Morgunblaðið - 27.05.2004, Qupperneq 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss, Erla og
Dröfn koma í dag.
Dettifoss, Arnarfell og
Joana Princesa fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Fornax kemur í dag.
Arklow Wave fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 10 boccia, kl. 13
myndlist. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíðar
og handavinna, kl. 13.30
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, al-
menn handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl.
9–14 aðstoð við böðun,
kl. 14–15 söngstund,
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Kl. 9, aðstoð við
böðun, smíðar, út-
skurður og handavinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Aðstoð við
böðun og námskeið í
glerskurði kl. 9–16.30,
leikfimi kl. 10–11, söng-
hópurinn kl. 13.30, dans
kl. 15.15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 10 hárgreiðsla, kl. 13
föndur og handavinna.
Bingó kl. 15.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellsbæ,
Dvalarheimilinu Hlað-
hömrum. Kl. 13–16
föndur og spil, kl. 13.30-
–14.30 lesklúbbur, kór
eldriborgara Vorboðar,
æfingar kl. 17–19.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Karlaleikfimi
kl. 13. Garðaberg opið
kl. 13–17.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
moggi, rabb, kaffi, víd-
eókrókur, kl. 10–11.30
pútt, kl. 11.20 leikfimi.
Félag eldri borgara,
Ásgarði, Glæsibæ.
Brids kl. 13. Heilsuefl-
ing í Bólstaðarhlíð kl.
13, félagsvist kl. 20.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi vinnustofur og
spilasalur opin.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna, kl.
9.05 og 9.55 leikfimi, kl.
9.30 glerlist og kera-
mik, kl. 13 gler og
postulín, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga kl.
9–17. Handavinnustof-
an er opin frá kl. 13–16.
Alltaf heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 13–16 hann-
yrðir, kl. 13.30–16 fé-
lagsvist. Fótaaðgerðir
virka daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun, föstudag,
sundleikfimi í Grafar-
vogslaug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofan,
kl. 10–11 samverustund
og leir.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
9.30 glerskurður, perlu-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og brids.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið kl.
9–14. Kl. 9.15 leikfimi,
kl. 10–12 verslunin.
Þórðarsveigur 1-5,
Grafarholti. Kl. 13.30
opið hús.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK, Gull-
smára, spilar í félags-
heimilinu í Gullsmára
13 mánu- og fimmtu-
daga. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arkortin fást nú í Lyfj-
um og heilsu, Firði í
Hafnarfirði. Kortið
kostar 500 kr.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í s. 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er fimmtudagur 27. maí,
148. dagur ársins 2004.
Orð dagsins: Reiðst eigi, Drott-
inn, svo stórlega, og minnstu eigi
misgjörða vorra eilíflega. Æ, lít
þú á: Vér erum allir þitt fólk.
(Jes. 64, 8.)
Á vef Vinstri grænna íReykjavík skrifar
Drífa Snædal um vænd-
isfrumvarpið sem nú
liggur fyrir Alþingi.
„Það voru gleðitíðindi
fyrir kvenfrelsissinna
þegar vændisfrumvarpið
svokallaða var afgreitt
til annarrar umræðu á
Alþingi á dögunum.
Reyndar voru stórtíðindi
þar á ferð þar sem bar-
átta framsýns fólks virð-
ist loks skila árangri
inni á þingi. Í frumvarp-
inu er gert ráð fyrir að
hver sem láti af hendi
eða lofar að láta af
hendi greiðslu eða ann-
an ávinning fyrir vændi
skuli sæta sektum eða
fangelsi allt að einu ári.
Þetta þýðir í raun að
það er ekki lengur ólög-
legt að selja vændi,
heldur að kaupa það eða
hafa milligöngu um
vændi. Ef frumvarpið
nær fram að ganga er
Ísland annað landið í
heiminum til að fara
sænsku leiðina svoköll-
uðu.
Sú hugmyndafræðisem liggur að baki
frumvarpinu er að fólk
sem selur aðgang að lík-
ama sínum gerir það út
úr einhvers konar neyð,
félagslegri eða fjárhags-
legri. Um þetta er fólk
sem hefur unnið að mál-
um er snerta kynbundið
ofbeldi ekki í vafa. Næg-
ir að vísa í innlendar
sem erlendar rannsóknir
þessu til stuðnings.
Reyndar er Ísland eina
landið í Norður-Evrópu
sem refsar enn fórn-
arlömbum fyrir að selja
líkama sinn. Þá er
spurning hver beri
ábyrgðina en hún hlýtur
að liggja hjá þeim sem
hafa peningana, valdið
og valið, þ.e. þeir sem
kaupa aðgang að öðrum.
