Morgunblaðið - 01.06.2004, Side 52
52 C ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Núpalind - Penthouse Stórglæsileg
190 fm íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi ásamt
tveimur stæðum í bílageymslu. Íbúðin er á
einni hæð og skiptist í stórar og góðar
stofur, þrjú stór svefnherbergi, glæsilegt
baðherbergi með sturtuklefa og hornkari.
Vandaðar innréttingar og gólfefni. Frábært
útsýni. Áhv. húsb. 9 millj. Verð 30,8 millj.
Bankastræti - Penthouse Mjög góð
150 fm penthouse íbúð með glæsilegu út-
sýni í hjarta Reykjavíkur. Þrjú stór her-
bergi. Glæsilegt eldhús með massífri eik-
arinnréttingu, stórar norðursvalir út af.
Stórar stofur með góðum suðursvölum út
af. Áhv. húsb. 6,4 millj.
Fróðengi - Bílskúr Vorum að fá í sölu
glæsilega 3ja herb. íbúð á 1. hæð með
góðum sérstæðum bílskúr. Rúmgóð tvö
svefnherb. og stofa með stórum vestur-
svölum út af. Glæsil. eldhús með vönduð-
um tækjum og gott þvottaherbergi. Parket
og flísar á gólfum og fallegt útsýni í íbúð.
Áhv. húsbréf 7,4 millj. Verð 15,3 millj.
Auðbrekka - Kóp. Góð 50 fm 2ja herb.
íb. á 3. hæð í fjölb. með sérinngangi af
svölum. Þvottaherb. og geymsla á hæð.
Íbúðin snýr í tvær áttir og er góður kostur
sem fyrstu kaup enda með háu brunabóta-
mati. Áhv. húsbr. 3,5 millj. Verð 8,4 millj.
Breiðavík - Nýbygging Fallegt 240 fm
einb. á einni hæð á frábærum útsýnisstað.
Skiptist í fjögur svefnherb., skála og tvær
samliggjandi stofur. Húsið afhendist full-
búið að utan með ljósum marmarasalla,
grófjafnaðri lóð og rúmlega fokhelt að inn-
an. Áhv. 9 millj. húsbréf. Verð 24,3 millj.
Gvendargeisli 4 Glæsilegar 4ra her-
bergja íbúðir með sérinngangi ásamt
stæði í bílageymslu. Skilast tilbúnar til inn-
réttinga eða fullbúnar án gólfefna. Verð-
launahönnum. Íbúðirnar eru til afhending-
ar. Ath. aðeins 2 íbúðir eftir.
Bakkabraut 207 fm atvinnu- og íbúðar-
húsnæði. Íbúðin sem er 87 fm skiptist
m.a. í rúmgott hol / eldhús, stóra stofu og
3 svefnherb., þvottahús innan íb. Á neðri
hæð er 120 fm vinnusalur með góðri loft-
hæð, vel innréttað verkstæði, kaffistofa og
snyrting. Áhv. 11,3 millj.
Stórhöfði - sala/leiga Á glæsilegum
útsýnisstað við Grafarvoginn erum við
með tvö 340 fm skrifstofurými á 2. hæð
frá götu. Eignin er í dag tilbúin til innrétt-
ingar en mögul. er að innrétta og skipta
því upp eftir þörfum. Áhv. samkomulag.
Sala/Leiga. Eignaskipti eru möguleg.
Breiðavík - Glæsieign
Glæsilegt endaraðhús innréttað eftir
hönnun Rutar Káradóttur. Allar innrétt-
ingar eru sérsmíðaðar, spónlagðar með
hlyn, innihurðir eru extra háar rennihurð-
ir. Ljóst parket (hlynur) og náttúrusteinn
(mustang) gólfum og hluta baðveggja.
Góðar stofur, stórt og rúmgott eldhús, 3-
4 svefnherb. og tvö baðherb. Glæsileg
lóð með stórum pöllum og stóru hellu-
lögðu bílastæði. Sjón er sögu ríkari. Áhv.
húsbréf 8,2 millj.
Fagrihjalli - Útsýni
Mjög gott 170 fm raðhús á tveimur hæð-
um. Eignin skiptist í fjögur svefnherb.,
stofu og borðstofu. Eldhús með fallegri
viðarinnréttingu og flísalagt baðherbergi.
Á gólfum er vandað parket og flísar.
