Morgunblaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 C 13
Sími 590 9500
Sími 590 9500
5-7 HERB. OG SÉRH.
4 HERBERGJA
3 HERBERGJA
www . thinghol t . is www . thinghol t . is
2 HERBERGJA
LANDSBYGGÐIN
Sigurbjörn Skarphéðinsson,
lögg. fasteignasali
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Borgartún 20,
105 ReykjavíkMán-fimmtudaga 9-18 • föstudaga 9-17
laugardaga 12-14
HÁTEIGSVEGUR 105
REYKJAVÍK
Glæsilegt 419 fm einbýlishús ásamt 50 fm bílskúr og á þessum
vinsæla stað í Reykjavík, þrjár hæðir eru innan eignarinnar auk sól-
stofupalls milli 2. og 3. hæðar, úr stofum er útgengi á stóra og flís-
alagða verönd þaðan sem liggja tröppur niður í garðinn, þetta er
einstök eign með mikla útleigu möguleika. Ásett verð: 68 millj.
SUMARHÚS NÝSMÍÐI
Fasteignasalan Þingholt, í samstarfi við Byggingafélagið Timbur-
menn, er með til sölu sumarhús sem hafa fengið nafnið SPROTI.
Húsin eru 26 fm að flatarmáli auk svefnlofts, þeim verður skilað
fullbúnum að utan einangruðum, með vönduðum gluggum, hurð-
um og gólfi. Húsin eru íslensk hönnun og smíði og henta því vel
fyrir íslenskt veðurfar. Sýningarhús er staðsett upp á Esjumelum
og er hægt að skoða það alla daga. Áhugasamir geta haft samband
við sölufulltrúa Þingholts í síma 590 9500
LAUFÁSVEGUR 63
Fallegt, virðulegt einbýlishús með mikla reisn við austanverðan Laufásveg ofan
götu. Húsið gefur möguleika til þess að taka á móti stórum hópi gesta sem vilja
hafa rúmt og notalegt í kringum sig, utan og innandyra í heimilislegu umhverfi.
Húsið skiptist í kjallara, aðalhæð, efri hæð og ris. Eldhúsið hefur verið endurnýj-
að á mjög smekklegan hátt og hannað af innanhúsarkitektnum Ragnheiði Sverr-
isdóttur, sem hefur vakið athygli fyrir vel heppnuð verk í þessu húsi, hér er sjón
sögu ríkari.
Lofthæð á aðalhæð er um 2,75 m og á 2. hæð um 2,90 m og í risi mest um 3,30
m, í kjallara er lofthæð minnst 2,37 m. Þessi mikla lofthæð undirstrikar glæsi-
leika hússins. Samþykktar hafa verið teikningar af rishæð (sem er með góðri
lofthæð og var þar herbergi vinnukonu áður fyrr), þar er gert ráð fyrir kvistum og
svölum. Samþykktar teikningar liggja frammi á skrifstofu Þingholts og eru unnar
af arkitektinum Luigi Bartolozzi. Eftir breytinar verður húsið alls 331,2 fm sam-
kvæmt skráningartöflu. Gert ráð fyrir, að stigi til rishæðar taki við af stigapalli efri
hæðar og er nægt pláss fyrir þá breytingu. Útsýni úr risi er til Háskólans, Skerja-
fjarðar, Öskjuhlíðar og Keilir blasir við í fjarska ef litið er meira til suðurs.
Um húsið er ritað í bókinni indæla Reykjavík. .......hús Magnúsar Jónssonar próf-
essors og alþingismanns nr. 63. Það er teiknað af Sigurði Guðmundssyni 1926.
Í garðinum eru afar myndarleg tré, meðal annars hlynur og silfurreinir. Takið eft-
ir hvað járnverkið er fínt í girðingunni framan við garðinn.
GLÆSILEG HEILSÁRSHÚS
Mjög vönduð, stór heils-árs sumarhús staðsett í kjarri vöxnu landi, með
fögru útsýni, í landi Eskiholts 10 km. frá Borgarnesi. Stutt er í alla þjón-
ustu og ca 8 km. til næsta golfvallar, ca 50 mínútna akstur er frá Reykja-
vík. Húsin eru byggð úr gegnheilli furu og eru mjög efnismikil með full-
búinni timburverönd. Veröndin liggur aftanvið húsið, er með húsinu að
vestan alls um 60 fm, lóð er frágengin og er að mestu birkikjarr,
skemmdir vegna framkvæmda eru í lágmarki og hefur verið grætt upp.
Vatn, vegir og frárennsli eru full frá gengin, þar sem landið var ræst fram
áður en bygging húsanna hófst.
Hægt er að kaupa öll húsin saman eða hvert og eitt sér. // Neðri hæðin er
83 fm og á efri hæð er 45 fm gólfflötur, lofthæð efri hæðar er mest 2,40
m., en vegna súðar er húsið skráð 98 fm. Glæsilegt útsýni er út Borgar-
fjörðinn og vestur á Snæfellsjökul og yfir á Ok og Langjökul. Húsin eru
klædd með hálfbjálkum að utan og panelklæddir veggir að innan, upptek-
in loft. Allar lagnir fyrir frárennsli, vatn heitt og kalt og rafmagn eru til
staðar auk rafmagsofna. Vatnslagnir að húsi eru með hitaþræði, þannig
að ekki frís í þeim á vetrum, þótt enginn sé í húsinu.