Morgunblaðið - 22.05.2004, Síða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 57
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og eiginkona hans,
Dorrit Moussaieff, efndu í gær-
kvöldi til móttöku á Bessastöðum í
tilefni af Listahátíð í Reykjavík sem
stendur yfir þessa dagana. Til mót-
tökunnar var boðið gestum og að-
standendum hátíðarinnar.
Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, heilsar for-
setanum, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Borgarleikhússtjóri, Guðjón Pedersen, mætti einnig.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, heilsar
menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Móttaka
vegna
Listahátíðar
Týnda byssan
(The Missing Gun / Xun qiang)
Spennumynd
Kína 2002. Skífan. VHS (90 mín.) Bönn-
uð yngri en 16 ára. Leikstjóri: Lu Chuan.
Aðalleikarar: Jiang Wen, Ning Jing, Wu
Yujuan, Liu Xiaoning, Shi Liang, Wei
Xiaoping.
NÚTÍMINN og raunsæið hefur
ekki verið fyrirferðarmikið yrkisefni í
þeim kínversku kvikmyndum sem
hingað hafa borist. Má vera að að það
þyki ekki eftirsóknarverð útflutnings-
vara, bardaga- og/eða búningamyndir
mun vænlegri kost-
ur. Hvað um það,
innihald Týndu
byssunnar kemur
óvenju kunnuglega
fyrir sjónir, fjallar
um hversdagsraun-
ir lögreglumanns-
ins Ma Shan (Wen),
í kínverskum
smábæ. Hann týnir
byssunni sinni í fylleríi, morð á gam-
alli vinkonu hans fylgir í kjölfarið.
Leikstjórinn og handritshöfundur-
inn Lu Chuan er auðsjáanlega að
fiska í dálítið gruggugu vatni. Engu
líkara en hann hafi séð of mikið af
vestrænum löggumyndum og glæpa-
reyfurum og langað að heimfæra fyr-
irbærið upp á kínverskan máta. Sögu-
fléttan er hvorki nýstárleg né
spennandi, við höfum séð þetta allt
saman áður og mikill göslaragangur,
einkum í upphafi, hjálpar lítið upp á
sakirnar. Kínverskar löggur á borð
við Ma Shan verða seint eftirlæti
vestrænna bíógesta. Á hinn bóginn er
túlkun Wen býsna raunsæ og nútíma-
leg og gerir myndina áhugaverða.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Kínverskur
samtíma-
krimmi
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.