Morgunblaðið - 27.05.2004, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 23
Allra ve›ra von
Vi›arvörn er ekki fla› sama og vi›arvörn. Kjörvari er
sérstaklega flróa›ur fyrir íslenska ve›ráttu flar sem
mikilvægt er a› gæ›in séu í lagi.
Nota›u vi›arvörn sem flolir íslenskt ve›urfar
Ná›u flér í n‡ja Kjörvara litakorti›
Trygg›u vi›num bestu fáanlegu vörn.
Á Íslandi er allra ve›ra von.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Har›vi›arval Krókhálsi • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i
Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i
Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga
Verslunin Eyri, Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta›
Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Reykjavík: Kringlan 6 • Stóri turn • Sími 550 2000 • www.sphverdbref.is
Hafnarfjörður: Strandgata • Reykjavíkurvegur Garðabær: Garðatorg Verðbréf
Gjald vegna VS-reikninga*
0 krónur á ári
*VS-reikningar eru fyrir rafrænt skráð verðbréf sem áður voru gefin út á pappír
34
5.
0
0
3
Verðbréfamiðlun ...fyrir þig og þína
Reykjanesbær | Jóhann Magnússon
var endurkjörinn formaður Íþrótta-
bandalags Reykjanesbæjar á aðal-
fundi ÍRB sem fram fór í vikunni.
Með honum í stjórn verða Ásdís
Ýr Jakobsdóttir, Eiríkur Hilm-
arsson, Einar Haraldsson og Krist-
björn Albertsson. Eiríkur er nýr í
stjórninni, kemur í stað Ásgeirs Ei-
ríkssonar. Í varastjórn voru kjörnir
Kjartan Steinarsson og Margeir
Þorgeirsson.
Ný stjórn ÍRB
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
NIÐURSTÖÐUR frá rannsókna-
stofu í Noregi sýna að kind af bæn-
um Kjóastöðum í Biskupstungum
bar ekki riðusmit. Staðfest var að
kindin var með heilabjúgur og kem-
ur því ekki til þess að farga þurfi fé af
bæjum í Eystri-Tungu, frá Hvítá að
Tungufljóti.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Keldum, segir við Morgunblaðið að
þrátt fyrir tíðindin frá Noregi beri
bændum á þessu svæði að fara að
öllu með gát. Hættan sé yfirvofandi
víðar að riða komi upp, einkum
vegna samgangs og samskipta með
fé. Mikilvægt sé að bændur fari gæti-
lega og láti vita um kindur sem hegði
sér óeðlilega. Afar brýnt sé að hýsa
ekki fé frá öðrum og þegar rekið
verði til fjalls sé ekki verið að fara
með óvant fé sem geti lent á flakki og
skapað hættu fyrir önnur héruð.
Riða hafði komið upp á þremur
bæjum á nærliggjandi svæði, svo-
nefndri Ytri-Tungu, og að sögn Sig-
urðar á að vera búið að farga öllu fé
þar fyrir haustið. Hefði riða greinst í
kindinni frá Kjóastöðum hefði þurft
að grípa til sömu ráða í Eystri-
Tungu. Sigurður segist áfram hafa
áhyggjur af svæðunum, enda afrétt-
ur hinn sami, auk þess sem bændur á
Kjóastöðum höfðu hýst fé af riðu-
smituðum bæjum frá Ytri-Tungu.
Gott að fá staðfestinguna
Að sögn Sigurðar voru 20 sýni
send til Noregs til rannsóknar með
nýrri aðferð. Þó að sýnataka hér hafi
sýnt heilabjúgur en ekki riðu hafi
verið ákveðið að taka af allan vafa
með frekari rannsóknum. Gott hafi
verið að fá staðfestinguna að utan.
Vill Sigurður koma þeim skila-
boðum á framfæri til fjáreigenda að
vera á varðbergi, bæði með skepn-
urnar og allt sem óhreinkast af þeim,
t.d. landbúnaðartæki sem verði að
sótthreinsa séu þau flutt á milli bæja.
Ekki riða í
Biskupstungum
Hætta
áfram yf-
irvofandi
♦♦♦