Morgunblaðið - 22.05.2004, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 59
EF EITTHVAÐ hefur einkennt
kvikmyndahátíðina í Cannes í ár þá
er það pólitík. Herferð Michaels
Moores gegn George W. Bush
Bandaríkjaforseta í nýjustu mynd
sinni Farenheit 9/11, sem tekur þátt í
aðalkeppninni um Gullpálmann, hef-
ur vakið mesta athygli en á hátíðinni
eru fleiri myndir, sem fjalla á ögrandi
máta um pólitísk viðfangsefni. Oftar
en ekki eru hér á ferð myndir sem
fela í sér harða gagnrýni eða ádeilu á
framgöngu Bush forseta, stríðsbrölt
hans eða þá alþjóðavæðinguna sem
Bandaríkin leiðir.
Heili Bush
Tvær aðrar heimildarmyndir eru
hér á Cannes. Önnur heitir Heili
Bush (Bush’s Brain) sem Sigurjón
Sighvatsson á söluréttinn á. Af-
hjúpun: Íraksstríðið (Uncovered: The
War on Iraq) þykir svipa nokkuð til
Farenheit 9/11 efnislega, og kemst að
sömu niðurstöðu, að stríðsbrölt
Bandaríkjamanna sé byggt á lygum
og fölskum forsendum. Höfundurinn
Robert Greenwald beitir þó öllu jarð-
bundnari efnistökum og kannski af
þeim orsökum vekur myndin ekki
sömu athygli og mynd Moores, jafn-
vel þótt gagnrýnendur telji hana jafn-
vel enn áhrifaríkari og mikilvægari,
að hluta til vegna þess að í henni eru
áður óbirt viðtöl við háttsetta emb-
ættismenn.
Þá var sýnd utan aðalkeppninnar
heimildarmynd um Salvador Allende,
sem var steypt af stóli forseta Chile í
valdaráni árið 1973.
Vínpólitík
Önnur tveggja heimildarmynda í
aðalkeppninni – hin er Farenheit 9/11
– er einnig bandarísk og heitir
Mondovino, mynd sem á dularfullan
hátt var bætt inn í aðalkeppnina sem
19. myndinni á síðustu stundu. Í allt-
of, alltof langri mynd skoðar banda-
ríski kvikmyndagerðarmaðurinn og
vínsérfræðingurinn Jonathan Nossit-
er víniðnaðinn í heiminum og þá
meintu alþjóðavæðingu sem á sér
stað í faginu. Myndin er heilar tvær
og hálf klukkustund að lengd. Sem
spillir verulega fyrir annars virkilega
áhugaverðri greiningu Nossiter.
Che í mótun
Þá var á dagskrá, utan aðalkeppn-
innar, ný mynd eftir hinn gamal-
reynda franska kvikmyndasnilling
Jean-Luc Godard. Myndin heitir
Okkar tónlist (Notre Musique) og þar
fjallar Godard í þremur pörtum –
Helvíti, Hreinsunareldinum og Para-
dís – um stríðshörmungar út frá
þremur hliðum, stríðsástandinu, af-
leiðingunum og svo loks andstæðunni
– friðinum. Pólitíkin kemur einnig við
sögu óbeint í nýjum myndum hinna
virtu Emir Kusturica og Walter Sall-
es, sem báðar eru í aðalkeppninni.
Mynd Serbans Kusturica, Lífið er
kraftaverk (Zivot je cudo), er geggjuð
ástarsaga sem gerist í Bosníu á
stríðstímum, árið 1992, en mynd hins
brasilíska Salles, Mótorhjólaminn-
ingar (Diaros De Motocicleta), fjallar
um afdrifaríkt ferðalag sem tveir
ungir argentískir háskólastúdentar
lögðu upp í á gömlu lúnu mótorhjóli
um S-Ameríku. Þetta voru þeir Al-
berto Granado og Ernesto Guevara,
sem síðar varð þekktur sem bylting-
arleiðtoginn Che Guevara en ferða-
lagið varð til þess að opna augu
beggja fyrir stjórnmálaástandinu í
löndunum sem þeir heimsóttu og því
félagslega óréttlæti sem alþýðan bjó
við.
Spilling í Hvíta húsinu
Sean Penn leikur svo aðalhlut-
verkið í pólitískri samsærismynd sem
heitir Morðtilræðið á Richard Nixon
(The Assassination of Richard Nixon)
sem sýnd er í Un Certain Regard
dagskránni. Í þessari fyrstu mynd
Niels Mueller, sem skrifaði m.a.
handritið að gamanmyndinni Tad-
pole, spinnur hann út frá sönnum at-
burðum sem áttu sér stað árið 1974
þegar Sam nokkur Bicke (Penn),
veruleikafirrtur og argur maður yfir
eigin lánleysi og stjórnarástandinu í
Bandaríkjunum, reyndi að ræna
áætlanaflugvél og fljúga henni á
Hvíta húsið og ráða Nixon forseta
þannig af dögum. Á blaðamannafundi
með Sean Penn vegna myndarinnar
sem blaðamaður Morgunblaðsins var
viðstaddur undirstrikaði Penn þann
ádeilubrodd í myndinni en bætti þó
við: „Aldrei grunaði mig að það
myndi þó nokkurn tímann koma til
þess að ég saknaði Richards Nixons
eins og ég geri nú í dag.“ Um mynd
Michaels Moores, sem hann hafði
ekki séð, sagði Penn: „Ég er viss um
að hann hafi varpað ljósinu á ger-
spillta ríkisstjórn, rétt eins og við
vörpum ljósinu á gerspillta rík-
isstjórn í myndinni.“
Pólitíkin allsráðandi í Cannes
Sean Penn hefur mjög ákveðnar
skoðanir á því hvernig heimalandi
hans er stjórnað.
Cannes. Morgunblaðið.
skarpi@mbl.is
Reuters
Sean Penn saknar Nixons
Upplýsingar í síma
552 2028 og 552 2607
www.graennkostur.is
Sendum grænmetisrétti
til fyrirtækja í hádeginu
• Magnafsláttur
SMS
tónar og tákn
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 6 og 8.
Ó.H.T Rás2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Dóttur valdamesta manns í heimi er rænt
getur aðeins einn maður bjargaðhenni.
Frábær spennumynd frá leikstjóranum og
handritshöfundinum David Mamet.
Frumsýning
Að breyta fortíðinni getur haft
óhugnalegar afleiðingar fyrir
framtíðina. Svakalegur spennutryllir
sem fór beint á toppinn í USA.
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.30 og 10.30.
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
Skonrokk
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI PANIC ROOM
BYGGÐ Á SÖGU STEPHEN KING
Ó.H.T Rás2
(Píslarsaga Krists)
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 16.
ELLA
Í ÁLÖGUMÍ
Æðisleg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna
með Anne Hathaway úr Princess Diaries!
i l i f i ll fj l l
i i i !
Kill Bill.1 & Kill Bill.2. Sýndar kl. 8. B.i. 16.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Hlé
á mill
i
mynda
Tvöföld
sýning
verð að
eins
1000.k
r
L O K S I N S B Á Ð A R Í B Í Ó !
FORSALA
HEFST Á
MÁNUDAG!