Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ LEIKMENN norsku liðanna verða ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í Manchester-mótinu, gegn Japan og Eng- landi. Keppni í norsku úrvalsdeildinni er í gangi báðar helgarnar, þegar Ísland mæt- ir Japan 30. maí og Englandi 5. júní. Þeir Ólafur Örn Bjarnason, Veigar Páll Gunn- arsson og Gylfi Einarsson eru því úr leik. Þá eru litlar líkur á að Arnar Þór Við- arsson verði með í leikjunum en eiginkona hans á von á barni í vikunni á milli leikj- anna. Helgi Sigurðsson verður ekki með í leiknum gegn Japan, vegna leiks með AGF í dönsku úrvalsdeildinni, en hann á að vera tilbúinn í slaginn gegn Englandi sex dögum síðar. „Fyrir utan þessi frávik eigum við að geta teflt fram okkar sterkasta liði gegn Japan og Englandi. Við stefnum að því að vera með 20 manna hóp í Englandi en það er þó ljóst að ekki geta allir verið með okkur allan tímann. Þeir leikmenn ís- lenskra liða sem verða í hópnum þurfa t.d. að fara heim á milli leikjanna vegna um- ferðar í deildinni hér heima. En að öðru leyti verðum við með 16–18 leikmenn hjá okkur allan tímann, sem er að sjálfsögðu frábært, og það er mjög spennandi að fara í þetta verkefni, bæði vegna leikjanna og þess tíma sem við fáum með leikmönn- unum á milli þeirra,“ sagði Ásgeir Sig- urvinsson landsliðsþjálfari við Morg- unblaðið í gær. ÞeirLogi Ólafsson tilkynna hópinn á mánudag en þeir hafa fylgst mjög náið með landsliðsmönnum Íslands og þeim sem til greina koma í hópinn und- anfarnar vikur, hér heima og erlendis. Enginn frá Noregi með og óvíst um Arnar Þór KRISTJANA Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu í Kópavogi hlaut silfurverðlaun í stökki á alþjóðlegu fimleikamóti, Dityatin Cup, sem fram fór í Rússlandi um síðustu helgi. Hún keppti í unglingaflokki og hafnaði í 21. sæti af 38 keppendum í fjöl- þraut með 32,00 stig, sem er hennar besti árangur, og komst síðan í átta manna úrslitin í stökki. Þar komst Kristjana á verðlaunapallinn eftir geysilega harða keppni. Hún fékk 8,787 stig en sigurvegarinn, Nadezhda Chikhiryova frá Rússlandi, fékk 9,087 stig. Næstar á eftir Kristjönu voru Anna Povolya frá Úkraínu með 8,75 stig og Svetlana Vor- onova frá Rússlandi með 8,725 stig, þannig að munurinn var lítill. Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu var á meðal keppenda í flokki fullorðinna. Hún varð að sleppa gólfæfingum vegna meiðsla og varð í 22. sæti af 24 keppendum, fékk 21,50 stig í þremur greinum, og var með tíunda besta árangurinn á jafnvægisslá, 8,10 stig. Það hefði dugað henni til sjötta sætis í úrslitunum í þeirri grein. Keppendur á mótinu voru 87 frá níu þjóðum. Kristjana Sæunn fékk silfur í Rússlandi Kristjana Sæunn Ólafsdóttir FÓLK  DENNIS Wise, leikmaður og knatt- spyrnustjóri Millwall, hefur átt við meiðsl að stríða og ekki er öruggt að hann spili með liði sínu í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar gegn Man- chester United í dag. Wise mun ekki gera opinbert fyrr en á síðustu stundu hvort hann verður í liðinu eða ekki.  TEDDY Sheringham, einn fræg- asti leikmaðurinn sem komið hefur úr röðum Millwall, segir að ef hans gamla félag sigri Manchester United í dag og hampi enska bikarnum, verði það óvæntasta niðurstaða í úrslitaleik í sögu keppninnar. Sheringham hóf feril sinn með Millwall 17 ára árið 1983 og spilaði með félaginu í átta ár. Hann lék síðan með Manchester United frá 1997 til 2001.  