Morgunblaðið - 22.05.2004, Síða 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 55
SVONA getur fótboltinn verið. Það
vorum við sem réðum gangi leiksins
frá upphafi til enda, sköpuðum okk-
ur færi en stöndum uppi með ekk-
ert stig,“ sagði Sigurður Jónsson,
þjálfari nýliða Víkings, í gær eftir
1:0 tap liðsins gegn KA á Víkings-
velli í gær.
Víkingar hafa nú tapað báðum
leikjum sínum í Landsbankadeild-
inni til þessa en Sigurður var sam-
mála því að allt annar bragur hefði
verið á leik liðsins gegn KA en gegn
Fram í fyrstu umferð þar sem að
Víkingar fengu þrjú mörk á sig í
fyrri hálfleik.
„Við sundurspiluðum KA, yfir-
burðalið, unnum flest einvígi úti á
vellinum, baráttan var gríðarlega
góð. En þeir fá eitt færi sem þeir
nýta og þar við sat. Ég er hins veg-
ar mjög stoltur af mínu liði og við
getum tekið marga jákvæða hluti
með okkur í næsta leik,“ sagði Sig-
urður og gat ekki leynt vonbrigðum
sínum með naumt tap í fyrsta
heimaleik liðsins á leiktíðinni.
„Íþróttir geta stundum verið
ósanngjarnar. Við eigum gríð-
arlega mörg góð færi, skot í slá og
stöng, markvörður þeirra varði á
línu og svona gæti ég haldið lengi
áfram. En það þarf stundum heppn-
ina með sér í lið, og ég er sann-
færður um að svo verður í næstu
leikjum. Ef við tökum upp þráðinn í
næsta leik þá hef ég engar áhyggj-
ur af framhaldinu,“ sagði Sigurður.
„Við réðum gangi leiksins
frá upphafi til enda“
FÓLK
MAGNÚS Lárusson, kylfingur úr
GKj, er í fjórða sæti á Opna skoska
meistaramótinu eftir fyrsta dag, lék á
66 höggum í gær en besta skor var 64
högg. Pétur Ó. Sigurðsson úr GR lék
á 74 höggum, Sigmundur E. Másson,
GKG, á 76 og Ottó Sigurðsson á 77.
TINNA Jóhannsdóttir, GK, og
María Ósk Jónsdóttir, GA, léku
fyrsta hringinn á Swedban unglinga-
mótinu í golfi í Svíþjóð í gær á 76
höggum og eru vel fyrir ofan miðjan
hóp. Arna Rún Oddsdóttir, GH, lék á
87 höggum og Sunna Sævarsdóttir,
GA, var á 100 höggum.
ÍSLENSKU unglingalandsliðin í
körfuknattleik unnu þrjá sigra á
Finnum í gær en töpuðu einum. Bæði
karlaliðin unnu og yngra kvennaliðið.
HELENA Sverrisdóttir fór á kost-
um í 92:81 sigri yngra kvennaliðsins
og gerði 46 stig. Yngra lið karla vann
68:64 í hörkuleik og gerði Brynjar
Björnsson 20 stig. Eldra karlaliðið
vann sinn leik og tryggði sér sæti í úr-
slitaleiknum á sunnudaginn. U-18 lið
kvenna tapaði 83:59.
TONY Pulis, knattspyrnustjóri
Stoke, tilkynnti í gær, að Stoke
myndi leika við Roma í sumar – þegar
bæði liðin verða í æfingabúðum í
Austurríki, þar sem þau dveljast á
sama hóteli. Nú er verið að skipu-
leggja ferðir til Austurríki með
stuðningsmenn Stoke – á leikinn.
MORATTI hefur trú á því að Arg-
entínumaðurinn Sebastian Veron
hjá Chelsea sé tilbúinn að koma til
Inter ef Roberto Mancini verði þjálf-
ari, þar sem þeir hafa leikið saman hjá
Lazio og eru góðir vinir.
VLADIMIR Rivero Hernández frá
Kúbu, markvörður spænska hand-
knattleiksliðsins Portland, er orðinn
ungverskur ríkisborgari. Hann getur
þar með leikið fyrir hönd Ungverja-
lands eins og tveir landar hans hafa
gert síðustu ár, þeir Carlos Perez og
Ivo Diaz. Hernández, sem er tæplega
tveggja metra hár, hefur spilað 191
landsleik fyrir Kúbu og lék áður með
ungversku liðunum Nyiregyhaza og
Dunaferr.