Þennan skilning virðist
löggjafarvaldið loksins
hafa öðlast og bregst
vonandi við með laga-
setningu.
Til að uppræta vændiog koma í veg fyrir
að ungt fólk lendi í þeim
pytti þurfa einnig að
koma til félagsleg úr-
ræði. Lagasetningin ein
og sér er ekki næg held-
ur þarf að koma til
fræðsla til allra fagaðila
sem geta veitt fórn-
arlömbum aðstoð. Lög-
reglan, dómarar, félags-
málayfirvöld, fólk innan
heilsugæslunnar og svo
framvegis þurfa að vera
meðvituð um hvernig
best er að taka á þess-
um málum þegar þau
koma upp. Aðstoð til
handa þeim sem ætla að
snúa baki við því ofbeldi
sem vændi er þarf að
vera til staðar og skiln-
ingur á slíku starfi af
hendi yfirvalda. Þá má
einnig nefna námskeið
fyrir þá sem dæmdir
verða fyrir kaup á
vændi og almennar for-
varnir. Lagasetningin er
því ekki endapunktur
heldur góð byrjun á því
að vinna á þeim smán-
arbletti sem vændi er í
samfélaginu,“ segir
Drífa Snædal.
STAKSTEINAR
Kaup á vændi verði
gerð refsiverð
Víkverji skrifar...
Víkverji lét loksins verðaaf því á dögunum að
heimsækja Vatnsdal í
V-Húnavatnssýslu. Þau eru
orðin óteljandi skiptin sem
Víkverji hefur horft á veg-
vísinn inn í Vatnsdalinn á
leið sinni suður eða norður.
Og í hvert skipti hefur hann
bölvað sér fyrir að hafa ekki
tíma til að taka eins og einn
hring um Vatnsdalinn. En í
vikunni gerði Víkverji sér
sérstaka ferð norður í
Vatnsdal og sér ekki eftir
þeim bíltúr. Vatnsdalurinn er afar
fallegur og fjölbreyttur. Fremst í
dalnum eru hinir sögufrægu Vatns-
dalshólar og þegar ekið er innar blas-
ir við augum allstórt stöðuvatn, Flóð-
ið svonefnda. Enn innar í dalnum er
Kattarauga, en það sýndist Víkverja
vera uppspretta. Bílvegurinn gengur
í hæðum og lægðum og á leiðinni
gleður trjágróður augað hér og hvar.
Í dalnum austanverðum er trjálund-
ur sem gaman væri að æja við og
drekka kaffi. Reyndar ákvað Víkverji
í þessum bíltúr að koma í Vatnsdal-
inn síðar í sumar með reiðhjól og
hjóla um dalinn á svona 5–6 tímum.
Auðvitað væri langskemmtilegast að
fara þennan spotta ríðandi á fal-
legum degi á húnvetnskum gæðing.
Úr því að Víkverji er farinn að tala
um fallega staði má hann til með að
minnast á annan fallegan stað í vest-
ursýslunni, sem hann hefur ekki
heimsótt en heyrt mikið látið af.
Þetta er Vatnsnesið, en það mun
vera mjög áhugavert að fara fyrir
nesið og skoða í leiðinni Borgarvirki
og að sjálfsögðu Hvítserk. Það er
bara skömm að því að Víkverji skuli
aldrei hafa séð Hvítserk, nema á
myndum. Úr því verður bætt í sumar
og ekkert múður. Það er ein-
kennilegt hvað hægt er láta
fallega staði lengi fram hjá
sér fara.
x x x
Víkverji ætlar að lokumað beina talinu að
Rangárvallasýslunni og
rifja upp ógleymanlega
stund í sundlauginni á
Seljavöllum undir Eyjafjöll-
um. Á uppstigningardag
gekk Víkverji á Eyjafjalla-
jökul við annan mann og
endaði förina við Seljavalla-
laug þar sem engan mann var að
finna og laugin lokuð í þokkabót.
Þótti Víkverja þetta súrt í broti því
smábusl í lauginni hefði fullkomnað
þennan dag. En í glugga laugarinnar
var miði með skilaboðum til ferða-
fólks um að láta vita af sér á bænum
skammt frá, ef það vildi fara í sund.
Auðvitað gekk þetta allt eftir og 5
mínútum síðar var Víkverji genginn
til laugar til að stunda sundfarir.