Glæsilegt útsýni. Hiti í innkeyrslu. Áhv.
húsbr. 7,8 millj. Verð 25,4 millj.
Skipasund - Sérhæð
Vorum að fá í sölu mikið endurnýjaða 4ra
herbergja sérhæð á jarðhæð í tvíbýlis
húsi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, rúm-
gott eldhús með nýlegri innréttingu. Björt
stofa með útgang út á suður lóð. Hús allt
ný endurnýjað að utan. Áhv. húsbr. 7,1
millj. Verð 15,2 millj.
Ártúnsholt - Bílskúr
Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í ný-
legu fjölbýlishúsi ásamt bílskúr við Ár-
kvörn. Rúmgóð stofa með góðum svöl-
um. Vandaðar ljósar innréttingar og fal-
legt ljóst parket á gólfum. Frábært útsýni
yfir borgina. Áhv. húsbr. 5,4 millj. Verð
11,9 millj.
Fyrirtæki - Tækifæri
Efnalaug og þvottahús. Miðsvæðis í Reykjavík er til sölu vel tækjum búin
efnalaug sem er vel þekkt og með góðri viðskiptavild. 80.000 kr. leiga pr. mán.
Möguleiki er á að kaupa húsnæðið sem reksturinn er í.
Innrömmun. Lítið sem ekkert notaðar vélar og tæki til reksturs lítils fyrirtækis.
Verð aðeins 400 þúsund. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur á skrifstofu Hofs.
H
varvetna gefur að líta
tréverk í görðum og við
sumarbústaði, allt frá
einföldum sólpöllum upp
í stórglæsilega hönnuð mannvirki.
Pallar, verandir og skjólveggir
auka verðgildi fasteignarinnar, en
til þess að timburverkið endist og
sé fallegt þarf að leggja nokkra
vinnu í að halda því við. Með sunn-
anvindi og hnúkaþey fer fólk að
huga að smíði eða viðhaldinu, en
með réttum aðferðum má létta sér
verkin og spara umtalsverðar fjár-
hæðir. Vigfús Gíslason sölustjóri í
Hörpu Sjöfn segir að það sé fyrst
og fremst undirvinnan sem ræður
úrslitum um endingu viðarins sem
og málningarinnar. Með góðri und-
irvinnu má lengja endinguna veru-
lega og minnka viðhald.
Gríðarmikið atriði er að huga að
meðhöndlun viðarins á öllum stig-
um málsins. Vigfús segir að í flest-
um tilfellum sé notað gagnvarið
efni í nýsmíði. Mjög nauðsynlegt er
að leyfa viðnum að jafna sig og
standa í a.m.k. viku og allt upp í
mánuð, áður en nokkuð er borið í
hann. Með því nær viðurinn að
þorna og aðlaga sig umhverfinu.
Þrjár aðferðir eru algengastar
við viðarvörn. Í fyrsta lagi er það
olía sem er borin beint á viðinn, en
þar fær viðaráferðin vel að njóta
sín. Í öðru lagi er notuð hálfþekj-
andi viðarvörn. Og þriðja lagi er
það þekjandi viðarvörn, sem líkist
þá helst málningu.
Olía á pallinn
Algengast er að nota pallaolíu á
lárétta sólpalla og er hún borin
beint á pallinn, en hálfþekjandi, eða
jafnvel þekjandi efni er notað á
girðingar.
Margir spyrja hversu oft eigi að
bera á sólpallana og hversu mikið.
Vigfús segir að erfitt að segja til
um það, það fari allt eftir aðstæð-
um. „Viðarolían er í raun sambæri-
leg við sólarvörn á húð, hana þarf
að nota eftir þörfum og meta eftir
aðstæðum hverju sinni. Olían ver
viðinn fyrir vindi og regni, og ekki
síður geislum sólarinnar, en það
eru þeir sem gera yfirborðið grátt
og flekkótt. Það sem er áveðurs og
á móti sól getur þurft meiri vörn en
þar sem minna mæðir á. Olían er
s.s. borin á eftir þörfum, viðurinn
er látinn drekka hana í sig, en það
sem sígur ekki ofan í viðinn er
þurrkað í burtu.
Á suma staði þarf kannski að
bera á tvisvar á sumri, á meðan það
nægir að bera annað hvert ár á
aðra staði.“
Allt tréverk, að pöllum sem born-
ir eru pallaolíu undanskildum, er
nauðsynlegt er að meðhöndla með
réttum grunnefnum, þ.e. grunnolíu.
