Morgunblaðið - 22.05.2004, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
FÆREYSKA sveitin Týr er Íslendingum
að góðu kunn en lagið „Ormurin langi“ naut
mikilla vinsælda hér-
lendis. Nú hefur 28 ára
gítarleikari úr Mývatns-
sveit, Ottó Páll Arn-
arson, gengið til liðs við
sveitina.
„Ég þekkti þá ekki
neitt en fékk þá hug-
mynd að senda þeim
tölvupóst í desember
2003 og spyrja hvort
þeir væru að leita að gítarleikara. Ég fékk
svar frá þeim tveimur dögum seinna að þeir
væru að leita. Þannig byrjaði þetta,“ segir
Ottó Páll í viðtali við Morgunblaðið.
Færeyskt-íslenskt rokk
Mývetningur
gengur í Tý
Ekki/60
EKKI náðist samkomulag milli ríkisstjórn-
arflokkanna og stjórnarandstöðunnar á Al-
þingi í gærkvöldi um að ljúka þriðju umræðu
um fjölmiðlafrumvarpið þá um kvöldið og
taka í kjölfarið nokkur önnur mál á dagskrá.
Framhald á þriðju umræðu um frumvarp-
ið hófst klukkan 11.20 í gærmorgun og stóð
fram yfir miðnætti. Einn stjórnarþingmað-
ur tók til máls allan daginn, Gunnar Birg-
isson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hall-
dór Blöndal og Arnbjörg Sveinsdóttir,
einnig þingmenn Sjálfstæðisflokksins, voru
með andsvör við ræðu annarra þingmanna.
Annars voru það þingmenn allra stjórnar-
andstöðuflokkanna sem héldu uppi um-
ræðunni.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, sagði að
þingfundur hæfist aftur klukkan tíu í dag og
stæði fram eftir degi. Áður höfðu borist þær
fréttir að hlé yrði gert á störfum Alþingis
fram á mánudag. Halldór gerði ráð fyrir að
atkvæðagreiðsla um fjölmiðlafrumvarpið
færi fram á mánudaginn.
Fjölmiðlafrumvarpið
Atkvæða-
greiðsla á
mánudag
FRESTUR til að skila inn framboði til
forsetakjörs rann út á miðnætti og
höfðu þrír frambjóðendur skilað inn
meðmælendalistum, vottuðum af yfir-
kjörstjórnum. Í framboði eru því Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, Ástþór Magnús-
son og Baldur Ágústsson.
Fundað verður í dómsmálaráðu-
neytinu á hádegi í dag til að fara yfir
framboðin, og verður gefin út formleg
staðfesting á því hverjir verða í kjöri í
framhaldi af því.
Að sögn Þórunnar Guðmundsdóttur,
oddvita yfirkjörstjórnar Reykjavíkur
norður, var búið að fara yfir meðmæl-
endalista allra frambjóðendanna og
staðfest að þeir hafi safnað nægilega
mörgum undirskriftum.
Ástþór Magnússon skilaði fyrstur
inn sínum undirskriftum föstudaginn
14. maí, en í ljós kom að einhverjar
undirskriftir vantaði til að listinn fengi
vottun yfirkjörstjórna, og var bætt úr
því yfir helgina og listarnir staðfestir á
þriðjudag. Ólafur Ragnar Grímsson og
Baldur Ágústsson skiluðu undir-
skriftalistum á mánudag og reyndust
þeir fullnægjandi, að sögn Þórunnar.
Þrír í
framboði
til forseta
NETIÐ býður oft upp á góð tilboð
á flugi, og um 200 Bandaríkja-
menn trúðu varla eigin heppni
þegar þeir gátu keypt flugmiða
fram og til baka til Íslands með
Icelandair á 61 dollara, um 4.500
krónur.
Bandaríska netfyrirtækið
Cheap Tickets stóð þarna undir
nafni, en á fimmtudag voru gerð
mistök þegar verð á flugmiðum
til Íslands var uppfært. Á vefsíðu
fyrirtækisins var t.d. ferð frá
New York til Reykjavíkur sögð
kosta 61 dollara, en venjulegt
verð á farmiðum af þessu tagi er
787 dollarar, eða 57.600 kr., og
því „tilboðið“ góða innan við 10%
af venjulegu miðaverði. Vefsíðan
viðurkennir að mistök hafi verið
gerð, en ætlar engu að síður að
standa við verð sitt fyrir þá sem
pöntuðu áður en mistökin voru
leiðrétt.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir að
þarna hafi Cheap Tickets gert
ákveðin mistök, og segist hann
ekki vita til þess að svona tilvik
hafi komið upp áður með flug á
vegum Icelandair. Cheap Tickets
munu taka á sig allan kostnað
vegna þessa óvænta tilboðs og
tapar Icelandair engu.
Stór hluti af farseðlum Ice-
landair er seldur af ferðaskrif-
stofum erlendis, bæði hjá þeim og
í gegnum Netið, segir Guðjón.
„Það er ljóst hvar mistökin liggja,
þau eru gerð hjá þessum aðilum
sem selja miðana og þeir segja að
þeir ætli að standa við sitt.“ Eftir
að ferðalangur frá New York sá
þessi mistök og pantaði sér ferð,
lét hann netverja á vinsælu spjall-
borði meðal reyndra ferðalanga,
FlyerTalk, vita af þessum mögu-
leika á ódýrri ferð á vefsíðu
Cheap Tickets. Í kjölfarið pantaði
fjöldi manns flugmiða til Íslands
á þessum kostakjörum. Í fram-
haldi af þessu spunnust fjörugar
umræður um hvort rétt væri að
taka tilboði sem þessu sem menn
vissu að væri tilkomið vegna mis-
taka, og sýndist sitt hverjum.
