Morgunblaðið - 01.06.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 01.06.2004, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 560 6000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Landsbankinn býður fjölbreytt fasteignalán til allt að 40 ára með lágum vöxtum og sveigjanlegum endurgrei›sluskilmálum. Hámarksve›setning getur numi› allt a› 80% af söluver›mæti eignar. Lög› er áhersla á eins stuttan afgrei›slutíma og kostur er. Rá›gjöf og nánari uppl‡singar hjá Fasteignafljónustu Landsbankans og í útibúum bankans um allt land. Tækifæri til framkvæmda og hagræðingar ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N E H F/ SÍ A LB I 2 47 78 0 5. 20 04 Efnisyfirlit Ás ................................................... 51 Ásbyrgi ........................................ 27 Berg .............................................. 46 Bifröst .......................................... 26 Borgir ................................... 38–39 Búmenn ........................................ 37 Byr ................................................. 51 DP Fasteignir ............................. 40 Draumahús ............................ 14–15 Eignaborg ..................................... 41 Eignamiðlun ....................... 22–23 Eignaval ................................. 18–19 Eignaumboðið ............................ 37 Eykt ................................................. 6 Fasteign.is .................................. 45 Fasteignakaup ........................... 44 Fasteignamarkaðurinn .... 24–25 Fasteignamiðlun Grafarvogs ... 41 Fasteignamiðstöðin .................... 9 Fasteignasala Íslands ................. 5 Fasteignasala Mosfellsbæjar . 47 Fasteignastofan ........................ 55 Fjárfesting .................................. 36 Fold ............................................... 43 Foss .............................................. 54 Garður ........................................... 41 Gimli ...................................... 50–51 Heimili .......................................... 56 Híbýli ............................................ 42 Hof ................................................ 52 Hóll ............................................. 4–5 Hraunhamar ....................... 34–35 Húsakaup .................................... 49 Húsavík ......................................... 16 Húsið .............................................. 3 Húsin í bænum ...................... 18–19 Höfði ..................................... 28–29 Kjöreign .......................................... 7 Klettur ......................................... 48 Lundur ................................... 20–21 Marteinn ......................................... 8 Miðborg ................................... 10–11 Skeifan .......................................... 17 Smárinn .......................................... 3 Þingholt .................................. 12–13 Valhöll ................................... 32–33 X-hús ............................................ 53 HOFSSTAÐIR voru einn bæjanna í Garðahreppi hinum forna; þar var bú- ið langt fram eftir síðustu öld og íbúð- arhúsið stendur ennþá, en orðið nokkuð aðþrengt. Norðan við húsið rís Vídalínskirkja, en Tónlistarskóli Garðabæjar hefur verið byggður austan við það. Í næsta nágrenni Tón- listarskólans er merkilegt mannvirki, sem æpir ekki á athygli og trúlegt er að vegfarendur, sem fara þarna um í flýti, sjái ekki annað en hlaðinn grjót- vegg, grasi gróinn að ofanverðu. Þarna er þó ástæða til að staldra við; jafnvel að fá sé bíltúr í Garða- bæinn og þeir sem búa í næsta ná- grenni geta komið þar við í næstu gönguferð. Það sem auganu mætir í fyrstu eru axlarháir grjótgarðar, sumir beinir, aðrir í sveigum, en hleðslan gerð af snilld. Út af fyrir sig er skemmtilegt að gaumgæfa slíka verkmenningu, en þegar betur er að gáð er eitthvað fyr- ir