Gunnolíuna má hins vegar aldrei
nota eina og sér heldur verður allt-
af að setja annað efni ofan á hana.
Vigfús segir að mikilvægt sé að
blanda ekki saman olíumeðhöndlun
og hálfþekjandi eða þekjandi vörn,
það sé tvennt ólíkt. Hann bendir
jafnframt á að það sé hér um bil
óþekkt að setja þekjandi viðarvörn
á nýja palla og girðingar. Nýtt tré-
verk í gömlum hverfum er þó und-
antekning frá þessari reglu, en þá
getur verið nauðsynlegt að mála
tréverkið svo það verði ekki æpandi
stílbrot í hverfinu.
Hálfþekjandi eða
þekjandi viðarvörn
Á húshluta, veggi, girðingar og
annað tréverk er algengt að nota
hálfþekjandi eða þekjandi viðar-
vörn. Á ný hús er oftast valin hálf-
þekjandi viðarvörn, því fólk sækist
eftir því að leyfa viðnum að njóta
sín. En eftir því sem viðurinn eldist
má búast við því að tréverkið verði
flekkótt og mislitt. „Það koma elli-
mörk á viðinn með tímanum og sú
þróun er óumflýjanleg,“ segir Vig-
fús. „Það er bara þannig, að allt
sem er úti upplitast og veðrast. Við
það að mála yfir gamlan flekkóttan
við með glærum eða hálfþekjandi
efnum, ýkjast þessir flekkir og
verða meira áberandi. Það er
þrennt sem ræður því hvernig hlut-
urinn verður þegar búið er að bera
á hann. Í fyrsta lagi er það liturinn
á efninu. Í öðru lagi er það ísog
flatarins sem málaður er, viðurinn
drekkur mikið í sig þar sem hann
er þurr, en hrindir frá sér þar sem
hann er mettur. Í þriðja lagi er það
ástand flatarins, ef yfirborðið er
t.d. orðið grátt og þurrt má búast
við því að það verði ennþá dekkra
við að taka olíuna í sig.“
Vigfús segir að þó viðurinn sé
flekkóttur þurfi það ekki að þýða
að ástand hans sé slæmt. Hafi hann
fengið eðlilegt viðhald frá upphafi
getur ástand hans verið mjög gott
þó hann sé mislitur. „Ég hef bent
viðskiptavinum okkar á að líta í
kringum sig úti í náttúrunni og sjá
hvernig allt veðrast og breytist
þegar vatn og vindar leikur óhindr-
að um það. Það sama gerist með
viðinn og er bara hluti af eðlilegri
þróun. Það er til dæmis alveg
glórulaust að fólk eyði hálfu sum-
arfríinu sínu í að slípa nýlega palla
og bera í þá aftur eingöngu til þess
að ná fram jafnari áferð. Það þarf
bara að leyfa viðnum að taka út
sinn þroska. Aðalatriðið er að það
sé borið reglulega á viðinn og að
hann fái eðlilegt viðhald.“
Að hressa upp
á timburverkið
En svo má að sjálfsögðu hressa
upp á timburverkið eftir einhver ár
og þá er heppilegt að nota hálfþekj-
andi eða þekjandi viðarvörn. Áður
en hún er borin á verður fólk að
ganga úr skugga um að undirvinn-
an sé rétt. „Það er að sumu leyti
auðveldara að halda þekjandi við-
arvörn við vegna þess að þá er flöt-
urinn alveg hulinn og ekki þarf að
taka tillit til þess hvort undirlagið
er mislitt. Hafi flöturinn verið mál-
aður með þekjandi viðarvörn áður
er mjög mikilvægt að skafa alla
lausa málningu burtu áður en mál-
„Vel skal
vanda það
sem lengi á
að standa“
Nú líður að því að fólk
fari að smíða eða dytta
að sólpöllum, girðingum
og sumarbústöðum.
Vigfús Gíslason, sölu-
stjóri í Hörpu Sjöfn,
sagði Guðlaugu Sigurð-
ardóttur að undirvinnan
gæti ráðið úrslitum um
endingu timbursins.
Vigfús Gíslason hjá Hörpu Sjöfn segir að mikilvægt sé að fólk ráðgist við fag-
menn áður en ráðist er í stórframkvæmdir.