DANNY Dichio, sóknarmaður Mill- wall, missir af úrslitaleiknum í dag þar sem hann tekur út bann. Þá er óvíst að ástralski varnarmaðurinn Kevin Muscat spili með Millwall en hann meiddist á hné þegar lið hans vann Sunderland í undanúrslitum.  TIM Howard, markvörður Man- chester United, skráir nafn sitt í sögu ensku bikarkeppninnar í Cardiff. Hann verður fyrsti bandaríski mark- vörðurinn til að leika bikarúrslitaleik og ef hann fagnar sigri verður hann fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að vera í sigurliði í bikarúrslitaleik.  JOHN Harkes er eini Bandaríkja- maðurinn sem hefur leikið bikarúr- slitaleik. Hann lék með Sheffield United, sem tapaði úrslitaleiknum fyrir Arsenal 1993, 2:1.  TVEIR bandarískir markverðir hafa fagnað sigri í úrslitaleik deild- arbikarkeppninnar á Englandi – Kas- ey Keller með Leicester 1997 og Brad Friedel með Blackburn 2002.  ENSKA knattspyrnufélagið Aston Villa hefur fest kaup á danska lands- liðsmanninum Martin Laursen frá AC Milan fyrir þrjár milljónir punda, tæpar 400 milljónir króna. Laursen hefur leikið 33 landsleiki fyrir Dani og spilar með þeim í lokakeppni Evrópu- mótsins í Portúgal í sumar.  MARCEL Desailly hefur ákveðið að hætta með franska landsliðinu í knattspyrnu í ágúst en þá spilar hann með því vináttulandsleik gegn Ghana. Desailly er orðinn 35 ára og hefur spilað 113 landsleiki fyrir Frakkland. Reiknað er með að hann leiki í eitt ár til viðbótar með Chelsea en þar hefur hann leikið undanfarin sex keppnis- tímabil.  SÖREN Stryger hefur verið út- nefndur handknattleiksmaður ársins í Danmörku. Hornamaðurinn snjalli var í lykilhlutverki hjá danska lands- liðinu sem hlaut bronsverðlaun í Evr- ópukeppninni í vetur og með Flens- burg sem varð þýskur meistari og hafnaði í öðru sæti Meistaradeildar Evrópu. Auk Strygers voru tilnefndir til titilsins þeir Kasper Hvidt, Lars Krogh Jeppesen, Michael Knudsen og Kasper Nielsen. Aðstæður á Hofsstaðavelli vorufrekar erfiðar enda mígandi rigning mest allan leikinn, stífur vindur að sunnan og völlurinn blaut- ur og háll. Leikurinn markaðist nokkuð af þessum aðstæðum og segja má að hann hafi einkennst af mikilli baráttu og það á kostnað knattspyrnunnar. Það litu ekki mörg færi dagsins ljós í fyrri hálfleik en það besta fengu Stjörnumenn þegar Guðjón Baldvinsson skallaði í slána eftir hornspyrnu. Njarðvíkingar urðu hins vegar fyrir áfalli í fyrri hálfleik. Fyrirliðinn Bjarni Sæ- mundsson fór meiddur af velli um hálfleikinn miðjan og sömu leið fór markvörðurinn Friðrik Árnason á 38. mínútu. Hann fékk höfuðhögg og var borinn af leikvelli og þaðan beint með sjúkrabíl á slysadeild til nánari skoðunar. Stjörnumenn voru heldur sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar áttu af og til hættu- legar skyndisóknir. Njarðvíkingar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og Bjarki Guð- mundsson, markvörður Stjörnunn- ar, þurfti að taka á honum stóra sín- um þegar hann varði þrumuskot Guðna Erlendssonar í horn á 52. mínútu en átta mínútum síðar þurfti Bjarki að hirða knöttinn úr neti sínu. Gunnar Sveinsson átti þá hörkuskot að marki Stjörnunnar, Bjarki varði en Alfreð Jóhannsson náði frákast- inu og skoraði með kollspyrnu framhjá Bjarka. Njarðvíkingum tókst að halda fengnum hlut það sem eftir lifði leiksins en vörn þeirra var mjög föst fyrir og náðu Garðbæingar ekkert að ógna marki þeirra í síðari hálfleik. Mihaljo Bibercic, sá erlendi leikmaður sem flest mörk hefur skorað í efstu deild, fékk að spreyta sig síðasta hálftímann en honum varð lítt ágengt . Aftasta varnarlína Njarðvíkinga var