HIDETOSHI Nakata, fyrirliði Jap-
ans og leikmaður með Bologna á Ítal-
íu, sem hefur ekki leikið síðustu þrjá
leiki Japans vegna meiðsla, verður
ekki orðinn góður þegar Ísland og
Japan mætast í Manchester 30. maí,
að sögn Brasilíumannsins Zico, sem
er landsliðsþjálfari Japans.
ZICO hefur valið landsliðshóp sinn
og leika flestir leikmenn japanska
liðsins með liðum í Japan. Nokkrir
leika með liðum í Evrópu, eins og
miðjumennirnir Junichi Inamoto,
Fulham, Shinji Ono, Feyenoord og
Shunsuke Nakamura, Reggina á
Ítalíu. Sóknarmennirnir Atsushi
Yanagisawa, Sampdoria, Naohiro
Takahara, Hamburger SV og Tak-
ayuki Suzuki, Huesden Zolder í
Belgíu.
Aðstæður á Víkingsvelli voruekki upp á það besta, það
rigndi frá upphafi til enda og KA
lék undan vindinum
í fyrri hálfleik. Vík-
ingar voru greini-
lega staðráðnir í að
endurtaka ekki upp-
hafsmínúturnar frá því í fyrsta leik
liðsins gegn Fram þar sem liðið
fékk á sig tvö mörk í upphafi leiks.
Tóninn var gefinn strax í upphafi og
Vilhjálmur Vilhjálmsson tók auka-
spyrnu strax á fyrstu mínútu og
þrumaði að marki KA. Aukaspyrnur
Vilhjálms er gríðarlega fastar og á
hann örugglega eftir að finna leiðir
framhjá varnarvegg og markverði í
leikjum sumarsins, en í þessum leik
tókst honum það ekki.
Víkingar voru fastir fyrir í vörn-
inni og voru með yfirburði á mið-
svæðinu í upphafi leiksins og Daníel
Hjaltason var nálægt því að opna
markareikning Víkinga á 10. mínútu
er skot hans small í stöng eftir lipra
sókn heimamanna. Boltinn hrökk af
varnarmanni KA og átti Sondor
Matus markvörður aldrei möguleika
á að verja skotið.
Sondor var hins vegar vel á verði
augnabliki síðar er Grétar Sigfinnur
Sigurðsson skallaði af miklu afli að
marki KA, boltinn fór í háum sveig
yfir varnarmenn KA og stefndi í
fjærhornið. Sondor varði hins vegar
gríðarlega vel og bjargaði því sem
bjargað varð.
KA menn náðu vart að ógna
marki Víkinga í fyrri hálfleik þar
sem vörn heimamanna gaf fá færi á
sér.
Vilhjálmur tók aukaspyrnu fyrir
Víkinga á 43. mínútu, skot hans var
að venju bylmingsfast, boltinn fór í
þverslána, þaðan í jörðina og út.
Víkingar vildi meina að boltinn
hefði farið yfir marklínuna en Egill
Már Markússon, dómari leiksins,
var vel staðsettur og viss í sinni sök.
Áhorfendur voru vart búnir að
tylla sér í upphafi síðari hálfleiks
þegar Atli Sveinn Þórarinsson,
varnarmaður KA, skoraði markið
sem tryggði gestunum sigur. Vel að
verki staðið hjá Hreini Hringssyni
sem gaf knöttinn fyrir markið þar
sem Atli skallaði af gríðarlegum
krafti í fjærhornið.
Víkingar brettu upp ermarnar
eftir markið og sóttu enn frekar í
sig veðrið. Skömmu eftir markið
fékk Steinþór Gíslason, varnarmað-
ur Víkinga, gott færi en hitti bolt-
ann afar illa frá markteig.
Söguþráður leiksins var sá sami í
síðari hálfleik, Víkingar sóttu án af-
láts en náðu ekki að skora.
KA getur vel við unað að hafa náð
í þrjú stig í Víkinni í gær. Varn-
armenn liðsins höfðu í nógu að snú-
ast, mörg einvígi á miðsvæðinu töp-
uðust og framlínumennirnir Jóhann
Þórhallsson, Hreinn Hringsson og
Dean Martin fengu ekki mörg færi
til þess að vinna úr. Sandor mark-
vörður virkaði óöruggur á stundum
en varði vel þegar á hann reyndi.
Leikmenn Víkings geta nagað sig
í handarbökin fram að næsta leik
fyrir að hafa ekki komið boltanum í
netið.
