Morgunblaðið - 22.05.2004, Page 54
ÍÞRÓTTIR
54 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
BJARNI Guðjónsson gerir ekki ráð fyrir því að
leika áfram með Coventry í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu. Hann snýr aftur til Bochum í
Þýskalandi að loknu sumarfríi en hann var í láni
hjá enska félaginu frá því í lok janúar og út tíma-
bilið.
„Coventry bauð mér samning en ég hafnaði
honum og er því á leið aftur til Þýskalands. Mér
leið mjög vel hjá félaginu og það var gaman að
spila með því, en fjárhagsleg staða þess er erfið
og ég sé ekki að það gangi upp. Ég er leikmaður
Bochum og á tvö ár eftir af samningnum þar, og
fer þangað þegar æfingar hefjast á ný til að berj-
ast fyrir mínu sæti,“ sagði Bjarni við Morg-
unblaðið í gær.
Eins og áður hefur komið fram, gera for-
ráðamenn Coventry sér góðar vonir um að fá
Bjarna til sín en honum gekk mjög vel með liðinu
og naut vinsælda meðal stuðningsmanna þess.
Bjarni fer aftur
til Bochum
FORSVARSMENN norska úrvalsdeildarliðsins Viking í
knattspyrnu eru í viðræðum við enska þjálfarann Roy
Hodgson um að taka við þjálfun liðsins en íslenski framherj-
inn Hannes Þ. Sigurðsson leikur með liðinu. Hodgson var á
meðal áhorfenda er liðið tók á móti Odd/Grenland hinn 16.
maí sl., en hann hefur komið víða við sem þjálfari. Hodgson
þjálfaði m.a. Inter frá Mílanó, svissneska landsliðið á heims-
meistaramótinu 1994 í Bandaríkjunum og á EM 1996 á Eng-
landi. Hodgson var knattspyrnustjóri Blackburn á Englandi
1997–1999, landsliðsþjálfari Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna 1999–2000 og Udinese á Ítalíu 2000–2002, en
hann hefur einnig þjálfað danska liðið Köbenhavn og
sænska liðið Malmö FF. Ole Rugland, formaður Viking, seg-
ir við norsku sjónvarpsstöðina TV2 að viðræðurnar séu
komnar langt á veg og Hodgson sé spenntur fyrir verkefn-
inu.
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham Hotspur hefur einnig
sýnt því áhuga að Hodgson taki við sem knattspyrnustjóri
liðsins á næstu leiktíð.
Hodgson í viðræðum
við Viking
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeildin:
Fylkisvöllur: Fylkir - FH ..........................17
3. deild karla B-riðill:
Torfnesvöllur: BÍ - ÍH ...............................17
Sandgerði: Reynir S. - Drangur................17
1. deild kvenna B-riðill:
ÍR-völlur: ÍR - Fylkir.................................11
Sunnudagur:
Efsta deild kvenna, Landsbankadeildin:
Hlíðarendi: Valur - KR ..............................16
Fjölnisvöllur: Fjölnir - Stjarnan...............16
Kópavogur: Breiðablik - Þór/KA/KS .......16
2. deild karla:
Garður: Víðir - KFS ...................................15
Varmá: Afturelding Leiftur/Dalvík..........16
Leiknisvöllur: Leiknir R. - KS. .................16
ÍR-völlur: ÍR - Tindastóll ..........................16
Ólafsvík: Víkingur Ó. - Selfoss ..................16
3. deild karla B-riðill:
Skeiðisvöllur: Bolungarvík - ÍH................14
3. deild karla C-riðill:
Húsavík: Boltaf. Húsavíkur - Hvöt...........16
Hofsós: Neisti H. - Snörtur .......................16
3. deild karla D-riðill:
Djúpivogur: Neisti D. - Einherji...............16
Mánudagur:
Efsta deild kvenna, Landsbankadeildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV - FH..........................20
3. deild karla A-riðill:
Selfoss: Árborg - Skallagrímur.................20
