Morgunblaðið - 01.06.2004, Síða 46

Morgunblaðið - 01.06.2004, Síða 46
46 C ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MOSFELLSBÆRSérhæð Grenimelur. Nýkomin í sölu mjög vönd- uð 126 fm sérhæð auk 28 fm bílskúrs á mjög vinsælum og eftirsóttum stað í vest- urbænum. Eignin er á tveimur hæðum. Tvær samliggjandi stofur. 4 svefnher- bergi. 2 flísalagðar snyrtingar. Parket og dúkur á gólfum. Bílskúrinn er nýbyggður. Vönduð eign. V. 24,9 m. 5393 4ra-5 herbergja Lautasmári. Nýkomin í einkasölu mjög glæsileg 5 herbergja endaíbúð á 2. hæð í fallegu 2ja hæða fjölbýli. 4 góð svefnher- bergi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Eldhús með góðum borðkrók. Stofa með útgengi út á vestursvalir, þvottaherbergi í íbúð. Rautt eikarparket er í anddyri, stofu, gangi og eldhúsi. Þetta er falleg og björt íbúð á besta stað í Smárahverfinu. Stutt er í skóla og leikskóla, sem og gott úti- vistarsvæði. V. 16,6 m. 5412 Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58, www.berg.is ÁGÆTU VIÐSKIPTAVINIR! HJÁ OKKUR ANNAST LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR VERÐMAT ALLRA EIGNA, TILBOÐSGERÐ OG ALLA SKJALAGERÐ - ÁBYRG RÁÐGJÖF OG MIKIL REYNSLA - TRAUST ÞJÓNUSTA Sími 588 55 30 Grétar J. Stephensen sölufulltrúi Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Sigrún Stella Einarsdóttir lögg. fasteignasali Netfang: berg@berg.is •Heimasíða: berg.is Opið virka daga frá kl. 9-18 Lautasmári. Vorum að fá í sölu 4ra herbergja endaíbúð á mjög vinsælum stað í Smáranum. Eignin er 99 fm á fyrstu hæð með hellulagðri verönd sem snýr í suður. Íbúðin er með þremur svefnher- bergjum, rúmgóðri stofu, eldhúsi með góðum borðkrók, þvottahúsi og flísalögðu baðherbergi. Sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu er í kjallara. Íbúðin er björt og rúmgóð og stutt í alla þjónustu. V. 15,4 m. 5409 3ja herbergja Hverafold. Nýkomin í einkasölu mjög skemmtileg 88 fm íbúð auk 26 fm bílskýlis á vinsælum stað í Grafarvogi. 2 mjög góð svefnherbergi. Björt stofa með útgengi á svalir. Flísalagt baðherbergi með sturtu og kari. Örstutt í alla þjónustu. V. 13,9 m. 5414 Laugateigur. Ný á skrá. Mjög snyrtileg 76,6 fm íbúð í kjallara á Laugalæk. Björt stofa með parketi á gólfi. Baðherbergi flí- salagt í hólf og gólf. Sameiginlegt þvotta- hús á hæð. Húsið stendur í enda lokaðrar götu. Laus 1. júní. V. 11,3 m. 5406 2ja herbergja Flétturimi. Ný á skrá. Mjög falleg 67,5 fm íbúð á 2. hæð í vönduðu fjölbýli. Vand- að eldhús. Útgengt úr stofu á góðar svalir. Rúmgott svefnherbergi. Á hæð er þvotta- herbergi. Húsið er í mjög góðri umhirðu. Sérstaklega fallegur garður og allt nánasta umhverfi. V. 10,5 m. 5407 Furugrund - Laus strax. Ný á skrá. Mjög skemmtileg tæplega 60 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli á einum besta stað Fossvogsmegin í Kópavogi. Eikarparket á gólfum. Góðar svalir í suð-vestur. Falleg sameign. Óbyggt svæði í næsta nágrenni. Húsið er allt ný yfirfarið og í topp viðhaldi. V. 9,9 m. 5404 Nýtt á skrá. Afar falleg eign í Mos- fellsbæ. Íbúðin er 193,5 fm auk 38,2 fm bílskúrs. Vönduð og falleg gólfefni. Eld- húsinnrétting af vönduðustu gerð, vönduð tæki. Flísalagður garðskáli, stórar svalir og garður í fallegri rækt. Sjón er sögu ríkari!! V. 26,5 m. 5387 DVERGHOLT Nýkomið í einkasölu mjög gott 183 fm einb. á frábærum stað í Mosfellsbæ. Rúmgóð og björt stofa. 3 góð sv.herb. sem auðvelt er að breyta í 4. Tvær snyrtingar. Bílskúrinn er tvíbr. samt. 43 fm. Falleg lóð í góðri hirðu. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Sólpallur og heitur pottur. Örstutt í skóla, íþróttavöll og sundlaug. Hestavöllur o.fl. spennandi í göngufæri. V. 25,6 millj. 5360 BRATTHOLT Nýkomið í einkasölu afar glæsileg 192 fm sérh., þar af er 50 fm tvíbreiður bíl- skúr. 4 góð herb. 2 snyrtingar. Björt og rúmgóð stofa með kamínu. Eldhús búið nýlegum og vönduðum eldhústækjum. Gufuháfur. Eldavél tvískipt. Gas og ker- amik. Húsið stendur í útjaðri byggðar. Stórkostlegt útsýni til Esjunnar og yfir Tungubakka. Hiti í tröppum og innkeyrslu. Eign í algjörum sérflokki. 