geysiöflug með þá Jón Fannar Guðmundsson og Einar Oddsson sem bestu menn, Milan Janosevic lét vel til sín taka á miðjunni og Alfreð Jóhannsson hélt varnarmönnum Stjörnunnar við efnið allan leikinn. Guðjón Baldvinsson var einna sprækastur í liði Stjörnunnar sem var annars mjög bitlítið. Maður leiksins: Jón Fannar Guð- mundsson, Njarðvík. Njarðvík í topp- sætið NJARÐVÍKINGAR tróna einir á toppi 1. deildar karla í knatt- spyrnu eftir 1:0 sigur á Stjörnu- mönnum í gærkvöldi. Njarðvík hefur unnið báða leiki sína á mótinu, en þeir tóku Blika í bak- aríið í fyrstu umferðinni, en Stjörnumenn náðu hins vegar ekki að fylgja eftir góðum sigri á Haukunum sem þeir lögðu í fyrsta leik sínum. Guðmundur Hilmarsson skrifar Leikmenn áttu í vandræðum meðað fóta sig á rennblautum vell- inum en fljótlega náðu heimamenn undirtökunum. Það var samt ekki mikið um færi fyrir hlé og öllu voru þau Blika en Ásmundur Gísla- son, markvörður Völsungs, stóð fyrir sínu. Síðari hálfleikur var fjörugri og á 51. mínútu kom Gunnar Örn Jóns- son, Breiðabliki, í 1:0. Enn sóttu Blik- ar en Ásmundur varði oft mjög vel, sá þó ekki við Kristjáni Óla Sigurðssyni sem skoraði með hnitmiðuðu skoti á 62. mínútu. Á 70. mínútu fékk Breiða- blik vítaspyrnu en Ásmundur varði frá Hreiðari. Síðan virtust heima- menn sáttir við stöðuna, slökuðu mik- ið á og Baldur minnkaði muninn. Það virtist ekki hrista slenið af Blikum því á 85. mínútu slapp Hermann Aðal- geirsson í gegnum vörn Blika en Páll Gísli Jónsson, markvörður Blika, sá við honum. „Við þurftum að hafa gríðarlega mikið fyrir þessu,“ sagði Bjarni Jó- hannsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn. „Við vorum miklu betri allann leikinn en alger óþarfi að hleypa þeim inn í leikinn,“ bætti Bjarni við, sáttur við að fá loks stig. „Ég er mjög ánægður með sigurinn því við fengum skell í fyrsta leik og það tekur tíma að koma sálartetrinu í lag eftir slíkt. Þessi leikur var skref fram á við en þessi deild er miklu sterkari en ég átti von á auk þess að það er mjög lítill munur á liðum. Það sást best á þessu mjög svo efnilega liði Völsungs að þeir bitu heldur betur frá sér þegar þeir fengu þefinn af því að geta náð í stig.“ Kristján Óli, Pétur, Gunnar Örn og Kristófer Sigurgeirsson voru best- ir hjá Breiðabliki. „Við spiluðum ekki eins og við ætluðum okkur,“ sagði Ás- mundur, makvörður Völsungs, eftir leikinn. „Aðstæður voru erfiðar fyrir bæði lið en við buðum upp á að leik- urinn þróaðist svona. Við ætluðum að sleppa inn í hálfleik án marks en bættum ekki nógu við í seinni hálfleik og Blikar fengu þessi frekar ódýru mörk,“ bætti markvörðurinn við og hefur trú á sínum mönnum. „Mótið leggst annars vel í mig, við eigum fullt erindi í þessa deild og ég tel að út- komuna í kvöld megi skrifa á andlegu hliðinu en við eigum nóg af góðum strákum.“ Ásamt Ásmundi voru Baldur og Hermann góðir. Völsungar verða ekki dæmdir af þessum leik en sýndu í lokin að þeir kunna sitthvað fyrir sér. Maður leiksins: Ásmundur Gísla- son, Völsungi. Morgunblaðið/ÞÖK Sverrir Sverrisson, Blikum, í baráttunni við leikmann Völsungs. Blikar sluppu með skrekkinn BLIKAR sluppu með skrekkinn þegar þeir fengu Völsung í heimsókn í Kópavoginn í gærkvöldi því þó að þeir réðu lögum og lofum slök- uðu þeir heldur of mikið á klónni í lokin með tveggja marka forskot en Völsungum tókst aðeins að minnka muninn í 2:1. Sigurinn er Blikum kærkominn eftir 4:0 skell gegn Njarðvík í fyrstu umferð. Stefán Stefánsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.