Tungubakkav.: Deiglan - Freyr................20
Gróttuvöllur: Grótta - Númi......................20
3. deild karla B-riðill:
Þorlákshöfn: Hamar - Ægir ......................20
3. deild karla C-riðill:
Árskógsvöllur: Reynir Á. - GKS ...............20
3. deild karla D-riðill:
Vilhjálmsvöllur: Höttur - Leiknir F. ........20
Eskifj.: Fjarðabyggð - Huginn .................20
1. deild kvenna A-riðill:
Bessastaðav.: UMF Bess. - HK/Vík. ........20
UM HELGINA
Liðin þreifuðu fyrirsér í upphafi leiks,
voru álíka mikið með
boltann
og
sköp-
uðu sér
engin
færi. Valsmenn komust
yfir þegar korter var
liðið af leiknum, Hálf-
dán Gíslason fékk
sendingu inn fyrir vörn
HK, lék að vítateigslín-
unni og skaut knettinum óverjandi
í vinstra hornið. Leikmenn HK
komust vart fram yfir miðju, en
þegar líða tók að leikhléi komust
gestirnir betur inn í leikinn og
skömmu áður en flautað var til
hálfleiks tókst Gísla Frey Ólafssyni
að jafna metin með fyrsta skoti HK
í leiknum. Hann fékk knöttinn við
vítateigslínuna og skoraði glæsi-
legt mark með skoti í bláhorn Vals-
marksins. Njáll Eiðs-
son, þjálfari Vals,
gerði breytingu á liði
Vals í hálfleik, setti
Þórhall Hinriksson,
sem byrjaði leikinn á
varamannabekknum,
inn á miðjuna. Þessar
breyting skilaði sér
því Valur hafði öll tök
í seinni hálfleik. Á 53.
mínútu komst Baldur
Aðalsteinsson inn í
sendingu Gunnleifs
Gunnleifssonar, markmanns HK,
lék að markinu og skaut, Gunn-
leifur varði knöttinn, en Árni Pét-
ursson náði frákastinu og kom Val
yfir. Leikmenn HK sáu vart til sól-
ar það sem eftir var af leiknum. Jó-
hann Möller kafsigldi gestina með
tveimur mörkum með mínútu milli-
bili þegar um korter var liðið af
seinni hálfleik. Fyrra markið skor-
aði hann þegar hann fékk frákast
eftir skot Baldurs og það síðara
eftir að hann slapp einn inn fyrir
sofandi vörn HK.
Sigurbjörn Hreiðarsson setti svo
lokapunktinn þegar korter yfir
stórsigur Vals með síðasta marki
leiksins.
Eins og áður sagði buðu aðstæð-
ur í gærkvöldi ekki upp á skemmti-
lega knattspyrnu. Menn hikuðu
ekki við að renna sér í tæklingar á
rennandi blautum vellinum og urðu
þrír leikmenn að fara út af vegna
meiðsla. Sigurbjörn og Jóhann áttu
prýðilegan leik fyrir heimamenn og
Þórhallur átti mjög góða innkomu
á miðjuna í seinni hálfleik. Liðs-
menn HK vilja örugglega gleyma
þessum leik sem fyrst. Gunnleifur
Gunnleifsson varði nokkrum sinn-
um vel en það dugði engan veginn
til.
Njáll sáttur við leik sinna manna
í seinni hálfleik: „Við vorum lélegir
seinni helming fyrri hálfleiks. Í
seinni hálfleik spiluðum við bolt-
anum með færri snertingum og
meiri hreyfingu og vorum beittari
á allan hátt, höfðum meiri trú á
okkur“.
Maður leiksins: Jóhann Möller,
Val.
Valur valtaði yfir
HK á Hlíðarenda
VALSMENN unnu stórsigur á HK á Hlíðarendar í gærkvöldi. Leikið
var í rigningu og strekkingi sem setti mikinn svip á leikinn sem fyrir
vikið var lítið fyrir augað. Leikmenn áttu í miklum vandræðum með
að hemja boltann og sjálfa sig á rennblautum vellinum. Jafnræði
var á með liðunum í fyrri hálfleik en Valsmenn blésu til stórsóknar í
seinni hálfleik og uppskáru fjögur mörk og samtals 5:1-sigur.
Benedikt
Rafn Rafnsson
skrifar
Nj́áll Eiðsson
Fjölnismenn mættu hálfsofandi tilleiks í þessum fyrsta heimaleik
félagsins í 1. deild karla og sluppu oft
með skrekkinn á
fyrsta korterinu.