Bandaríska netfyrirtækið Cheap Tickets stóð undir nafni
Flugmiðinn til Íslands á 4.500 krónur
HEFÐ hefur skapast í leikskólanum Garðaseli að
fara árlega í svokallaða lambaferð að Bjarteyjar-
sandi í Hvalfirði. Markmiðið með ferðinni er að
gefa yngri börnum kost á að komast í snertingu við
dýrin í sveitinni og upplifa hvað sveitin hefur upp
á að bjóða. Ekki eru eingöngu kindur að Bjarteyj-
arsandi því þarna eru hestar, hænur, kisur, kan-
ínur og ekki má gleyma honum Tý, hundinum, sem
stundum spilar fótbolta við gesti ef þannig stendur
á. Öll börnin heimsóttu fjárhúsin undir leiðsögn
Kolbrúnar Ríkeyjar Carter. Börnunum er uppálagt
að ganga um fjárhúsin með ró og sýna þannig dýr-
unum virðingu. Kolbrún sá síðan um að allir fengju
að halda á lambi, klappa þeim eða strjúka.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Arna Berg Steinarsdóttir var stolt er hún hélt á lambi í fjárhúsinu á Bjarteyjarsandi.
Heimsókn í sveitina
Akranes. Morgunblaðið.
HARALDUR Johannessen rík-
islögreglustjóri segir dóm meiri-
hluta Hæstaréttar í málverka-
fölsunarmálinu vera umhugs-
unarefni og lögfræðileg álitamál
hafi vaknað í tilefni hans.
Aðspurður segir Haraldur að
honum sýnist lögregla og
ákæruvald þurfa að fara yfir
hvaða þýðingu dómurinn hafi
um meðferð sakamála.
„Íhuga má hvort breyta eigi
vinnulagi við rannsóknir saka-
mála eftir nýjum málsmeðferð-
arkröfum sem mér virðast felast
í niðurstöðu meirihluta Hæsta-
réttar. Hins
vegar hafna ég
því að starfs-
menn ríkislög-
reglustjóra
hafi ekki staðið
að meðferð
málsins með
réttum hætti
og tel að heim-
vísa hefði átt
málinu í stað
þess að sýkna,“ segir Haraldur.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra sagði
í umræðum á Alþingi í gær að
fyrir nokkru hefði verið ákveðið
að fara vel yfir mál sem snerta
málverkafalsanir. Sagðist
menntamálaráðherra hafa ákveð-
ið að skipa starfshóp og verið sé
að móta hann nú. Þorgerður
Katrín sagði hópinn munu m.a.
fá það hlutverk að skrifa grein-
argerð um áhrif listaverkaföls-
unar og skila tillögum til úrbóta.
Segir ráðherra að helstu sér-
fræðingar verði skipaðir í starfs-
hópinn.
Ríkislögreglustjóri um niðurstöðu Hæstaréttar
Lögregla og ákæruvald
ræði þýðingu dómsins
Haraldur
Johannessen
Dómur Hæstaréttar/
2, 6, 10–11, 32
KEISARASKURÐUM á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri fækk-
aði úr tæpum 25% árið 1999 niður í
18,8% árið 2003 en þeir voru áður
fleiri þar en annars staðar á landinu.
Þetta kemur fram í máli Ingibjargar
Jónsdóttur, deildarstjóra kvenna-
deildar sjúkrahússins, en hún er
meðal fyrirlesara á norrænni ráð-
stefnu Ljósmæðrafélags Íslands sem
haldin er í tilefni af 85 ára afmæli fé-
lagsins. Ráðstefnan hófst formlega í
gær og henni lýkur á morgun en þar
er tekið á ýmsum málum er varða
meðgöngu og fæðingu.
Ingibjörg segir að keisaraskurðir
hafi verið þó nokkuð fleiri á Akureyri
en annars staðar á landinu en að með
samstilltu og markvissu átaki hafi
tekist að fækka þeim svo um munar.
„Við ákváðum að reyna að meta
hvers vegna keisaraskurðstíðnin var
svona há á Akureyri. Til þess not-
uðum við svokallaða fagrýni til að
skoða allar okkar fæðingar aftur í
tímann, safna upplýsingum, greina
vandann og finna leiðir til úrbóta.“
Flokkun auðveldar
meðhöndlun
Ingibjörg segir að konurnar hafi
verið flokkaðar í tíu hópa þar sem
meðal annars hafi verið teknir inn
þættir eins og hvort konan er að
fæða sitt fyrsta barn, hvort barnið
snúi rétt og hvort konan hafi farið í
keisaraskurð áður. „Þá gátum við
metið hvaða konur í hverjum hópi
fara helst í keisaraskurð. Við verðum
aftur á móti að passa það vel að þeg-
ar við vinnum að því að lækka keis-
aratíðni að það komi ekki niður á
heilsufari barnanna og kvennanna.
Flokkunin kennir okkur að með-
höndla konuna í fæðingunni eftir því
hvaða hópi hún tilheyrir,“ segir Ingi-
björg. Helsta leiðin til þess að fækka
keisaraskurðum er að fræða konur
og gefa þeim góðar upplýsingar og
þá sérstaklega þeim sem hafa þurft
að fara í bráðakeisaraskurð. „Fæð-
ing er eðlilegt ferli og við viljum
halda í það því að keisaraskurður er
heilmikil aðgerð og þeim fylgja ýms-
ar áhættur,“ segir Ingibjörg.
Keisara-
skurðum
hefur fækk-
að verulega
Akureyri
♦♦♦