Morgunblaðið - 27.05.2004, Qupperneq 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 25
Háskólanám á Hvanneyri
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2004
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri - www.hvanneyri.is
Almenn inntökuskilyrði - Það sama gildir um allar námsbrautir
við LBH að umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða
öðru, sem háskólaráð telur jafngilt. Námið tekur að lágmarki
þrjú ár til BS-prófs (90 einingar). Síðan er hægt að bæta við
sig 30 eininga sérnámi og rannsóknaþjálfun og brautskrást
með kandidatsgráðu (120 einingar).
Á Hvanneyri er þægileg nánd milli nemenda og starfsfólks og
góð aðstaða fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra í starfi og
leik. Þar eru nemendagarðar fyrir fjölskyldur jafnt sem einstak-
linga, grunnskóli og leikskóli. Útivistar- og afþreyingarmögu-
leikar eru fjölbreyttir og stutt í alla þjónustu. Hvanneyri er í
um klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík.
F jó ra r námsb raut i r t i l BS -p rófs
Búvísindi
Fjölbreytt nám með áherslu á búfjárrækt, jarðrækt og
bútækni auk margra valgreina. Undirstaða fyrir framhaldsnám
í búvísindum, ráðgjafarstörf, kennslu og rannsóknir auk
búrekstrar.
Landnýting (landgræðsla)
Skipulag, nýting og umhirða lands með áherslu á landgræðslu
og náttúruvernd við íslenskar aðstæður. Hentar vel til starfa við
landgræðslu, náttúruvernd, kortagerð og hvers kyns umhverfis-
mál.
Skógrækt
Námsbrautin er ný á Hvanneyri og með tilkomu hennar er nú
fyrst hægt að nema þessi fræði á háskólastigi á Íslandi. Fjallað
er m.a. um umhirðu og ræktun skóga, búskaparskógrækt,
ferskvatnsnýtingu, náttúruvernd og auðlindahagfræði.
Umhverfisskipulag (Landslagsarkítektúr)
Námið er fyrri hluti náms í landslagsarkítektúr og öðrum skipu-
lagsfræðum. Meðal áfanga er nýting og mótun lands, hönnun
útivistarsvæða, tölvustudd hönnun og vistfræði, mat á
umhverfisáhrifum, jarðvegsfræði og fríhendisteikning.
F ramha ldsnám að loknu BS -p róf i
Kandidatsnám
Boðið er upp á eins árs viðbótarnám og rannsóknaþjálfun til
kandidatsprófs í búvísindum og landnýtingu.
Námið hentar þeim einkar vel sem ætla að verða leiðbeinendur
í landbúnaði t.d. hjá búnaðarsamböndum, landgræðslu og
skógrækt. Inntökuskilyrði er BS-próf frá LBH eða sambærilegt
BS-nám frá öðrum háskólum.
Meistaranám (MS)
Meistaranám til 60 eininga í búvísindum. MS-námið veitir mögu-
leika á sérhæfingu á sviði búfjárræktar, jarðræktar og bútækni.
Meistaranám til 60 eininga í landnýtingu. MS-námið veitir
möguleika á sérhæfingu á sviði landgræðslu,
umhverfisstjórnunar, jarðræktar og bútækni.
MS-námið er skipulagt sem einstaklingsbundinn
námsferill með sveigjanlegri námsframvindu.
Inntökuskilyrði er BS-gráða í búvísindum, landnýtingu,
líffræði, landafræði eða annað sambærilegt BS-nám.
Þórsari í 70 ár | Sjötíu ár eru liðin í
dag, fimmtudaginn 27. maí, frá því að
Haraldur Helgason gekk í Íþrótta-
félagið Þór og
ætla Þórsarar
að minnast
þessara tíma-
móta á föstu-
daginn.
Haraldur
hefur lengst
allra verið for-
maður í félag-
inu, en því embætti gegndi hann í 20
ár, frá 1960 til 1980.
Í tilefni tímamótanna verður Har-
aldi og eiginkonu hans, Áslaugu Ein-
arsdóttur, haldið kaffisamsæti í
Hamri, félagsheimili Þórs, á föstu-
dagsmorguninn, 28. maí, kl. 9.
Allir velunnarar Þórs og gamlir fé-
lagar Halla og Ninnu í Þór eru hvattir
til að líta við í Hamri á föstudags-
morguninn, fá sér kaffisopa og spjalla
við gamla félaga, segir í tilkynningu.
Útafakstur | Ungur ökumaður,
nýkominn með bílpróf, slapp með
skrekkinn í gærmorgun er hann
missti vald á bíl sínum sem hafnaði á
hliðinni úti í skurði.
Óhappið átti sér stað á malarvegi
sem liggur að Kjarnaskógi.
Ökumaðurinn slapp ómeiddur og
lítið tjón varð á bílnum, að sögn lög-
reglunnar á Akureyri.