Sævar fékk fjölmörg
færi á þeim kafla en
tókst ekki að nýta
þau. Blaðamaður taldi þá ein fjögur
markskot hans, auk þess sem Sævar
vildi fá vítaspyrnu á 5. mínútu, en
fékk í staðinn gult spjald hjá Leikni
Ágústssyni dómara fyrir meintan
leikaraskap. Erfitt var að dæma um
þá ákvörðun að frá sjónarhorni und-
irritaðs en hins vegar hefði Leiknir
átt að reka Haukamanninn Jón
Gunnar Gunnarsson af velli um miðj-
an fyrri hálfleikinn, er hann gaf
Gunnari Val Gunnarssyni olnboga-
skot. Smám saman komust Fjölnis-
menn inn í leikinn og voru farnir að
pressa Haukana vel undir lok fyrri
hálfleiks. Besta færi heimamanna
kom eftir um hálftíma leik þegar
miðjumaðurinn efnilegi Ívar Björns-
son slapp inn fyrir vörnina, en Val-
þór Halldórsson gerði vel í að verja
skot hans í horn. Fyrsta mark Fjöln-
is í 1. deild kom á 57. mínútu þegar
Davíð Rúnarsson sendi boltann í op-
ið markið eftir fyrirgjöf frá Ragnari
Sverrissyni. Í stöðunni 1:0 var
miðjumanninum Einari Einarssyni
skipt út af hjá Fjölni og missti liðið
jafnvægið milli miðju og sóknar við
það. Á 75. mínútu jafnaði Sævar met-
in er hann stakk sér inn fyrir vörnina
og tókst loksins að brjóta ísinn. Ungt
lið Fjölnis vankaðist við þetta og
rankaði við sér um mínútu síðar er
Goran Lukic var búinn að koma
Haukum yfir 1:2 með skoti af stuttu
færi, eftir sendingu varamannsins
Róberts Óla Skúlasonar. Á lokamín-
útum leiksins bætti Sævar við tveim-
ur mörkum. Fyrst úr vítaspyrnu á
88. mínútu eftir að Kristján Ómar
Björnsson var felldur, 1:3. Síðasta
markið kom svo í uppbótartíma þeg-
ar títtnefndur Sævar afgreiddi
knöttinn snyrtilega í netið eftir fyr-
irgjöf frá varamanninum Arnari
Steinari Einarssyni.
Góð uppskera hjá Haukum sem
nældu í sín fyrstu stig í sumar en
hins vegar vonbrigði fyrir unga leik-
menn Fjölnis sem léku ágætlega um
miðbik leiksins. Hins vegar væri
ósanngjarnt að reyna að dæma liðin
af þessum leik, þar sem hann fór
fram við erfiðar aðstæður, þ.e. í roki
og rigningu.
Maður leiksins: Sævar Eyjólfsson,
Haukum.
Þrenna hjá Sævari
á fimmtán mínútum
NÝLIÐAR Fjölnis í Grafarvogi eru án stiga í 1. deild karla eftir slæm-
an skell gegn Haukum á heimavelli í gærkvöldi 1:4. Sóknarmað-
urinn snöggi Sævar Eyjólfsson reyndist þeim erfiður og skoraði
þrennu á síðasta korteri leiksins fyrir gestina úr Hafnarfirði. Töl-
urnar gefa ekki alveg rétta mynd af leiknum þar sem heimamenn
komust yfir í upphafi síðari hálfleiks og gestirnir jöfnuðu ekki fyrr
en er fimmtán mínútur lifðu af leiknum.
Kristján
Jónsson
skrifar
Eftir afar leiðinlegan fyrri hálfleiklifnaði nokkuð yfir leiknum og
liðin fóru að skapa sér færi. Þrótt-
arar fengu dauða-
færi snemma en Atli
Rúnarsson varði frá-
bærlega og á eftir
fylgdi skot sem fór
framhjá nánast opnu marki Þórs.
Um miðjan seinni hálfleik komust
Þórsarar yfir með skrautlegu marki
sem skrifast algjörlega á Stefán
Magnússon, markvörð Þróttara.
Hann var eitthvað að gaufa með bolt-
ann og rak tána í hann svo hann
barst til Gambíumannsins Ibra
Jagne sem gat ekki annað en skorað.
Þór bætti svo öðru marki við á 85.
mínútu en þá skoraði Hallgrímur
Jónasson auðveldega eftir frábæran
undirbúning Skotans Lee Sharkey.