innan, sem er enn þýðingarmeira og reynist vera skálatóft frá því skömmu eftir að Ingólfur nam hér land, eða frá því fyrir 900. Skálinn sá er 30 metrar á lengd og styður það sem sagt hefur verið og skrifað, að landnámsmenn byggðu stundum stórt og hafa líklega átt kost á burðugri viðum úr skógum hérlendis en okkur er ljóst nú. Fornleifarannsóknir á Hofsstöðum hófust 1994 og raunar er Hofsstaða- skálinn sá næststærsti sem minjar hafa fundizt um. Gerðin er hefðbund- in; uppúr tóftinni hefur risið trégrind, allsterkleg, en ekki með sperrum, heldur mæniás, vaglbita og dverg. Í þeim enda hússins sem nær er á myndinnni sést að verið hefur búr en vefstofa í hinum endanum. Að öðru leyti er skálinn með hellulögðu gólfi, en verið að mestu leyti eitt rými þar sem fólk hefur dvalið, matazt, unnið og sofið. Má ætla að þarna hafi verið 20–30 manns til heimilis. Vífill, leysingi Ingólfs, fékk Vífils- staði til ábúðar, en Hofsstaðir kunna að hafa verið byggðir á því landi sem Vífill fékk. Ekkert er um það vitað. Hvernig þetta land leit út um land- nám er ekki alveg ljóst heldur; vera má að þarna hafi verið kjarr. Jarð- vegur er þó mestan part jökulleir og grjót á þessum slóðum og sýnist ófrjótt land til ræktunar. Sjálfur bý ég í um 150 m fjarlægt frá Hofs- staðaskála og var ekki bjartsýnn þeg- ar ég potaði nokkrum trjáplöntum niður fyrir 30 árum. En þessi jarð- vegur virðist leyna á sér og Flatirnar í næsta nágrenni við Hofsstaði eru nú á kafi í skógi. Það fréttnæma við þennan menn- ingarlega frágang á minjum um Hofsstaðaskála er ekki aðeins það sem við blasir þegar komið er á stað- inn, heldur hitt að hinn 5. maí síðast- liðinn fékk Garðabær NODEM-verð- launin sem veitt eru fyrir notkun á stafrænni tækni í safnastarfi. Þarna er með tvennu móti staðið að upplýs- ingagjöf svo til fyrirmyndar hlýtur að teljast. Annars vegar eru á svæðinu kringum skálann vel hönnuð upplýs- ingaskilti með ljósmyndum og texta. Hins vegar er margmiðlunartækni þar sem skoða má á glugga í Tónlist- arskólanum þrívíddarteikningar af bænum og munum sem fundust við uppgröftinn. Meðal 300 gripa þykir merkust forláta sænsk næla í Jalang- ursstíl. Efninu er miðlað með snert- iskjám og sýningunni fylgja mynda- sögur sem eiga að varpa ljósi á líf ímyndaðra íbúa Hofsstaða. Landnámsskálinn á Hofsstöðum styður alveg viðteknar hugmyndir um gerð þessara húsa og væri freist- andi að byggja skammt frá tilgátu- skála með öllu tréverkinu og geta litið þar inn þegar maður er á röltinu og ef til vill ornað sér við langeld. Þarna er vel að verki staðið en í fljótu bragði hugnast mér ekki sú lausn sem virðist hafa orðið ofaná til að varðveita bæj- arminjar við Aðalstræti. Nú sýna ald- ursgreiningar að þessar minjar eru aðeins yngri en landnám Ingólfs og eru því tæplega af landnámsbæ hans, nema að hann hafi síðar flutt hann. Um það eru þó engar heimildir. Von- andi hef ég rangt fyrir mér, en ef að þetta er sjálfur landnámsbærinn hefði hann þurft veglegri umbúnað en hótelkjallara. Á rölti með augun opin Einskonar áhorfendasvæði við margmiðlunargluggann, grasi vaxnir pallar og með steinhlöðnum bríkum á milli. Á svæðinu þar sem fornleifarann- sóknirnar fóru fram hefur verið komið fyrir skiltum með myndum og texta. Tvær ungar Garðabæjarhnátur sitja á gaflhleðslu Hofsstaðaskálans, sem hlaðinn var fyrir 900. Skálinn er 30 m langur. Eftir Gísla Sigurðsson, rithöfund og blaðamann Þannig hefur Hofsstaðaskálinn verið byggður. Upp úr sterklegri tóft, mannhæðar hárri, hefur risið trégrind og rýmið í skálanum hefur aðeins að litlu leyti verið með skilveggjum. Vel að verki staðið í Garðabæ Ljósmyndir/Gísli Sigurðsson Fasteignablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvak- ur hf. Umsjón Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug- @mbl.is, sími 5691323 og Magnús Sigurðsson, magnuss@mbl.is, sími 5691223, Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.