyrirframgreiðslu lífeyris er vísað á bug. Útlánatöp vegna þessara lán- veitinga hafa verið hverfandi og van- skil lítil. Að lánveitingum þessum er staðið með faglegum hætti ekki síður en í bönkunum. Lífeyrissjóðslánin eru því góð viðbót við aðra eignar- flokka í verðbréfasafni lífeyrissjóð- anna,“ segir í yfirlýsingunni. „Það hljóta allir landsmenn að sjá í gegnum látlausan áróður bankanna sem vilja sölsa undir sig alla lána- starfsemi í landinu. Þannig hamast þeir daginn út og inn á starfsemi Íbúðalánasjóðs og nú þarf að henda lífeyrissjóðunum út af veðlánamark- aði. Allar fjölskyldur kunna sögur af lánveitingum bankanna til húsnæðis- mála. Þar var almennt engin lán að finna til fasteignakaupa þar til ný- lega. Staðreyndin er sú að bönkunum leiðist samkeppnin og vilja hafa þennan markað fyrir sig eina. Verð- ur þá fyrst ömurlegt að búa á Íslandi þegar ekki verður hægt að leita fast- eignatryggðra lána víðar en hjá bönkunum. Það er von Landssam- taka lífeyrissjóða að slík staða komi aldrei upp.“ Segja rangt að engin lífeyris- sjóðslán séu veitt erlendis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.