Þróttarar fengu sín færi en Atli varði
þrívegis mjög vel frá þeim. Páll Ein-
arsson vildi fá víti í stöðunni 0:0 en
uppskar aðeins gult spjald. Í lokin
skoraði svo Sören Hermansen mark
sem var dæmt af sökum rangstöðu
og var ólán Þróttara þar með full-
komnað því markið virtist vera lög-
legt.
Leikur liðanna var ekki glæsileg-
ur og hafa bæði lið margt að lagfæra
fyrir næsta leik. Baráttan var í fyrr-
irrúmi en sendingar oft mjög slæm-
ar. Þó verður að segjast að síðari
hálfleikur var ágætlega spilaður en
bæði lið eiga eflaust mikið inni og
geta á góðum degi sýnt fína knatt-
spyrnu.
Maður leiksins: Atli Már Rúnars-
son, Þór.
Góður
Þórssigur
ÞÓRSARAR frá Akureyri unnu
Þrótt 2:0 fyrir norðan í gær-
kvöldi. Leikurinn var jafn allan
tímann en Þórsarar nýttu þau
fáu færi sem þeir fengu og það
gerði gæfumuninn.
Einar
Sigtryggsson
skrifar
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
Víkingur – KA .......................................0:1
– Atli Sveinn Þórarinsson 47.
Staðan:
Keflavík 2 2 0 0 5:2 6
Fram 2 1 1 0 4:1 4
FH 1 1 0 0 1:0 3
KA 2 1 0 1 2:2 3
ÍBV 2 0 2 0 2:2 2
Grindavík 2 0 2 0 1:1 2
ÍA 2 0 2 0 1:1 2
Fylkir 1 0 1 0 1:1 1
KR 2 0 0 2 1:4 0
Víkingur R. 2 0 0 2 0:4 0
1. deild karla
Þór – Þróttur R. ................................... 2:0
Ibra Jagne 71., Hallgrímur Jónasson 85.
Valur – HK.............................................5:1
Hálfdán Gíslason (16.), Árni Pétursson
(53.), Jóhann Möller (58., 59.), Sigurbjörn
Hreiðarsson (75.) – Gísli Freyr Ólafsson
(45.).
Fjölnir – Haukar ...................................1:4
Davíð Rúnarsson (57.) – Sævar Eyjólfs-
son (75., 88. (víti), 90.), Goran Lukic (76.)
Stjarnan – Njarðvík ............................. 0:1
– Alfreð Jóhannsson 60.
Breiðablik – Völsungur ........................2:1
Gunnar Örn Jónsson (51.), Kristján Óli
Sigurðsson (60.) – Baldur Sigurðsson
(76.)
Staðan:
Njarðvík 2 2 0 0 5:0 6
Valur 2 1 1 0 6:2 4
Þór 2 1 1 0 3:1 4
Haukar 2 1 0 1 5:4 3
Stjarnan 2 1 0 1 3:2 3
Breiðablik 2 1 0 1 2:5 3
HK 2 1 0 1 2:5 3
Völsungur 2 0 1 1 1:2 1
Þróttur R. 2 0 1 1 0:2 1
Fjölnir 2 0 0 2 1:5 0
Vináttulandsleikur
Ástralía – Tyrkland ............................. 1:3
Marco Bresciano 49. (víti) – Hakan Sükür
69., 85., Umit Ozat 42. – 28.326.
Frakkland
Bordeaux – Mónakó .............................. 1:3
HANDKNATTLEIKUR
Túnis – Ísland 30:28
Antwerpen, Belgíu, Flanders Cup, alþjóð-
legt mót karlalandsliða, föstudaginn 21.
maí:
Mörk Íslands: Ásgeir Örn Hallgrímsson
10, Arnór Atlason 6, Kristján Andrésson
4, Sturla Ásgeirsson 2, Bjarni Fritzson 2,
Róbert Gunnarsson 2, Ingimundur Ingi-
mundarsson 2, Vignir Svavarsson 1, Ein-
ar Hólmgeirsson 1.
Ísland – Grikkland ............................29:15
Undankeppni EM 18 ára landsliða í
Makedóníu:
Markahæstir: Ernir Hrafn Arnarson 8,
Fannar Friðgeirsson 5, Gunnar Harðar-
son 5.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Austurdeild, undanúrslit:
Detroit – New Jersey........................ 90:69
Detroit sigraði 4:3 og mætir Indiana í
úrslitum Austurdeildar.