Morgunblaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„FRÁBÆRLEGASPENNANDI
SAGA ...BÓKSEMMAÐUR
LESÍEINUMRYKK.“BIRTA
„FYRSTAFLOKKSAFÞREYING.“
„GÁTUSAGAMEÐGULLINSNIÐI.“
VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON,
HÖFUNDUR FLATEYJARGÁTUNNAR
MORGUNBLAÐIÐ
SKV. METSÖLULISTUM
VERÐ:1.590KR.
WWW.BJARTUR.IS/DAVINCI MÁ
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
*
*
SENNILEGA
HERNES AFTUR Á FLOT
Flutningaskipið Hernes sem
strandaði í innsiglingunni í Þorláks-
höfn í gær náðist á flot rétt eftir kl.
ellefu í gærkvöldi. Skipið virtist ekki
mikið skemmt eftir strandið.
Vara við árás á Bandaríkin
Stjórnvöld í Bandaríkjunum
sögðu frá því í gær að borist hefðu
trúverðugar upplýsingar um að al-
Qaeda-samtökin hygðust gera mikla
hryðjuverkaárás í landinu á næstu
mánuðum. Birtar voru myndir af sjö
manns sem talið er að tengist al-
Qaeda og gætu verið í Bandaríkj-
unum vegna fyrirhugaðrar árásar.
Einkum er óttast að hún muni bein-
ast að vettvangi stóratburða eins og
flokksþinga.
Fljúga með ólympíueldinn
Tvær Boeing 747-200-þotur flug-
félagsins Atlanta munu fljúga með
ólympíueldinn um allan heim og
verður merki Ólympíuleikanna mál-
að á vélarnar. Leiðangurinn hefst í
Aþenu í Grikklandi hinn 2. júní og
mun standa í rúman mánuð.
Verð á kvóta mun lækka
Verð á krókaaflamarki mun lækka
verði af kvótasetningu sókn-
ardagabáta, að mati Eggerts Sk. Jó-
hannessonar hjá Skipamiðluninni
Bátar og kvóti. Breytingartillaga
sem sjávarútvegsnefnd hefur gert á
frumvarpi sjávarútvegsráðherra um
málefni sóknardagabáta gerir ráð
fyrir að allir dagabátar færist undir
aflamark og sóknardagakerfið verði
lagt af.
Pútín heitir umbótum
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að reynt væri að sverta
rússneskt stjórnarfar og gefa í skyn
að einræði ríkti. Hann lofaði að beita
sér fyrir miklum umbótum á kjörum
almennings og sagði að líkur bentu
til að takast myndi að tvöfalda lands-
framleiðsluna fyrir árið 2010.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 42
Erlent 16/18 Minningar 42/51
Höfuðborgin 23 Umræðan 52/55
Akureyri 24/25 Brids 57
Suðurnes 26 Bréf 60
Austurland 27 Dagbók 60/61
Landið 28/29 Íþróttir 64/67
Listir 30/32 Fólk 68/75
Daglegt líf 34/35 Bíó 70/73
Neytendur 36/37 Ljósvakamiðlar 74
Forystugrein 38 Veður 75
* * *
Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablaðið Uppsveitir Árnes-
sýslu.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LAGT er til að háskólar verði hvattir og
studdir til þess að bjóða upp á staðbundna
kennslu í tilteknum námsgreinum á Ísafirði og
kemur þar til álita nám í náttúruvísindum og
öðrum greinum sem byggjast á sérstöðu Vest-
fjarða svo sem fjölmenningu.
Þetta er meðal annars að finna í niðurstöð-
um vinnuhóps sem menntamálaráðherra skip-
aði í vetur til að gera tillögur um hvernig
standa skuli að uppbyggingu aðstöðu fyrir há-
skólamenntun og rannsóknir á Vestfjörðum í
háskólasetri.
Kennslan yrði viðurkennd sem
hluti af námi til háskólagráðu
Fram kemur að ofangreind kennsla yrði við-
urkennd sem hluti af námi til háskólagráðu.
Að öðru leyti yrði um fjarnám að ræða, en
þannig gætu nemendur á Ísafirði stundað nám
á háskólastigi með því að blanda saman fjar-
námi og staðbundnu námi á Ísafirði.
Vinnuhópurinn gerir það einnig að tillögu
sinni að þjónusta við háskólamenntun verði
efld á Ísafirði og að lögð verði áhersla á aðstoð
við almennan undirbúning fyrir háskólanám,
miðlun fjarnáms, aðstöðu fyrir staðbundið nám
og stoðþjónustu við nemendur. Einnig að
Þekkingarsetur Vestfjarða verði stofnað á
þeim grundvelli sem lagður hafi verið með
Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Markmiðið með
þekkingarsetrinu verði að efla rannsóknir og
þróun, háskólanám og símenntun á Vestfjörð-
um og ráðinn verði framkvæmdastjóri að setr-
inu, sem hafi yfirumsjón með starfseminni.