Þetta kallar maður góða þjónustu.
Frábær dagur í alla staði þrátt fyrir
eyfellska úrhellisrigningu, en hver
man eftir einhverju skítaveðri þegar
frá líður?
Hinn tignarlegi Hvítserkur verður skoðaður í sumar.
Bréf frá
Greenpeace
FYRIR nokkrum dögum
fengum við, ég og maðurinn
minn sameiginlega, bréf
sem póstlagt var í Þýska-
landi. Aftan á umslaginu er
ófullkomið heimilisfang
sendanda, en bréfið sem
fylgir er á íslensku og sagt
vera frá Greenpeace-sam-
tökunum.
Þetta er ekki mjög kurt-
eisislegt bréf, svo ekki sé
meira sagt. Sendandinn
virðist hafa hug á að ferðast
til Íslands, en finnst við
hæfi að senda fyrst hótun-
arbréf og setja skilyrði fyrir
komu sinni. Ég spyr nú
bara: Hvenær fór það að
tíðkast að ókunnir gestir
sendu hótanir til gestgjaf-
ans og settu skilyrði fyrir
komu sinni? Hvern langar
til að fá slíka gesti?
Ég spyr Greenpeace-
samtökin á Íslandi: Hver
veitti þeim leyfi til að dreifa
póstlistum með íslenskum
nöfnum og heimilisföngum
erlendis?
Í umræddu bréfi stendur
að skip Greenpeace, MV
Esperanza, komi til Íslands
í júní í sumar „til að efna til
umræðu við almenning á Ís-
landi um umhverfismál“.
Það verður gaman að sjá
skip ræða við almenning!
Það höfum við aldrei áður
séð, en einhvern tíma hefðu
slíkar tilkynningar verið
teknar sem óbeinar hótanir!
Ég sá bréf frá „eftir-
launakalli“ um þetta mál í
Velvakanda á dögunum og
tek að fullu undir orð hans
um að vonandi verði hval-
veiðar auknar hér við land
frá því sem var á síðasta ári.
Ef Greenpeace-samtökin
hafa eins miklar áhyggjur
af fækkun ferðamanna hér
á landi og þau láta í veðri
vaka, væri þá ekki tilvalið
að auglýsa Ísland sem eina
landið í heiminum þar sem
erlendir ferðamenn gætu
horft á hvalskurð? Ég
minnist þess frá fyrri árum,
þegar ekið var um Hval-
fjörð, að þar stönsuðu iðu-
lega margar rútur með er-
lenda ferðamenn sem voru
að horfa á hvalskurðinn og
það kostaði ekki krónu.
Steinunn Bjarmann.
Tapað/fundið
Nokia-sími
fannst á Nelly’s
HINN 15. maí sl. fannst
Nokia-sími á Nelly’s. Upp-
lýsingar í síma 693 1761.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
FJÓRIR blíðir og yndisleg-
ir 9 vikna kettlingar fást
gefins. Eru kassavanir og
koma þegar á þá er kallað.
Einn er svartur, annar er
svartur og hvítur, og tveir
eru grábröndóttir. Uppl.
gefur Sigrún í s: 869 2615.
Geðþekkur högni
GEÐÞEKKUR högni, hvít-
ur og grár að lit, fæst gefins
vegna flutninga. Upplýs-
ingar gefur Florian í síma
561 0833 eða 869 1573.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 falla, 4 hnötturinn,
7 lófinn, 8 hótar, 9 nátt-
úrufar, 11 sleit, 13
ósoðna, 14 trylltur,
15 þunn spýta, 17 belti,
20 frostskemmd, 22 snú-
in, 23 æviskeiðið, 24 sér
eftir, 25 bik.
LÓÐRÉTT
blettir, 2 hnappur, 3 fífls,
4 stúlka, 5 þreyttar,
6 gabba, 10 þula, 12 ill-
menni, 13 skar, 15 bráð-
lyndur maður, 16 bárur,
18 ganga, 19 vitlausa, 20
röskur, 21 halarófa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 Gyðingana, 8 lokin, 9 iðjan, 10 auk, 11 afann,
13 kenna, 15 snatt, 18 ónýta, 21 uns, 22 nýrun, 23 afurð,
14 áttavitar.
Lóðrétt: 2 yrkja, 3 innan, 4 grikk, 5 nýjan, 6 glóa,
7 knáa, 12 net, 14 enn, 15 senn, 16 afrit, 17 tunna,
18 ósaði, 19 ýsuna, 20 arða.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html