Starfsárinu lokið | Hin árlega
uppskeruhátíð Skákfélags Akureyr-
ar verður haldin í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 27. maí, kl. 20. Hátíðin
markar jafnan lok hvers starfsárs
félagsins en á henni eru verðlaun
veitt fyrir viðburði vetrarins. Boðið
er upp á léttar veitingar og líklegt
verður að teljast að gripið verði í
tafl.
Hátíðin fer fram í Íþróttahöllinni
og allir eru velkomnir.
GERA má ráð fyrir að niðurstaða
evrópskrar arkitektasamkeppni
um heildarskipulag miðbæjar Ak-
ureyrar liggi fyrir að ári, eða
næsta vor. Þetta kom fram á
fundi þar sem kynnt var verk-
efnið Akureyri í öndvegi, sem er
samkeppni um skipulag miðbæj-
arins en að því stendur áhuga-
hópur um uppbyggingu miðbæj-
arins. Fulltrúar frá ráðgjafar-
fyrirtækinu Alta kynntu á
fundinum hvernig að fyrirhuguðu
verkefni verður staðið, en teymi
á þess vegum hefur tekið að sér
undirbúning vegna samkeppn-
innar. Fram kom í máli Sig-
urborgar Kr. Hannesdóttur, verk-
efnastjóra Alta, að um margt
væri um einstakt verkefni að
ræða og málið hefði strax verið
sett í farveg sem líklegastur væri
til að skila árangri. Auk hennar
eru í teyminu Halldóra Hregg-
viðsdóttir framkvæmdastjóri og
Pétur H. Ármannsson arkitekt en
samstarf er einnig við breska fyr-
irtækið John Thompson & Partn-
ers. Sigurborg sagði þörf á metn-
aðarfullri sýn til að efla miðbæ
Akureyrar og um leið bæinn sem
höfuðstað Norðurlands. Aðgerð-
arleysi myndi leiða til hnignunar.
Hún sagði vaxandi kröfu meðal
íbúa að þeir hefðu áhrif, sér-
staklega hvað skipulagsmál varð-
ar. Sú leið yrði farin að leita eftir
sjónarmiðum íbúa og hags-
munaaðila áður en ákvarðanir
verða teknar. Þannig verður í
haust efnt til íbúaþings þar sem
fólki gefst kostur á að koma hug-
myndum sínum um miðbæinn á
framfæri. Pétur sagði að í kjöl-
farið yrði samkeppnin boðin út,
það gæti gerst í október og skila-
frestur tillagna gæti orðið í mars
á næsta ári. Þá tæki við yfirferð
dómnefndar og niðurstaða ætti
að geta legið fyrir næsta vor.
Björgólfur Guðmundsson, for-
maður stjórnar Landsbankans,
nefndi í umræðum á fundinum að
bankinn vildi vera með í verkefn-
inu, enda bæri hann samfélags-
lega ábyrgð og hefði verið starf-
andi í miðbæ Akureyrar í yfir
100 ár. Hann gat þess að vinnu-
brögð í málinu væru til fyr-
irmyndar. Einnig nefndi hann að
samhliða uppbyggingu miðbæj-
arins þyrftu að koma til fleiri at-
vinnutækifæri, þau þyrftu að
fylgja með og það væri stórmál
að fjölga íbúum bæjarins.
Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri sagði það kröfu íbúanna
að lífi yrði blásið í miðbæinn og
margir hefðu beint þeim kröfum
sínum til Akureyrarbæjar, bæj-
arfulltrúa. Sú leið sem valin hefði
verið, að áhugahópur með sterka
bakhjarla stæði fyrir málinu,
væri bæjarfulltrúum að skapi,
þeir væru þakklátir fyrir frum-
kvæðið. Þeir sem lifðu og hrærð-
ust á svæðinu hefðu forsendur til
að taka það í sínar hendur. Hlut-
verk bæjarfélagsins væri svo að
spila með og mæta þeim kröfum
sem fram kæmu.
Ragnar Sverrisson, kaupmaður
og forsvarsmaður áhuga-
mannahópsins, nefndi í lok fund-
arins að ekki væri úr vegi að Ak-
ureyrarbær tæki stórt lán, 10 til
20 milljarða króna til 100 ára, til
að nota í uppbyggingu miðbæj-
arins.
Verkefnið Akureyri í öndvegi, um heildarskipulag miðbæjarins, kynnt á fundi
Íbúaþing í haust, evrópsk
samkeppni næsta vetur
Morgunblaðið/Kristján
Akureyri í öndvegi. Fjöldi fólks lagði leið sína á kynningarfund um fyrir-
hugaða samkeppni um heildarskipulag miðbæjarsvæðisins.
Morgunblaðið/Kristján
Pétur H. Ármannsson arkitekt flyt-
ur erindi á kynningarfundinum.