5314 ÁLMHOLT Í einkasölu afar fallegt og vel byggt 219 fm einb. sem stendur á góðri eignarlóð. Innbyggður 44 fm tvöfaldur bílskúr. Fallegur arinn í stofu. Eikarparket og flísar á gólfum. Ný birkiinnrétting og tæki í eldhúsi. Ný innrétting á baði. Í húsinu eru 4-5 stór svefnherbergi með skápum. Tvö baðherbergi. Hellulögð verönd með heitum nuddpotti og skjól- vegg. Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslukerfi. Gott göngufæri er í alla þjón- ustu bæjarins. V. 28,9 m. 5372 HJARÐARLAND Til sölu nýl. 200 fm einb. með stórum bílskúr. Húsið stendur á 1,3 ha eignar- lóð. Mjög rúmgóðar stofur og sjón- varpshol. Afar stórt og fallegt eldhús með eikarinnréttingu. Stórt baðher- bergi með innr. úr kirsuberjavið. 4 góð svefnherbergi. Lóðin er vel gróin og liggur að sjó. Stórkostlegt útsýni. Frábært tækifæri fyrir náttúruunnendur. Óskað er eftir tilboði í eignina. 5286 VIÐARÁS - KJALARNESI EF ÞAÐ er eitthvað sem íslenska þjóð vantar ekki í dag þá eru það græjur, já græjur af öllum mögu- legum og ómögulegum gerðum og sortum. Einhver góður íslensku- maður kann að setja hnýflana í þetta, að mörgum finnst, lágkúru- lega orð „græjur“. En þeim er hér með svarað full- um hálsi; þetta er góð og gild ís- lenska og á sinn sess í „Íslenskri orðabók handa skólum og almenn- ingi“ og hana nú. En aftur að efninu, að græj- unum. Það er sama hvar komið er á heimili landans, eldhúsið er eins og vélarúm, baðherbergið með öllu mögulegu hvítu, silfruðu og gylltu, allt verður þetta að vera skínandi. Nú er vorið komið bjart og hlýtt og þá birtast allir vambsíðu kall- arnir, reknir áfram af sínum kell- um, þeir með skóflur, gaffla, kant- skera, hekkklippur og sláttuvélar svo lítið eitt sé nefnt. Út úr skápum eru græjurnar teknar, golfsettið og ekki síst allar stangirnar, ein á hvert númer lín- unnar á hvers enda skal tróna fluga ein væn sem skal lokka margan sjóbirtinginn og laxinn og ekki má gleyma bleikjunni úr Þing- vallavatni. Svo keyrir um þverbak þegar inn í táningaherbergin er komið, þar fyrst koma almennilegar græj- ur að ungdómsins eigin áliti, græj- ur sem geta gert ömmu og afa heyrnarlaus í hálfan dag og hægt er að þeysast um alheiminn á ör- skotsstundu. En þarna eru líklega þær græjur sem einhver kann að stjórna af viti því tæplega verður það sagt um tölvuna karlsins, hann kann í besta falli að skrifa sendibréf með sinni græju. Öðru máli gegnir um jeppafolann þegar hann tekur til kostanna, þeg- ar honum er hleypt á skrið, trylli- tækið sem bæði er hægt að spæna upp hálft hálendið á sumrin og hír- ast í og láta nokkra tugi manna leita að sér í stórhríðum vetrarins. Græjurnar sem enginn kann á Þessar græjur eru svo sann- arlega til og þær eru ekki aðeins í eldhúsinu, baðinu eða bílskúrnum, þær eru í hverri vistarveru húss- ins, hverju herbergi á heimilinu. Þessar græjur stjórna hita heim- ilisins, stjórna því hvort þér líður vel á köldum kvöldum, stjórna því hvort peningarnir fjúka út um gluggann engum til gagns. Þetta eru ofnlokarnir sem stjórna hitanum. Hvað er nú það? spyrja ein- hverjir, ef ekki margir. „Er það þetta sem hangir á ofn- inum, er það þetta sem ég hengi alltaf snjógallann á í forstofunni, er það þetta sem ég hengi baðhand- klæðið á í baðinu? Þetta hefur allt- af verið þarna, gerir það eitthvert gagn, er það til einhvers, ég hreyfi það aldrei.“ Já, það er ekki ólíklegt að þann- ig athugasemdir komi fram, það er ekki einkennilegt þótt fólk kunni ekki á þessar einföldu en hagnýtu græjur. Þeir sem áttu að kenna því notk- un þeirra, lagnamenn, hafa brugð- ist, þeir settu þær upp og tengdu og hurfu á braut. Til þess að þú getir haft þægi- legan og góðan hita og eyðir samt ekki meiru en þörf krefur í upp- hitun verðurðu að hafa sjálfvirka hitastýrða ofnloka á ofnum, við ætlum aðeins að tala við þá sem hafa ofnakerfi, bara í þetta sinn. Ef ofnlokarnir eru orðnir 20 ára Maður verður að kunna á græjurnar Þetta er hitastillirinn sem um er rætt, trónir á góðum og aðgengilegum stað. Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.