Vinnuhópurinn bendir á að menntamálaráð-
herra hafi skipað nefnd til að móta tillögur um
skipulag og fjármögnun háskólanáms á lands-
byggðinni og taki skipulag og fjármögnun
þekkingarseturs mið af því sem verði ofan á í
þeim efnum. Stefna skuli að því að tillögurnar
geti komið til framkvæmda á hausti komanda.
Möguleikar til uppbyggingar
á haf- og náttúrurannsóknum
„Að mati vinnuhópsins eru miklir mögu-
leikar á Vestfjörðum til uppbyggingar rann-
sókna í veiðarfæratækni, fiskeldi, hafrann-
sóknum, náttúrurannsóknum með tilliti til
Hornstranda, miðaldafræðum og fjölmenningu
svo eitthvað sé nefnt. Hvað varðar háskóla-
menntun þá spanna þarfirnar breitt svið þar
sem huga þarf jafnt að því að veita aðstöðu til
undirbúnings fyrir háskólanám, fjarnám og
staðbundið nám á háskólastigi og aðstöðu fyrir
meistara- og doktorsnema til að sinna rann-
sóknum,“ segir meðal annars í tillögum vinnu-
hópsins.
Vinnuhópur um háskólamenntun og rannsóknir í háskólasetri á Vestfjörðum
Hægt verði að stunda nám
á háskólastigi á Ísafirði
SÍMASKRÁIN árið 2004 er komin út og er dreif-
ing hennar hafin. Hún er að þessu sinni í einu
bindi, 1.485 blaðsíður og er gefin út í 230 þúsund
eintökum. Forsíðuna í ár prýða myndir eftir
Hrafnkel Sigurðsson myndlistarmann, mynd-
röðin Án titils frá árinu 2001. Boðið er upp á
fjórar mismunandi forsíður með þessum mynd-
um.
Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans,
sagði við útkomu bókarinnar að skráningar
væru nú 335 þúsund talsins en í fyrstu síma-
skránni árið 1906 voru símanúmerin 198. Meðal
nýjunga í skránni í ár eru upplýsingar um vega-
lengdir milli allmargra staða á landinu og daga-
tal. Þá er kortið af höfuðborgarsvæðinu með
„nýju og léttara útliti“, eins og segir í frétta-
tilkynningu Símans og geta má þess að letur á
götuheitum á kortum og í nafnaskrá er stærra
en áður.
Anton Örn Kærnested er ritstjóri skrárinnar
og segir hann aftur hafa verið horfið að því að
hafa hana í einu bindi, það væri bæði hagkvæm-
ara og í samræmi við óskir notenda.
Hægt er að fá símaskrána í harðspjaldakápu
og kostar slík útgáfa hennar 500 kr. en annars er
bókin ókeypis. Síminn dreifir skránni í samvinnu
við Flytjanda og mun hún liggja frammi á öllum
afgreiðslustövðum Flytjanda og bensínstöðvum
Olíufélagsins, Olís og Skeljungs til 1. júlí. Einnig
verður hægt að nálgast Símaskrána 2004 í öllum
verslunum Símans. Innbundna skráin fæst ein-
ungis í verslunum Símans og á stærstu bensín-
stöðvunum.
Morgunblaðið/Sverrir
Símaskráin er með fjórar forsíður í ár. Eva Magnúsdóttir upplýsingafulltrúi, Hrafnkell Sigurðsson
myndlistarmaður, Katrín Olga Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri og Anton Örn Kærnested ritstjóri.
Símaskráin í 230 þúsund eintökum
og með 335 þúsund skráningum
Gæsluvarðhald fram-
lengt vegna bankaráns
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði í gær grunaðan
bankaræningja sem rændi útibú
Landsbankans við Gullinbrú 21.
maí sl. í áframhaldandi gæslu-
varðhald til 7. júlí. Tveim sak-
borningum til viðbótar, sem
sættu gæsluvarðhaldi vegna
málsins, var sleppt í gær þegar
gæsluvarðhald þeirra rann út.
Í umrætt skipti ruddist mað-
ur vopnaður öxi inn í bankann
og rændi um hálfri milljón
króna samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Gæsluvarðhald
hans varir þar til dómur gengur
í máli hans, þó ekki lengur en til
7. júlí.
Úrskurðurinn hefur verið
kærður til Hæstaréttar.
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
lagði hald á fjórar e-töflur og
lítilræði af hassi á tónleikum
hljómsveitarinnar Pixies í
Kaplakrika á þriðjudagskvöld.
Að sögn lögreglu var maður á
fertugsaldri handtekinn, grun-
aður um dreifingu og neyslu
fíkniefna. Gerð var húsleit á
heimili mannsins, og fundust
fjórar e-töflur til viðbótar við
leitina. Maðurinn játaði brot sitt
við yfirheyrslur og var látinn
laus úr haldi.
Tekinn með fíkniefni á Pix-
ies-tónleikum í Kaplakrika