Vörnin var vel skipulögð, miðju-
mennirnir höfðu undirtökin á mið-
svæðinu og sóknarmenn liðsins létu
mikið að sér kveða. Vilhjálmur var
gríðarlega sterkur á miðsvæðinu
ásamt Sigursteini Gíslasyni, og í
vörninni var Sölvi Geir Ottesen
Jónsson kóngur í ríki sínu. En það
hrökk ekki til hjá nýliðunum að
þessu sinni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Atli Sveinn Þórarinsson skallar hér frá marki KA en Grétar S. Sigurðsson reynir sitt
besta. Kristján E. Örnólfsson er við öllu búinn.
ÞAÐ er ekki oft sem að ég
fer fram fyrir miðju og það
var ljúft að sjá boltann í net-
inu. Þetta var bara gott mark
og mikilvægt fyrir okkur að
ná í þrjú stig eftir tapleikinn
gegn Keflavík,“ sagði Atli
Sveinn Þórarinsson, varn-
armaður KA, sem skoraði
eina mark leiksins gegn Vík-
ing í upphafi síðari hálfleiks.
„Í leiknum gegn Keflavík
sköpuðum við okkur fleiri
færi en töpum 2:1, í þessum
leik snerust hlutverkin við.
Vissulega vorum við stál-
heppnir að fá ekki á okkur
mörk en hlutirnir féllu okkar
megin að þessu sinni,“ sagði
Atli.
„Við vor-
um stál-
heppnir“
Lánleysi
Víkinga
EF HÆGT er að tala um heppni í íþróttum voru nýliðar Víkings ekki
með „lukkudísirnar“ í sínu liði í gærkvöld er KA frá Akureyri sótti
Reykjavíkurliðið heim í Fossvoginn. Sóknarlotur Víkinga voru mun
fleiri en sóknir gestanna, en eina mark leiksins skoraði varnarmað-
urinn Atli Sveinn Þórarinsson í upphafi síðari hálfleiks og nægði
það til þess að KA fór með stigin þrjú með í farteskinu norður yfir
heiðar í gær. Uppskera Víkinga er rýr eftir tvær umferðir, ekkert stig
en miðað við leik liðsins í gær býr mikið í leikmönnum liðsins sem
gætu gert góða hluti í sumar.
Sigurð Elvar
Þórólfsson
skrifar
Víkingur R. 0:1 KA
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeild karla,
2. umferð
Víkingsvöllur
Föstudaginn 21. maí 2004
Aðstæður:
Rigningarsuddi, rok, góður
völlur og hiti um 9 stig.
Áhorfendur: Um 700.
Dómari:
Egill Már Markússon,
Grótta, 5
Aðstoðardómarar:
Ólafur Ragnarsson,
Pjetur Sigurðsson
Skot á mark: 13(8) - 4(3)
Hornspyrnur: 9 - 3
Rangstöður: 0 - 2
Leikskipulag: 4-3-3
Martin Trancík M
Höskuldur Eiríksson
Sölvi Geir Ottesen M
Þorri Ólafsson M
Steinþór Gíslason
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson MM
Sigursteinn Gíslason M
(Þorvaldur M. Guðmundsson 80.)
Kári Árnason M
Egill Atlason
(Stefán Örn Arnarson 87.)
Grétar Sigfinnur Sigurðarson M
Daníel Hjaltason
Sándor Matus M
Steinn V. Gunnarsson M
Atli Sveinn Þórarinsson M
Ronni Hartvig
Óli Þór Birgisson M
Örn Kató Hauksson M
Pálmi Rafn Pálmason
Kristján Elí Örnólfsson
Dean Martin
Jóhann Þórhallsson M
Hreinn Hringsson
(Steingrímur Örn Eiðsson 82.)
0:1 (47.) Hreinn Hringsson tók hornspyrnu frá vinstri, Víkingar skölluðu frá
marki þar sem að Hreinn tók við boltanum á ný, gaf fyrir markið þar
sem að Atli Sveinn Þórarinsson kom aðvífandi og skallaði boltann af
miklu afli í fjærhornið úr miðjum vítateig. Glæsilegt mark!
Gul spjöld: Sölvi Geir Ottesen, Víkingur R. (34.) fyrir brot. Haukur Armin Úlfarsson, Vík-
ingur R. (42.) fyrir brot. Jóhann Þórhallsson, KA (51.) fyrir leikaraskap.
Þorri Ólafsson, Víkingur R. (55.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin